Vísir - 28.04.1952, Page 2
■2
V I S I R
Mánudaginn 28. apríl 1952
ðHitt og þetta
Vínsalinn hafði margsinnis
,-sent til viðskiptavinar síns og
jkrafið hann um vínskuldina.
JZn viðskiptavinurinn var úr
jhófi skuldseigur og hreinn
■'vandræðamaður í fjármálum.
.jAð síðusu hringdi vínsalinn til
skuldunautarins og sagði: „Þó
«að þér fáizt ekki til að borga
mér þessa gömlu vínskuld þá
. ættuð þér þó að vera svo mynd-
'árlegur að senda mér tómu
:flöskurnar aftur.
Vandræðamaðurinn svaraði:
„Heyrið þér, — hvað borgið
3>ér fyrir tómar flöskur?“
•
Vilhjálmur I. Prússakonugur
*var krýndur keisari yfir Þýzka-
landi árið 1871 og gerðist það í
jspeglasalnum í Vcrsölum. —
Þegar vopnahlé var samið eftir
ífrelsisstríð Bandaríkjanna
var vopnahléssamningurinn
einnig undirritaður í spegla-
jsalnum. Það gerðist árið 1783.
•
Þegar Andrew Carnegie, am-
jeríski auðjöfurinn, var lítill, var
hann dag nokkurn staddur á-
jsamt móður sinni í ávaxtabúð,
■ og starði löngunarfullum aug-
■um á körfu fulla af kirsuberj-
um.
„Fáðu þér lófafylli,“ sagði
'búðarmaðurinn vingjarnlega.
"En Andrew litli hristi höfuðið.
„Finnst þér ekki góð kirsuber?“
rspurði maðuirnn undrandi.
„Jú,“ sagði Andrew.
„Bragðaðu þá á þeim!“
Þegar Andrew litli gerði sig
■;ekki líklegan til að bera sig
■ eftir björginni, tók búðarmað-
urinn fullan lófann og hellti í
húfu drengsins.
„Andrew,“ sagði móðir hans,
þegar þau lcomu út úr búðinni,
_,,af hverju tókstu ekki berin,
jþegar maðurinn bauð þér þau?
JÞað var ókurteisi.“
Drengurinn brosti. „Eg vildi
heldur bíða þangað til hann
gæfi mér þau sjálfur, því hönd-
in á honum er miklu stærri en
fhöndin á mér,“ sagði hann
•lánægður.
• ••••*•••>
Cíhu Jíhhí Car....
í Vísi fyrir 25 árum stendur
;j>essi klausa:
.Austur í Þingvallasveit
fór maður nokkur að eitra
jfyrir refi í vetur, rakst hann þá
.á þrjá erni er sátu við hræ af
pestarkind. Flann tók hræið og
:færði á afvikinn stað og lét í
það eitur. Ernir eru alfriðaðir
■ eins og kunnugt er, og að því
"komnir að deyja út á landinu.
. En hvaða gagn er að því að
friða þessa fugla fyrir skot-
vopnum, þegar hægt er að
■ drepa þá með eitri á þenna
hátt. Meðan eitrað er fyrir refi
■ eru ernir í sífelldri hættu.
"Hvers vegna eru ernir vernd-
..aðir fyrir öðrum dauðdaga, af
manna völdum, en þeim sem
. stafar af eitri? Hvaða gagn væri
af því að náða mann, ef svo
væri látið eitur í matinn, sem
hann borðaði? Vill ekki Alþingi
banna með lögum að eitrað sé
:fyrir refi? — G. D.
Mánudagur,
28. apríl, — 120. dagur árs-
ins- . Jíiais*
Samband
matreiðslu- og framreiðslu-
manna heldur fund í Tjarnar-
café mánudaginn 28. þ. m. kl.
12 á miðnætti, og verður þar
rætt um uppsögn kaup og
kjarasamninga, sem renna út
í júní nk., og þarf að segja upp
með mánaðar fyrirvara.
Skrifstofu .
Fulltrúarráðs sjómannadags-
ins hefir nýlega borizt gjöf að
upphæð 1000 kr. frá Laufeyju
Ósk Jónsdóttur, Akranesi og er
gjöfin gefin til minningar um
föður hennar, Jón Guðmunds-
son, sem kenndur var við Eng-
ey, en var borinn og barnfædd-
ur Reykvíkingur og bjó þar
alla ævi. Hann lézt 1930, en
hefði orðið 75 ára á sumardag-
inn fyrsta. — Fulltrúarráð sjó-
mannadagsins vill færa gefanda
kærar þakkir fyrir þessa rausn-
arlegu gjöf.
Íslenzk-ameríska félagið
heldur aðalfund sinn í Þjóð-
leikhúskjallaranum næstkom-
andi þriðjudagskvöld. Þegar
aðalfundarstörfum lýkur verð-
ur f jölbreytt skemmtiskrá. Mun
dr. Páll ísólfsson segja frá
kynnum sínum af tólistarlífi í
Bandaríkjunum, Guðmunda El-
íasdóttir syngja, Richard Webb-
er leika einleik á fiðlu. Þá
verða ýms fleiri skemmtiatriði,
skopdans, söngur o. f 1., en að
lokum verður dansað. Félags-
menn eru hvattir til að fjöl-
menna og nýjir félagar boðnir
velkomnir.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.20 Útvarpshljómsveit-
in; Þórarinn Guðmundsson
stjórnar. — 20.45 Um daginn
og veginn. (Jón Eyþórsson veð-
urfræðingur). — 21.05 Einsöng-
KwAAyáta hk 1603
Lárétt: 1 Vön, 3 ellihrum-
leiki, 5 prófessor, 6 ósamstæð-
ir, 7 dæmi, 8 tveir fyrstu, 10
mansnafn, 12 hljóð, 14 manns-
nafn, 15 heybingur, 17 fylgjast
að, 18 trjátegundina.
Lóðrétt: 1 Skáld, 2 drykkur,
3 dýr, 4 umhleypingarnir, 6
kaupfélag, 9 byggðs svæðis, 11
fugla, 13 horn í síðu, 10 frum-
efni.
Lausn á krossgátu nr. 1602:
Lárétt: 1 sól, 3 ker, 5 ÓM, 6
hó, 7 far, 8 Ok, 10 hefð, 12 nam,
14 Ari, 15 Lón, 17 an, 18 Birkir.
Lóðrétt: 1 Sólon, 2 óm, 3
Kórea, 4 reiðin, 6 hah, 9 kali,
11 frár, 13 mór, 16 nk.
ur: Gunnar Kristinsson syngur;
Fritz Weisshappel leikur undir.
a) „Örninn“, eftir Árna Thor-
steinson. b) „Söknuður“, eftir
Hallgrím Ilelgason. c) „Gimb-
ill eftir götu rann“; íslenzkt
þjóðlag — útsett eftir Karl O.
Runólfsson. d) „An die Musik“,
eftir Schubert. e) „Trockene
Blurnen", eftir Schubert. —
21.25 Erindi: Heimildarkvik-
myndir; síðara erindi. (Gunnar
R. Hansen leikstjóri). — 22.00
Fréttir og veðurfregnir. —
22.10 ,„Rakel“, saga eftir
Daphne du Maurier. (Hersteinn
Pálsson ritstjóri). III. — 22.30
Tónleikar (plötur) til kl. 23.00.
Kvenstúdentafélag fslands.
Fundur í kvöld í Drápuhlíð
41. Amalía Líndal talar um
heimililíf í Bandaríkjunum. —
Rædd verða ýms félagsmál.
Nemendamót
Nemendasambands Verzlun-
arskóla íslands verður haldið í
Sjálfstæðishúsinu miðvikudag-
inn 30. apríl. Aðgöngumiðar
verða seldir í Sjálfstæðishúsinu
í dag og á morgun kl. 5—7.
Skálcsvar
Dc—c3.
Sendiherra Noregs
gekk á laugardag á fund ut-
anríkisráðherra og óskaði þess,
að ríkisstjórnin flytti innilegar
þakkir norsku ríkisstjórnarinn-
ar til foringja og áhafna á flug-
vélum þeim, sem af íslands
hálfu hafa tekið þátt í leitinni
að norsku selveiðiskipunum,
sem saknað er. (Frá utanríkis-
ráðuneytinu).
Matstofa N.L.F.f.
Vegna húsnæðiserfiðleika
verður Matstofu N.L.F.Í., Skál-
holtsstíg 7, lokað nú um mán-
aðamótin um stundarsakir, en
vonir standa til, að hægt verði
að opna hana áður en langt um
líður og þá í betri og hentugri
húsakynnum, þar sem skilyrði
verði til fjölbreyttari veitinga-
sarfsemi en hingað til.
Breiðfirðingafélagið
hefir f élagsvist, skemmtiatriði
og fund í Breiðfirðingabúð,
miðvikudaginn 30. apríl kl.
8.30.
Sigurgeir SSgiirjónssoa
hæstaréttarlögmaður,
Skrifstofutíml 10—12 og 1—B.
Aðalstr. 8. Sími 1043 og 80850
Skjólabúar.
Það er drjúgur spölur inn
í Miðbæ, en til að koma
smáauglýsingu í Vísi,
þarf ekki að fara
lengra en í
Weshúð9
Nesvegi 39.
Sparið fé með því að
setja smáauglýsingu í
Vísi.
Veður á nokkrum stöðum.
Grunn lægð og nærri kyrr-
stæð 700 km. suðvestur af ís-
landi. Önnur grunn lægð 1500
km. suðsuðvestur í hafi á hægri
hreyfingu til norðausturs. —
Veðurhorfur fyrir Suðvestur-
land og miðin: SA-kaldi og
smáskúrir í dag, en A-kaldi og
síðar stinningskaldi og rigning
í nótt. Horfur fyrir Faxaflóa og
miðin: SA-gola, skýjað en víð-
ast úrkomulaust.
Veðrið kl. 9 í morgun: Rvík
ANA 4, +7, Sandur ASA 8, +5,
Stykkishólmur SA 5, +3, Hval-
látur ASA 2, Galtarviti A 2,
Hornbjargsviti logn, +1, Kjör-
vogur logn, +3, Blönduós logn,
+1, Hraun á Skaga logn, +4,
Siglunes ANA 3, Akureyri A 1,
-j-2, Loftsalir SA 3, +7, Vest-
mannaeyjar SA .66, +7, Þing-
vellir A 2, 4-8, Reykjanesvili
SA 4, -|- 7, Keflavíkurvöllur
ASA 4, +6.
Togararnir.
Bv. Marz kom í gær af salt-
fiskveiðum og hófst löndun úr
honum í morgun. Jörundur er
hér einnig með fisk í frysti-
húsin og verður hann losaður í
dag. Væntanlegur er ennfrem-
ur Askur, en hann leggur afla
sinn í frystihúsin.
Reykjavíkurbátar.
Landróðrabátum hefir mjög
fækkað hér sem enn róa frá
Reykjavík. Skeggi er hættur
og mun hef ja lúðuveiðar. Faxa-
borg er farin á lúðumið, en hún
hefir stundað línuveiðar. Neta
báturinn Björn Jónsson kom í
gær með 35 lestir. Augur, sem
fyrst hóf lúðuveiðarnar, liggu:
hér í höfn.
Vestmannaeyjar.
Netabátar frá Vestmannaeyj-
um afla stöðugt vel, einkurrj
vestur á Selvogsbanka. Hafa
bátarnir fengið allt að 4000
fiska í róðri, eða nálægt 40 lest-
um, en algengastur afli er 2000
fiskar. Bátar hafa þó orðið fyrir
nokkru veiðafæratjni.
M.s. Katla
M.s. Katla fór s.L laugardags
kvöld frá Cuba áleiðis til New
Orleans.
Skip Eimskip.
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 23. þ.m. frá Hull. Dettifoss
kom til New York 22. þ.m.
fer þaðan væntanlega 2./5. til
Reykjavíkur. Goðafoss fór frá
Reykjavík 25. þ.m. til Dalvíkur,
Akureyrar, Húsavíkur og Lon-
don. Gullfoss kom til Kaup-
mannahafnar 24. þ.m. frá Leith.
Lagarfoss fer væntanlega frá
Hamborg 26. þ.m. til Reykja-
víkur. Reykjafoss fór frá
Antwerpen 25. þ.m. til Reykja-
víkur. Selfoss fór frá Reykja-
vík 25. þ.m. til Vestfjarða og
Siglufjarðar. Tröllafoss fór frá
New York 18. þ.m. væntanleg-
ur til Reykjavíkur í dag.
Straumey fór frá Reykjavík 25.
þ.m. til Vestmannaeyja. Foldin
kom til Reykjavíkur 26. þ.m.
frá Hamborg. Vatnajökull kom
til Dublin 25. þ.m. fór þaðan
væntanlega 26. þ.m. til Reykja-
víkur.
Skip S.I.S.
Hvassafell fór frá Patreks-
firði 23. þ.m., áleiðis til Finn-
lands. Arnarfell er í Kotka.
Jökulfell er í New York.
Þorlákshöfn.
Afli netabáta var ágætur s.I.
viku og helzt góður afli á bát-
ana enn. Einn dag s.l. viku var
afli 6 báta samanlagt 100 lest-
ir, eða um 17 lestir á bát. Afli
trillubáta hefir líka verið góð-
ur, þótt þær hafi ekki getað sótt
sjóinn jafn fast og vélbátarnir.
MAGNOS THORLACIUS
hæstaréttarlögmaður
Málaflutningsskrifstofa
Aðalstræti 9. — Sími 1875.
Eiroláa
Carbolín
BI. Fernis
Þaklakk
Hrátjara
Fernisolía
Terpentína
fyrirliggjandi.
GEVSiR Ei.F.
Veiðarfæradeildin.
ASúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför,
Ingib|argar Þóru Kristfánsdúítur
frá Laugaraesi.
Aðstandendnr.
Maðurinn minn,
Sj. SI. Mnlfier
kaupmaður,
andaðist í Landsspítalanum 27. þ.m..
Fyrir mina hönd og annarra vandamanna.
Marie Miilíer.