Vísir - 18.12.1945, Side 7
Þriðjuclaginn 18. desember 1945
VISIR
Súml. 433 þús. hr.
safnað til norskra
harna.
I
Um 3000 þakkarbréí frá
norskum börnum hafa
borist.
Blaðinu hefir borist
skýrsla framkvæmdanefndar
„Barnahjálpar“ S. f. B. Sýn-
ir skýrsían áð söfnun sú,
sem S. f. B. gekks fyrir, nam
433,903,67 kr. er henni lauk.
Mestu fé söfnuðu börnin í
Austurbæjar- og Miðbæjar-
skólunum í Reykjavík, eða
rúmar 70 þús. kr. alls. Hinn
bluti fjárins safnaðist hjá
öðrum skólum hér og víðs-
vegar um land.
S. 1. vor voru sendir til
Noregs 16 þúsund matar-
pakkar. Fengu börnin þá, er
skólarnir hættu þá um vorið.
Með hverjúm pakka fylgdi
kort, sem útskýrði livaðan
þessi pakki væri o .s. frv.
„Barnahjálp“ hefir fengið
möi’g þakkarbréf frá ýmsum
aðilum og meðal annars 3000
bréf frá norskum börnum.
Bréfunum fár börnunum var
skip i lilutfalli við fjölda
barna í hverjum skóla og
verður þeim útbýtt á meðal
skólabarnanna.
Þegar „Barnahjálp“ hóf
starf sitt, gerði framkvæmda-
nefndin sér vonir um, að geta
koxnið peningum íil vissra
barna i Noregi og var það í
samræi við tillögur frá sendi-
ráðinu í Stokkhólmi. En ald-
rei tókst að fá yfirfærsluleyfi,
þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir. Var ætlunin að senda pen-
inga úr svokölluðum Fóstur-
sjóði Noregs. í sjóði þeim eru
nú um 50 þúsunnd krónur.
í þjóð þenna geta allir gef
ið sem eitthvað vilýa láta af
hendi rakna við bágstödd
) norsk börn.
Erla:
Fííulogar,,
Þetta er önnur ljóðabók
Erlu skáldkonu. Vitað er að
höfundurinn er bóndakona á
Austfjörðum, sem grípur til
ljóðagerðarinnar í hjáverk-
um, eða þegar annir dagsins
leyfa. Hún er gædd ríkri
skáldhneigð og kveður margt
mjög vel, en ekki verður
sagt að hún velji sér verk-
efni af erfiðara tagi, frekar
en ýmsir jxeir, sem nú helga
sig ljóðlistinni. Kvæðin eru
tilgerðarlaus, margar setn-
ingar prýðilega sagðar og
lausavísurnar margar ágæt-
ar, en þær eru jafnmargar
dögum ársins, og raunar
fleiiá ef allt er til tínt fram-
an við Almanak Erlu.
Erla skipar sess sinn með
prýði og mun ávallt verða
talin i hópi góðra skáld-
kvenna, sem skipa má í flokk
með beztu skáldum þjóðar-
innar.
Barnakennaraíélagið
stærsta kennarafélag
landsins.
Stétlarfélag barnakennara
í Reykjavík liélt nýlega aðal-
fund sinn. Þessir voru kosnir
í stjórn: Ilannes M. Þórðar-
son, formaður, Ársæll Sig-
urðsson, ritari, Ivlemens Þor-
leifsson, féhirðir, Unnur
Briem og Jón Guðmundsson,
meðstj órnendur.
Félágið er stærsla kenn-
arafélag landsins og liefir
starfað síðan 1931.
BZinstefnM"
s&kstnr í
ÆnrðnrnBýwi.
Lögreglan hefir gert til-
lögur um, að einstefnuakstur
verði um margar götur í
Norðúrmýri.
Er lagt til, að ekið vei'ði
frá vestri til austurs um
Skarphéðinsgötu, en síðan
frá austri lil vesturs um
Mýtt bygginga-
sanivinnuféBag
Byggingasamvinnufélag
var í gær stofnað innan vé-
banda starfmannafélags rík-
isstofnana.
Á fundinúm voru lögð
fram drög að lögum fyrir
félagið og stjórn kosin til
bráðabirgða. Var sljórninni
falið að athuga lagafrum-
varpið og leggja síðaii fyrir
framhaldsstofnfund, sem
lialdinn yrði fyrir n. k. ára-
mót.
I stjórnina voru kosnir
Guðjón B. Baldvinsson deild-
arstjóri, formaður, og með-
stjórnendur Ölafur Sveins-
son forstjóri, Jón Bi'ynjólfs-
son skrifstofustjóri, Alex-
ander Guðmundsson fulltrúi
og Guðm. Einarsson bókari.
Rúmlega 40 manns mættu
á fundinum og ríkti mikill
áhugi fy.rir stofnun og starf-
semi félagsins.
Karlagötu, sem er næst fyrir
sunnan og síðan sitt á hvað
allt suður til Bollagötu.
Neslcirkju hefir borizt að gjöf nokk-
ur þúsund eintök, af lítilli bók er
nefnist
Jólasálmar
Bókin er prentuð á góðan pappír,
með skínandi fallégri foi-síðumynd.
Allir algengustu jólasálmar eru í
bókinni. — Er það vænst að Reyk-
víkingar bregðist vel við og kaupi
þessa bók, sem er ljómandi vel fall-
inn að vera látin í jólapakkann. —
Látið JóBasáSmavia í jóEa-
pakkann. Ekkert heimiii
án JólasáEmanna.
Jólasálmarnir
í öltam lóluil)ií<)iini.
Handritið, sem boðið var í 100 milljónir lira
Dagbók Cianó greifa
inatiij
Bókin, sem allur heimurinn keppist við að ná í,
komin út á íslenzku.
Kostar aðeins kr. 15,00.
, Helgafelh Æönlstr. ItS
■ \ ■ :Hö'itö H9i nii . ■ A I
hn eia gagnmerkasta sjálisævisaga
skriíuð ai tslendmgi:
Ævisaga séra Jóns
Steingrímssonar
Allir Islendingar kannast við „eldmessuna“, sem tal-
ið er að hafi stöðvað hraunflóðið mikla í Skaftár-
eldunum. Hvort sem svo hefir verið í raun og veru
eða ekki, hitt er víst, að síra Jón Steingrímsson
taldi kjark og trú ; fólkið í skelfingum þess og
hörmungum, svo að nafn hans mun um aldir geym-
ast fyrir.
En ævisaga Jóns Steingrímssonar er ekki aðeins
heimild um hina ægilegu' Skaftárelda, hún er frá-
bært heimildarrit um líf og hætti þjóðarinnar á
18. öld.
Allir Islendingar verða að eignast ævisögu séra Jóns
Steingrímssonar, fegurstu jólabókina á þessu ári.
Utgefandinn er Skaftfellingafélagið í Reykjavík, en
aðalútsala í Helgafelli, Aðalstr. 18. — Sími 1653.