Vísir - 21.11.1951, Page 7
Miðvikudaginn 21. nóvember 1951
V I S I R
</. & Fleteher:
Lausnargjald Lundúnaborgar.
a títft eittíM
J2!2
því að hann yrði að fara á annað borð væri eins gott að
vera ekki að éta sig sundur og saman. En hann var alls
ekki i góðu skapi þegar hann steig inn í bílinn.
„Þú hefðir eflaust liaft meira gaman af að grúska í hill-
unuin í einhverri fornbóksölunni, er það ekki?“ spurði
Lesbia. „En menn í þinni stöðu verða að láta sjá sig í
svona samkvæmum öðru hverju, og ef þú lætur eins og
þú skemmtir þér vel og brosir til allra sem líta á þig, þá ,
hefirðu gert skyldu þina.“ I
Forsætisráðherrann var alls ekki upplagður til að brosa,
— engan veginn. Að vísu var ekki neitt sérstakt í stjórn-
arráðinu sem bakaði honum áhyggjur, en liann gat ekki
gleymt aðvöruninni sem hann hafði fengið í bókinni hjá
fornbóksalanuin. Nótt og dag hafði hann verið að hug-
leiða hvað gerast mundi næst, og óvissan svipti hann
bæði svefni og matarlyst. Hann varð að hugsa til þessara
heimtufreku bófa, sem vafalaust mundu ekki sýna mönn-
unum meiri miskunn en skepnunum hans. Hvergi fann
hann huggun. Marillier, sem hann hafði haft tröllatrú á,
virtist ekki ætla að geta neitt. Og sir Pliilip Blackford
hafði lýst yfir því, með þeirri kaldhæðniró, sem honum var
töm, en vinum hans gazt ekki alltaf sem bezt að, að
þessir duldu bófar hefðu brugðið langri snöru um hálsinn
á honum og gætu kippt í hana hvenær sem þeim sýndist.
„Ef þessir menn,“ hafði hann sagt, „geta koniið því
fram, sem þeir hafa hótað, án þess að glöggustu sérfræð-
ingar geti afhjúpað þá, bið eg Guð að hjálpa oltkur. Þeir
geta krafizt hvers sem þeir vilja af okkur.“
„En hvað í ósköpunum á eg að gera?“ sagði Pontifex
í öngum sínum.
„Einn af fyrirrennurum yðar, herra forsætisráðherra,
sagði einu sinni þessi klassisku orð: „Bíðum og sjáum
til !ý Eg er hræddur um að þér neyðist til að gera það sama.
Tíu milljónir! Mér finnst skrítnast að þeir skuli ekki
heimta hundrað milljónir! Nei hér er aðeins ein leið fær:
að bíða átekta og sjá hverju fram vindur.“ j
Og forsætisráðherrann beið með eftirvæntingu þess
seni koma skyldi. Ilann gat blátt áfram ekki á heilum
sér tekið. Hyer gat vitað hvort næsta reiðarslagið kæmi
ekki einnhtt yfir þessa útiveizlu, sem „öll London“, var
boðin í ? Var ekki einmitt þar ágætt tækifæri handa bóf-
unum að láta til sín taka? Hann varp öndinni — og kveikti
sgr í vindli.
Eitthvað ramskaði í honum um garnalt orðtak sem
segir, að öruggast sé að vera margir saman. Ejöl'di fólks
var boðinn í þessa veizlu, og forsætisráðherranum fannst,
að þarna mundi verða tækifæri til að fela sig. Að visu
yrði hann að vera eins og nokkurskonár sýningargripur
i klukkutima, heilsa öllúm og yfirleitt „representera“. En
þegar þessi skylduvinna væri afstaðin mundi hann geta
farið sína leið eitthvað út í trjágarðinn mikla og þar
inundi liann vomuidi geta fundið rólegan stað, langt
burtu frá fólki.nu og hljóðfæraglamrinu. Það yrði enginn
vandi að laumast á hut'rl, því að allir gestirnir mundu hafa
Iiugann við þær margbreyttu skemmtanir, sem húsbænd-
urnir hefðu að bjóða.
Honum tókst að fara í felur. Utarlega í garðinum stóð
lystiliús. Hann settist á svalirnar og ofurlitla stund leið
honuin vel. Hljóðfæraslátturinn heyrðist varla, en flug-
urnar suðuðu. Hann lagði aftur augun og sofnaði.
Hann vaknaði við að einhver sagð: „Góðan daginn, herra
Pontifex. Það er gaman að fá tækifæri til að tala nokkur
orð við yður.“
Forsætisráðlierrann leit upp. Honum fannst hann liafa
heyrt þcssa rödd áður. Fyi'ir framan hann stóð prúðbúinn
maður og brosti ofur alúðlega. Þó að forsætisráðherr-
ann hefði getað svarið fyrir að hann þekkti manninn,
fannst honum hann þó kannast við brosið. Honum fór
nú að skiljast, að hann hefði á ný gengið í gildra. Þarna
scm hann sat núna kom ekki nokkur manneskja, — það
var. efalaust afskekktasti staðurinn i öllum. garðinum.
Gesturinn gat að-.vísu haft i fuliu tré við hann, en ráðherr-
ann bar sig samt mannalega og rétti úr sér og sagði kulda-
lega: „Eg hefi ekkert við yður að tala, herra minn!“
„Jú, og við höfum talazt við áður,“ sagði gesturinn,
„eða munið þér ekki þegar við hittumst á Somerbourne.
Jú, það er sami maðurinn, en eg er i öðru gerfi núna.“
Forsætisráðherrann horfði á hann og reiddist: „Þér er-
uð þorpari, herra minn!“ hrópaði hann.
Gesturinn yppti öxlum og kveikti sér í vindlingi, ofur
makindalega. „Við skulum eklvi deila um orð og stóryrði,“
sagði hann. „Eg er hingað kominn til að tala við yður, og
eg þykist viss um að við verðum ekki ónáðaðir héma, —
þó að það skipti að öðru leyti engu máli.“
Forsætisráðherrann horfði rólega á hann. „Eg aðvara
yður,“ sagði hann, „eg hrópa á hjálp og kalla á lögregl-
úna.“
Gesturinn liló, yppti öxlum og sagði ofur rólega: „Nei,
þér gerið það ekki. Munið að hún dóttir yðar er hérna.“
Pontifex varð flökurt, kaldur sviti bogaði af honum og
hendurnar skulfu. „Hvað eigið þér við?“ hrópaði hann.
„Þér ættuð að gera yður Ijóst, forsætisráðherra, að upp
frá þessari stundu er dóttir yðar gisl fyrir mig. Ef þér
sýnið nokkuð af yður, sem mér gæti stafað hætía af, meg-
ið þér reiða yður á að dóttir yðar kemst ekki héðan lif-
andi. Hún er einmitt núna nær „snöggum og ummerkja-
lausum“ dauðdaga en hún hefir nokkurntíma verið. Auð-
vitað veit liún ekkert um það, og eg vona að þér neyðið
okkur ekki til að láta liana vita það. En þér ættuð að vita,
að úr því að við getum látið yfir tuttugu kýr sírádepast,
þá er það ekki nema liægðarleikur að koma dóttur yðar
fvrir kaítarnef. Þér ættuð að íhuga það.“
„Hvers óskið þér þá af mér?“ hvíslaði forsætisráðherr-
ann.
„Eg ætla aðeins að setja yður úrslitakosti. Við höfum
látið yður í té sönnun fyrir þvi hvað við getum, er við
drápum fyrir yður kýrnar, — sönnun sem var óskemmti-
leg en nauðsynleg. Við liöfum aðvarað yður ineð orðsend-
ingunni, sem þér funduð í bókinni frá fornsalanum, og nú
verður næst um mannslíf að ræða. Nú ætlum við að gefa
yður f jögurra daga frest til að hugleiða málið. Ef við á
þriðja degi frá i dag fáum ekki áður nefnd tíu milljón
slerlingspund, þá munuð þér fá sönnun fyrir gelu okkar,
sem mun skelfa alla jarðarhúa, heimskautanna á milli.
Þetta.er ekkert gort, — þér getið reitt yður á það.“
HúsmæSor!
Þér þurfið að muna nafnið
GODDARD
er þér viljið fá góðar vörur
GODDARD’S húsgagna-
gijáú
GODDARD’S Silfurfægi-
lögur,
GODDARD’S fægiklútar.
GODDARD.’S Gólfbón.
?:
1 heildsölu:
Magnús Th. S. Blöndal h.f.
BEZTAÖAUGLtSAlVlSI
Gœfan fylgir hringunum frá
SIGURÞÖR, Hafnarstræti 4,
Maroar gerSir fyririiggjandi.
EGGERT CLAESSEN
GCSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmenn
Hamarshúsinu, Tryggvagötu.
Allskonar lögfræðistörf.
Fasteignasala.
Fluoresent lampar
fyrir eina peru kr. 310,00, —
fyrir tvœr perur kr. 542,00.
Fluoresent-perur
Fluoresent-startarar.
Vá3a- og raf tækjaverzlunin
rryggvagötu 23. Sími 81279.
Bankastræti 10. Simi 6456.
Hýi? kaupg^iii? fá biaðil
til mánabsmóta. Simi 1660.
‘ — Vísir er ódýrasfa dagbiaóiS
„Viö föriiin yfir imkia," hrópaði „Verlu fljóiíir, Wesl. Ef súguriim Nú lieyrðist Jágt íúarraudi hljóð. — Betty tók' andköf af hitasvækjunni,
Tarzan. „Far þú fyrst, West, ég kem á myndast aftur, ná eldtungijrnar okkur Gatið var að opnasl A þakinu. Hita- en eldtungurnar hófust upp að þeim.
eflir með Betty.“ þegar í stað.“ bylgja reis upp.