Vísir - 21.06.1945, Blaðsíða 6

Vísir - 21.06.1945, Blaðsíða 6
6 VISIR Fimmtudaginn 21. júní 1945 =yÍÐsjÁ~ GJÖF TIL IIEYSINS i TÚNIS. Þegar styrjöldinni í Norð- iir-Afríku var lolcið, var af- róiðið i ameríska hernnm að ó/efa beynum í Tunis ein- Jwerja vinargjöf. Var liöf- uðsmanni einum falið að fara ói fund beysins og hon- um leið alls ekki vel, meðan hann naut gestrisni hins ara- biska höfðingja. Höfuðsmaðurinn fór i bezta einkennisbúning sinn, kleif iij>p í kríl og ók til hall- ■arinnar, en er þangað kom, var hann þegar sannfærður um, að hann hefði farið hallavillt eða komið á vit- láusum tíma. Ilann sá ekki betur en að beyinn ætti von á einhverjum lignum gesti. Rauður gólfrenningur lói alla teið utan af götu og upp á líallarþrejnn, en báðum meg- in við hann slóðu innbornir hermenn í skrautlegum her- klæðum. Glæsilega búinn ijfirþjónn gekk til móts við höfuðs'manninn og hjálpaði honum iil að stíga úr úr krílnum, en um leið hóf lúðrasveit að leika „Star Spangled Banner“, en hafði þó sínar eigin „variationir", og hermennirnir heilsuðu mcð byssunum. Höfuðsmað- urinn var nú sannfærðúr um, að um einlwer mistök væri að ræða, en lét þó fylgja sér lil móttökuherbergis beys- ins. fíeyinn tók höfuðsmann- inum mjög alúðlega og leiddi hann iit að glugga, þar sem tifvörður hans framkvæmdi ýmsar æfingar til heiðurs Jcomumanni. Er svo var Jcomið virtist beyinn bíða eft- ir því, að gestur hans tæki til máls. Höfuðsmaðurinn ræskti ■sig. „Yðar hátign,“ tók hann til móils, „eg veit, að það er venja, að gestir yðar færi •yður gjafir.“ fíeyinn brosti. „En eg hefi þoi miður enga fíjöf meðferðis.“ fíeyinn varð sýnilega fyrir vonbrigðum. „En það var einungis vegná þess, að eg vissi ekki, hvað ~eg ætti að gefa yður. Ef þér viljið segja mér, hvaða am- erískan hlut þér girnist, þói skal eg láta senda yður hann á morgun.“ Ilann var varla búinn að sleppa orðinu, þegar ægi- lcgri hugsun skaut upp í huga hans: Ef hann biður nú um flugvirki eða orustuskip? Vesalings höfuðsmaðurinn var alveg á nálum, meðan beyinn hugsdði sig um. Lólcs- ins lók beyinn lil máls: „Mér kæmi það vél, ef þér send- uð mér tyggigúmmí handa rlætrum mínum.“ Því verður ekki með orð- um lýst, hversu höfuðsmann- iiuiin létti við þetta, en þeg- ar hann fór að leita að iýggígúmmíbirgðum í borg- i'nni, kom það á daginn, að ekkert var til af þeirri ágætu vörui Iieiður fíandarikjanna imr í veði, svo að ekki var um annað að gera en að senda neyðarskeyti til Eis- genhowers. ' Næstá ddg kom flágvél "jneð stóran kassa frói aðal- V-töðvum Eisenhowers. Kass- Mnn var fullur af tyggigúmmí <>g utan á hann var letrað: ZFil beysins af Tunis frá ’JSisenhower hershöfðingja. Karlmaimanærföt, Ermalauslr bolir og stuitar buxur. Síldarklippur fyíirliggjandi. Geysir h.L Veiðarfæradeildin. SKRIFSTOFUVÉLAR RITVÉLAR FYRIRLIGGJANDI. Eigum von á að fá til landsins á næstunni: „Dictaphone" fyrirlestrartæki, „Talk-A-Phone“ innanhússímasamstæður. Kristján G. Gíslascn & Co. H/F. BEZT 13 1UGLÝSA I VÍSI. K.R. vann Víking Fjórða leik Reykjavíkur- mótsins lauk þannig, að K. R. sigraði Víking með 3:0 eftir ójafnan leik. Enda þótt Víkingar léku undan hliðargolu í fyrri hálfleik, liéldu KR-ingar uppi sókn mestallan tímann. Fengu þeir livað eftir annað upplögð tækifæri til að skora en annaðhvort mistókst það eða þá að Anton, hinn ágæli markvörður Víkings, hjarg- aði. í lok hálfleiksins tókst Hafliða Guðmundssyni (Iv. R.) loks að skora með óverj- andi skoti. f síðari liálfleik lék K. R. undan golunni og náði brátt yfirburðum. Setti Hörður Óskarsson þá 2 velskoruð mörk, svo leiknum lauk 3:0 K. R. í hag. KR-ingar höfðu nú endur- heimt markmann sinn, Sig- urð Jónsson, sem verið liefir forfallaður vegna meiðsla -— og varð liðinu mikill styrkur að því. í Víkingsliðinu munu hafa' Jeikið nokkrir varamenn og sáust þess glögg merki, því alla festu virtist vanta í liðið. Áhorfendur voru i færra lagi, þrátt fyrir allgott veð- ur. Dómari var Guðmundur Sigurðsson. LISTAMANNASKÁLINN er til'leigu i sumar, til alls konar sýninga, fundarhalda og skemmtana. Allar nánari upplýsingar í Lislamannaskálanum frá kl. 3—6. Sími 6369 og 3607. Ford-vörubíll, model ’30, með úrbrædda vél, til sölu. Uppl. Laugaveg 43, 1. hæð, eftir kl. 7 í kvöld. NÝBÖK: Símon lóh. Ágústsson: MANNÞEKKING Rit þetta fjallar um þekkingu manna og mat á sjálfum sér og öðrum. Þetta er bók handa þcim, sem láta sig. skipta vandamál nútímans og vilja liagnýta sér gagn það, sem sálarfræðin veitir okk- ur í umgengni við aðra menn og í við- lcitni okkar til betri geðstjórnar. Dr efni bókarinnar: Dulvitund, Sefjun, Dáleiðsla, Sálgerðir, Gáfnapróf og hæfi- leikakönnun, Stöðuval, Nám,Vani, Starf og þreyta, Andleg heilsuvernd, Van- metakennd, Kenning Freuds, Múgsefj- un, Aróður, Sálarlíf kvenna. Þetta er fyrsta bókin í nýjum flokki fræðirita undir nafninu: „HUGUR OG HEIMUR“. BÆJARFRETTIR Næturlæknir er í Læknavarðstofunni, simi 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. Næturakstur annast bst. Hreyfill, simi 1033. Veðurhorfur. Suð-Vestúrland: Slinnings- kaldi á austan og rigning. Faxa- flói, Breiðafjörður, Vestfirðir, Norðurland og norðausturland: Vaxandi austanált og rigning með köflum. Austfirðir og suðaustur- land: Austan kaldi og rigning. Veðrið í dag. Hér á landi er austan átt og i'igning víðast hvar. Hili er 7 —12 stig. Fyrir sunnan landið er ail víðáttumikið lægðarsvæði á hægi lireyfingu norður eftir. Leikfélag Reykjavíkur sýnir skopleikinn „Gift eða ó- gift?“ annað kvöld kl. 8. Nú eru aðeins tvær sýningar eftir á þess- um skemmtilega gamanleik, og fer þvi hver að verða síðastur áð sjá hann. Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir gamanleikinn „Hrepps- stjórinn á Hraunhamri" eftir Loft Guðmundsson, annað kvöld kl. 9 í leikhúsi bæjarins. Hjúkrunarkvennablaðið, 2. tbl. 21. árg. er komið út. Blaðið er vandað og efnismikið eins og endranáfer. Af efni þess má nefna: Orthopedi, Minningarorð um Vilborgu Stefánsdóttur. Minn- ingarorð um Margréti Guðríði Valdimarsdóttur. Lög um lífeyris- sjóð hjúkrunarkvenna. Kjarabæt- ur hjúkrunarkvenna og fl. Blað- ið er vandað. Útvarpið í kvöld. 19.25 Hljómplötur: Söngdansar. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór- arinn Guðmundsson stjórnar). a) „Galathea hin fagra,“ eftir Suppé. b) Listamannalíf, — vals eftir Strauss. c) Romanze eftir Tschaikovvsky. d) Marz eftir Herzer. 20.50 Frá ýtlöndum (Björn Franzson). 21.10 Hljóm- plötur: Horovvitz leikur á píanó. 21.25 Erindi: Fremsta kona Kína- veldis (fröken Inga Lárusdóttir). 21.50 Hljómplötur: Olafur Magn- ússon syngur. 22.00 Frétfir. — Dagskrárlok. Lúðrasveitin Svanur leiluir i Hljómskálagarðinum í kvöld kl. 9, e£ veður leyfir. — Sljórnandi Karl O. Runólfsson. KROSSGATá nr. 75. Skýringar: Lárétt: 1 Lítil, 3 hætta, 5 bókstafur, 6 fangamark, 7 sjá, 8 hár, 10 á fati, 12 atv.orð, 14 kveikur, 15 hvílir, 1/ íþróttafélag, 18 hækkaði. Lóðrétt: 1 Men.ntastofnun, 2 geð, 3 kaupm. í Rvík, 4 gera línur, .6 hemla, .9 hatur, 11 förunáutur, 13 stórfljót, 16 guð; Ráðning á krossgátu nr. 74: “ Lárétt: 1 Lóa, 3 orm, 5 öl, 6 s.s., 7 kýr, 8 ur, 10 pass, 12 raf, 14 mat, 15 kör, 17 U.U., 18 sitrar,. Lóðrétt: 1 Lögur, 2 ól, 3 Osram, .4 misstu, 6 sýp, 9 raki, 11 saur, 13 föt, 16 R.R.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.