Vísir - 19.09.1952, Page 1
42. iig.
Föstudaginn 19. september 1952
212. tbl.
Kringlukastar-
arnir þrír sem
berjast um foryst-
una. á morgun.
Þeir hafa aliir
varpað kringlunni
■ yfir 49 metra í
sumar, og verður
því um mjög tví-
sýna keppni að
ræða. Þeir eru t.
f. v. Friðrik Guð-
mundsson, Jörgen i
Munk-PIum og'
Þorsteinn Löve.
(Ljósm: Árni
Kjartansson).
Húsmæðrakennaraskói!
Ssiands tekinn ti! staría.
Husmæðrakennaraskóli ís-
lands er tekinn til starfa, var
settur í Háskóla íslands í
fyrradag.
Er þetta sjötta starfstímabil
skólans, sem vár settur í fyrsta
sinn haustið 1942. Fram að
mánaðamótum er eingöngu,
kennd sláturgerð og geymsla
matvæla, en í október verður
tekið til við fleiri námsgreinar.
Hörð keppni ■ kring!u>
kasti á
Islendingar keppa við danska meistarann.
Síðasta
frjálsíþróttamót í 3000 metra hlaupinu, en þar
haustsins, Septembermótið, fer
fram á morgun á íþróttavell-
inum og hefst kl. 3 e. h.
Upphaflega var ætlazt til að
mótið færi fram á tveimur
dögum og að þá yrði keppt í
miklu fleiri greinum ,en nú
hefur þessu verið breytt og
verða keppnigreinarnar aðeins
sjö að tölu.
Mesta athygli mun keppnin
í kringlukastinu að sjálfsögðu
vekja, en þar keppir d'anski
meistarinn og methafinn, Jörg-
en Munk Plum. Bezti árang-
ur hans til þessa er 49.98 metr-
ar, en hins vegar skal þess
.getið að aðalkeppinautar hans
hér, þeir Þorsteinn Löve og'
Friðrik Guðmundsson hafa báð
ir varpað kringlunni yfir 49
metra í sumar. Það má því bú-
ast við mjög harðri og spenn-
andi keppni í þessari grein á
morgun. Alls eru keppendur í
henni sex að tölu.
Þá er engan veginn ósenni-
.legt að íslenzka metið hrökkvi
eigast við þeir Kristján Jó-
hannsson, Sigurður Guðnason
og ungur Keflvíkingur, Þór-
hallur Guðjónsson að nafni.
í sleggjukastinu keppa allir
beztu sleggjukastararnir okk-
ar, bræðurnir Gunnlaugur og
Sigurjón Ingvasynir, Vilhjálm-
ur Guðmundsson og Þórður B.
Sigurðsson, allir úr Rvík, en
auk þeirra Einar Ingimundav
son og Þorvarður Arinbjarnar
úr Keflavík.
Aðrar képpnigreinar verða
100 m. hlaup, 800 m. hlaup
unglinga, stangarstökk og há-
stökk.
Indonesar þiggja
tæknilega aðstoð.
Jakarta. (A.P.).
Það hefir verið tilkynnt hér í
borg, að stjórnir Indónesíu og
Bandaríkjanna hafi gért með
sér nýjan sáttmála.
Er hér um gagnkvæman ör-
yggissáttmála að ræða ,en auk
þess er gert ráð fyrir að Banda-
ríkin veiti Indónesum ýmsa
tæknilega aðstoð. Þessi nýji
sáttmáli, sem tekur við af öðr-
um eldri, var undirritaður 1
Jakatra í gær.
Bandaríkin þurfa að eiga
vini víðsvegar um heim.
Stevenson vi!! bann vlð kjarnorkuvopnum.
New York. (A.P.).
Málik, fulltrúi Sovét-ríkj-
antta í Oryggisráðinu, beitti í
gær neitunarvaldi sínu til þess
að koma í veg fyrir uþptöku
Japans í samtök S. Þ.
Fulltrúi Bandaríkjanna kom
fram með tillögu um að Japan
yrði tekið upp í samtökin og
greiddu 10 þjóðir atkvæði með
tillögunni. Rökstuddi Malik
beitingu neitunarvaldsins með
því að Japanar hefðu sent her-
lið til Koreu. Þessu var mót-
mælt af Warren Austin, full-
trúa Bandaríkjanna.
Kotmmínistar halda til Kína.
.borgarar44 vildn ekki iara.
En
Eins og Vísir sagði frá á sín-
um tíma, var gert ráð fyrir
sendiför héðan á vegum kom-
múnista austur til Kína.
í morgun skýrir Þjóðviljinn
frá því, að sex manna hópur
fari áleiðis með Heklu 'í dag, og
sé ætlunin, að komið verði til
Moskvu 1. októbér, „til að horfa
á hátíðahöldin þar“. Verða þau
Ogiynni 2
vil Færeyfar.
Ogrynni síldar var sögð við
Faereyjar fyrir skemmstu, og
fylltu skip sig á skömmum
tíma.
Blaðið „14. september", sem
út kemur í Þórshöfn, sagði frá
þessu 11. þ. m., og fylgdi það
fréttinni, að skipin hefðu feng-
ið 2—4 tunnur í net. Vitað var
þá um okkur skip, er höfðu
fengið ágætan afla. Pállsdrang
ur kom inn með 270 tunnur, en
Lillie var með 380 tunnur eft-
ir fjórar ferðir. — Sænskir
síldarkaupmenn voru þá stadd-
ir í Klakksvík, eri léyfi vur
þegar fengið fyrir sölu á 2800
tunnum til Svíþjóðar.
innar hafa lokið skaia-
iótagreiðslum til Reíssa.
síSmsÍu skipin lög&n
uir finnskiri h&ín í fáer.
Einkaskeyíi frá AP.
Helsinki í morgun.
Finar hafa nú lokið öllum
skaðábótagreiðslum sinum til
Sovétríkjanna og lögðu tvö
seinustu skipin úr höfn í Finn-
landi í gær, áleiðis til Rúss-
lands.
Eftir styrjöldina gerðu Rúss-
ar Finnum að greiða 107 millj.
sterlingspunda í skaðabætur,
en þessi gífurlega upphæð hefir
nær tvöfaldist frá því er um
skaðabæturnar var samið,
vegna hækkandi verðlags á öll-
um hráefnum og auknum fram-
leiðslukostnaði.
Talsmaður finnsku stjórnar-
innar lagðí áherzlu á það, er
hann ræddi stríðsgróðaskaða-
bæturnar í gær, að greiðsla
þeirra hefði verið Finnum mik-
il byrði, en nú hefði þjóðin lok-
ið við þessar skuldbindigar. —
Rakti hann síðan okkuð hvað
þjóðin hefði orðið að leggja hart
að sér til þess að inna greiðsl-
ur þessar af hendi.
í raun réttri hafa Finnar
greitt Rússum talsvert hærri
upphæð en þeim bar að greiða,
jafnvel þótt ekki sé tekið með
í þeim útreikningum hækkandi
Verðlag og framleiðslukostnað-
ur. Þúsundir járnbrautarlesta
fóru með alls konar varning til
Rússlands, sem Rússar síðan
gerðu ýmsar athugasemdir við,
og mátu miklu lægra til skaða-
bótagreiðslna, en Finnum hafði
talist til.
Um það atriði eru Finnar fá-
orðir, enda aðeins ánægðir yfir
því að geta nú loks um frjálst
höfuð strokið. En skáðabóta-
greiðslurnar til Rússa, sem
voru í upþhafi óeðlilega háar,
hafa hvílt eins og mára á þjóð-
inni.
sennilega í sama tákni friðar-
ins og sýningar þær, sem kom-
múnistar hafa áður verið látn-
ir horfa á austur í Moskvu.
Þeir, sem fara för þessa, eru
ísleifur Högnason, Jóhannes úr
Kötlum, Nanna Ólafsdóttir,
Skúli Þórðarson, Zophonías
Jónsson og Þórbergur Þórðar-
son.
Ýmislegt bendir tii þess, að
för þessi verði með öðrum hætti
en ætlunin var í öndverðu, því
að kommúnistar höfðu gert sér
nokkrar vonir um að geta feng-
ið fleiri en kommúnista til þess
að taka þátt í henni. Áttu 10
menn að fara og skyldi hóp-
uririn skiptast þannig, að fimm
væru gallharðir kommúnistar lr
en afgangurinn átti að vera
„borgarar“, en enginn slíkur
virðist hafa viljað bíta á agnið.
En fyrir bragðið ættu ferða-
langarnir að geta komið heim
með enn betri sannanir fyrir
sýklahernaði Sameinuðu þjóð-
anna í Kóreu en ella.
Einkaskeyíi frá AP. ]
New York í morgun.
Adlai Stevenson, frambjóð-
andi demokrata við forseta-
kjörið í Bandaríkjunum, flutti
í gær ræðu í borginni Hart-
ford í Connectieut.
Stevenson var allharðorður
í ræðu sinni um stefnu repu-
blikana í innanríkis- og utan-
ríkismálum. Réðst hann í inn-
anríkismálum gegn einangrun
arstefnu sumra kunnra repu-
blikana, og benti á rökvillurn-
ar og ósamræmið milli einangr
unarstefnunnar og stefnu
þeirra í utanríkismálum. Ýms-
ir republikanar, sagði Steven-
son, telja, að Bandaríkin þurfi
ekki á vináttu annarra þjóða
að halda. Og telja þau nægilega
varin með birgðum af kjarri-
orkusprengjum.
Stevenson taldi kjarnorku-
sprengjurnar lítils virði, ef
ekki væru flugvellir til annars
staðar en í Bandaríkjunum. Og
til þess að hafa aðgang að þeim
yrðu Bandaríkin að eiga vin-
veittar þjóðir víðsvegar um
heim. Lagði hann áherzlu á.
að styrjöld yrði aldrei unnin
með kjarnorkusprengjum ein-
um saman.
Þá fór Stevenson nokkrum
orðum um skoðun republikana
á styrjöld við Kína. Hafa verið
uppi háværar raddir um, að
Bandaríkin ættu að segja Kín-
verjum stríð á hendur. Sýndi
Stevenson fram á þá fjarstæðu
að ætla sér að heyja styrj&Id
við Kína, og gera ekki ráð fyr-
ir að eiga vingott við neina
aðra þjóð, sem gæti veitt' þeim
aðstoð í þeirri styrjöld.
í lok ræðu sinnar sagðist
Stevenson myndi berjast fyr-
því, ef hann yrði kjörinu
forseti, að alþjóðlegt bann y rði
sett við notkun og framieiðslu
kj arorkuvopna.
Hvalur III í slipp.
Hvalur III var tekifin í slipp
í gær.
Allmiklar skemmdir virðast
hafa orðið á skipinu, og verður
bráðlega hafizt handa um við-
gerð á því. Verkið verður að
líkindum boðið út, að því er
Vísir hefir frétt. — Þess skal
getið, í sambandi við fyrri
fregnir af strandinu, að H.f.
Hamar lánaði dælur og lagði til
menn, en skipið komst síðan á
flot af eigin rammleik, eins og
áður hefur verið greint frá.
SVFÍ hefir
nóg að gera.
Slysavarnafélagið Iiefur átt
óvenju annríkt undanfarna 19
daga eða svo.
Á þessum tíma hefir það
verið beðið að aðstoða báta á
Faxaflóa, sem urðu fyrir vél-
bilun. Síðast gerðist það í gær-
kveldi, að SVFÍ var beðið að
aðstoða vb. Björn riddara úr
Vestmannaeyjum, og var skip
sent á vettvang, sem. dró bát-
inn til hafnar. Þá hefur félag-
ið aðstoðað við tvser leitir á
landi, en auk þess var kölluð
út björgunarsveit á Akranesi,
er Hvalur III strandaði í Hval-
firði.