Vísir - 18.06.1947, Page 3
Miðviícudaginn 18. jttní 1947
VISIR
3
Ungu menn
og stúlkur,
leggíð ykkar skerf til barnaspítalans og genzt
styrktarfélagar!
Hringkonur taka á móti styrktarfélögum í
Soffíubúð frá kl. 10—6 og emmg í síma 3146 —
3680 — 4218 — 4224 — 4283.
Vel heppnuð hljómleikaför
L. R. til Vestmannaeyja.
I förinni tóku þátt um
50 manns.
Lúðrasveit Reykjavíkur
fór í hljómleikaför til Vest-
mannaeyja þ. 7.—9. þ. m.
Lagt var af stað á laugardags-
morguninn og komið til baka
á mánudagsmorgun.
í förinni tóku þátt rösklega
50 manns og farið með varð-
skipinu Ægi. Komið var til
Vestmannaeyja kl. 7 um
kvöldið. Var þar mannfjöldi
milcill saman kominn til að
fagna komu lúðrasveitarinn-
ar. Þar á meðal var Lúðra-
sveil Vestmannaeyja og lék
hún lag Kaldalóns: Reykja-
vík, en Lúðrasveit Rvíkur
þakkaði með því að leika
„Island ögrum skorið“.
Um kvöldið tiauð Lúðra-
sveit Vestmannaeyja Reyk-
vikingunum lil kvöldverðar
og skiptust þar formenn
beggja sveitanna á kveðjum.
iSíðar um kvöldið efndi
Lúðrasveit Reykjavíkur til
dansleiks er stóð fram eftir
nóttu og fór í alla staði hið
ágæfasta fram. Illjómsveitin,
scm lék fyrir dansinum kom
með lúðrasveitinni héðan úr
Reykjavík.
Á sunnudaginn kl. 2 efndi
Lúðrasveit Rvíkur til hljóni-
leika í samkomuhúsi Sjálf-
stæðismanna í Eyjum fyrir
fullskipuðu húsi og við mjög
góðar undirteklir. Stjórn-
andi sveitarinnar var Alberl
Klalm, en einleikarar Lanzkv
Otto á waldhorn og Björn
Einarsson á básúnu.
Að hljómleikunum lokn-
um sat lúðrasveitin boð bæj-
arstjórnar og héldu þar ræð-
ur Arni Guðmundsson for-
seti bæjarstjórnar, Sigfús M»
Jolmsen bæjarfógeti og Guð-
jón Þórðarson formaður
Lúðrasveitar Reykjavikur.
Kl. (j um kvöldið lék Lúðra-
sveitin úti fyrir bæjarbúa, en
lagði heimleiðis kl. 8 og kom
til Rvikur ld. G að morgni.
Vfeður vað liið fegursta allan
tímann og skemmtu þátttak-
endur sér ágætlega.
Guðjón Þórðarson form. L.
R. biður Visi að færa Yest-
ínannaeýinguúi þákkir fyrir
rausnarlegar móttökur og
skipsliöfn og skipherra á
Ægi, Eiríki Kristóferssyni
þakkir fyrir alúð og' prúð-
mennsku í livívelna.
Þetta er 5. ferð Lúðrasveit-
arinnar út á land á 25 ára
starfsferli og fer vel á þvi
að hún kynni sem fleslum
landsbúum hljóðfæraleik
sinn, og ætti að lialda þeirri
starfsemi áfram.
Framh. af 1. síðu.
800 m. hlaup.
1. Óskar Jónsson, Í.R. 1:59.3
min.
2. Kjartan Jóhannsson, Í.R.
2:00.0 níín.
3. Ilörður 1 iafíiðason, A.
2:02.5 min.
Spjótkast.
1. Iljálmar Torfason, H.S.Þ.
51.50 m.
2. Finnbjörn Þorvaldsson, í.
R. 19.73 m.
3. Halldór Sigurgeirsson, Á.
17.52 m.
5000 m. hlaup.
1. Þórður Þorgeirsson, K.R.
16:10.2 mín.
2. Sigurgéir Ársælsson, Á.
16:12.8 mín.
3. Haraldur Þórðarson, Á.
18:33.6 mín.
Langstökk.
1. Finnbjörn Þprvaldsson, í.
R. 6.62 m.
2. Torfi Bryngeirsson, K.R.
6.37 m.
3. Þorkell Jóhannsson, F.H.
6.37 m.
1000 m. boðhiaup.
1. A-sveit Í.R. 2:02,5 mín.
2. Sveit K.R. 2:05.2 min.
3. B-sveit Í.R. 2:06.6 mín.
í sveit Í.R.'Voru þeir Finn-
björn Þorvaldsson, Örn og
Ilaukur Clausen og Kjartan
Jóhannsson. Vegalengdinni
var skipt niður i 100 in., 200
m., 300 m. og 100 m. Gamla
metið var 2:04,1 míu. cr l.R.
setti 1945.
Segja má, að árangur móts-
ins hafi verið góður, eins og
úrslitin bera með sér.
Erilsamt hjá
slökkviliöinu.
Frá því á laugardag hefir
ilökkviliðið verið kallað sex
siniuim út. M. a. kom upp
eldur í þrem bröggum og
skemmdust þeir allmikið.
A Iaugardagsmorgunn kl.
9.43 var tilkynnt uni eld i
kassa fyrir framan Klappar-
stig 25. Var eldurinn fljót-
lega slökktur, skemmdir
urðu litlar. Þá var tilkynnt
frá Pósthúsinu kl. 13.06 að
mikinn reyk legði úr kjall-
ara hússins. Reyndist reyk-
urinn slafa. frá vél, en um
eld var ekki að ræða. IJálf-
tíma síðar var tilkynnt um |
eld í tóniuni kössum í porti
,á bak við Eimskipafélags-
húsið. Logaði allmikið í
þeim er að var komið og var
eldurinn fljótlega slökktur.
Skemmdir urðu nokkrdr.
Kl. 14.50 sama dag var til-
Jkynnt um eld í kjötúrgangi
j' porli Sláturfélags Suður-
íaiids. Var Iiann fljótlega
slökklur. Skennndir urðu
litlar.
A sunnudag kl. 16.05 var
tilkynnt að eldur væri laus í
bragga í Kamp Knox. Er
' slökkviliðið kom á staðinn
var eldur i Iiáspennustöð er
sem er til húsa i bragganum.
Bragginn brann töluvert og
eins barzt eldurinn i bragga
■við hliðina spennustöðinni,
cn þar er verkstæði til húsa.
Skemmdir urðu nokkrar af
ívöldum eldsins.
I gær kom upp eldur i
.geymslubragga við Hverfis-
götu 105. Logaði i trétexi,
sem bragginn er þiljaður
með. Eldurinn var fljótlega
slökktur, skemmdir nrðu
nokkrar.
Baldvln fénsson
hdl.,
Vesturgötu 17. Sími 5545.
Málflutningur. Fasteignasala.
Viðtalstími kl. 2—4.
við Elliðavatn til sölu.
Bílskúr og vatnabátur
fylgir. UppK’singar í síma
3006.'
Beztn ório
frá
BARTELS, Veltusœiái.
(FRIGIDARE) 4 kúbikfet
til sölu. Vcrð 3000 kr.
Skápurinn er lítið notað-
ur í mjög góðu lagi. Til-
boð, merkt: ,,Isskápur“,
’ sendist blaðinu.
169. dagur ársins.
Næturlæknir
Læknavarðstofan, sínii 5030.
Næturvörður
er í Laugavegs Apóieki, simi
1610.
Enginn næturakstur,
vegna benzinskorts af vöidum
verkfallsins.
Útvarpið í dag.
KI. 15.30—16.30 Miðdegisútvarp.
19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleik-
ar: Óperulög (plötur). 19.45 Aug-
lýsingar. 20.00 Fr-éttir. 20.30 Út-
varpssagan: „Grafinn lifandi“,
eftir Arnold Bennelt, V (Magnús
Jónsson prófessor). 21,00 Útvarp
frá Beethovenshátíð Tónlistarfé-
lagsins. 22.00 Fréttir. 22.05 Létfc
lög (plötur) til 22.30.
Frá höfninni.
Þýzkur togari koni á ytri höfn-
ina á mánudag. Fór aftur um
kvöldið. — Baldur kom að vestan
i gær. — Ingólfur Arnarson kom
frá Englandi í nótt. —- Þórplfur
kom á ytri höfnina i nótt, af veið-
um. Fór strax aftur áleiðis til
Englands.
Veðrið.
Austan og suðaustan kaldi. Úr-
komulaust, en víða skýjáð.
Edwin C. Bolt
flytur erindi í Guðspekihúsinu
við Ingólfsstræti í kvöld kl. 9,
stundvíslega.
Ametísk
leikarablöð lceypt á 75
aura stýkkið. Sótt hteim.
Bókabúðin, Fnikkastíg- 16
Sími 3664.
Hjónaband.
I dag verða gel'in sainan i
hjónahand Margrét Sigurðardólt-
ir (Pátssonar verkstjóra, Baldurs-
götu 23) og Jóhann Magnússon,
stýrimaður.
Hjónaefni.
Nýlega liafa opinbcrað trúlof-
un sina ungfrú I.ára Árnadóttir,
Frakkastíg 20, og Jóhann V. Sig-
urjónssón, útvarpsvirki, Langaveg
161.
Farþegar með „Heklu“
til Hafnar: Sigurrós Jónsdótl-
ir, Yíðir Kristinsson, Sólvei;-;
Jónsdóttir, Jón Ævar Karlsson,
Ilelga Jónsdóttir, Jón Kartsson,
Marin Gisladóttir og harn, Mái-
fríður Bjarnason, Sigríður Sig-
geirsdóttir, Einar M. Jónsson,
Jóna H. Jónsdóttir, Bjarni Guð-
hrandsson, Lilli Hansen, Karl
Helgason og frú, Louisc Dalmar,
Dýrleif Ármann og dóttir, Guðrún
Hermannsdóttir, Mary Viola
Thour, Guðinundur Kristjánsson,
frú og sonur Þórunn Guðnadótt-
ir, Henny Gunlund, Jón Símon-
arson og frú, Tngibjörg Erlends-
dóttir, Petra Guðlaugsson og 3
hörn, ívar Daníelsson, Þórdís Jó-
liannsdóltir og harn og Ncllie
Cornish frá New York. — Auk
tiinnar föstu amerísku áhafnar
flugvélarinnar, fóru i þessa ferð:
Alfreð Elíasson og Sigurður
Ólafsson, flugmeniij Axel Thor-
arensen siglingafræðingur, Árni
Egilsson loftskeytamaður og tvær
flugþernur.
Á morgun eru liðin þrjú
ái* siðan de Gaulíe gaf frönsku
þjóðinni fyrirskipun um að
grípa til vopna.
í Erakkiandi vterða liáliða-
höld i tilefni af deginum.
Hjartanlega þakka eg eilum nser og Ijær,
þeim, er heiðruðu minningu míns elskulega
sonar,
ílugmanris,
og sýnáu mér kærleiksríka samúð og hjálp við
andiát hans og greílrun.
Sérstaklega vil eg þakka Ákureyringum
inniiega samúð og hjáipsemi, Flugféiagi ís-
lands h.f. og skólasystkinum hins iátna.
Almáttugur Guð launi ykkur aí náð sinni
og miskunn.
Nikóiína Kristjánsdóttir.
Jarðarför mannsms míns og föður okkar,
Halldóis L@ltss®naf,
fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, fimmtu-
daginn 19. þ. m,, kl. 3 siðáegis.
Jarðað verður í Fossvogs-kirkjugaroi.
Ingihjörg María Björnsdóttir
og börn.
Konan mín,
andaðist í sjúkrahúsinu á Akureyri 15. þ. m.
Magnús Richardsson,
u Borðeyrii
■■■■amBimiiiiiiiii'iiiimiiiiiiwwMMMDMMBamaMMB