Vísir - 10.06.1952, Blaðsíða 8
LÆKNAR O G LYFJABÚÐIR
Vanti yður lækni kl. 18—8, þá hringið í
Læknavarðstofuna, sími 5030.
Vörður er í Laugavegsapóteki, sími 1618.
Þriðjudaginn 10. júní*1952
Mótspyrna fanga á Koje-
ey hrotln á bak aftur.
8000 fangar veittu skipulagöa mótspyrnu.
Einkaskeyti frá AP.
Bandarískt herlið hefir broíið á bak aftur alla mótspyrnu
í illræmasta fangahverfinu á Koje-ey. Þar sem Dodd hershöfð-
ingi var hafður í haldi, en barna voru 6000 fangar, sem veittu
skipulagða og harða mótspyrnu.
Svissneskt met Alexanfa á sífr
í óheppni — asta álanga.
Snemma í morgun var föng-
unum skipað að koma sér fyrir
í fylkingum til burtfarar og
dreifingar þeirrar, sem ákveðin
hafði verið, þ. e. að skipta föng-
unum í 500 manna hverfi, en
fangarnir veittu mótspyrnu og
gripu til heimatilbúinna vopna,
kveiktu í benzínbirgðum, sem
þeir höfðu komist yfir, og beittu
heimatilbúnum handsprengjum.
Bandaríska herliðið lét þá hart
mæta hörðu og' var 2 Vz klukku-
stund verið að brjóta mótspyrn
una á bak aftur. Manntjón varð
allmikið, 32 fangar voru drepn-
ir og 1 bandarískur hermaður,
en 85 fangar særðust og 13
Bandaríkjahermenn, en áreið-
anlegar tölur um hve margir
særðust eru ekki fyrir hendi.
Sagt er, að kommúnistiskir
„Þó ert ástin
mín ein.“
Hin bráðskemmtilega, amer-
íska söngvamynd „Þú ert ástin
mín ein“ verður sýnd í Austur-
bæjarbíói í kvöld.
Söngvamynd þessi hefir
verið við svo góða aðsókn,
að ákveðið er að halda sýning-
um áfram á morgun. Hin vin-
sæla söngkona Doris Day syng-
ur í myndinni, en auk hennar
•leika aðalhlutverkin Jack Car-
son og Lee Bowman. Sýningin
fer þó að fækka og ætti fólk því
ekki að draga að sjá myndina.
Kairo (AP). — Húsflugan
bgypzka, það lítilmótlega kik-
vendi, hefir unnið sigur í 3ja
ára baráttu við Rockefeller-
stofnunina, *em telja má heims-
meistarann á sviði nútímavís-
índa.
Þannig er mál með vexti, að
húsflugunni er kennt um dauða
annars hvers barns hér í landi,
sem nær ekki 5 ára aldri. Árið
1950 gerði Rockefellerstofnunin
sér vonir um, að vísindi vorra
tíma hefur sigrað vágestinn. í
2 þorpum var notazt við tvenns-
konar skordýraeitur — gram-
mexan og klórdan — og á
skömmum tíma voru flugur
næstum horfnar þaðan, en
kostnaður var aðeins 3 kr. á
hús á ári.
Smábarnadauði minnkaði
'forsprakkar hafi banað með
rýtingsstungum föngum, sem
vildu gefast upp.
Aðrir herflokkar fóru inn í
annað fangahverfi í sömu er-
indum, en þar var engin mót-
spyrna veitt, og vænta menn
þess nú, þegar mótspyrnan hef-
ir ^verið brotin á bak aftur í
höfuðstöð fanganna, að kyrrð
muni færast yfir fangabúðirn-
ar.
lsiandsmófi& :
KR varni Víking
2:0
Annar Ieikur íslandsmótsins
fór fram á Iþróttavellinum í
gærkveldi.
Kepptu þá K.R. og Víkingur
og sigraði það fyrrnefnda með
2 mörkum gegn engu. Þriðji
leikur mótsins fer fram í kvöld
og keppa þá Akranes og Valur.
Ná fá Pags«
verjar nógan
fisk.
Drengirnir, sem nú eru á
skaki á vélbátnum Degi hérna í
flóanum, láta hið bezta yfir sér.
Bárust þær fregnir af þeim
í gærkveldi, að fiskur væri nóg-
ur, og allir kátir og hressir. —
Báðu þeir fyrir kveðjur til ætt-
ingja og vina.
samstundis, var 275 í öðru þorp-
inu og 325 í hinu á 1000 fæð-
ingar, en fór ofan í 100 á 1000
fæðingar, en dánartalan yfir-
leitt minnkaði úr 30 í 19 af
1000.
En á árinu sem leið hóf flug-
an sókn á ný, og nú lætur hún
það ekki á sig fá, þótt þessum
eiturtegundum sé beitt. Þær
hafa engin áhvif á haná, og DDT
ekki heldur. Mönnum telst til,
að aftur sé 90—100 flugur á
fermetra og dauðsföllin eru
orðin eins mörg og áður.
Tilraunir hefir þó leitt í ljós,
að til einskis er að menn. hafi.
hreint vatn og fullkomnar
skolpleiðslur, ef ekki er jafn-
framt' reynt að vinna bug' á
flugunum — dánartalan breyt-
ist ekki nema allt sé gert í einu.
um Ísíand.
Vestur-íslenzk kona, frú
Marja Björnsson frá Mineota,
hefir að undanförnu flutt fjöl-
mörg erindi um ísland í Kan-
ada og jafnframt haldið sýn-
ingu á ýmsum íslenzkum list-
munum og heimilisiðnaði.
Frú Marja kom hingað til
lands sumarið 1050 ásamt
manni sínum, Sveini Björnssyni
lækni og ferðuðust þau víðsveg-
ar um byggðir landsins.
Eftir að frú Marja kom aftur
heim til sín hefir hún flutt fjöl-
mörg erindi um ísland, bæði í
grennd við Mineota og svo í
öðrum íslendingabyggðum vest
an hafs.
Arðurinn af a. m. k. sumúm
þessara fyrirlestra rennur í
byggingarsjóð hins fyrirhug-
aða kvennaheimilis Hallveig-
arstaða í Reykjavík.
Frú Marja er dóttir Gríms
Laxdal kaupmanns á Akur-
eyri og mágkona Árna Eggerts-
sonar, hins víðkunna vestur-ís-
lenzka lögmanns.
Mossadegh talaðí í gær
— Breti í dag.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Dr. Mossadegli, forsætisráð-
herra Persíu, gerði í gær grein
fyrir afstöðu ríkisstjórnar sinn-
ar í deilunni við Breta, fyrir
Alþjóðadómstólnum í Haag.
Á eftir honum talaði belgisk-
ur lögfræðingur, sem er verj-
andi persnesku stjórnarinnar.
Bretar munu gera grein fyrir
málstað sínum í dag.
Engar sættir í stál-
deilunni vestra.
Einkaskeyti frá AP.
Washington í morgun.
j Tilkynnt var í morgun, að
! samkomulagsumleitanir í stál-
iðnaðardeilunni væru komnar
í'strand.
Fulltrúum beggja aðila hefir
þó verið gert aðvart um, að
vera viðbúnir að koma fyrir-
varalaust á nýjan fund. Öld-
ungadeildin hefir frestað að
taka málið fyrir þar til í dag.
Samkomulag er um það milli
deiluaðila, að haldið sé áfram
stálframleiðslu til þeirrar her-
gagnaframleiðslu, sem undir
engum kringumstæðum má
stöðvast.
Fjallavegir opnaðir
bráðlega.
Ekki er ólíklegt, að sumir
fjallavega beirra, sem enn eru
lokaðir, opnist til umferðar um
eða upp úr næstu helgi.
í morgun var hafizt handa
tira að athuga skilyrði til þess
að ýta snjó af veginum yfir
Þorskafjarðarheiði og hafizt
hefii' verið handa í Oddsskarði
milli Eskifjarðar og Norðfjarð-
ar.
Pf}« hcits&sssG.et*
Bern (AP) — Svissneski
kringlukastarinn Wyss á
sennilega hcimsmet í ó-
heppni. í fyrra kastaði hann
43,93 m. á móti einu í Sviss,
og setti þar með nýtt sviss-
neskt met. Hann fékk þó t
ekki að njóta metsins lengi, |
því að samdægurs kastaði I
m. á móti í Barcelcna. Nú
fyrir nokkru kasíaði Wyss
45.12 ni. í Bascl, en viti menn
— Háfflinger kastaði sama
dag 45.22 m. í Ziirich. Wyss
ev nú að hugsa um að verða
knaítspyrnuleikari.
-----».....
Bólusetning búpenings
í Sviss.
Lausanna (AP). — Svisslen-
dingar óttast írjjög, að gin- og
klaufaveiki kunni að breiðast
þangað, og hefir verið gengið að
því af kappi undanfarið að bólu-
setja nautpening landsmanna
gegn pestinni.
-----♦-----
Sáning hafin
í Hornafirði,
Á Höfn í Hornafirði var sunn
an hægviðri í morgun og Hafn-
arbúar önnum kafnir við sán-
ingu.
Tuttugu manns vinna að því
að byggja varnargarða við Jök-
ulsá í Lóni en bitanna í brúna
er ekki von fyrr en í ágúst.
Lágfóta hefir sig mjög í
frammi í Lóni, og eru þegar
fundin fjögur greni, eitt við
Reyðará, tvö við Þórisdal og
eitt nærri Efrafirði. Bændur eru
í miklupi vanda staddir vegna
vágests þessa, því að fólk er
fátt á bæjunum, og erfitt að fá
nógu marga æfða menn til
þess að liggja á grenjunum.
... ♦------
Ragnhildur prinsessa, dóttir
Ólafs konungsefnis og Mörthu
krónprinsessu, varð 22 ára
9. maí s. I.
Það verður bridgesveit Gunn
geirs Péturssonar sem keppir
fyrir ísiands hönd á Evrópu-
meistaramótinu í bridge á kom-
andi hausti.
Enda þótt bridgekeppninni
hér sé ekki að fullu lokið er þó
þegar útséð um, að það verður
sveit Gunngéirs, sem fer með
sigur af hólmi og hefir hlotið 7
stig.
Það eru alls sex sveitir, sem
taka þátt í yfirstandandi keppni
þar af eru þrjár héðan úr Rvík,
sveit Gunngeirs Péturssonar,
Lárusar Karlssonar og Ragnars
Jóhar.nessonar. Frá Akureyri
var sveit Ármanns Helgasonar,
Einkaskeyti frá AP.
Tokyo í morgun.
Alexander lávarður lagði af
stað frá Hongkong álciðis tií
Japans og Kóreu í morgun.
Alexander sagði við frétta-
menn í Hongkong í gærkveldi,
að það hefði vakið mikil von-
brigði, að samkomulagsumleit-
anirnar í Panmunjom hefðu
ekki borið tilætlaðan árangur.
Kommúnistar hafa sent Mark
Clark bréf og segja nú aðeins
fangaskiptamálið þröskuld í
vegi fyrir samkomulagi um
vopnahlé og vilja óðfúsir fleiri
fundi.
Framh. af 5. síðu.
ar á daginn leið. Húsvíkingar
voru svo heppnir að bæði Goða
foss og Lagarfoss voru í höfn og
tóku áhafnirnar þátt í hátíða-
höldunum. Húsvíkingar og á-
höfn Goðafoss kepptu í knatt-
spyrnu og unnu Húsvíkingar
með fimm mörkum gegn tveim
ur. Kvenfólkið tók þátt í kapp-
róðri — þá var og reiptog og
inniskemmtun í samkomuhús-
inu. Rennur tekjuafgangurinn
af henni til björgunarskútu
Norðurlands.
Goðafoss kom með 5000 tunn
ur frá Hamborg til Húsavíkur
og eru þær frá Tékkóslóvakíu.
Selfoss tekur síðan 3000 af þess
um 5000 tunnum og fer með þær
til Raufarhafnar en þar kemst
Goðafoss ekki inn. Lagarfoss
kom með 300 tonn af efni í
Laxárvirkjunina.
— SíBcEIro.
Frh. af 1. síðu.
Ef veðui'skilyrði verða sæmi-
leg og ef heppnin er með vænt-
um við okkur árangurs, er ætti
að geta orðið síldarútveginum
til ómetanlegs gagns, eigi að-
eins næsta sumar, heldur og
framvegis.
Forystumenn rannsóknar-
skipanna eru Unnsteinn Stef-
ánsson, Finn Devold og Erilc
Bertelsen.
frá Akranesi sveit Egils Sig-
urðsonar og frá Vestmannaeyj-
um sveit Guðlaugs Gíslasonar.
Sveit Gunngeirs hefir unnið
sveit Akureyringa, Vestmanna-
eyinga og Ragnars Jóhanesson-
ar, gert jafntefli við sveit Lár-
usar Karlssonar, en tapað fyr-
ir sveit Akurnesinga.
Sveitina skipa auk Gunngeirs
Péturssonar, Einar Ágústsson,
Sigurhjörtur Pétursson og Örn
Guðmundson. En til þátttöku í
Evrópumeistaramótinu, sem
hefst 20. sept. í Dublin á ír-
landi, bætir Bridgesamband fs-
lands við tveimur mönnum og
ræður fararstjórá.
V
)—--------------------aas—U-
Margt er sisritið
ry
Húsfliigan sigraði Rodtefeller.
.„tMcsaftsBncisttiB'iníB *k crncH uattSie í
s barúttunmi.
Sveit Gunngeirs send á Evrópu-
meistaramétsð í haust
3'Mútiú hcíst 20. scpt. í SÞublin.