Vísir - 03.05.1950, Qupperneq 1
$0. árg.
Miðvikudaginn 3. maí 1950
97. tbl.
marz
var 637 st. miðað við jamí-
ar-marz
Vísitala framfærslukostnaðar
var 355 stig.
1 síðasta tölublaði Lögbirtingablaðsins, dags., 29. apríl
s. 1., er birt svohljóðandi tilkynning frá viðskiptamála-
ráðuneytinu:
Vísitala framfærslukostnaðar í Reykjavík hinn 1. marz
s. 1. reyndist, samkv. útreikningi ltauplagsnefndar, vera
355 stig, ef miðað er við 100 fyrir mánuðina janúar til
marz 1939 og reiknað er eftir þeim reglum, er giltu áður
en lög nr. 22/1950 gengu í giidi.
Kauplagsnefnd reiknaði enn fremur fyrir 20. þ. m.
nýja visitölufjárhæð, samkvæmt 3. gr. laga nr. 22/1950,
eftir verðlagi í Reykjavík 1. marz s. 1. og reyndist hún
vera kr. 17.689.80, Við þennan grundvöll skulu síðari
breytingar á vásitöluf járhæð miðast og er vfeitalan fyrir
marz 1950 100, eins og 3. gr laga nr. 22/1950 kveður
á um.
Hagstofa Islands hefir enn fremur reiknað kaupgjalds-
vísitölu fyrir marz 1950, samkv. 4. gr. laga nr. 22/1950,
og yar hún 637 stig, ef miðað er við grunntímabilið
janúar til marz 1939.
Eins og skýrt hefir verið frá hér í blaðinu hafa Norðmenn fengið fyrstu Vopnasend-
ingu sína frá Bandaríkjunum. Með fyrsta flutningaskipinu komu þó aðeins handvopn
og var mynd þessi tekin, er verið var að skipa þeim upp í Osló. Vopnin eru flutt af
herbílum til vopnabúranna. Engar tilraunir voru gerðar í Noregi til að tefja afgreiðslu
Iterf lutnin gaskipanna.
Pekingstjórnm tilkynnir að hún
Chiang tilkynnir að meirihiuti varn
arhersins haíi komizt til Formósa
Landsliðskeppnin:
Þriðja umferð
tefld í kvöld.
■?. #
Landsliðskeppnin í skák
hélt áfram í gærkveldi, en
þá fór fram önnur umferð
af þeim 11, sem tefldar verða
Leikar fóru þannig: Bald-
ur vann Hjálmar Theódórs-
son. Jafntefli varð' milli
Bjarna og Ásmundar og Jóns
og Lárusar. Biðskákir uröu
hjá Margeiri og Guðmundi
Ágústssyni, Guðjóni M. og
Gilfer og Sturlu og Benóný. |
Þriðja umferð verður tefld
í kvöld.
----+----
Hækkttn á ið-
gjöldum Sjúkra-
samlagsins.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur
hefir auglýst hækkun á ið-
gjöldum til samlagsins.
Nemur hækkun þessi kr.
4.00 á mánuði og er iðgjald
til samlagsins nú kr. 20.00 á
mánuði. Þessi Iiækkun er af-
leiðing af því, að lyfjaverð
hækkar um 25%, sömuleiðis
vegna þess, að gi:eiðslur til
lækna hælcka um 12%
Vonlaust að
bjarga Ogano.
Vonlaust þykir að bjarga
togaranum Ogano, sem rennt
var á land í Stöðvarfirði á
dögunum.
Skipið haf ði tekið niðri við
Horn og botn þess Iaskast
mjög mikið. Við rannsókn,
sem fram fór eystra kom i
ljós, að það myndi ekki svara
kostnaði að þétta skipið og
ná því út.
íslasid fær
2,1 milfj.
dollara.
Efnahagssamvinnu-
stjórnin í Washington
hefir nýlega ákveðið að
veita íslandi 2.100.000
dollara, sem jafngilda
34.272.000 krónum.
Hefir ísland þar með
fengið úthlutað af efna-
h agssamvi nnu stjórninni 7
milJjónum doílara fyrir
árið 1949/50, en samíals
nema framlögin 15.3 mill-
jónum dollara frá byrjun
Marshall-áætlunarinnar.
(Frétl frá ríkissljóriiimú).
Orustuskip
orðin úrelt.
New York (UP). — Hið al-
máttka orustuskip er um það
bil að Ijúka hlutverki sínu.
Þetta var aðalefni ræðu,
sem WiIIiam Blandy flota-
foriugi hefir haldið hér í
borg. Sjá mætti fram á það,
að á næstu árum mundu fjar-
slýrð skcyli verða svo full-
komin, að hcrskip fraintíðar-
jnuar m.undu verða byggð
með alll annað fyrir augum,
en orustuskip þau, sem nú
eru til.
----+----
Eldsvoði.
Um kl. 16.20 í gær kom
upp eldur í líúsinu nr. 10 viö
Mjóstrœti.
Er • þar íatahreinsun til
húsa og var nokkur eldur
þar er slökkviliöið kom á
vettvang. Gekk greiðlega að
slökkva eldinn. Skemmdir
urðu litlar á húsinu, en nær
engar á efni og vörum, sem
í fatahreinsuninni voru.
I opinberri tilkynningu
frá bækistöðvum Cliiangs
Kai-sheks á Formosa segir,
að þjóðernissinnum hafi tek
izt að koma meirihluta her-
liðs síns á Hainaney undan
og tekizt ennfremur að
bjarga mörgum skiyum
hlöðnum vistum og vopnum.
í tilkynningu þessari er þó
hvergi minnzt á hve miklu
af herliðinu varö bjargað,
en á Hainan höfðu þjóðernis
sinnar á annað hundrað þús.
hermanna.
Á valdi kommúnista.
Hainaney er nú öll á valdi
kommúnista og hefir Pek-
ingstjórnin gefið út opinbera
tilkynníngu um töku eyjar-
innar. Þar er því haldið
fram aö sóknin hafi veriö
svo hröð og varnir hers
þjóöernissinna hafi brotnaö
svo skyndilega, að komm-
únistum. hafi tekizt aö taka
fjölda hermanna höndum og
ógrynni herfangs.
Dýr innrás.
í fregnum frá Hong Kong
segir að innrás kommúnista-
stjórnarinnar á Hainan hafi
verið mjög dýr. Miklum
fjölda innrásarbáta hafi ver-
ið sökkt í fyrstu tilraunum
þeirra til þess að gera innrás
á Hainan. Þar hafi drukk’n-
að þúsundir hermanna og
mikið af hergögnum auk
þess farið í sjóinn. Þrátt fyr-
ir mikið skipatjón í fyrstu
héldu kommúnistar áfram
innrásartilraunum sínum og
tókst brátt að ná fótfestu á
eynni. Síöan hófst sóknin,
er tókst greiðlega og þegar
höfuðborgin féll, virtust all-
ar varnir þjóöernissinna á
bak þrotnar.
Formósa.
Vitað er að þjóðernissinn-
um tókst a koma talsverðu
liöi undan, sem flutt var til
Formósa og sameinað varnar
liðinu þar. Ekki er búist viö’
að kommúnistar reyni að
gera innrás á Formósa í bili,
þar sem til þess þarf bssði
fleiri og betri skip en til inn-
rásar á Hainan. Þar eru.
varnir einnig mun betei.