Vísir - 07.06.1945, Page 3
Fimmtudaginn 7. júni 1945
VlSIR
3
Almennt þing barnakennara verður Itáðhér í bænum dag-
ana 11—20 júni næstkomandi.
Sérstaklega verður
rætt um nýju skéla-
■■■#■
loggjofma,
||kveSiS hefir veriS aS
halda almennt barna-
kennaraþing hér í bænum
dagana 18. til 20. júní n.k.
í tilefni af því hefir Vísir
haft tal af Ingimar Jóhanns-
syni kennara, sem er stjórn-
arformaður Sambands ís-
lenzkra barnakennara, og
innt liann frétta í sambandi
við fyrirkomulag þessa
væntanlega þings. Fer hér á
eftir viðtal við Ingimar:
Þið ætlið að halda kenn-
araþing núna?
Já, það verður haldið hér
í bænum og hefst mánudag-
inn þann 18. júní. Almenn
barnakennaraþing eru hald-
in hér annað hvert ár, en
þess á milli — einnig annað
hvert ár — eru haldin hér
fulltrúaþing kennara. Á al-
mennum kennaraþingum er
öllum barnakennurum á
landinu heimil þátttaka og
þá æskilegast, að sem flestir
mæti. Nokkuð öðru máli
gegnir um fulltrúaþingin,
Jdví að þar eru aðeins mætt-
ir kosnir fulltrúar, livaðan-
æfa að af landinu.
Flvað er svo rætt á þess-
um þingum?
Á álmennu kennaraþing-
unum eru tekin fyrir ýms
fræðslu- og uppeldismál,
sem efst eru á baugi hverju
sinni, en á fulltrúaþingun-
um er rætt um ýmis konar
aðkallandi framkvæmdar-
og áhugamál' barnakennara-
sléttarinnai-.
Er nokkuð ákveðið 'um
dagskrá komandi þings?
Að visu er það ekki full-
ráðið ennþá, en eins og á
fyrri almennum kennara-
þingum verða flutt þar ým-
iss konar fræðsluerindi, en
auk þess hefir sérstaklega
verið ákveðið að ræða nýju
skólalöggjöfina. I því sam-
vbandi má geta þess, að skóla-
inálanefnd, sem hefir starf-
að undanfarið ár, mun senda
mann lil þess að lialda
fræðsluerindi um barna-
fræðslu og gagnfræðamennt-
un, og mun í þessu lilfelli
einnig rætt um menntun
kennara.
Er ákveðið, hverjir verði
framsögumenn á þinginu?
Já, að nokkru leyti, Helgi
Elíasson, fræðslumálastjóri,
mun ræða um barnafræðslu
og Ingimar Jónsson, skóla-
stjóri, um' gagnfræðamennt-
un.
Þá má og' gera ráð fyrir,
að að minnsta kosti einn
námsstjóri verði fenginn lil
þess að flytja erindi á þing-
inu, en ekki er enn ákveðið,
hver það verður. Námstjór-
arnir eru manna kunnugast-
ir málúm stéttarinnar úti á
lándi.
Eru svo ekki frjálsar um-
ræður?
Jú, að sjálfsögðu verða svo
frjálsar umræður kennara
eftir hverja framsöguræðu
og síðan ályktanir gei'ðar um
jnálin, svo sem vera her. Þá
er og einnig ætlaður nokkur
tími til umræðna um, önnur
mál, sem kennarar kynnu að
vilja ræða. Má og geta þess,
að forvigismenn fræðslu-
mála hér á landi munu mæta
á þinginu, bæði kennslu-
málaráðherra og fræðslu-
málastjóri, sem eins og fj7rr
segir mun hafa frámsögu um
barnafræðslu.
Hvar verður þingið háð?
Það verður haldið i Kenn-
araskólanum og er gert ráð
fyrir, að það standi í 3 daga.
Mun því Ijúka með samsæti,
sem haldið verður í Tjarnar-
café miðvikudaginn 20. þ. m.
Ráðgerð eru mörg skemmti-
alriði í sambandi við þetta
samsæti. Samkór Rej^kjavík-
ur syngur undir stjórn Jó-
hanns Tryggvasonar kenn-
ara, Haraldur Rjörnsson,
leikari og kennari, les upp
og einsöngvari mun syngja,
en óákveðið er enn, hver
það verður. Auk framan-
skráðs verður ýmislegt ann-
að til skemmtunar.
Er nokkur leið að spá fyr-
ir um það, hve margir kenn-
arar sækja þingið?
Nei, það er með engu móti
hægt að segja ennþá, en við
gerum okkur vonir um, að
það verði fjölsótt, og' ekki
síður fyrir þá sök, að nú ný-
lega hafa kjör kennara verið
mikið hætt, svo gera má ráð
fyrir, að kennarar gefi sér
frekar tíma til þess að mæta,
en ella væri. Auk þess stend-
ur yfir kennaranámskeið liér
í bænum núna, og eru á því
um 50 kennarar, sem flestir
eða allir munu sækja þingið.
Hvað komu margir kenn-
arar til síðasta þings?
Þeir voru í kringum 150,
víða að af landinu.
Hverjir sjá um þetla þing?
Það er stjórn Sambands
islenzkra barnakennara, en
í henni eiga sæti, auk mín,
Guðm. f. Guðjónsson kenn-
ari, Sigurður Thorlacius
skólasjóri, Arngrímur Krist-
jánsson skólastjóri, Jónas B.
Jónsson fræðslumálafulltrúi,
Pálmi Jósepsson yfirknnari
og Gunnar M. Magnúss rit-
Iiöfundur. I stað Arngríms
Kristjánssonar, sem nú dvel-
ur í Englandi, hefir starfað
Guðjón Guðjónsson skóla-
stjóri í Hafnarfirði.
Von á hraðvirkum vegavinnuvélum
til landsins.
Reykjaheiði væntanlega fæi um helgina.
Geir Zoéga vegamálastjóri
hefir tjáð Vísi að innan
skamms væri væntanlegar
nokkurar stórvirkar vega-
vinnuvélar til landsins.
Vegamálastjórinn hefir
p.antað um 30 slíkar vélar til
landsins, en hann sagði að
miklir erfiðleikar væru á því
að fá þessar vélar og liann
gera sér litlar vonir um að
fá nema lítinn hluta þeirra
eins og sakir stæðu.
Vegavinna er almennt haf-
in eða er í þann veginn að
hefjast um land allt. Af ný-
byggingu fjallvega má t. d.
nefna veg yfir Oddsskarð
milli Eskifjarðar og Norð-
fjarðar. Þá verður haldið á-
fram við fjallvegina yfir
öxnadalsheiði, Vatnsskarð,
Siglufjarðarskarð og Þorska-
fjarðarheiði.
Ófært er enn til Austur-
landsins og ekki vitað hve-
nær leysa tekur svo að fært
Sjómaimadagimiiit
á Isafizði.
Sjómannadagurinn á ísa-
firði var prjTðilega sóttur af
bæjarbúum. Helztu atriði
dagsins voru þau, að kl. 10
var gengið frá bæjarbryggj-
unni til kirkju. Þar messaði
sóknarpresturinn. Kl. 1 e. h.
hól'st útiskemmtun og fór
þar fram kappsund, kapp-
róður og reiptog. Kl. 8 síðd.
hófst inniskemmtun , með
ræðu, sjómannakórinn söng
og verðlaun voru afhent. —
jEinnig var afhent minning-
grgjöf frá Ólafi Samúelssyni
og konu hans til Jóns Rjörns-
sonar, er bjargaði Samúel
syni þeirra síðastliðinn vetur.
Einnig var sjómannadag-
urinn lialdinn hátíðlegur í
Hnífsdal, Súðavík, Rolungar-
vík, Súgandafirði, Flateyri,
Þingeyri, Ríldudal og Pat-
reksfirði. Var hvarvetna mik-
il aðsókn almennings og dag-
urinn hinn hátíðlegasti.
Arngr.
verði, en hinsvegar er húizt
við að Reykjaheiði verði
opnuð um næstu helgi og
verður þá fært til Keldu-
hverfis og til Kópaskers.
Norskum kennur-
um boðlð hingað
til lands.
|ngimar Jóhannsson kenn-
ari, formaður stjórnar
Sambands íslenzkra barna-
kennara hefir tjáð blaðinu,
að á stjórnarfundi sam-
bandsms, er haldinn var þ.
28. maí s.l., hafi verið sam-
þykkt að bjóða hingað til
lands 10 norskum barna-
kennurum frá norska kenn-
arasambandinu.
Er ráðgert að kennararnir
komi hingað í ágúst n. k. og
dvelji hér í 2—3 vikur. Mun
íslenzka kennarasambandið
kosta uppihald kennaranra
meðan þeir dvelja hér. Enn
er ekki komið svar að utan,
en skeyti var sent til Arn-
gríms Kristjánssonar skóla-
stjóra, sem nú mun vera
kominn til Noregs, og hann
beðinn að koma boðinu á
framfæri við hlutaðeigandi
kennarasamband. Er svar við
skeytinu væntanlegt hvern
dag og má telja víst, að
norsku kennararnir þiggi
boðið.
Leiðrétting.
Fyrir skömniu birtist hér i
blaSinu söfnunarlisti frá Frakk-
landssöfnuninni, og var meinleg
villa með i honum. Þar stóð:
-'„Frá konum á Hvolsvölluib' 30
krónur,“ en það átti að vera
630 krónor. Leiðréttist þetta hér
með.
Efri myndin sýnir nokkra af mönnuni þeim, sem unnu
ao slökkvistörfum í IJeiðmörk i fyrrac’.ag. — Neðri mynd-
in er af bruna vestur við sjó. Ilefir eldur kviknað i sorp-
haugunum.
Veildail sænskia malmiðnaðai-
manna skapai eiliðleika héi.
Enginn Svíþjóðarbátur enn fullgerður og smí?i véla
hluta og símatækja seinkar.
Járniðnaðarverkfallið í
Svíþjóð ætlar að hafa tals-
verð áhrif hér á landi.
Verkfall þetta hefir nú
slaðið í fulia fjóra mánuði,
því að það byrjaði í febrú-
arbyrjun. Ilefir það leitt til
þess, að engin vél í báta þá,
sem nú eru í smíðum fyrir
Islendinga í Svíþjóð, befir
verið fullgerð, en finnntán
bátanna átlu að vera tilbún-
ir áð öllu iejúi fyrir 1. júní.
Þegar vinna loksins hefst,
mun, líða talsverður timi
þangað til fyrstu vélarnar
verða tilbúnar frá yerk-
smiðjanna iiálfu og ioks bæt-
ist það við, að nokkurn tíma
tekur að setja þær niður.
Eins og sakir nú standa,
munu því litlar horfur á því,
að fyrstu bátarnir komist til
landsins fyrr en undir
haustið.
VELAHLUTAR.
' En verkfall þctta í Svíþjóð
Kappieiðai
í EyjjafiiðL
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri.
Hestamannafélagið Léttir
efndi til kapprciða á skeið-
velli félagsins við Eyjafj.arð-
ará nýlega. Keppt var i 250,
300 og 350 metra stökki. Á
250 melra vecalengd sigraði
Róatír Gunnbjarnar Egils-
sonar á 21.5 sek. Á 300 meír-
um sigraði Stjarni Þorvaldar
Péturssonar á 25 sek. Á 350
metrum Stjarna Bjarna
Krislinssonar á 28.8 sek. —
Veðbanki var rekinn í sain-
bandi við lilanpið og var það
ágætlega sótt úr bæ og ná-
grenni.
Job.
nær til okkar á annan hátt
einnig, því að ýmsar aðrar
vólar cn bátavélarnar voru
þar í smíðum fvrir isienzka
aðila, auk ýmiskonar vara-
Iiluta, sem brýn þörf er fvr-
ir. Munu síldarverksmiðj-
urnar meðal annars eiga
pantanir í þesíjari grein i
Svíþjóð.
SÍMATÆKI.
Loks mun verkfallið Iiafa
áhrif á afhendingu sima'-
tækja, sem hingað á að fá.
Vísir hefir fengið þær upp-
lýsingar lijá bæjarsima-
stjóra, Bjarna Forberg, aö
tæki til símans liér hafi átt
að vera lilbúin í haust, en
eins og riti horfir, verða þau
ekki til fyrr en um eða eftir
áramót.
Mlt kynt i Meppo.
Verkfalli því, sem staðið
hefir í Aleppo í sextán daga
er nú lokið.
Er borgin nú aflur í járn-
brautarsambandi við aðra
blula landsins og ailt þar
með kyrrum kjörum.
Ró og friður er að færast
vfir allt landið og Bretar
afbenda sýrlenzku stjórn-
inni eitlhvað af vopnum, til
þess að hún geti æft aukið
lögreglulið til að halda uppi
reglu.
Fyrsta eínalaugin í Haínar-
íirði tekur til staría.
Nýlega var opuuð ný efna-
laug og falapressa i Hafnar-
firði. Er það hin fyrsta þar
i bæ. Vélar og uppsetningu
annaðist Vélsmiðja Einars
Guðmundssonar. — Fram-
kvæmdastjóri efnalaugar-
innar verður Stefán Sigurðs.
son kaupmaður.