Vísir


Vísir - 05.01.1946, Qupperneq 4

Vísir - 05.01.1946, Qupperneq 4
4 VÍSIR DAGBLAÐ Útgefandi: BLAÐAUTGÁFAN VlSIR H/F Ritstjórar: Kristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm línur). Verð kr. 5,00 á mánuði. Lausasala 40 aurar. Félagsprentsmiðjan h.f. Skylda kjósendanna. Einhver hluti Sjálfstæðisflokksins og komm- únistaflokkurinn allur „byggja á bjargi nýsköpunarinnar“ og vinna saman í ríkis- stjórn, þótt út frá ólíkum forsendum sé geng- ið. Þar sem um svo náið samstarf er að ræða, virðist ekki óeðlilcgt að kjósendur ruglist í ríminu, er gengið verður til kjörborðs, enda ber að velja í rfiilli ol'angreindra aðila, sem standa að og bera ábyrgð á núverandi stjórn- arsamvinnu. Sumir telja líklegt, að bugsan- legt sé að sámstarfsgrundvöllurinn verði breikkaður verulega, þannig að bæjarstjórnin verði innlimuð í samvinnuna, á sinn máta eins og eignir á Skildinganesi cru inn- limaðar í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur. Hinsvegar verður að ganga út frá að ekki dragi til slíkrar samvinnu innan bæjarstjórn- arinnar, ef einn flokkur hefur þar meirihluta, með því að þótt náungans kærleikur cigi rik ítök í björtum sumra sjálfstæðismanna, og ])á einkum kærleikurinn til kommúnista, verð- ur þó að gera ráð fyrir að slíkir menn gangi ckki svo langt í þjónkun sinni við þá, að þeir afneiti þeim hcimsgæðum, sem lögð kunna að verða upp í hendur þeirra af kjósendunum. Nú er vitað, að enginn einn flokkur cr líkleg- ur til að ná meirihluta í bæjarstjórninni, nema Sjálfstæðisflokkurinn, sem stuðzt liefur þar við breinan meiribluta allt til þessa. Vilji menn koma í veg fyrir aukin álirif kommún- ist, verður það ekki gert á annan hátt I)etur en ,að tryggja Sjálfstæðisflokknum breinan meirihluta og hann sem mestan og öruggastan. Reynist úrslit kosninganha önnur og lakari en gera má ráð fyrir, þannig að Sjálfstæðis- ílokkurinn nái ekki meirihluta í bæjarstjórn, befst vafalaust samningamakk milli þeirra flokka, sem bæjarstjórnina skipa, samfara margvíslegum hrossakaupum og óhollustu, svö sem alkunnugt er frá viðskiptum flokk- anna á Alþingi og ekki þarf að skýra nánar. Getur bvcr maður sagt sér sjálfur, hversu beppileg áhrif það getur haft á stjórn bæjar- ins, einkum þar sem gera má ráð fyrir að á næstu fjórum árum kunni að molna verulega úr bjargi nýsköpunarinnar og að ófyrirsjáan- legir erfiðleikar kunni að vera framundan, svo sem forsætisráðherra gerði ráð íyrir í úramótaræðu sinni. Oft hefur verið þörf á ör- uggri stjórn á málefnum bæjarins, en bitt er vist, að' nú er það nauðsyn. Sú bæjarstjórn, scm nú tekur við störfum, er á engan Iiátt öfundsverð. Hlutverk bennar verður ólíkt því, sem tíðkazt hcfur, mcð því að erfiðleikarnir munu vissulcga reynast meiri en nokkru sinni fyrr, og veltur á miklu að hyggilega verði stýrt fram úr öngþveiti næstu áranna eftir stríðslokin. Með störfum sínum hafa komm- únistar sýnt, að þeim er annað betur gefið cn hyggindi í fájrbags- og atvinnumáíum þjóð- -arinner. Er óþarft að rekja öll mistök þeirra hér. Reykvíkingar bafa fyglzt nokkuð með starfsemi þeirra í opinberu lífi, enda verður uð telja ólíklegt að þeir æski eftir auknum áhrifum þeirra í stjórjf bæjarmálanna. Kjós- endurnir verða sjálfir að. tryggja að komm- únistar komist ekki til valda innan þessa bæj- arfélags, og þeir verða að gera það með þvi móti, að sýna þeim engan trúnað og ljá jjeim ekkert fylgi. VISIK juaugaruaginn o. januar \jianir Cj. JJteinclói I dag kveðja iR-ingar einn af sínum beztu og áhugasöm- ustu félögum, Vigni Stein- dórsson, Björnssonar frá Gröf. Vignir var fæddur hér í Reykjavík 12. des. 1919 og því aðeins rúmlega 26 ára, er hann var kvpddur héðan. Varð starfsdagurinn þyí ekki langur, né heldur óslitinn, j)af sém sjiikléiki bamlaði bonum starfa um nokkurt skeið. Hinsvegar má j)að vera ungum mönnum til eftir- breytni, af bve miklum á- huga Vignir vann að hugðar- efnum sínum og hve fórn- fúst og óeigingjarnt starf bann leysti af hendi og þá fyrst og fremst í sambandi við frjálsíþróttastarfsemi Ij)róttafélags Reykjavíkur og raunar í sambandi vi,ð frjáls- íjyfóftástarfsemina bér í bæn- um. Munu j)eir ekki margir, oróóon. jafnaldrar hans, sem liafa lagt af mörkum meiri vinnu í sambandi við íj)róttamótin hérna í Reykjavík cn bann gerði, en framkvæmd jæirra kostar geysilega mikla vinnu, er venjulégá livílir á sömu mönnunum frá ári til árs. Reykvískir frj álsíþróttg- meníi háfa nú misst góðan og ötulan stuðningsmann, en alveg sérstaklega er j)ó skarð fyrir skildi í I.R., j)ar sem drengirnir j)ar liafa misst j)ann félagann sinn, sem einna árvakrastur var og ó- deigastur í sókn og vörn, þegar um málefni j)eirra var að ræða. Rcykvískir íþróttamenn kveðja í dag með söknuði þennan fallna félaga um leið og j)eir þákka lionum sam- fylgdina og vel unnið dags- verk. P. B. &œjarfréttih ÚtvarpiS í kvöld. Kl. 18.30 Dönskukennsla, 2. fl. 19.00 Enskukennsla, 1. fl. 19.25 Þingfréttir. 20.20 Útvarpstrióið: Einleikur og trió. 20.45 Leikrit: „Biðillinn kemur“ eftir Hjálmar Bergmann (Indriði Waage o. fI.). 22.00 Fréttir. 22.05 Danslög. 24.00 Dagskrárlok. Luðvig Guðmundsson skólastjóri liefir sem kunnugt er, ferðast um Mið-Evrópu ný- lega, til þess að aðstoða ís- lendinga þar. Ffytur hann erindi um för sína i Gamla Bíó á sunnu- daginn kemur kl. 1%. Allur ágóði af fyrirlestrinum rennur til Rauða Krossins. Aðgöngumiðar verða seldir í Bókaverzlun Sig- fúsar Eymundsson á morgun. Fæðiskaupendur. Félag fæðiskaupenda verður stofnað í Röðli á morgun ki. 2. Halló! HaEló! Nýtt 6 lampa ferðatæki og, dölck nýleg föt úr góðu efni á meðalmann til sölu. Bergstaðastræti 50A, 3ju hæð, frá kl. 4—-7 í dag. Vfniia oskasf. Ungur, reglusamur maður óskar eftir einbverskonar innivinnu. — Hel'ir sjó- mannaskólapróf og bíl- próf. — Till)oð með upp- lýsingum, merkt: „Vinna —20“, óskast send afgr. blaðsins fyrir hádegi á _______mánudag.______ Vélvirki, husnæði Sá, sem getur útvegað eitt til tvö herbergi og eldbús, getur fengið vanan vél- virkja í vinnu. — Tilboð, mcrkt: „Vélvirki“, sendist blaðinu fyrir þriðj udags- kvöld. Dugleg og vön slHÍístofiusfúlka getur fengið atvinnu bluta úr degi í 2—3 mánuði. Tilvalið fyrir gifta konu. Eiginbandar umsókn með upplýsíngum sendist blað- inu fyrir 10. j). m. IsSand-Danmarh. Vi soger Forbindelse med solidt Firma eller Forret- ningsmand for loyalt Sam- arbejde til gensidig For- del. Hvad' kan vi gore l'or Dem her i Landet og hvad kan De töbyde os ? A1 Im- port og Eksport bar Inte- resse. —- TH. JUST A/S. (Grundlagt 1903), Peder Skramsgade 5, Köben- havn K. SKÍÐAFERÐIR að, Kolviðarhóli í kvöld kl. 8 og- kl. 9 f. h. á sunnud. Lagt af stað frá Varðar- húsinu FarmiSar seldir i verzl. Pfaff, kl. 12—3 í dag. I, ÁRMENNINGAR! — MuniS þakkarhátiðina í Jósefsdal, í kvöld. HafiS meS ykkur „Ármannsljóðih“. — FerSir verða kl. 2 og 6. Far- miðar fást í Hellas. Þeir sem ekki geta farið: með annarrí hvorri ferðinni, eru beönir a'5 láta vita í Hellas. ÆFINGAR FÉLAGSINS. byrja aftur n. k. mánu- dag og verða ])á vik- una eins og fyrir nýár. Eftir það breytist stundalaflan og veröur auglýst nánar siðar. Glímumenh K. R. Æfing í kvöld kl. 8 í leik- fimishúsi Menntaskólans. Mæt- ið allir! K.R.-skíðadeildin. Skíðaferð upp á Skálafell verður í kvöld kl. 6. Farmiðar hjáj sJfóy^rzíun: Þór&r: i’étvj.rs- son'áf.' Farið frá IkS.Í. SKÍÐAFÉLAG /ý REYKJAVÍKUR k/TCtk ráðgerir að fara skiða- ■-•• ■ú fei-ð á morgun kl. g frá Austurvelli, ef veð- ur og færi leyfir. Farmiðar við bílana. (iió Undrin á Það hefir ekki verið minnzt mik- EHiheimjlinu. ið oþinbéríéga á „imdrin á Elli- lieimiJinu“, sem svo eru nefnd, nú um nokkurt skeið. Eg vr Cldci að skrifa um þau hér, af því að eg hafi fundið einliverja lausn á því, hyernig maðurinn varð heill, scm ailir geli sætt sig við. Ekki treysti eg jnér til þess og læt hvern um að liafa þá skýringu i friði, sem hann telur rétlasta. En ástæðan tit þess, að eg brýt nú aftúr upp á þessu umræðu- cfni, er sú að eg fékk ékki alls fyrir löngu bréf iiian ,af, iandi og fjailaði það að nokkuru leyti um þetta efni. * Vestan úr Bréf þetta er ritað vestur við ísa- Djúpi. fjarðardjúp af Sigurði hónda Þórð- arsyni á Laugabóli. Geri eg ráð fyrir því, að margir hafi gaman af „innleggi“ hans í þetta niál, því að eg þykist vita, að laust sé við, að. menn hafé rökrætt það til hlítar, enda verða slík mál aldrei rædd svo að komizt verði að niðurstöðu, sem allir geti fallizt á. Menn hafa yfirleitt skipzt i tvo flokka i máli þessu og þeir ekki getað komið sér sainan. Það vita allir, sem hlýtt hafa á rökræðui- manna uni málið eða tekið sjálfir þátt i þeim. * í út- En þá er ekki rétt að hafa formál- \arpi. ann lengri og hýrja á.kaflanum úr bréfi Sigurðar. Ilann segir: .....Það kom svolítið skrítið fyrir hér heima hjá mér i sam- bandi við fréttina um „iindrin á Elliheimilinu". Hinn 12. nóvember s.I. var Vilhjáímur Vilhjálms- son að tala um „daginn og veginn" í útvarpinu og sagði þá, að það, sem mest Vferi talað um í hænum hjá ykkur, væru þessi undur. Við þöfð- um ekki heyrt hér eilt orð um þessi undur og enginn hér í nágrenninu, svo að maður vissi til og hver spurði annan um hvaða undur mundu þar hafa gerzt. * Frásögn En hér- er maður, sem Torfi heitir. Torfa. Hann segir okkur þá alla söguna uni þennan Gísla frá Hjalla, að liann hafi fengið heina fingur, kastað hækjum og annað, I sem seinna réyndist rétt vera. Þegar við spurð- 1 um Torfa, hvaðan hann hefði þetta, því að mað- i urinn hafði hvorki fengið hréf né ferðazt frá l bænum, segir hann, að Ivristmundur heitinn Guðjónsson læknir hafi sagt sér Jielta fyrir þó nokkuru og segist hafa læknað þenna mann. ,,Þvi praktiserið þið þetta ekki við fleiri ?“ seg- isl Torfi þá hafa spurt Kristmund iækni. * t f vöku. Vegna þcss, að þeir hafa svo sjaldan það rétta hugarfar, svo að við kom- urnst ekki að þeim, segir Torfi, að Kristmundur hafi þá sagt. Torfi fullyrðir, að hann liafi ver- ið vakandi í rúmí sinu undir þessurn hugræð- um við Kristmund. Daginn eftir komu svo Vís- ir, Veslurland, Morgunhlaðið og fleiri blöð með alla fréttina, þegar Djúpbáturinn kom hér i á- ætiunarferð. Þar gátum við lesið það svarl á hvítu, að það stóð heima, sem Torfi hafði sagt okkur og kvaðst vita úr samtali sínu við Krist- mund heitinn lækni. * ; Mund Maðurinn gat ekki vitað þella á nciún Ivrists. venjulegan hátt, cn þar sem GísJi ef’ þess fullviss, að það hafi verið sjálfur Kristur, sem iæknaði hann, þá vil eg ekki rengja það, en gæti getið þess til, með tilliti til þess, að ritningin t. d. talar oft í líkingamáli, að nafnið KrisÍmundur væri hér notað sem líking, mund Krists væri sama og hönd Krists. — En krafta- vérk er þetta öneitanlega á (iísla gamia, hver seni framið hefir.“ Hér lýkur kafianum i bréfi Sigurðar, sem fjállar um „undrin á Elliheimil- inu.“ 5|« Hvernig vissi Eg hefi ekki mikiu við bréf Sig- Törfi það? urðar að liæla. Eg rengi hann ekki, efast ekki um það, að hann segi rétt og greinilega frá þessu máii, eins og það horfir við frá hans hlið. Ilvaðan var Torfa komin vitneskja hans? Því ætla eg ekki að reyna að’ svara. Eg hefi aldrei lagt mig eftir því að ráða siíkar gátur. Það verða þeir að gera, sem geluna hafa lil þess. * Kristmundur En að iokuni ætia ;cg að leysa læknir. úr spurningu, sem eg -'011, að ýmsir hafa verið að veita fyrir sér við iesturinn á bréfi Sigurðar: Ilver var Kristmundur Guðjónsson? Hann var Grimsnes- ingur, fæddur að Hömrum árið 1890. Lauk stúd- entspi'ófi 1913, en kandidatsprófi í læknisfræði árið 1920. Nokkurum árum síðar varð hánn hér- aðslæknir í Reykjarfjarðarhéraði á Ströndum og andaðist í HóliíiaVík árið 1929.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.