Vísir - 28.04.1952, Side 8
LÆKNAR O G LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, sími 5030.
Vörður er í Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911.
V18
LJÓSATÍMI
bifreiða og annarra ökutækja er kl. 21.55—
5.00. Næst verður flóð í Reykjavík kl. 19.55.
Mánudaginn 28. apríl 1952
Úrval Rvíkurfélaga og „pressulil
keppa í handknattSeik,
Aukaleikir nu’lli Keflvíkinga og Reykvikinga
BB
Á miðvikudaginn kemur fer
íram handknttleikskeppi í
meistaraflokki karla milli úr-
vals úr Reykjavíkurfélögunum
annarsvegar, en hinsvegar
milli liðs, sem dagblöðin hér í
toænum velja.
Búið er að velja í úrvalsliðið
■af hálfu handknattleiksráðsins,
en það skipa, talið frá mark-
verði, Stefán Hallgríms-
son (Val), Jón Erlendsson (Á.),
,Valur Benediktsson(Val), Hall-
'dór Halldórsson (Val), Þorleif-
ur Einarsson (í. R.), Kjartan
Magnússon (Á.), Snorri Ólafs-
son (Á.), Ásgeir Magnússon
;(Vík.), Sigurður Jónsson (Vík.)
og Sigurhans Hjartarson (Val).
„Pressuliðið“ er skipað þess-
lim mönnum, talið frá mark-
yerði:
Sólmundur Jónsson (Val),
!Axel Einarsson (Vík.), Rafn
Stefásson (Á.), Hörður Felix-
son (K.R.), Sigurður Norðdahl
(Á.), Frímann Gunnlaugsson
!(K.R.), Guðmundur Árnason
’(K.R.), Ríkarður Kristjánsson
!(Vík.), Sveinn Helgason (Val),
Þórir Tryggvason (Vík.).
Tveir aukaleikir fara fram á
-undan. Er það annars vegar
kvenflokkur Fram og Keflvík-
ángar, en hins vegar 1. fl. karla
Valur og Keflvíkingar.
Keppnin verður háð að Há-
logalandi, en auk þess leiks
yerða tveir aukaleikir, þar sem
annarsvegar eigast við lið úr
Keflavík, en hinsvegar lið frá
Reykjavíkurfélögunum. Er
þetta í fyrsta skipti, sem Kefl-
víkingar senda hingað hand-
knattleikslið til keppni. Eru það
meistaraflokkur kvenna, sem
keppir við Fram og 1. fl. karla,
sem keppir við Val.
3ja einvfgisskákin vari
Hollenzkur skákmeistar3
teflir hér.
Hollenzki skákmaðurinn L.
Prins kom hingað í morgun með
m. s. Tröllafossi.
L. Prins kom hingað á veg-
um Skáksambands íslands og
mun tefla við hérlenda skák-
menn, bæði í Rvík og á Akur-
eyri.
Fer hann fyrst til Akureyrar,
verður þar um vikutíma og
teflir við norðlenzka skákmenn.
Þriðja einvígisskák þeirra
Friðriks Ólafssonar og Lárusar
Johnsen var tefld í gær og lykt-
aði með jafntefli.
Standa leikar þá þannig eftir
þrjár skákir að Friðrik hefir 2
vinninga en Lárus 1.
í kvöld verður 4. umferð
tefld. Hefir Friðrik hvítt og næg
ir honum jafntefli til þess að
hljóta íslandsmeistaratitilinn.
Beri Lárus hins vegar sigur úr
býtum verður tveimur skákum
bætt við einvígið og síðan koli
af kolli þar til greinileg úrslit
fást.
2000 tSmuðadówat-
maaa breytt.
Aþenu. A.P.). — Með sam-
þykkt nýrra laga hefir lífláts-
dómi 2300 manna verið breytt
í ævilangt fangelsi.
Dómar þessir höfðu allir ver-
ið upp kveðnir fyrir lok síðasta
árs, því að til annarra dóma ná
lögin ekki.
Stimf taidisf ISfa en
annað var iðnaður.
E
sbmzSí* sem
MMM h ÚSfJMfjnMfjeB'ðu
Laugardaginn 26. þ. m. var íllögum með því að fela þeim
Sakadómi Reykjavíkur kveðinn! starfann.
upp dómur í máli ákæruvalds-
ins á hendur Guðmundi Guð-
mundssyni forstjóra trésmiðj-
unnar Víðis li.f.
Tildrög málsins eru þau að
á s.l. ári kærði Þorsteinn Löve
eftirlitsmaður, fyrir hönd
meistarafélags og sveinafélags
bólstrara í Rvík, yfir því að Tré
smiðjan Víðir hefði í þjónustu
sinni þá Víglund Gíslason og
Ásgeir Jónsson til þess að
bólstra húsgögn, án þess að þeir
hefðu réttindi í bólstraraiðn.
Varnir Breta aldrei veikari.
Hættan er af innrás úr lofti.
London (AP). — Formleg
skráning í Heimavarnarliðið
brezka er nú hafin og hefir
Slim marskákur, formaður
brezka herforingjaráðsins, flutt
útvarpserindi af því tilefni.
Hann kvað varnir Bretlands
Gera Grikkir og Tyrkir
bandalag við Tito?
A.llaaaiklaa' lákua* taldar á fivú.
Aþena (AP). — Nú er svo
Icomið, að talsverðar líkur eru
ialdar á Balkanbandalagi milli
Grikkja, Tyrkja og Júgóslava.
Grikkir og Tyrkir hafa þeg-
ar hafið viðræður um sameig-
inlégar varnir, og er tyrknesk
nefnd stödd hér af þeim sök-
nm, en Þríveldabandalag á
Balkanskaga var fyrst nefnt
sem möguleiki fyrir þrem ár-
um, þegar slitnað hafði upp úr
vinskap Titos og Stalins.
Ef það - skref yrði stigið á
næstunni, að þessar þrjár þjóð-
ir tækju höndum saman, mundi
mega líta á það sem mikilvægt
skref í þá átt, að Júgóslavía
yrði tekin í Atlantshafsbanda-
lagið, en þó má ætla að það
mundi mæta talsverðri mót-
spyrnu ýmissa ríkja, sem í því
eru. Hinsvegar mundi það —
■ef af yrði — tákna það, að A-
toandalagið hefði órofinn varna-
vegg frá Atlantshafi til Litlu-
Asíu.
Ýmislegt þendir til þess nú,
að Balkanbandalag sé að nálg-
ast: Bandaríkjamenn og Bret-
land leggja að Júgóslövum og
Grikkjum að taka upp með sér
hernaðarsamvinnu. Tito hefir
látið í það skína, að hann kunni
að senda hermálafulltrúa til
Aþenu. Það hefir flogið fyrir
hvað eftir annað, að Tito muni
bráðlega eiga fund með hátt-
settum grískum stjórnmála-
manni.
Hinn nýi sendiherra Breta
hér — Sir Charles Peake —
var áður sendiherra þeirra í
Belgrad, og er það talið tákn
þess, að Bretar mundu ekki líta
það óhýru auga, þótt eitthvað
drægi saman með Júgóslövum
og Grikkjum, hvað sem þeim
finnst um það, að samvinnan
eigi að vera náin.
Það var gríski stjórnmála-
maðurinn Tsaldaris, er fyrst
nefndi nauðsynina á Ankara-
Aþenu-Belgrad-möndli, og víst
er, að slík samtök mundu auka
öryggi allra þjóðanna.
gegn innrás aldrei hafa verið
veikari en nú, vegna þess hve
mikill hluti hersins væri í öðr-
um löndum. Hann sagði, að
þegar heimavarnarliðið var
stofnað í skyndi eftir að varnir
Frakka fóru í mola 1940, hafi
menn óttazt mest innrás yfir
Ermarsund frá Frakklandi. Nú
væri landinu mest hætta búin
af innrás úr lofti. Og við það
yrðu hlutverk heimavarnar-
liðsins miðdð. Fyrst um sinn
yrði liðið þjálfað til varnar
flugstöðvum og öðrum mildl-
vægum stöðvum í austurhluta
landsins. Heimavarnarliðsmenn
verða frá upphafi vel vopnaðir,
og gefst mönnum því ekki nú
tækifæri til að skopast að fyrsta
vopnabúnaði heimavarnarliðs-
ins, eins og 1940, er menn komu
til æfinga með orf og heygaffla,
gamla atgeira og spjót og sitt-
hvað fleira.
Slim hershöfðingi kvað of
seint að stofna heimavarnarlið,
er styrjöld skylli á.
Svavar Markússon
fyrstur í drengjahlaupinv
Drengjahlaup Ármanns fór
fram í gærmorgun.
Úrslit urðu þau að Svavar
Markússon (KR), varð fyrstur
á 6:43.0 mín. Næstur varð Þór-
ir Þorsteinsson (Á) á 7:02.0
mín. og þriðji Einar Guðmunds-
son (Keflavík) á 7:05.8 mín.
Ármann sigraði bæði í 3ja og
5 manna sveitakeppni. Hlaut 12
stig í 3ja manna sveitakeppni,
en næst varð sveit K.R. með 18
stig og sveit Umf. Keflavíkur
með 26 stig. Fimm manna sveit
Ármanns hlaut 33 stig.
Ennfremur kærði Þorsteinn
Löve fyrir hönd húsgagnameist
arafélags og sveinafélags hús-
! gagnasmiða í Rvík yfir því, að
1 sama fyrirtæki léti þá Björn
Magnússon, Júlíus Guðmunds-
son, Braga Salómonsson, Jón
Jóhannsson, Hörð Ólason, Magn
ús Jónsson, Sigurð Jonsson,
Gunnar Magnússon, Guðjón
Magnússon og Þorgrím Guðna-
son vinna á verkstæði sínu að
Laugaveg 166 við að smíða hús-
gögn án þess að þeir hafi hús-
gagnasmíðaréttindi.
Ákærði hélt því fram að
starfsemi sín væri iðja (verk-
smiðjurekstur) og færði það
máli sínu til sönnunar, að tré-
smiðjan framleiddi húsgögn í
fjöldaframleiðslu á „lager“, en
ekki samkvæmt pöntunum.
Var þá leitað álits iðnráðs og
taldi það kæruna á fullum rök-
um byggða, og ekki unnt að
taka rök ákærða til greina.
í dómsforsendum segir m. a.
á þessa leið:
„Við mat á því, hvað teljist
iðja og hvað iðnaður verður að
fara eftir því, hversu vandasöm
hin einstöku störf eru, þ. e.
hvaða þekkingu, reynslu, hug-
arstarfsemi, æfingu og ábyrgð
starfið útheimtir og hvaða véla-
notkun eigi sér stað við fram-
kvæmd þeirra.
Við skoðun á trésmiðju á-
kærða kom í ljós, að við bólstr-
un fást að mestu leyti ófaglærð-
ir menn. Ekki er um neina
starfsskiptingu þar að ræða, að
því er komizt varð næst, heldur
lýkur hver maður við þann
hlut, sem hann hefir byrjað á.
Þá þykja sum þau störf í hús-
gagnasmíði, sem ákærði lætur
ófaglærða menn vinna, vera
það vandasöm og margbrotin,
að þau verða ekki af hendi leyst
nema með námi og langri æf-
ingu.
Þegar þess er gætt að bólstr-
un þeirra Víglundar Gíslasoar
og Ásgeirs Jónssoar er bein
handavinna, að engum vélum
verður þar komið við og að
framangreindir menn ljúka að
öllu leyti við hvern hlut án þess
að um verkaskiptingu sé að
ræða, þá þykir þessi starfsemi
vera iðnaður og ákærði hafa
gerzt brotlegur gegn gildandi
Störf þeirra Björns Magnús-
sonar, Magnúsar Jónssonar, en
hann setur saman einföld og ó-
brotin máluð húsgögn í fram-
haldi af vélavinnu, Gunnars
Braga Salómonssonar og Þor-
gríms Guðnasoar hjá ákærða,
eru þess eðlis að ákærði þykir
ekki hafa brotið gegn iðnlög-
gjöfinni með því að láta þá ann-
azt þau. Ber því að sýkna á-
kærða af ákærunni að þessu
leyti.
Störf Júlíusar Guðmundsson-
ar, Jóns Jóhannssonar, Harðar
Ólasonar hjá ákærða, en menn
þessir fást við samsetningu
vandaðra og margbrotinna hús-
gagna og skipun þéirra, svo og
starfsemi Sigurðar Ingvars Jóns
sonar og Guðjóns Magnússonar,
að því leyti sem hann fæst við
bæsningu, eru þess eðlis að á-
kærði þykir hafa brotið gegn
iðnlöggjöfinni, með því að láta
þá annast þau.
Dómsniðurstaðan varð því sú,
að Guðmundi Guðmundssyni
var dæmt að greiða 1000 kr.
sekt til ríkissjóðs og komi 10
daga varðhald í stað sektarinn-
ar verði hún eigi greidd innan
4 vikna frá birtingu dómsins. Þá
var ákærða gert að greiða allan
sakarkostnað, þar með talin
málsvarnarlaun til skipaðs verj
anda síns, Páls S. Pálssonar hdl.
kr. 700.00.
Það skal tekið fram í sam-
bandi við málarekstur þenna,
að tveir húsgagnaarkitektar
voru kvaddir til að skoða tré-
smiðjuna og starfsháttu henn-
ar. Þá skal þess ennfremur get-
ið að auk fulltrúa sakadómara
sátu í dómnum tveir meðdóms-
menn.
Tekur þátt í
leitinni síSar.
Norski selveiðibáturinn Pol-
arsel er enn á ísafirði og vinna
skipsverjar að því að setja spik-
ið á geyma og salta skinnin.
Mestöllu kjötinu hafa þeir
þegar fleygt, en nokkuð hafa
þeir enn meðferðis.
Ekki kvaðst fréttaritari Vísis
hafa heyrt þess getið að ís-
firðingar myndu ætla að tryggja
sér neitt selkjöt til manneldis.
Polarsel er stórt skip, rúm-
lega 200 brúttótonn. Skipið
mun bráðlega hefja leit að
týndu selveiðibátunum í sam-
ráði við Birger Rasmunsen, sem
hér er staddur og stjórnar allri
leit framvegis.
Togarinn ísbor-g er nýkominn
inn með á þriðja hundrað tonn
af fiski, Sólborgin veiddi nýlega
120 tonn í flotvörpu. Báðir tog-
ararnir veiða nú í salt.
Á báta er sæmilegur stein-
bítsafli. Sumir útilegubátarnir
leggja upp afla sinn syðra.