Vísir - 22.07.1947, Blaðsíða 4

Vísir - 22.07.1947, Blaðsíða 4
jft V I s I R Þrjðjudaginn 22. júir:'ÍSá7 ! ' «9 DAGBLAÐ tTtgefandi: BLAÐAUTGÁFAN VISIR H/F Ritstjórar: Kristján Gu6iaugsson, Hersteinn Pálsson. Skrifstofa: Félagsprentsmiðjunni. Afgreiðsia: Hvexfisgötu 12. Símar 1660 (fimm línur). IaniHafiata 50 aurar. Félagspröitsmiðjan h.f. Handritamálið. Landssamband stúdenta heldur þing sitt hér í bænum þessa daganá, en mál það, sem þingið mun aðallega fjalla um, er endurheimt íslenzkra handrita úr erlendum ' söfnum. Hefur þetta að vonum verið um langt skeið eitt af aðaláhugamálum íslenzkra vísindamanna og þjóðar- innar allrar, þannig að i ályktunum þeim, sem stúdentar ! kunna að gcra, felst engin ný viljayfirlýsing, heldur verð- ur þar árettuð krafa, sem komið hefur fram fyrir löngu. Kröfunni um endurheimt handritanna hefur stöðugt ' verið fylgt eftir, og stundum með nokkuru harðfýlgi. • Þannig má þess geta, að í íslenzk-dönsku sambandslaga- • nefndinni hefur Gísli Sveinsson, núverandi seiidiherra, vakið oftar en einu sinni máls á þessu, við misjafnar þakkir danskra nefndarmanna, en þótt þeir hafi ávallt 1 leitazt við að eyða málinu, hefur aldrei verið slakað á 1 ldónni, en málínu stöðugt verið Jialdið vakandi innan •nefndarinnar. Er allur málflutningur Gísla Sveinssónar á þcim vettvangi stórlega þakka verður, þótt enn hafi ekki tekizt að leysa málið viðunandi. / Fyrr á árum mun því aðallega hafa verið borið við, að hér á landi væri ekki fvrir hcndi liúsnæði, sem hand- ritunum hentaði, eða'tryggt gæti fyllilega vörzlu þeirra. Slíkri viðbáru verður ekki lengur á lofti haldið. Við höf- um þegar yfir að ráða býggingum, sem eru mun öruggari, cn þær byggingar í Kaupmannahöfn, sem íslenzk handrit eru nú aðallega geymd í, en auk þess yrði okkur væntan- lega ekki skotaskuld úr þvi, að reisa liæfilega byggingu vegna handritanna. Sá yrði auk þess munurinn, að yrðu liandritin flutt hingað til lands fengju þau að sjá dagsins Jjós í stað þess að hvíla í algjöru myrkri á erlendri grund. Vísindamenn íslenzkir fá ekki unnið störf sín svo sem vera skyldi, meðan þeir þurfa að leita heimilda langt yfir ' haf, í stað þess að hafa þær hér við hendina, en ættu þeir greiðan aðgang að handritunum, er þess að vænla að þau ’ myndu aftur sjá ljósið og lífið. Þetta skilja margir Danir og hafa tekið vinsamlega á málinu, en í því efni ber að þakka það, senr vel er gert. Þannig hafa ýmsir stjórn- málamenn, blaðamenn, kennarar og jafnvel vísindamenn tekið málinu með fullkomum skilningi. Sljóleiki nokk- urra háskólakennara virðist aðallega hindra framgang málsins, en sém dæmi um það heilbrigðisástand mætti’ ' nel'na,; að nýlega hefur guðfræðingur einn mótmælt af- hendingu handritanna innan danska þingsins. Slík mót- mæli eru létt á metunum, eiida ekki rökstudd á nokkurn Iiátt af skynsamlegu viti. Aðalatriðið er að handritin komi að tilætluðum notum fyrir nútímann, en liggi ekki ónotuð í söfnum til augna- ( gamans undir glerrúðum. Er það hverri menningarþjóð ’vanzi að varðveita handritin á_ slíkan hátt, en rísa jafn- framt gegn því að norræn vísindi auðgist með handrita- Jgagnrýni hæfra manna og útgáfustarfsemi, sem öllum nor- ’rænum þjóðum kæmi að notum. íslcnzkir vísindamenn hafa þegar sýnt, að þeir standa fremstir í flokki varð- 1 andi túlkun norrænna sögu og málvísinda, sem einnig er eðlilegt, með því að íslenzk tunga er þeim þar ekki ' fjötur um fót, svo sem tungur annarra Norðurlandaþjóða I hljóta að reynast. Handritin eru eini þjóðararfur Islendinga. Þau eru 1 ómetanlegur arfur fyrir okkur, en öðrum þjóðum lítils virði og tildur eitt. Því ber að skila þeim aftur til ' síns heimalands, sem nú er þess albúið að veita þeim yíðtöku. Hitt er aftur rétt, sem Sigurður Nordal vakti alhýgli á, að við ættum að hafa enn meiri viðbún- ; að til þess að veita handritunum viðtöku og' varð- ’ veita þau. Væri’vel við eigandi að hafizt yrði handa um byggingu, sem yrði bækistöð norrænnar vísindastarfsemi ! og gróandans í fortíðar og nútíðar bókmenntum íslend- ' inga. Fer yel á því að stúdentar beiti sér fyrir þessu máli, enda má segja að þeir hafi þá eitthvað jákvætt fram að færa, auk þess, sem fast ber að standa á rétti þjóðarinnar \ íil handritanna. Háskólabærinn Lund er kyrrlátur og fagur bær, laus við öll lakaii stórborgarein- kenni. i Þessi bær á sér glæsilega og merkilega sögu, tífnkum i sambandi við kirkjulíf og menningarlif Svíþjóðar. En þó munu ibúar þar þurfa að leita lengi i annálum bæjar sins til þess að finna þar sagt frá annarri eins viku og þeirri, sem þar var lifað 30. júní til 6. júlí 1947. Eulltrú- ar frá fjarlægum og nálæg- um löndum komu þar sam- an i sumarbliðunni og bit- anum. Þar vou gömul sam- bönd endurknýtt og unnið að því að styrkja sátt og frið í sundruðum heimi og stofna til bjálparstarfs meðal hungraðra og þjáðra manna. Á götum hins virðulega menntabæjar ægði saman ó- likustu tungumálum, og ný- stárlega klæddir fulltrúar fjarlægðra þjóða reikuðu þar innan um Norðurlanda- búa, Engilsaxa og Þjóðverja. Alþjóðabragur var á manna- móti þessu. Skrúðgangan til dómkirkjunnar 4. júlí var skýr mynd margbreytninn- ar á móti þessu. Vér, sém vorum í Lundi þessa merkilegu daga, mun- um aldrei gleyma þeim. Og hinn stílfasti og virðulegi menntabær mun ávallt blasa við oss i ljósi þessa kirkju- þings, sem heimsathygli vakti, a. m. k. hjá þeim mönnum allra þjóða, sem telja fagnaðarerindi Jesú Krists líklegra heiminum til hjálpar og viðreisnar en slægvizku og bellibrögð heimsvaldasinnaðra velda. stór- Hér skal eigi rej’nt að spá neinu um árangur þessa þings. En leyfilegt er að vona það og óska þess, að sam- verustundir svo margra full- trúa ólikra þjóða géti átt sinn þátt i því að eyða forn- um fjandskap og styrkja gömul vináttubönd. Meðan mönnum skilst, að samúðin og samfélagskenndin sé til blessunar og bóta, finna þeir jafnframt til þess, að styrjöld er óeðlilegt, sjúklegt fyrir- brigði i lífi mannkynsins. Enn hefir ekki tekizt, þrátt fyrir allt, að ganga milli bols og höfuðs á þeirri gömlu við- leitni, að göfga mannkynið, fegra líf þess og fullkomna og koma á skynsamlegu skipulagi og samfélagi mannanna. Þingið i Lundi hefir i anda Jesú Krists tek- íð upp þessa viðleitni og v.ott- að örugga trú sína á lcraft hinnar heilögu bræðralags- bugsjónar. Þess er að vænta, að þing' þetta hafi orðið full- Irúnunum öllum hvatning til að sýna í verki og fórnar- þjónustu lifandi kristindóm, og væri það eitt út af fyrir sig mikilsverður árangur. Því að cinskis þarfnast heim- urinn nú fremur en trúar- vissu og lifandi vonar til framtiðarinnar. Það varð mér augljóst af mörgum samtökum við fulltrúa frá þeim þjóðum og kirkjum, sem bágast eiga nú. Oft hefir sá liáttur verið hafður í sögunni, og cigi sizt kirkjusögunni, að tengja andlegar hreyfingar við nöfn vissrms ( aða, þar sent kraft-- : . ur þeirra streymir fráín. Þannig hefir t. d. verið tal- að um „andann frá Worms“ í sambandi við sögu Lúthers, anda sannleiks þcss og sam- vizkufreisis. Það væri hinu fornfræga og góðkunna kirkju- og háskófasetri Súð- ur-Sviþjóðar hinn hæsti Iieiður, ef siðar yrði talað um „andann frá Lundi', anda sáttfýsi og bræðrálags, sundruðum, særðum' og þjáðum þjóðum til andlegr- ar lækningar og lifgunar. Lútherska heimssambandið, sem þar var endanlega stofn- að, hefir, án tillits til landa- mæra og' þjóðerna, samcin- að hugi og hjörtu manna til viðreisnar mannkvninu. Og aldrei verðúr nein viðleitni heiminum farsælli en sú, sem bendir mönnunum til upp- hafs síns, og hvetur þá til að stefna sáman að þvi marki, sem lífi mannanna var sett við komu Krists i heiminn, „dýrð Guðs í upp- hæðum, friði á jörðu og góð- vilja með öllum mönnum“, Lundi, 8./7. 1947. ,<£ A. S. Hanáklæðin eru komin. v c ** ar l u * i 13»t« =**>'*• ^WIUWll'ID V4-1-T Freyjug. 1. Munið TIVOLI BEZT AÐ AUGLYSA1 VlSl BEKGMAL Veðrið var okkur hliðholt. Það var mannmargt á Gróf- arbryggju, er „Lyra“ lagðist upp að á laugardaginn var. — Veðrið var þá ekki sem allra bezt, en þó höfðu þúsundir manna safnazt saman undan Hafnarhúsinu og við nærliggj- andi staði til þess aö fagna Ól- afi ríkisarfa Noröinanna og hinu tigna föruneyti hans. Þaö rigndi talsvert, meöan á mót- tökuatliöfninni stóö, en enginn lét þaö á sig fá og daginn eftir var, sem betur fer, komiö hiö bezta veöur. Smekklegar móttökur. Það mun almennt vera skoö- un manna, aö viötökur hér hafi veriö viröulegar og smekkleg- ar. Óhætt er aö fullyrða, að ræöuhöld og viöbúnaöur allur í Reykholti hafi veriö okkur ís- lendingunj ijttl sóma. L> ekki gátu lahiö upp eftir til Reykholts, nutu þess í útvarp- inu, sem fram fór. Karlakór- söngur „Fóstbræöra'* og „Karlakórs Reykjavíkur"' tókst ágætlega og báru söngstjórun- um, þeim Jóni Halldórssyni og Siguröi Þóröarsyni,' fagurt vitni. Söngelskir menn télja, aö sjaldan hafi heyrzt fegurri og þjálfaöri söngur /en þegar kór_ arnir bá'öir sungu saman. Frétt hefi eg eftir útlendum blaöa- mönnum, sem . þarna: ■ voru staddir, aö sjaldan eöa aldrei hafi þeir heyrt fegurri karla- kórssöng. Megum við vel viö þann dónt una. i Góðir gestir. Þaö er óhætt aö segja, aö Norðmenn hafi sent hingað virðulega og vinsamlega gesti á Snorrahátíðina. Viö höfum aö sjálfsögöu frétt uni karl- mannlega framkomu Ólafs rík- isarfa á styrjaldarárunuin. En vafalójuífj, hpffnúiVuiniö við frekari kynningu. Fram- koma hans hefir verið svo yiröuleg og blátt áfram. Auk ríkisarfans eru hér einnig á ferö forsetar lögþingsins og óðals- þingsins norska og margt fleira stórmenni, sem allir hafa látiö í ljós hlýhug og vinarþel til okkar íslendinga. 1 I Sameiginleg guðsþjónusta. Einn liöur í SnorraáthöfniMú var sameiginleg guösþjónusta Islendinga og Norðmanna í dómkirkjunni. Kirkjan var þéttskiptið fólki og komús’t færri fyrir en vildu, eins og von var. Sigurd Fjær, dómprófast- ur við Niöarósdómkirkju, pré- dikaöi og flutti mjög skörulega ræöu, þar sem glöggt kom fram vinarþel Norömanna í garö ís- , lendinga, Þá flutti dómprófast- urinn hinar hlýlegustu kveöjur frá Eivind Berggrav, biskupi í Osló og öörum biskúpum Nor, egs. Þakkjiöi herra--S«3u^if;, ■ >Si'ýuröiskon biskup kveöjurnar'. Var guðsþjónusta þessi hin hug'ðnæmasta.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.