Vísir - 10.04.1945, Qupperneq 6
6
VISIR
Þriðjudaginn 10. apríl 1945.
—S*ær í flestan sjó(
Framh. af 2. síðu.
undanteknum fyrstu mánuð-
um heimsstyrjaldarinnar.“
Formáli bókarinnar er rit-
ítður i ágúst árið 1930, 35x/2
ári - - eða um það bil þrettán
þúsund dögum — eftir að
Churchill tók burtfararpróf
úr liðsforingjaskólanum i
Sandhurst, og af þessum
þrettán þúsund dögiun telur
hann sig ekki hafa verið iðju-
lausan nema i hæsta lagi sem
svarar liálfri annarri viku!
Þessi l)ók hans ólgar líka
- f fjöri, lífsþrótti, ævintýra-
þrá, baráttugleði og ákafri
löngun til afreka. Hálf sex-
tugur er hann, þegar hann
skrifar hana, en hann eudur-
lifir atburðina, og stíllinn
bylgjar og svellur eins og
straumhörð móða, og liér og
þar fellur hann í sólglituðum
hávöðum ákafrar nautnar
þess, að finna stælingu og
spanþol þjálfaðra vöðva. Og
mundi ekki t. d. kaflinn I
aiddaraliðsorustu vera sam-
boðinn flestum stílsnillingum
. í hópi mikilla skálda?
Við fylgjum ekki Church-
íil lengur í þessari bók, en
þangað til hann er rúmlega
hálfþrítugur, en það er víða
farið og margt að sjá og
heyra. Hann berst með lier-
sveitum Spánvérja á Kúbu,
berst á ýmsum vígstöðyum
i Indlandi, tekur þátt í or-
ustum við Serki i Súdan og
á í bardögum í Búa-lýðveld-
imum. Tvisvar er hann fangi
Búa, og tvisvar strýkur hann
úr fangabúðunum. Hann er
stríðsfréttaritari, og hann
sltrifar bækur. Hann fer fyr-
irlestraferð um England,
Bandaríkin og Canada, hann
býður sig fram til þings og
fellur, býður sig fram aftur
c»g getur sér svo mikinn orð-
stír, að hann er sendur þang-
að, sem hríðin er hörðust i
kosningunum, og hann er
kosinn til þings tuttugu og
sex ára gamall. Við fylgj-
umst með hugsimum hans,
þegar hann fullur óþreyju og
kvíða bíður þess að taka tií
máls á þingi í fyrsta skipli,
og við hittum með honum
hina frægustu þingsköruuga
Breta á seinastá fjórðungi
19. aldar .... Til huggunar
þeim, sem langar til að verða
góðir ræðumenn, en finna hjá
sér vanmátt, mætti það ef tii
vill verða, að ])á er Churcli-
ill, mestur ræðuskörungur í
landi mælskunnar, hefur
unnið kosningar i erfiðu
kjördæmi, finnst houum
hann verða að skrifa ræður
í hverjn máli, sem hann ætl-
ð láta til sín taka á þingi,
og læra þær utanbókar.
Þegar - við höfum lesið
])essa bók, grípur okkur ef
til vill sá grunur, sem ....
já, sein máske er raunar á-
vallt til hjá okkur — ein-
hvers staðar í fylgsnum vit-
undarinnar að allt sé fyr-
irfram ákveðið — því er það
eklci rétt eins og þessi mað-
ur, þessi Winston Churchill,
hafi verið skapaður — og
síðan þjálfaður -— með það
fyrir augum, að hann yrði
einmitt vaxinn þeim ógn-
þrungnum vanda, sem á hon-
um hvíldi á árunum 1940—
41 — og þeirri þrekraun, sem
hann hefur síðan reynzt fær
úm að þola — meira eii þola,
])ar sem eg hygg, að þannig
r>é gerð hans, svo ríkur sé
hann af lífsþrótti, að hann
hafi benilínis notið hinnar
miklu þrekraunar? .... En
icm leið og ]>etta kynni kann-
fclce að hvarflað að okkur,
þykjumst við þess fullviss,
að jafnvel þó að Churchill
hefði verið allmiklu yngri en
hann er, þá hel'ði hlutverki
hans verið lokið um leið og
hann og þeir, sem með hon-
um berjast, hefðu unnið sig-
ur í styrjöldinni .... En . . .
en kannske hefur þá forsjón-
in líka séð veröldinni fyrir
manni, sem fær sé um að
vinna henni til handa hinn
ævarandi frið, sem liefur
verið draumur liinna spök-
ustu og beztu manna á öllum
þeim öldum, sem við höfum
spurnir af ?
Þýðandi bókarinnar, Bene-
dikt Tómasson skólastjóri og
læknir, hefur auðsjáanlega
lagt sig fram um það, að
kðma henni á góða íslenzku
án þess að glata úr stílnum
jiersónulegum áhrifamætti
höfifndarins. Og það hefur
lánazt.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Um stjóm RaisÓku.
Framh. af 4. síðu.
son, né bæjarstjóri, Ole Hert_
ervig, á fundi, lieldur var
setlur bæjarstjóri mættur
þar, og varaforseti bæjar-
stjórnarinnar stýrði lionum.
Landsmálafélagið Vörður.
Kvöldvaka að Hótel Borg föstud. 13. þ. m.
Ræðu ílytur:
Pétur Magnússon fjármálaráðherra.
Einsöngur:
Pétur Jónsson söngvan.
Upplestur:
Soffía GuðlaugsdóHir leikkona.
Gamanvísur:
Lárus Ingólfsson leikari.
Að lokum verður stiginn dans.
Aðgöngumiðar kosta kr. 15,00 og verða seldir
á sknfstofu félagsins, Thorvaldsensstræti 2 —
(sími 2339).
eftir Ragnheiði Jónsdóttur,
er nýkömin í bókaverzlanir. Þetta er ný telpnasaga,
óvenju hugðnæm og skemmtileg. Söguhetjan, sem bók-
i in ber nafn af, er 13 ára telpa, lífsglöð og fjörug, dug-
| leg að læra og duglega að slcemmta sér. Hún er éftir-
lætisbarn ríkra foreldra, en samt atvikast svo, að syst-
kinin í skúrnum verða beztu félagar liennar. Og það
er cins og alltaf hljóti eitthvað sögulegt að gerast, hvar
sem Dóra er.
Sagan er spennandi og skemmtilég frá
upphafi til enda.
HESTAMANNAFÉLAGIÐ FAKUR:
FUNDUR
/ »
verður haldinn i félaginu miðvikudaginn 11. apríl 1945
kl. 8,30 síðdegis í veitingahúsinu Röðli.
Fundarefni:
Væntanlegar lagabreytingar o. fl.
ATH. Allir þeir, sem enn ciga ógreidda reikninga
á félagið frá árinu 1944, svo og þeir, sem enn eiga ó-
greidd gjöld l'rá sama ári, geri svo vel og geri skil til
gjaldkera félágsins, Olgeirs Vilhjálmssonar (Aðalstöð-
inni) fyrir 15. þ. m.
S T J Ó R N I N.
Notað timbur.
Tilboð óskast í notað timbur. Til sýnis við Kalkofns-
veg — beint á móti Varðarhúsinu miðvikudaginn
11. þ. m. kl. 3-45 e. h.
Tilboðum sé skiláð fyrir næstkomandi föstudags-
kvöld á Lindargötu 15.
N0RDALSÍSHÚS.
Sími 3007.
BÆJARFRETTIR
Næturlæknir
er í Læknavarðstofunni, sími
5030.
Næturvörðuri
er í Lyfjabúðinni Iðunn.
Næturakstur.
annast B.s. Hreyfill, sími 1633.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir gamanleikinn „Kaupmað-
urinn í Feneyjum" eftir Villiam
Shakespeare í kveld kl. 8.
Söngskemmtun
Guðrúnar A. Símonar verður
endurtekin næstk. fimmtudags-
kveld kl. 11,30 í Gamla Bíó.
Breiðfirðingafélagið •
efnir til skemmtunar fyrir
húsmæðraskóla Snæfellinga n.k.
fimmtudagskveld kl. 8,30. —
Skemmtiatriði: Félagsvist og
dans. Þetta verður síðasta spila-
kveld félagsins á þessu starfsári.
Hrafninn verpti í nótt
eða 9 nóttum fyrir sumarmál,
samkvæmt gamalli íslenzkri þjóð-
trú. Það er líka trú manna að
þá gerði hret og var það nefnt
hrafnahret.
Iljónaefni.
Síðastiiðinn laugardag opin-
beruðu triilofun sína Dís Þórðar-
dóttir, Sóleyjargötu 11, Pétur
Stefánsson, Samtúni 10.
Útvarpið í kveld.
Kl. 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl.
19.00 Enskukennsla, 2. fl. 19.25
Hljómplötur: Lög úr óperettum
og tónfilmum. 20.20 Tónleikar
Tónlistarskólans: Kvartett í F-
dúr, Op. 59, nr. 1, eftir Beethov-
en. (Strokkvartett Tónlistarskói-
ans leikur). 20.45 Erindi: Neyzlu-
vörur. — Kjöt og fiskur (Gylfi Þ.
Gíslason dócent). 21.10 Hljóm-
plötur: Lög leikin á píanó. 21.20
Upplestur: Úr „Rubaiyat“ eftir
Omar Khayyam; þýðing eftir
„Skugga“ (Magnús Iiggertsson).
21.35 Orgelleikur í Dómkirkjunni
(Rágnar Björnsson): Tónverk
eftir Bacli. a) Casona, d-moll. b)
Ivóralforleikur (ó, höfuð dreira
drifið). c) Preludía og fúga, c-
moll. 22.00 Fréttir. — Dagslcrár-
lok.
KR0SSGATA nr. 32
Skýringar:
Lárétt: 1. Vesalingur, 6.
blómi, 8. guð, 9. ending, 10.
vélur, 12. amboð, 13. lagar-
mál, 14. læknir, 15. í'ljót í
Evrópu, 16. lieiðurinn.
Lóðrétt: 1. Halli, 2. álilaup,
3. tíndi, 4. ósamstæðir, 5.
innýfli, 7. féð, 11. hljóð, 12.
verma, 14. úrskurð, 15. frið-
ur.
RÁÐNING
Á KROSSGÁTU NR. 31.
Lárétt: 1. Plógur, 6. lasinn,
8. af, 9. S. ó„ 10. sag, 12. att,
13. Tn„ 14, æí', 15. óra, 16.
slarka.
Lcðrétt: 1. Presto, 2. ólag,
3. gaf, 4. U. S„ 5. Rist, 7. nót-
i ina, 11. án, 12. afar, 14. æra,
115. ól.