Vísir - 25.04.1950, Qupperneq 4
4
v ? s a b
Þriðjudagiim 25. apríl 1950
irxsxxi
D A 6 B L A Ð
Otgefandi: BLAÐAOTGÁFAN VISIR II/F.
Ritstjórar: Iíristján Guðlaugsson, Hersteinn Pálsson.
Skrifstofa: Austurstræti 7.
Afgreiðsla: Hverfisgötu 12. Símar 1660 (fimm linur).
Lausasala 50 aurar,
Félagsprentsmiðjan h.f.
Aohnai slysavamir.
|ljörgunarskúta Vestfjarða er nýkomin hingað til lands
® og hefur verið afhent til landhelgis og björgunarstarfa.
Sldpið er talið vandaðasta að allri gerð og er smíðað í
Danmörku, en þar hafa skipasmíðar gefist okkur Islend-
ingum einna bezt að öllu saman lögðu. Skipið ncfnist María
Júlía, en þar ber til að kona ein með því nafni, búsett á
Isafirði, ánafnaði hjörgunarskútusjóð Vcstfjarða allar
eigur sínar eftir sinn dag, en síðar hefur sjóðurinn verið
efldur verulega og Ijar að sínum lilut kostnað af smíði
skipsins, en umsjón með smíðinni hafði forstjóri Skipa-
útgerðar ríkisins. Með afhendingu þessa skips er orðið við
kröfum Vestfirðinga um landhelgisgæzlu og björgunar-
starfsemi, eii á livorttveggja hefur skort um langt árabil,
þótt björgunarsvcitir í landi liafi þráfaldlega unnið þar
merkilcg afrek, sem vakið hafa athygli víða um heim.
Um sama leyti sem björgunarskúta Vestfjarða kom
fil landsins, átti kvennadeikl Slysavarnafélagsins hér í
Reykjavík tuttugu ára starfsafmæli. Formaður félagsins,
frú Guðrún Jónasson, gaf blöðum noldkurt yfirlit varðandi
starfscmina. Vcrkefni félagsins hafa verið þau helzt, að það
hefur látið reisa sex skipbrotsmannaskýli, aðallega á sönd-
unum hér sunnaníánds, en einnig á Snæfejlsnesi og Vest-
fjörðum, þar sem þörfin fyrir skýlin var einna brýnust.
Öll þessi slcýli hafá vcrið búin nauðsynjum, og þar við-
hafður annar búnaður, sem skipbrotsmönnum getur orðið
til bjargar. Þá hefur þessi félagsdeild lagt fram um eitt
hundrað þúsund krónur til björgunarskipsins Sæbjargar
Og svo loks nokkra fjárupphæð til sjúkrabifreiðar.
Þótt hér sé stiklað á stóru, sannar það að konur lands-
ins leggja björgunarstarfseminni slíkt lið að elcki verður
of metið. Vist er að Vestfirðingar hefðu enn um skeið
orðið að bíða björgunarskútunnar, ef kona hefði ekki lagt
Iiönd á plóginn og gefið allar eignir sínar til byggingar
skipsins. Víst er einnig að skemmra væru skipbrotsmanna-
skýlin á veg komin, ef ekki hefði notið öruggs stuðnings
slysavaniadeilda kvennanna, víða um land, með því að
kvennadeild Slysavarnafélags Reykjavíkur, Iiefur liér enga
sérstöðu, þóít fjárframlög hennar og framkvæmdir séu
inestar. Slysavarnadeildir kvenna hafa í rauninni forystu
í björgunarmálunum á hverjmn stað, að því er fjársöfnun
varðar, eiga sinn þátt í undirbúningi framkvæmda og
vinna af kappi og áhuga að framgangi þeirra, eftir að
hafizt hefur verið handa.
Þótt mannskaðar á sjó hafi reynst tilfinnanlegir það
sem af er vertíð, hefur björgunarstarfið þó boi’ið góðan
árangur. Er þess skemmst að minnast að bjargað var þorra
skipsliafnar af olíuskipinu „Clam“ er rak á land við
Reykjanes, og allri skipshöfninni af hrezka togaranum, sem
strandaði á Eldeyjarboðunum. Björgunarsveitir víða um
land hafa sýnt lofsverðan áhuga í starfi og hvorki sparað
fé né fyrirhöfn, til þess að verða skipbrotsmönnum að liði,
er þörf hefur gerst. Þótt fáar björgunarsveitir hafi unnið
önniir eins afrek og þær, scm kunnastar eru frá Vest-
fjörðum og Snæfellsnesi.
Fulltrúar slysavarnanna vinna ekki að því einu að
tryggja björgunarstarfsemi við sjávarsíðuna, heldur reyna
þeir einnig að koma fram ýmsum öryggisbúnaði öðrum
í landi. Nýlega gaf einn erindreki Slysavarnafélagsins yfir-
lit um stórbruna, sem orðið hafa liér á landi síðustu árin,
cn sem lcostað hafa þjóðina milljónatuga tap, auk ])ess sem
I’iið óbeina tap er ómetið, sem af brummum hefur leitt,
þar sem tíðast er um að ræða fyrirtæki, sem stofnuð hafa
verið í þógu sjávarútvegs, landhúnaðar eða stóriðnaðar,
en við slíkum áföllum má þjóðin ekki. Athyglisvert er í
þessu sambandi, að í flestum tilfelíum cr talið að um
íkveikju út frá rafleiðslukerfi húsanna sé að ræða, og
sýnist þá skorta mjög ú aukið eftirlit og auknar kröfur
um allan fx-ágang slíki’a raflagna. Slysinu verðúr ckki af-
stýrt, eftir að það liefur að liöndum borið, en mikið má
gera til þess að koma i veg fyrir óhöpp, ef menn eru vak-
pndi og taka ráð sín í tíma.
Þing S.V.F.i.
Fnunh. af 1. rita.
5. landsþing Slysavarna-
félags íslands skorar á Al-
þingi og ríkisstjórn aö hefja
framkvæmdir strax á sumri
komandi á byggingu vita á
Faxaskeri, en sly.savarnar-
deildin Eykyndill ætlar að
beita sér fyrir því að koma
upp skipbrotsmannaskýli í
vitanum.
Þá voru ítrekaðar ýmsar
tillögur, sem samþykktar
voru á fjórða landsþinginu,
sem haldið var fyrir 2 árum.
Tillaga um björgunarskip.
1) Teljum brýna þörf á
staöbundnu björgunarskipi
fyrir Norðurlandi og lýsir á-
nægju sinni yfir því, að
stjórn S.V.F.Í., skuli hafa
tekið þetta sérstaka áhuga-
mál norðlenzkra slysavarna-
deilda upp á stefnuskrá
sína. Væntir fundurinn þess
eindregiö, að unnið verði að
heppilegri lausn þessa nauð-
synjamáls í næstu framtíö.
2) Áskorun til Alþingis og
ríkisstjórnar að taka upp á
fjárlög yfirkomandi árs fjár-
upphæð til að standast
kostnað af rekstri björgunar
skips viö Norðurland yfir
haust og vetrarmánuðina.
5. Landsþing Slysavarna-
félags íslands beinir þeirri
áskorun til Flugráðs aö gerð
ur verði öruggur nduðlend-
ingaflugvöllur í nálægð
Reykjanesfjallgarðs að aust-
an tjl öryggis þeim flugvél-
um á leið til Reykjavíkur,
sem ekki komast yfir fjall-
garöinn vegna veðurs. Telur
þingið uauðsynlegt að slíkur
völlur verði vel merktur og
útbúinn ljósum til nætur-
lendinga.
5. Landsþing Slysavarna-
félags íslands felur stjórn fé-
lagsins aö láta athuga hvaö
hagkvæmt er að gera til
slysavarna á Mýrum og
hefja framkvæmdir ef hægt
er þegar sú athugun hefir
fax’ið fram.
Frá Slysavarnarnefnd.
1) 5. þing S.V.F.Í., skprar
á Skipaútgerð ríkisins vegna
hinna miklu mannflutninga
og slysahættu að hafa stór
og örugg skip í förum milli
Reykjavíkur og Vestmanna-
eyja vetrarmánuðina minnst
einu sinni í viku, svo fólk
þurfi ekki að ferðast með
smábátum þessa leiö.
2) Áskorun til Fjárhags-
ráðs og gjaldeyrisyfirvald-
anna aö leyfa Slysavarnar-
félaginu aö flytja óhindrað
'inn það, sem félagsstjórnin
jtelur nauðsynlegt af björg-
|unartækjum og til viðhalds
þeirra
3) Þingið felur stjórn S- V.
F. í., að beita sér fyrir því, í
'í samráði við - skipaeftirlit
jríkisins, að fluttir verði inn
heppilegir b j örgunarf lekar
I fyrir báta, er ekki er skylt að
hafa björgunarbáta um
borð eða ekki geta það rúms
ins vegna, og verði þessum
bátum gert að skyldu að
hafa þá um borð.
5. Landsþing skorar á
Skipaeftirlit ríkisins að
skylda togara og önnur
stærri skip að hafa um borð
sérstakar hreyfanlegar aust-
ursdælur til vara, sem hægt
er að færa um skipið eftir
þörf.
Slémbúih
GARÐIiR
Garfiastræti 2 Simi 7*299
a/wm
Þjóðleikhúsið. —
„Opnunar“-hugleiðing.
fjá er hiö reisuléga, fagra
I’jóöleikhús tekiö til starfa,
og Ixærinn okkar oröinn auS-
ugri en hann áður var.
Öll bloSin i bænum hafa fari'ð
lofsamlegum orðum um Ixygg-
inguna, og þeir, senx gist liafa
þar innan veggja, virðast á
einu niáli um það, aö leiklist-
inni séu nú bún hin glæsileg-
ustu skijyrði.
Þótt margir hafi komið við
sögu byggingarinnar, og lagt
gjorva höncl á smíði hennar,
ber að sjálfsögðu hæzt nafn
próf. Guojóns ’ Samúelssonar
húsameistara, en ' honum Ixer
fyrst óg fremst aö þakka ár-
angurinn.
gg geri ráö fyrir því, að þaö
taki nokkurn tíina að átta
sig á því hversu verömætt það
er þjóðinni og höfuðborg hemr
ar að hafa eignast ]xetta hús,
sem engau veginn stendur að
baki fullkomnustu leikhúsum
annarra þjóða, og um sumt
framar. Vonandi Uera menn að
umgangast húsið með þeirri
virðingu, sem því ber, og þeirri
menningu, sem krefjast veröur
af einstaklingum. Þetta er sagt
végna þéss, aö því miðitr hefir
of oft boriö á miklu lcæruleysi
í umgengni um þaö sem vel er
gert, og til aukinna þæginda
eða yndisau.ka, og má þar eink-
uin benda á þá aðra samkomu-
staði í bænum, sem nýjastir eru
af nálinni.
*
JJitt er það, sem brýna verður
sérstaklega fyrir leikhús-
gestum og Þjóðleikhússtjóri
hefir tekið fram, en það er með-
férð reykfanga og elds. Að yísu
er bannað að reykja nema á á-
kveðnum stöðum, svo sem ytra
anddyri og kjallara. Ekki skal
því spáö, hvort unt veröi aö
framfylgja þeim kröfUm til
Íangframa, en hitt er víst, að cf
óvarlega væri með eld farið i
innri göngum og skála, stendur
af því bráö htetta. Á gólfum eru
þykk og fögur teppi, eldfimir
gúmmídúkar og viðarþiljur á
veggjxun i skála og sal. Ef leyfö-
ar væru reykingar almennt, er
sérstök ástæða tii þess að óttast
það, að einhverjir kynnu að
kasta frá sér reykföngum i
ílýti, t. d. að loknu hléi milli
þátta, og þannig geta valdið
tjóni, þó ekki væri nema hinum
leiðu brunablettum á teppum
gólfa. Má þar til samanburðar
benda á þaö, hyernig t. d. gólf-
dreglarnir í Sjálfstæöishúsinu
voru orðnir útleiknir af svört-
um brunagötum eftir cigarett-
ur, fljótlega eftir aö húsið tók
til starfa með veitingar og sam-
komur.
iö, næst á
ingum.
undan og eftir sýn-
J^Jargt fleira þarf að ræða al-
T*mennra hluta í sambandi við
Þjóðleikhúsiö, en hér verður
látið staðar numið að sinni.
Hinar margyíslegu og alveg
: furðulegu lcynjasögur um ýms-
ar framkvæmdir í þessu húsi
1 fyrr og síðar, munu vafalaust
þagna eða skýrast á réttan veg.
þegar almenniugur fær tækifæri
: til þess að kyiina sér bygging-
una af eigin sjón og raun.
, Margir „skáldsagnahöfundar“
I hafa þar að verki verið, og
| byggt sögur sínar á miöur vel-
I viljuðum heimildum eöa imynd-
i un einni, án þess að hafa kynnt
sér staðreyndir.
í bili hafa þær raddir þagn-
að fyrir öðrum sama eðlis og
að rnestu leyti sama uppruna, en
það eru „opnunar“-áhyggjur,
og hinar furðulegustu getsakir
í garð leikhúsgesta um hvers-
kyns óhóf í því sambandi.
Pyrir nokkru síöan birti eg
hér mynd af fyrirhuguöu
skipulagi umhverfis leikhús- \
bygginguna. Verður það næsta
aðkallandi verkefni strax og á-
stæður leyfa aö heíja þær fram-
kvæmdir. sem þar hafa verið á-
formaöar og ákveðnar. Sú hlxð
málsins snýr einvörðungu að
Reykjavíkurbæ, og ekki er að ■
efa, að hann muni flýta þessum ^
framkvæmdum, þegar stjórn
landsins hefir nú skilað leik-
liúsinu, Éitt fyrst og fremst j
gerir þær ráðstafxmir nauðsyn-
legar, en þaö eru bílastæöin,
sem eins og sakir standa eru
með öllu ófullnægjandi. Þess
varð mjög áberandi vart undan-
farin kvÖld, er leikhúsgestir
komu og fóru. Á meðan við
svo búiö verður aö standá, er
a. m. k. nauðsynlegt að lögregl-
an veröi all fjölmenn við um-
íerðarstjórn á næstu gatnamót-
um og umhverfis sjálft leikhús-
J^afalaust hafa einhverjir gert
sér dagamun í klæðum við
fyrstu sýningar í húsinu,-------
og engmn skynibornum manni
þarf að kon|a slíkt á óvart.
Hitt er aftur ósamboðið þeim,
sem fyrir því staixda, að grípa
úr lausu lofti tilhæfulausar
slúðui'sagnir, að því er viröist
í þeim tilgangi éinum, að setja
einhvern blett eða leiðindi á þá
hátíð, sem hlaut að veröa, ]xeg-
ar hið langþráða Þjóðleikhús
var vígt til starfa í þágu list-
anna og þjóðarinnar.
En slíkar ánnarlegar raddir
munu líka þagna, þegar þeii',
sem móttækilegir eru fyrir þær,
hafa fengið nægju sína. Hitt er
aftur öruggt, að langsamlega
meiri hluti íslenzku þjóðarinn-
ar fagnar því af lxeilum hug,
að vel liefir tekist, og væntir
þess að leikhúsiö verði jafnan
fært um að fullnægja því
menningarhlutverki, sem því er
ætlað.