Vísir - 20.10.1951, Side 8

Vísir - 20.10.1951, Side 8
L I wi Laugardaginn 20.^október 1951 Egyptar kveðja varalið ti vopna af öryggisástæðum lö Egyptar bíða bana í óeirðum og 89 særast. London (UP). — Bretum barst enn liðsauki til Suez- skurðarsvæðisins í gær og skýra Egypsk blöð frá því, að byrjað .sé að kveðja vara- liðsmenn í herinn, og sé það gert til þess að tryggt sé, að unnt verði að halda í skefj- um uppivöðslumönnum. Andúðín gegn Bretum er riú mjög megn og valda þvi æsingamenn, sem nota hvert íækifæri til þess að stofna til óspekta. Heilbrigðismálastjórn Egyptalands hefir tilkynnt, að í óeirðunum að undan- förnu hafi 10 Egyptar beðið bana, en 89 meiðst eða særst, og eru þeirra meðal 6 sem biðu bana í Port Said, og 47, sem særðust þar í borg. Bretar og Egyptar eiga nú í samningum um, að ýmsir egypzkir opinberir slarfs- menn, tollmenn og aðrir, hverfi aftur til vinnu sinnar i Port Said og Ismailia og víð- ar, þar sem Bretar tóku allt í sínar hendur í bili, vegna óeirðanna. Þrátt fyrir óeirðirnar í Kairo og Alexandriu í fyrra- kvöld er margt sem bendir til, að menn séu að róast nokkuð, en hins er og að geta, að menn hafa verið æstir svo upp, að því fer fjarri að allar hættur séu farnar hjá garði. Ný áætlun Gullfaxa. Flugfélag Islands hefir nú sent út áætiun um ferð- ir GuUfaxa milli landa, eins og þær verða fyrst um sinn. Verða ferðir héðan alla þriðjud. kl. 8,30 að morgni til Koupmannaliafriar, með viðkomu í Prestwiok. Til Prestwick er ætlað að vóiin komi kl. 2 e. h. og fari það- an aftur kl. 3 áleiðis til Khafnar. Þangað er áætlað &ð Gullfaxi komi kl. 7.30 að kvöldi. Frá Klíöfri verður svo flogið alla miðvikudaga kl. 9.30, til Prestwick er komið kl. 12 á hádegi og hingað ld. 5 siðdegis. töDÍI fSt ll Strætisvagnar Reykjavíkur bæta við vagnakost sinn. Dieselvagninn reynist vel. teyi, tii að byrja mei Eins og áður hefir verið getið hér í blaðinu fá Stræt- isvagnar Reykjavíkur 8 strætisvagna á þessu ári, sem vonir standa til að verði allir teknir í notkun á þessu ári. Eru þetta vagnar með dieselvélum og sett á þá hér endursmíðuð og endurbætt hús. Einn þessara nýju strætis- vagna hefir nú verið í not- kun mánaðartíma. Hann er sænskur, með Volvo-diesel- vél. Forstjóri Strætisvagna Reykjavíkui' hefir tjáð Vísi, að reynslan af þessum vagni sé fullkomlega sú, sem búist var við, þegar horfið var að því að ráði að fá vagna með diesel-vélum. Tveir vagnar eru nú komn- ir til viðhótar og er verið að setja hús á þá. Þeir eru þýzkir, af Mercedes-Benz gerð. Verða þeir teknir í not- kun þegar, er lokið er við að setja húsin á þá, en það er allmikið verk að ganga að fullu frú.þeim, þar sem hús- in eru srníðuð upp og þeim breytt. Askur farinn aftur á veiðar. Togarinn Aslcur kom til Flateyrar í gær. Var liann að veiðum úti fyrir Vestfj órð- um, er hann.fékk á sig sjó. Skemmdir urðu á skipinu, en mjög litlar, og mun skipið fara aftur á veiðar. Engau skipsmann sakaði, en einn maður var hætt kominn. Mikili viðbúnaður er nú í Skerjafirði vegna fjölleika- sýningarinnar, sem hefst í kvöld kl. 9 eins og ráðgert hafði verið. „Gircus Zoo“, sem hingað kom í gær, har með sér keim og yfirhragð framaridi landa og óskyldra þjóða, einlivern andblæ. sólheitra, dularfullra ævintýralanda, en mælt var á torkennilegum tungum, er „Dronning Alexandrine“ lagðist að bryggju í gær, að viðstöddum iniklum nianri- fjölda, aðallega unglingum, sem horfði hugfanginn á allt hið nýstárlega sem þar var að sjá. Greiðlega gekk að ílytja hirnina, filinn og apana suður í Skerjafjörð, og í nótt Ieið þessum nýju gestum okkar vel, þrátt fyrir kulda- tíð. Fíílinn Baha lét til sin hej-ra í nólt og mátti heyra „flaut“ hans iini nágrennið, en liann mun hafa verið að syngja. Flefir hann nú þegar fengið eina sniálest af heyh til að hyrja með, auk káls frá Reykj alundi. FIvítahiörnun- um hefir verið séð fyrir birgðum áf fiski og brauði, en skógarhirnirnir munu einkum nærast á hrauði. Ap- arnir éta liins Aægar einkum kálmeti, og virðast þeir leika á als oddi. Ljóriununi þremur, sem liingað koma, hefir seinkað, en þau eru væntanleg hing- var. að með leiguskipinu „Bravo“ frá Englandi eftir helgina. Eru þetta stór. ag tíguleg dýcí og fylgir þeim enskur ljóna- temjari. Vélsmiðjan Héðinn hefir séð um sérstaka hitalögn í flugskýlin í Skerjafirði, kom ið fyrir sérstökum gufu- katli, svo að ekki er talið, að áhorfendur þurfi að ótt- ast kuldann þar suður frá í kvöld, þólt veður kunni að verða hráslagalegt. Van Gogh: Pósturinn. Kvikmyndir um fræga iistamenn. Á morgun verðci sýndar í Stjörnubíói þrjár kvikmgnd ir um þrjá kunna og fræga listamenn. Fjalla myndirnar um listamennina van Gogh, Ilenri de Toulouse Lautrec og Paul Gauguin og eru þær sýndar á vegum Listvina- salarins. Þetta er oklóber- kynning Listvinasalarins fyrir styrktarmeðlimi og hefjast sýningar kl. 1.15. — Björn Th. Björnsson list- fræðingur flytur foi’málsorð með myndunum. Kvikmynd irnar eru franskar, en Frakk ar hafa gert nokkuð í því að gera kvikmyndir um helztu listamenn sína og hafa myndirnar hlotið góða dóma í París. Akureyri og Eyjafjörður sjálfum sér nóg um jólatré eftir tuttugu ár. Skógræktarfélag Akureyrar vill fá 60-80 ha. land til ræktunar á nytjaskógi. Ef áform Skógræktarfélags Akureyrar verða að veru- leika, munu Akureyringar og aðrir Eyfirðingar verða sjálf- um sér nógir um jólatré eftir tvo tugi ára. Fréttaritari Vísis á Akur- eyri skrifar blaðinu, að stjórn félagsiris hafi ált í stmining- um við basjaryfirvöldin á staðnum um að því verði fengið til umráða nokkurt land syðst á bæjarlandinú. Er hér um 60—80 ha. skika að ræða, sem félagið hefir í hyggju að rækta á nytjaskóg. Heitir á svæði þessu Ivjarna- land. Eins og menn vita hafa Akureyringár verið manna duglégastir við trjárækt, en reynsla undanfarinna ára og athuganir fróðfa manna, svo sem Ilákonar Bjarnson- ar skógræk tars t j óra, og Barathens, norska skógfræð- ingsins, hafa til.muna sívrkt menn þar nyrðra í þeirri trú, að vel sé hægt að rækta hcr nytjaskóg, ef rétt er að farið. Slíkan skóg hyggst Skógrækt- arfélag Akureyrar nú rækta á hiriu nýja Iandi, sem það fæf væntanlega til umráða. Ætlar fclagið að Ijyrja á því að riekta hii’ld íil skjpls öðr- um trjáplöntum, en síðan verða barrtré gróðiirsett. Ef þannig er að farið við gróðursetningima, mun liægt að fjá eftir um það bil 20 ár — með grisjun — mikinn fjölda hálfvaxinna trjáa, sem eru lilvalin jólatré, en þau eru kgypl til Akurcyrar á ári hverju fyrir drjúgan skilding, eiris og til annarra staða á landinu. Skógrækarfélag Ak. hefir rattnai' þegar reit til umráða utan liæjarins, eða handan við Pollinn. Ifafa þar verið gróð- ursettar á annað lmndrað þúsund plöntur, en hæstu birkiplönturnar eru þegaj.’ yfir fjóra metra á hæð. Er mikill liugur i Akureyr- ingiim í máli þessu, segir frétiaiitari að lokum og eng- in hætta á því, að menn verði ekki fúsir til sjálfboðastarfa á liinu nýja landi félagsins. Smáþjófnaðir og tilraun til innbrots, Nokkuð hefir borið á ým- iskonar smáþjófnuðum und anfarna daga og i nótt var tilraun gerð til innbrots í verzlunina Laugateig 60. Sú tilraun har þó ekki á- raugur og varð þjófurinn frá að hverfa án þess að komast inn. í gær var útskorniim vindl ingakassa stolið úr verzlun einni hér í bænum. Enn- fremur var Ijóskastara af hifreið stolið annaðhvort í gær eða fyrrinótt. f fyrradag kærði stúlka yfir því, að hún taldi að stolið hefði verið úr tösku, sem hún har á sér í yfir- fullum strætisvagni, veski með 500 lcrónum í pening- um. Aðalfundur bér- a&sdómara lokið. Aðalfundur Félags héraðs- dómara var haldinn í Reykja- vík dagana 10.—14. þ.m. Aðalumræðuefni fundarins var að þessu sinni hin nýju lög um meðferð opinberra mála, er gengu í gildi 1. júlí s.l. Fluttu þeir Valdimar Stéfánsson sakadómari og Baldur Möllér fulltrúi í dómsmálaráðuneytimi fram- sögu erindi um lögin. Stjórn félagsins var endur- kosin og skipa liana Jón Steingrímsson sýslumaður, Torfi Hjartarson tollstjóri, Páll Hallgrímsson sýslu- xnaður, Júlíus Havsteen bæj- argógeti og Giiðmundui’ I. Guðmim<lsson bæjarfógeti. Heiðursforseti félagsins er Gísli Sveinsson fyrrv. sendi- lierra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.