Vísir - 18.06.1947, Page 8
Næturvörður: Lauguvegs
Apótek. — Sími 1618.
Næturlæknir: Sími 5030. —
WI
Lesendur eru beÖnir aS
athuga að s m á a u g 1 ý s-
i n g a r. eru á 6. síðu. —
Miðvikudaginn 18. júní 1947
Skipastóll landsmanna í lok
1946 var 676 skip.
Eru samtals 42.876 brúttó
lestir að stærð.
í árslok 1946 var skipastóll
landsmanna alls 676 skip,
samtals 42.876 brúttólestir að
stærö.
Af þessum skipum eru 43
.ígufuskip, 454 mótorskip yfir
12 lestir að stærð og 179 und-
ir 12 lestum. Til samanburð-
ar má geta þess, að í árslok
1944 var tala skipa í leigu
landsmanna 640 og voru þau
39.075 brúttólestir að stærð.
Meginþorrinn af skipum
þessum eru fiskiskip. Eflir
notkun skiptast þau þannig:
24 botnvörpuskip gufu-
knúin, samtals 8.145 brúttó-
smálestir að stærð, önnur
eimknúin fiskiskip yfir 100
lestir eru 11, samtals 2.583
brúttólestir að stærð. Auk
,7 farþega-' og flutningaskip,
'gufuknúin, samtals 7.596
brúttólestir að stærð.
Mótorknúin fiskiskip, yfir
,100 lestir að stærð, eru alls
30 lalsins. Stærð þeirra sam-
tals er 4484 brúttólestir.
JAulc þess fisldskip undir 30
lestum 409, samtals 5540
brúttóleslir að stærð. Alls
eiga þá landsmenn 658 fiski-
skip, samlals 30.849 brúttó-
lestir.
Auk þess, sem liér er upp
talið, eiga landsmenn 2 varð-
:skip, 1 björgunarskip, 1 sjó-
Þriðji leikur ís-
landsmótsins
i kvöld.
f kvöld klukkan 8.30 fer
ífram 3. leikurinn í Knatt-
spyrnumóti fslands.
Þá keppa K.R. og Víkingur.
'•— Fyrsti leikurinn fór fram
á föstudaginn var. Þá kepptu
Fram og Víkingur, og sigraði
Fram með 2 gegn 1. Á sunnu-
dag kepptu svo Akurnesing-
ar og Valur. Unnu Valsmenn
jneð 4 gegn 0.
Ráðstefna um
viðreisn
A.-Asiu.
Ráðslefna er að hefjast í
'Shanghai um endurreisn
landa Austur-Asíu.
Það er Kína, sem goldið
hefir mesl afliroð, þegar frá
er talið tjónið, sem varð af
árásum Bandaríkjanna í
Japan. Það er ííka kínverska
stjórnin, sem boðar til ráð-
stcfnunnar og verður utan-
3'ikisráðherrannWang Ching
cliiei i forsæti.
mælingaskip, öll mótorknú-
in, og loks eitt eimknúið
dráttarskip.
Forseti ttalíu
biðst lausnar.
De Nicola, forseti ítalska
lýðveldisins, hefir beðizt
lausnar og farið fram á að
losna úr embætti sem allra
fyrsí.
Hann hefir lengi verið
lieilsulaus og úskar þess
vegna að losna úr embætti.
Vinstriflokkar landsins reyna
að nota lausnarbeiðnina íil
þess að ráðast á stjórn de
Gasperis. Talið er að þeir
reyni að fella hana við um-
ræður er nú fara fram i it-
alsska þinginu. Almennt er
þó álitið, að hún muni fá
traustsyfirlýsingu.
Síldin er
ekki komin.
Að því er Vísir hefir fregn-
að, munu fréttir þær, sem
borizt hafa að undanfömu
um miklar síldargöngur hér
við land, vera mjög' orðum
auknar.
M.s. Rifsnes, sem hefir
verið í síldarleit frá þvi í
byrjun þessa mánaðar fyrir
Norður- og Austurlandi, lief-
ir ekki orðið síldar vart.
Rifsnesið rannsakaði svæð-
ið frá Ilorni til Kolbeinseyjar
og þaðan lil Tjörness, grunnt
og djúpt. Síðan var leitað frá
Mánáreyjum fyrir Sléttu að
Langanesi og þaðan grunn-
leiðina til Seyðisfjarðar.
Djúpslóðina á austursvæðinu
liefir ekki verið bægt að
rannsaka síðustu dagana
vegna veðurs. Rifsnesið bef-
ir eklci séð neina sild og enga
sítd fengið í reknet.
I sambandi við frétt, sem
borizt hefir um það að skip-
verjar á Kaldbak hafi séð sild
norðvestur af Færeyjum,
skal þess getið að þeir sáu
aðeins stökksíld, þ. e. eina og
eina .síld stökkva lúngað og
þangað í sjónuiíi: Síldartorf-
ur sáu þeir engar.
Franska þingið hefir sam-
þykkt friðarsanmingana við
Itali mótatkvæðalaust.
Búið að draga
b happdrætti
templara.
Á mánudagskvöld var
dregið í happdrœtti Templ-
ara, eins og álcveðið hafði
verið. Vinningar voru fimm
hifreiðar.
Fjögra manna Morris-bif-
reið hlaut eigandi happ-
drættismiða nr. 30.372, eig-
andi miða nr. 49.686 hlaut
Peugeöt-bifreið, nr. 24.336
Skoda-bifreið, nr. 37.036
Renault-bifreið og loks eig-
andi miða nr. 33.000 hlaut
Tatra-bifreið. —- Alls er
verðmæti þessara vinninga
69.500 kr.
Svíar sigruðo
Bani, 4:1.
Landsliðskeppni i knatt-
spyrnu milli Dana og Svía.
Landsliðskeppni var háð á
sunnudaginn milli Svía og
Dana og lauk leiknum með
sigri Svía.
Leikurinn fór fram í Kaup-
mannaliöfn og voru dönsku
konungshjónin viðstödd. í
fyrri hálfleik settu Svíar þrjú
mörk, en Danir ekkert. Síðari
hálfleikur fór þannig að Dön-
um lókst að skora eitt mark
og Sviar settu eitt i viðbót og
lauk þvi leiknum með fjór-
um mörkum gegn einu Sví-
um i hag.
Ungverjar á-
nauöug þjóö.
Nagy fyrrverandi forsætis-
ráðherra Ungverjalands er
kominn til Bandaríkjanna og
hefir rætt þar við banda-
ríska stjórnmálamenn.
Hann fullyrðir að liann
bafi orðið að láta af völdum
vegna íhlutunar Rússa í inn-
anríkismái Ungverja. Ilann
bét á allar þjóðir að veita
sér stuðning og sagði að
flokkur lians, smábænda-
flpkkurinn, myndi áreiðan-
lega vinna sigur i frjálsum
kosningum í Ungverjalandi.
Kosningar, sem haldnar
væru undir bandleiðslu
þeirra stjórnarvalda, er nú
færu þar með völd, myndu
aldrei sýna hinn sanna
arvilja.
Fiskveiðar ræddar í Róm.
Næstkomandi mánudag
hefst í Róm ráðstefna mat-
vælaframleiðsluráðs banda-
manna og verður rætt um
fiskveiðar.
Fífldirfskuför á sportflug-
vélum umhverfis hnöttinn.
Flugvélarnar vænfanlegar
hingað þá og þegar.
Tveir ungir Bandaríkja-
menn eru um þessar mundir
væntanlegir hingað til lands
á för umhverfis hnöttinn í
tveimur htlum sportflugvél-
u m.
Nota þeir Piper-Cub-vélar,
eu vélar af þeirri gerð eru til
bér á landi, en þeim liefir
vitanlega verið breylt með
tijliti til þess, hve langa á-
fanga verður að fara í þess-
ari ferð. Hefir auka-geymum
fyrir benzin verið komið fyr-
ir í vængjum flugvélanna og
taka þær alls um 470 litra af
benzíni, sem endist til 26
klst. flugs, en á þeim tíma
eiga vélarnar að komast um
3800 km. i liagstæðú veðri.
Flugmennirnir lieita Clif-
ford V. Evans, frá Arlington
í Yirginiafvlki, og George W.
Tniman frá Benvyn i Mary-
land. Sá nnm vera óskyldur
forselanum. Lagt var upp frá
New York þann 11. júní og
gert ráð fyrir þvi, að þeir fé-
lagar yrðu komnir hingað i
gær.
Piper-verksmiðjurnar og
aðrar verksmiðjur, sem
smiða hluíi til Pipervélanna,
hafa gefið þessar tvær til
þessarar heimsfarar til þcss
að sýna kosti þeirra.
Hinir ungu menn kenna
för sina við Magellan, sem
fór umhverfis jörðina fyrst-
ur manna. Mun mörgum
þykja leiðangur þeirra fífl-
dirfskulegur.
UMFERÐARDDMSTDLLINN :
162 menn dæmdir
í sekt á 12 dögum.
Algengustu brotin eru að
menn skilja við bifreiðar
á ólöglegum svæðum.
prá því að umferðardóm-
stóllmn, sem er til húsa
í iögreglustöðinni, tók til
starfa og þar til 16. þ.m.
hefir hann fjallað um og
dæmt í málum 162 manna,
er gerzt hafa brotlegir við
umferðarreglurnar.
Að því er fulltrúi lögreglu-
stjóra, Sigurjón Sigurðsson
skýrði blaðinu frá í morgun,
virðist umferðadómstóllinn
gefa mjög góða raun, og er
full ástæða til að lialda, að
menn verði ekki eins skeyt-
ingarlausir í sambandi við
umferðarmálin, eftir að
hann er tekinn til starfa. Að
vísu skall verkfallið á fjór-
um dögum eftir að dómstóll-
jnn tók til starfa, svo að fjöl-
margar bifreiðar liættu
akstri sökum benzínleysis og
þess vegna erfitt að segja,
hvort dregið hefir úr lögbrot-
unum. En úr þvi verður
.væntanlega skorið, er allar
bifreiðar fá benzín að nýju
og komast í umferð. En eitt
cr víst, að dómstóllinn vcrð-
nv til þess að draga mjög úr
algengustu umferðarbrotun-
um.
Algengustu brotin á um-
ferðarlögunum eru þau, að
menn skilja bifreiðar sinar
eftir á ólöglegum stæðum.
Alls var dæmt í 77 slíkum
tilfelluin. Næst-algengustu
brotin voru of hraður akst-
ur. Alls voru 36 menu dæmd-
ir fyrir það. I hinum tilfelL-
unum var dæmt i málum
þeirra, sem óku bifreiðum
án réttinda, í öðru lagi með
ofmarga farþega, i þriðja
lagi þeirra, sem vanrækt
höfðu að fara með bifreiðar
sínar i skoðun og loks vegua
vöntunar á skrásetningar-
anerkjum.
Innbrots-
þjófar
hand§amaðir
í nótt brutust þrír menn
inn í veitingastofu á Geirs-
götu og voru tveir þeirra
handsamaðir á staðnum.
Veitingastofa þessi er ,á
Geirsgölu, móti Sænska
frystihúsinu. Um fjögur
leytið í nótt sá maður nokk-
ur til þriggja innbrotsþjófa,
sem brutust inn i veitinga-
stofuna. Gerði hann lög-
reglunni þegar aðvart og
náði liún í tvo þjófana, er
þeir voru nýkomnir út.
Voru þeir þá með nokkra
sigarettupakka og ölflöskur
á sér. Þeir voru báðir undir
áhrifum áfengis.