Vísir - 11.03.1946, Side 2
2
V I S I R
Mánudaginn 11. marz 1946
BefðtiSfriðar,
Eflir Virginíu Gi!dersleeve.
MATUR.
Hrísgrjónaábætir með þurrk-
uðum ávöxtum.
/i 1. mjólk.
75 gr.hrisgrjón.
30 gr. sykur.
30 gr. smjör.
Vanille, 10 stk. möndlur,
mauk úr /z kg. aprikosum
eða öSrum þurrkuöum ávört-
urn.
Mjólkin og hrísgrjónin- eru
soSin í graut.'Þá eru þau tek-
in af eldavélinni og sykur,
smjör, vanille og möndlur er
smo hrært saman viö. Siðan er
eitthvað af' maukinu sett á
hotninn á formi og grautnum
ilielt í það. — BúSingnum er
isvo helt á fat, rétt áSur en hann
er borinn á l)orö og meö hon-
um er svo borSuö karamellu-
isósa eða ávaxtamauk.
Tunglsljós.
1 eggjahvíta.
ca. ioo gr. sykur.
Saft og rifinn börkur af einni
sítrónu.
3 blöS matarlím, uppleyst í /
dl. af vatni.
Hrátt eSa soSjS krem.
Þegar búið er aS leysa upp
matarlímið og sykrinum bland-
aS saman viS þaS, þá er cítr-
ónu og eggjahvítu bætt viS og
all þeytt í /2. klukkustund eSa
unz þaS er loröiö hvítt og froðu-
lcennt. Þá er þvi hellt i skál og
kremi hellt yfir þaö.
Norðurpólskaka.
2 marengs-botnar.
2—3 dl. þeyttur rjómi..
SúkkulaSiglasúr.
Ristaöar möndlur.
Á milli marengsbotnanna er
settur þéyttur rjómi, rétt áSur
en bera á kökuna á borö. „Glas-
úr1’ er settur á kökuna og rétt
áður en ihann er stífnaður er
ristuöum möndlum stráS yfir
hann. — Sykur og kaffiextrakt
má blanda í rjómann.
(Marengs: 3 eggjahvítur,
120—150 gr., síaSur flórsykur,
hjartarsalt, ögn, eins og fram-
an af hnífsblaði. — Hvíturnar
stífþeyttar. 1 inatsk. af sykri
þeytt meS þeim i 5 mínútur og
síðan er þaS sem eftir er af
sykrinum og svo hjartarsaltiS,
vanalega hrært saman viS. —
33akaS viö mjög hægan hita).
(Súkkulaðiglasúr: 100 gr.
gott suöusúkkulaöi, 1—2 matsk.
matanolía eSa rjómi. SuSu-
súkkulaSiS er brætt yfir gufu
og hrært unz þaS er slétt og
jafnt. Olían þá hrærö í smátt
og smátt. „Glasúrinn" er svo
í hner^yi- í 5,ffiínútþr pg ei: þá;
•tilbúinn til notkunar).
„Hinir svartsýnu hafa á
röngu a$ standa,“ segir
þessi ágæti menntafröm-
uður sem var fulltrúi á
San Francisco ráðstefn-
unni. „Fyrstu skrefin hafa
verið löng og stór — og
á réttri leið.“
Við erum á góðri leið að
koma á heimsfriði. Þetla
kann að þykja furðuleg stað-
hæfing þar sem menn virðast
vondaufir hér í Landi (i
Bandaríkj unum). Sumir
menn segja jafnvel að við
verðum komin í stjrjöld-aft-
ur innan sex niánaða. Trúið
þeim ekki! Það gagnstæða er
sannleikur. Þrátt fvrir mikla
erfiðleika miðar okkur vel í
áttina til friðar.
Ag sjálfsögðu er mikið af
ósamræmi og árekstrum í
heiminum. Þegar hræðilegri
styrjöld er lokið er ekki hægt
að ætlast til þess að kyrrð og
ánægja verði þegar í stað
rikjandi meðal þjóðanna.
Eftir mikLa storma á höfum
úti er enn ókyrrð, þó að
slorminn lægi. Þá er undir-
alda og úfinn sjór. Því er nú
eins farið í heimsmálunum.
Hinu ægilega ofviðri er lokið
en sjór er þungur enn og úf-
inn.
Grund-
völlur.
•
En það var farið vel af
stað er lagður var grundvöll-
ur að því að lægja öldurnar.
Bandaríkja-þjóðin studdí þvi
nær einliuga og af alúð frið-
arráðstefnuna í San Francis-
co. er Iiún gerði áætlun um
alþjóða-stofnun, sem átti að
koma í veg fyrir stvrjaldir í
framtíðinni. Ráðstefna liinna
sameinuðu þjóða er ekki full-
komin að skipulagi. En það
er hægt að nota hana til að
hyggja á sterkari stofnun er
fram líða stundir.
Stofnun sú er ráðgerð var
i San Francisco ráðstefnunni,
er fyrr á ferðinni en cg gerði
mér í hugarlund. Því að nú,
þegar þessi grein er riluð er
þing hinna sameinuðu þjóða
um það bil að hætta störf-
um og verður ]iað að teljast
hreint kraftaverk í heimi þar
sem slíkar viðsjár hafa veríð
með mönnum að undan-
förnu.
Vel af stað
farið,
Úr því að svona álitlega er
nú komið, hvers vegna finnst
mönnum þá að illa Iiafi ver-
ið af stað farið? Og hvers
vegna eru menn áhyggju-
fullir? Ein af ástæðunum
fyrir óliug manna lield eg
iQÍgi.rót §ípa að rekja til ut-
■ ‘' dnríkisráðherraf undarins, í
sem haldinn var í Lundún-
um. I sama mund var þar að
starfi undirbúningsnefnd
fyrir þing hinna sameinuðu
þjóða. Margir héldu að hinar
sameinuðu þjóðir væri að
hefja starf sitt með utanrík-
isráðherrafundinum, og ]ieg-
ar ýfingar urðu með ráð-
herrunum og fundurinn fór
út um þúfur, héldu margir
að liinar sameinuðu þjóðir
liefði þarna farið illa af stað
og vonbrigðin voru mikil.
En ráðherrafundurinn var
ekki stofnun hinna samein-
uðu þjóða. Og undirbúnings-
nefndinni gekk að óskum
undirbúningurinn undir þing
hinna sameinuðu þjóða.
Annað er. og sem valdið
liefir áhj’ggj um. Það er
framkoma kjarnorku-
sprengjunnar. Þegar fregnin
um þetta geigvænlega afrek
barst til smábæjarins í Ver-
mont, þar sem eg var stödd,
var engin gleði í hug okkar.
Við liöfðum þungar áliyggjur
og efuðum að land okkar og
mannkynið yfirleitt væri fært
um að hafa hemil á og
stjórna þessu nýja og voða-
lega afli.
Alþjóða-
eftirlit.
Þær umræður sem fram
hafa farið síðan sýna fram á,
að alþjóða eftirlit verður að
vera með kjarorkumálum.
Það er ekki mikið sem leynt
fer í gerð kjarnorkusprengj-
unnar. Og það sem enn er
leynilegt mun brátt verða
uppgötvað af öðrum þjóðum
lika. Það segja vísindamenn-
irnir. Og ef við eigum að
koma i veg fyrir kapplilaup
meðal þjóðanna um fram-
leiðslu sprengjunnar, þá
verðum vio að koma 4 ein-
hverskonar eftirliti. Það er
því nfjög heppilegt að þing
lúnna sameinuðu þjóða hef-
ir hafið störf.
Truman forseti Bandaríkj-
anna, Atlee forsætisráðherra
Bretlands, og Mackenzie King
forsætisráðherra Kanada eru
fulltrúar hinna þriggja þjóða
sem nú hafa mesta þekkingu
á kjarnorkunni og þeir hafa
þegar mælt með þvi, að liinar
sameinuðu þjóðir skipi nefnd
lil að kynna sér málið og sjá
um að þessi mikla orka verði
notuð mannkyninu til góðs,
en ekki til tortimingar. Það
virðist því líldegt að þing
liinna sameinuðu þjóða skipi
slíka nefnd.
Til að forðast
stríð.
Þing liinna sanieinuðu
])jóða var sett á laggirnar til
þess að , koipa., í( yeg fyrir
slyrjaldir. ,.Óg n.ú pr .pieivi
nauðsyn á en nokkuru sinni
að við sjáum um að þessi
stofnun hindri styrjaldir í
raun og veru. Því að nýtt
stríð gæti nú algerlega þurrk-
að út menninguna. Öryggis-
ráðið, sem sérstaklega á að
koma í veg fyrir styrjaldir,
mætti einmitt nota til þess að
liafa eftirlit méð notkun
kjarnorku lil styrjaldarþarfa.
En fjármála- og félagsmála-
ráðstefnur ælti að starfa að
því að veita öllum þjóðum
aðgang að notkun kjarnork-
unnar til friðarstarfa og vel-
ferðar mannkynsins. Ilin
nýja kjarnorkumálanefnd
ætti að gera áætlun um livort
tveggja.
Eitt er það enn sem valdið
hefir áhyggjum manna á
meðal. Það eru erfiðleikarnir
á því að stórveldin fimm
væri sammála. Þetta er al-
varlegt mál, því að skipu-
lagsskrá hinna sameinuðu
þjóða og starf öryggisráðsins
hvílir á einróma samþykki
stórveldanna fimm. Þetta var
frumskilyrði og á San Fran-
ciscoráðstefnunni var litið
svo á að livorki Öldungadeikl
Bandaríkjanna né Ráð-
stjórnarríkin mundi sam-
þykkja skipulagsskrána án
ákvæðisins um neitunarvald-
ið. Og ákvæðið var þvi selt
inn. Sumir vitrir menn lialda
því fram að það geri hvorki
til né frá. Ef eitthvert af
stórveldunum er mótfallið
gjörðum öryggisráðsins
hrynur stofnunin hvort sem
er — og styrjöld skellur á.
Ákvæðið um einróma sam-
þykki er aðeins viðurkenn-
ing á þessari staðreynd.
Okkur er sannarlega nauð-
syn á að starfa vel með sam-
bandsþjóðum okkar og að
komast að samkomulagi við
þær. Við skulum þvi reyna
að kynnast þeim og skilja
þær. Við skulum reyna að
byggja á dyggðum þeirra, al-
veg eins og á okkar eigin
dyggðum, en ekki eyða við-
leitni okkar í kvarta um það
sem virðast vera gallar
þeirra. Við getum ekki flutt
yfir á aðra stjörnu; við verð-
um að halda áfram að lifa og
starfa í þrengslunum hérna á
jörðunni.
Við skulum muna ósigr-
andi hetujskap Breta. Þeir
stóðu einir í eldinum heilt ár,
þar til er önnur lýðræðisöfl
gátu komið þeim til lijálpar.
Án hetjuskapar þeirra hefð-
um við ekki getað sigrað.
Munum forna vináttu við
Frakkland, og að það hefir
haldið kyndli frelsis og
mannréttinda liátt á loft.
Munum líka þjáningar
Frakldands og verum þolin-
móð.
Munum seiglu og þraut-
seigju Kína öll slríðsárin.
Munum liina fögru og fornu
menningu þeirra, vizku
þeirra og vinsamlegan skiln-
ing á okkur liin siðari ár.
Munum aðdáun okkar á
listfgpgi. rwspesku,,, þjfiö'ar-
imiar og nýja þekkingu á
slcipulagsmætti hennar og
hetjulund. Og munum að
Rússland þarf frið — frið til
þess að reisa á ný borgir sin-
ar og nytja liinar miklu auð-
lindir sínar. Væntanlega
verða upplýsingar um Rúss-
land rífari á næstunni svo að
við gelum kynnzt þjóðinni
betur.
Þessum stórveldum, ásamt
okkar landi, .tókst að komast
að samkomulagi í San Fran-
cisco. Stundum var það
mjög erfitt, en það lókst. í
framtíðinni getur samkomu-
lag orðið erfitt. En það get-
ur tekizt. Við verðum alltaf
að vera þolinmóð og skiln-.
ingsrik. Látum ekki hugfail-
ast. Hinar sameinuðu þjóðir
'eru félagar og liafa komizt
góðan spöl áleiðis til friðar.
Þó að hindranir verði á leið
okkar skulum við ganga ör-
ugg að marki.
Ödýr
KÖKUFORM
Klapparstíg 30. Sími 1884.
Sigurgeir Sigurjónsson
hæstaréttarlögmaður.
Skrifstofutími 10—12 og 1—6.
Aðalstræti 8. — Sími 1043.
MTZVm
GARÐASTR.2 SÍMI 1899
Nýkomið:
í mörgum litum.
Ódýr kökuformi
í
og ávaxtaskálar.
!
VerzL Ingélfur!
Hringbraut 38. Sími 3247. |
TELPUKÁPUR,
mjög lágt verð.
VerzL Regio,
Laugaveg 11.
ií' . :l ÓIIÍOi 7J.SU-) .i • - > l
.---f.."- ■ ...--t:- i'f,.