Vísir - 26.04.1945, Blaðsíða 4

Vísir - 26.04.1945, Blaðsíða 4
4 VISIR Fimmtu<lá£inn 26,, april 1945. VlSIR DAGBLAÐ Utgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIIÍ H/F Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 1 6 6 0 (fimm línur). Verð kr. 5,00 á mánuði. Lausasala 40 aurar. Félagsprentsmiðjan h/f. Skýrsla ríkisstjórnarinnar. TJáðstefna hinna sameinuðu þjóða liófst í gær " í San Francisco, en á þeim sama degi lét ríkisstjórn Islands frá sér fara skýrslu um nðgerðir ríkisstjórnar og Alþingis í sambandi við þátttöku íslendinga í stríðinu. Vafalaust hefur ríkisstjórnin ekki látið skýrslu þessa fyrr frá sér fara af þeim sökum, að hún hef- ur gert sér vonir um að okkur yrði leyfð ein- hverskonar þátttaka í ráðstefnunni,vegna sér- stöðu þeirrar, sem við höfum og hljótum að hafa í sambandi við styrjaldarreksturinn. Hitt verður að viðurkenna, að lítil óstæða virðist hafa verið til að dylja þjóðina hverju fram hefur farið í þessu máli, enda má segja að heinagrindin ein sé almenningi til sýnis og þá fyrst og fremst tillögur þær, sem mörk- uðu afstöðu þingflokkanna til málsins. Athyglivert er það, að samkvæmt skýrsla ríkisstjórnarinnar liafa Bretar og Bandaríkja- menn lýst yfir því, að af þe-irra hálfu væri engin áherzla á það lögð, að við gæfum út einhvers konar striðsyfirlýsingu, eða viður- kenningu á að ófriðarástand hafi verið hér ríkjandi frá 11. des. 1941 og að harátta okkar •béindist þá að sjálfsögðu gegn möndulveld- unura. Ýmsir héldu i uppliafi, að við yrðum að sæta afarkostum, ef stríðsyfirlýsingin væri ekkf gefin út, enda voru ýmsar kynjasögur uppi í því sambandi. Af orðsendingu stórveld- anna er auðsætt, að um ekkert slíkt hefir ver- ið að ræða, heldur liefir okkur verið sent einskonar umburðarbréf, eins og öllum öðr- um þjóðum, og þá sennilega fyrst og fremst í kurteisisskyni. Við kunnum að sjálfsögðu að íneta þá kurteisi, og liinu ber ekki að leyna, að við óskum að eiga þátt í friðsandegu sárti- starfi allra þjóða, en afslaða okkar í ófrið- inum hefir verið með þeim hætti, sem banda- mönnum hentar bezt, og við höfum eagu þar við bæta, enda allra sizt beinni eða óbeinni stríðsyfirlýsingu. Ekki er ómögulegt, að við hefðum gelað sótt ýmsan fróðleik til ráðstefnu þessarar, er sameinuðu þjóðirnar lialda þessa dagana, en hún hlýtur fyrst og fremst að snúast um skipun mála á meginlandi Evrópu og gelur þannig óbeint varðað Island og hagsmuni.þess. Fátttaka okkar í ráðstefnunni hefði vafalaust 'engu breytt, hvorki fyrir okkur né aðra, enda hefðum við að þvi lcyti farið þangað erindis- Jeysu eina. Verður því ekki annað séð, en að við getum unað okkar hlutskipti í trausti þess, iað afstaða okkar verði skilin á réttan veg, cnda standi Brctland og Bandaríkin við gefin heit, sem við tengjum miklar vonir við. Hafi öll kurl komið til grafar í skýrslu TÍkisstjórnarinnar, verður afstaða kommún- ista á engan hátt skýrð, og einkum þó ýmis ummæli, sem fallið hafa í því heygarðshorni síðustu mánuðina. Virðist engu líkara cn að ])eir tclji Islendinga hafa farið mikils á mis, cr ])eir sögðu möridulveldunum ekki stríð á hendur, til þess að gera sig hlægilega í aug- nm alheims. Annar virðist vinningurinn ckki geta orðið, — ef vinning skaf tclja,. — og svo virðist sem sendiherra Islands í Washing- ton, sem er málunum gerkunnugur, líti nokk- uð öðrum augum á málið, ef dæma má eftir blaðaummælum, sem nýlega hafa birzt. og Svía undirritaður 7. aprii. Vönir í Svíþjóð hafa aðeins hækhað um 40—70% stríðsárin. Finnar vilja skipta við íslendinga. Samninganefnd sú, er fór héðan til Stokkhólms í jan- úarmánuði síðastjliðnum, til að semja um viðskipti Svía og Islendinga fyrir yfirstand- andi ár, er komin heim. I nefndinni áttu sæti þeir Stef- án Jóh. Stefánsson, formað- ur, Arent Claessen og ÓIi Vilhjálmsson framkvæmda- stjóri S.I.S. í Stokkhólmi. Þeir Stefán Jóhann og Ar- ent höfðu fund með blaða- mönnum að Ilótel Borg ný- lega og slcýrðu þeim þar frá árangrinuni af störfum nefndarinnar. Er nelndarmennirnir fóru héðan, héldu þeir fyrst til London. Áttu þeir þar tal vjð hollenzku stjórnina í Lon- don um möguleika fyrir við- skiptum milli Hollendinga og Islendinga' á næstunni. Nefndin gekk þó ekki endan- lega frá neinum samningum við þá aðila, en fékk þau. mál í hendur brezk-íslenzku samninganefndinni, sem kom til Englands um það leyti, sem sænsk-íslenzka nefndin hélt áfram til Stokkliólms, Nel'ndin kom til Stokk- liólms 4. febrúar og vann þar síðan að samningagerðinni unz samnnigarnir voru und- irritaðir 7. ])essa mánaðar. Eru það fyrstu viðskipta- samningar, sem gerðir hafa verið á breiðum grundvelli milli Svía og Islendinga. — Hvað snertir viðskipti við Svíþjóð almennt, sagðist nefndarmönnunum svo frá, að einstökum sænskum fyr- irtækjum væri ekki leyft að gera beina samninga við er- Íenda aðila. Allur útflutning- ur á framleiðsluvörum þjóð- arinnar er hgður leyfum frá ríkisstjórninni. Eftirspurn eftir sænskuni vörum er mjög mikil alls staðar að. Er það cðlilcgt, þar sem Svíþjóð er riálega eina ])jóðin í Norð- Urálfu, sem hefir haldið framleiðslumætti sínum ó- lömuðum styrjaldarárin. I stuttu máli fjalla samn- ingarnir uni að tryggja út- flutningsleyfi á ýmsum sænsluim vöruflokkum, sem Islendinga vanhagar. Má þar nefna, auk allskonar iðnaðar- vara, efni til rafmagnsstöðv og timbur. Enn fremur leyfi fyrir allt að 28 járn- eða stál- skipum. Þar af 15- 20 (liesel- togarar og 8 stærri skip, allt að 2700 smálestir. Auk þess leyf^fyrir smíði á 55 eikar- bátum allt-að 80 smálestum, til viðbótar þeim 45, sém nú eru í smíðum fyrir Islend- inga í Svíþjóð. Svíar skuldbinda sig hins vegar til að kaupa allmikið af íslenzluim framleiðsluvör- um. Þar á meðal 125 þúsund tunnur af saltsíld, einnig nokkuð af kindakjöti frystu, hraðfrystan fisk og harðfisk, gærur, saltfisk og ull. Nokkr- ar af hinum síðasttöldu vöru- tegundum eru keyptar til reynslu. Ylir stríðið hefir vöruverð í Svíþjóð aðeins hækkað um 40—70%, en íslenzkar fram- leiðsluvörur í sumum tilfell- um að minnsta kosti um nokkur hundruð prósent. Sögðust nefndarmennirnir telja niðurstöður þessa samn- ings vel við unandi, þegar til- lit væri tekið til hins mikla verðmuns á sænskum og ís- lenzkum framleiðsluvörum. Þá skýrðu nefndármenn- irnir frá því, að fulltrúar frá finnskum stjórnarvöldum hefðu komið til fundar við þá, meðan þeir dvöldu i Stokkhólmi. Létu þeir í ljósi áhuga fyrir viðskiptum milli Finna og Islendinga. Meðal annars vildu þeir kaupa síld, frystan fisk og dilkakjöt. Nefndarmennirnir höfðu hins vegar ekki umboð til að semja við þá, en munu leggja niðurstöðurnar af viðræðun- um við finnsku fuILtrúana fyrir ríkisstjórnina til athug- unar. Maiía Guðmunds- dóitir. Fædd 12: marz 1883. Dáin 15. apríl 1945. Miimingarorð. 1 dag verður til moldar borin frá Óðinsgötu 4 María Guðmundsdóttir. Eg, sem þessar fáu línur skrifa um þessa góðu og merku konu, var ckki fróður um ætt henn- ar, enda hygg ég að það hafi verið fjarri skapi hennar, að eg færi að þyija upp ættar- tölu hennar, ])ó að þar fynd- ist máske prestur eða stór- bóndi. María var fædd að Skil- vindastöðum í Staðarsveit, og ólst þar upp. Árið 1907 giftist hún Ingvari Péturs- syni, og varð þeim þriggja barna auðið, sem öll eru á lífi og búsett hér í bænum. Þau eru Jóhann trésmiður, Jórunn, og Sveinn prent- myndasmiður. Árið 1922 missti María mann sinn, og fluttist hún þá skömmu síðar hingað suður. Það má merkilegt heita nú á tímum, að manneskja skuli vera hjá sömu húsbændunum í hartnær 20 ár, en það var María heitin. Eg hef aldrei, og það munu allír segja, sem kynntust Maríu, lyrirhitt jafn prúða og dygga konu, bæði til orða og verka, svo að af bar. Það er sagt að sönnu; að börnin hænist ekki nema að góðu fólki, cnda sóttu börnin mikið til Maríu, hvort heldur þau voru kát eða hrygg, því ])au vissu að Framk. á 6. síðu Hvað á að kalla Það fer víst að verða held- vígstöð.varnar. ur stuttur tími eftir, seni hœgt er að nefna vigstöðv- arnar á meginlandi Evrópu hinum gömlu nöfn- um þeirra, vestur- og austurvígstöðvarnar. Þegar Bretar og Bandaríkjamenn hafa náð sam- an. við hersveitir Rússa, sem úr austri koma, þá verða þessi þvældu nöfn úr sögunni. Vinstri armur herja handamanna sameinast hægra armi rússnesku herjanna og öfugt, og þegar svo verður komið, þá verða hernaðarsérfræðingar okkar að leggja höfuðin i bleyli til að finna ný o gheppileg nöfn á vígstöðvarnar, sem þá verða til. * Norður- og suð- Það virðist liggja í hlutar- ur-vígstöðvarnar. ins eðli, að ekkert nafn verði hæfara vígstöðvum þeirra herja, sem sækja norður til Helgolandsflóa, Eystrasalts og Danmerkur, en norðurvigstöðv- arnar. Hinar, þar sem handamenn sækja að fjalllendinu, sem bandamenn telja, að verði þrautavigi Hitlers, verða þá nefndar suður- vigstöðvarnar. En þá verður líka að finna ný nöfn fyrir þær tvennar vígstöðvar, sem þá eru enn ekki taldar, en geta gert kröfu til þeirra nafna, sem eg hefi leyft mér að stinga upp á handa hinum „nýju“ vígstöðvum, alveg án þess að hafa ráðgazt um það við hermálasér- fræðing minn. * Vígstöðvarnar Vigstöðvarnar i Noregi hafa í Noregi. með réttu getað heitið norður- vígstöðvarnar, þótt þær muni oftasl hafa verið kenndar við Noreg þann stutta tima, sem liðinn er siðan Rússar ráku flótta Þjóðverja inn i landið frá Finnlandi. Það er því réttast að nefna þær framvegis Noregs- vigstöðvarnar, og er ekki ósennilegt, að bar- dagar hlossi þar upp aftur, er snjóa fer að leysa i þeim héruðum, þar sem herirnir hafa tek- i ðsér stöðu eftir að Þjóðverjar hörfuðu þangað. Það gæti líka farið svo, að þessar vígstöðvar verði síðar kallaðar norður-vígstöðvarnar, þeg- rr handainenn liafa hreinsað til í Norður- Þýzkalandi og Danmörku. * V.g-tuövarnar Þá eru eftir syðslu vígslöðvarn- á r.ar — á ítalíU, — sem oft liafa verið nefndar suður-vígstöðv- arnar. Þótt þeim verði gefið nafnið ítalíu- vígstöðvarnar, þá cr ekki víst, hversu. lengi það verður réttnefni. Eins og sókn banda- manna á ítalíu gengur nú og einnig sókn Tilos handan Adriahafs, en hersveitir hans eru nii lcomnar inn i hafnarborgina Fiume, þá eru allar líkur til þess, að ítalíu-vígstöðvarnar renni. sam- an í suður-vígstöðvarnar tilvonandi. Átlundi herinn tekur þá höndum saman við Tito og sá fimmli við það lið bandamanna, sem nú stendur vörð við fransk-itölsku landamærin, og þá verður húið að slá hring um fjallavirki Ilitlers. * Fánadagur Eg geri ráð fyrir því, að það liafi Færeyinga. farið fram hjá flestum Reykvík- ingum og öðrum, að dagurinn. i gær var hátiðisdagur hjá Færeyingum. Tutt- ugasti og fimrntl apríl er nefnilega fánadag- ur þeirra, en hann er engan veginn eins gam- all og fándagurinn okkar, því að í gær var hann aðeins fimm ára að aldri. Þann dag árið 1940, þegar rúmur hálfur mánuður var liðinn frá hernámi Danmerkur, var farin kröfuganga í Þórshöfn, þar sem sett var fram "krafa uin það, að framvegis yrði notaður hinn hlá-rauð- hvíti fáni Færeyinga. Bar gangan þann árang- ur, að riæsta dag sanxþykkti þingið í Þórshöfn, að þessi fáni skyldi blakta á skipum Færeyinga. Hefir lxað verið gert síðan, svo sein þeir vita, sem séð hafa færcysku skipin hér á undan- förnum árum. * Færeyingar og Færeyingar geta sannarlega íslendingar. sagl um sjálfa sig, að þeir sé „fáir, fátækir, smáir“, og í samanburði við þá erum við íslendingar stór þj.óð og auðug. Þess vegna getum við skilið baráttu þeirra, bæði fyrir lífinu og á sviði stjórnmálanna. Við erum orðnir alfrjálsir, en þeir eru enn á þvi stigi, sem við vorum á fyrir mörgum tugum ára. Þessi líking á hög- um okkar þá og nú skapar samúð milli þjóð- anna, og nú á striðsárunum hefir orðið tals- verið sainvinna milli þeirra í ýmsum efnum. Fer vel á því, að henni verði haldið áfram á komandi áruin. Ef við getum á einhvern liátt orðið Færeyingum að liði, þá ættum við að verða það.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.