Vísir - 18.08.1950, Page 1
48, árg.
Fösíudaginn 18. ágúst 1950
181. tbl.
Markarfljót liefir í suviar
gert alimikinn usla með pví
að brjóta land svokallaðra
Eálmabœja, sem liggja sunn
an vestanverðra Eyjafjalla.
Einkum eru það tvær
jarðir á þessu svæði, Dalssel
og Borgareyrar, sem hafa
orðið harðast úti í sumar, en
áöur hafa aðrar tvær jaröir
lagzt í eyði af ágangi og
spjöllum Markarfljóts, en
þær eru Brúnir og Tjarnir.
í landi Borgareyra hefir
áin brotið 30—40 metra
breiöa spildu á margra kíló-
metra svæði og er Markar-
fljót nú búið að brjóta sig
inn í túnið og rífa á kafla
niður túngirðinguna.
í Dalsseli eru skemmdir
enn sem komið er miklu
minni, en tilfinnanlegar þó„
Eins og kunnugt er, var
Þverá fyrir nokkurum árum
veitt meö fyrirhleöslu í Mark
arfljót til að varna frekari
landsspjöllum í Fljótshlíð,
sem þá þegar voru orðin
mjög tilfinnanleg. Við þetta
fyrirhleðslu jókst vatns-
magniö í Markarfljóti til
verulegra muna og hefir það
síðan unnið ýmis spjöll und-
ir Eyjaf jöllunum og á Hólma
bæjunum. Nú síðast féll fljót
ið í gamlan farveg, sem
Fauski nefnist, og hefir
unnið tilfinnanleg spjöll í
sumar svo sem að framan
greinir.
Pétur Benediktsson
sendiherra í Sviss.
Pétiir Benédiktsson, sendi-
herra, sem skipaður hefir
verið séndiherra Islands
i Sviss, afhéndir í'orseta
svissneska lýðveldisins trún-
aðarbréf sín, hinn 18. ágúst
í Bern.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 17. ágúst 1950.
I
Níu árangurslausir fundir haldnir
um málið.
Öryggisráð Sameinuðu
pjóðanna kom saman á fund
i gœrkveldi, en rétt fyrir
reglulegan fund pess kvaddi
Malik, fulltrúi Ráðstjórnar-
ríkjanna, til óformlegs fund-
ar til pess að ræða dagskrár-
mál.
Enginn árangur varö af
þessum fundum frekar en
öðrum, þar sem Malik, full-
trúi Ráðstjórnarríkjanna,
hefir verið í forsæti. Rætt
var um Kóreumálið jog vís-
aöi Warren Austin, fulltrúi
Bandaríkjanna, tillögu Mal-
iks á bug, að fulltrúi frá
Norður-Kóreu fengi að veröa
áheyrnarfulltrúi á fundum
öryggisráðsins, þegar Kóreu
málið væri rætt. Taldi hann
Norður-Kóreustjórn beinlín-
is heyja stríð gegn Samein-
úðu þjóðunum og væri ekk-
ert er gæti réttlætt fram-
komu þeirra. Austin sagðist
fagna tillögu Indverja um
gerðardóm í Kóreumálinu,
en ræddi hana ekki að öðru
leyti. Malik tók einnig til
máls, en minntist ekkert á
tillögu Indverja, en veittist
hinsvegar að Bandaríkja-
mönnum, eins og í fyrri ræð-
um sínum, fyrir afskipti
þeirra af Kóreumálinu. Vék
hann á ný að fyrri tilllögu
sinni um að fulltrúa frá
Norður-Kóreu yrði veitt leyfi
til þess aö verða áheyrnar-
fulltrúi á fundum öryggis-
ráðsins.
Fundi öryggisráðsins lauk
eftir nokkuð málþóf, án þess
að nokkur niðurstaða feng-
ist, en fulltrúunum er nú
oröið ljóst áð engin endan-
leg samþykkt verður gerö
meðan Malik, fulltrúi Ráð-
stjórnarríkjanna, er í for-
sæti.
Svíar hafa á undanförnum árum byggt nokkur herskip, sem eru á „heimsmælikvarða.“
Orrustuskipið „Thre kronor,“ er er eitt fullkomnasta skip þeirra, en mynd af því
birtist hér að ofan.
„Loönudemba“
r
i
Svo undarlega bar við, að-
faranótt sunnudags s. I. í
Dalasýslu, að loðnusílum
rigndi á allstórt svæði.
,,Loönudemban“ kom niö-
ur á túnið á Hróðnýjarstöð-
um, hjá Þorkatli bónda Ein-
arssyni. Reyndust loðnusílin
flest vera 4—5 cm.. á lengd
Logn var, er þetta gerðist, en
þétta fyrirbrigði er þó ekki
einsdæmi, en gera má ráð
fyrir því að loðnutorfan hafi
oröið fyrir skýstrokk og sog-
azt upp í loftið, en fallið síð-
an til jarðar aftur.
Þetta mun þó ekki hafa
skeö fyrr í Dalasýslu.
Batnandi veður við
Norðurland.
Fyrir öllu Norðurlandi er
nú veltisjór og haugabrim
og síldveiðiskipin liggja öll
í vari víðsvegar með strönd-
um fram og inni í hofnum.
í gær var hvassviöri á öll-
um miðunum en hefir nú
lægt og má heita að komiö
sé gott veður, þó sjór sé enn
ókyrr,,
Um síldveiði er ekki áð
ræöa og verður ekki fyrr en
sjó lægir.
iússneskt fiskiskip
strandaði í nótt
í Þorgeirsfirði.
Sjíkur til uö mamnbjjurtj
hafi ordid.
Rússnesk skonnorta, „Jupi-
ter“ að nafni, strandaði fyr-
ir Norðurlandi í gærkveldi.
Mjög óljósar fregnir liafa
borizt frá þessu strandi, en
líkur táldar á, að mannbjörg
hafi orðið og, að skipsbrots-
menn hafi komizt af eigin
ramleik í land.
Fyrstu fregnir um að skip-
ið vær statt í sjávarháska,
fengust frá rússneska sendi-
ráðinu hér i Rvík, er það
sneri sér uin miðjan dag í
gær til Slysavarnafélagsins
og bað um aðstoð.
Það sem einkum torveldaði
aðstoðina var jiað, að ekki
fékkst fyrr cn seint og síðar
meir vissa íyrir því, hvar
hið nauðumstadda skip var
statt, og var það þá í Þor-
geirsfirði, sem liggur nyrzt á
kjállcanum, milli Eyjafjarðar
og Skjálfanda, og er engin
byggð lengur til í firðinum,
eða annarsstaðar á þessum
slóðum.
„Sæhjörg“ var þegar beð-
in að fara á vettvang, en er
Íil kom reyndist „Ægir“ vera
nær slrandstaðnum, því
liann var einhversstaðar á
Grímseyjarsundi ög fór hann
þegar inn á Þorgeirsfjörð.
Ennfrémur bað Slysavarnfé-
lagið fleiri skip, sem væru
nálæg, að fara liinu strand-
aða skipi til aðstoðar og i
morgún voru a.m.k. þrjú
skip inhi á Þorgeirsfirði.
Þegar Vísir átti í morgun
tal við formann björgunar-
svcitár Slysavarnfélagsins á
Siglui'irði, Svein Ásmunds-
Son, táhli hann líkur til, að
björgun hefði orðið á mönn-
um, Því að skipverjar á
fyrsta skipinu, sem kom á
vcttvang, hefði talið sig sjá
nienn í f jörunni, cn hinsveg-
ár cngan niahn um borð.
Annars var þá svo myrkt af
nóttu, að ekki vár auðvelt að
grcina neitt að ráði, og held-
ur ekki, liváð mennirnir voru
margir, sem sáust í landi.
Hið rússneska skip strand-
aði á skeri, sem liggur
skammf frá landi.
Af vöíduih veðurhæðarinn-
Framh. á 7. síðu.