Vísir - 19.09.1952, Side 4
VtSIR
Föstudaginn 19. september 1952
a
¥ÍS1R
DXGB&IB P??'
Sltetjórar: Kristján GuBlaugsson, Hersteinn PíIsmb,
Skriístofur Ingólfsstræti 3. ^
Ctgefandi: BLAÐAtJíGAFAN VlSIR HJf. W%.
KCcrsiðsla: Ingólfsstræti 3. Símar 1660 (fimm linur)',
Lausasala 1 króna. l ..uaaR:
Félagsprentsmiðjan iuf. *
v í*
Einkennilegar ályktanir.
Fyrir nokkru bar það til tíðinda, að þremur mönnum var
sagt upp vinnu í Vélsmiðjunni Héðni. Var þeim greitt
kaup fyrir lögmæltan uppsagnarfrest, en þess óskað jafnframt
að þeir mættu ekki á vinnustað. Forstjóri Héðins hefur gert þá
grein fyrir afstöðu sinni og ákvörðunum, að hann hafi lengi
verið fastráðinn í að segja þessum mönnum upp starfi af eðli-
legum sökum, en í blaðaskrifum um málið hefur ennfremur
komið í ljós, að þessir menn einhverjir eða allir, hafi leitast við
að hindra nauðsynlegan undirbúning að iðnsýningu þeirri, sem
nú stendur yfir, þannig að ekki yrði lögð fram vinna af verka-
manna eða iðnaðarmanna hálfu svo sem nauðsyn krafði, ef
sýninguna átti að, opna í tæka tíð.
Þótt atferli þeirra manna, sem upp var sagt, í sambandi
við iðnsýninguna, kunni að hafa ráðið endanlegum úrslitum
og flýtt uppsögninni, telur forstjóri Héðins sig hafa ærna
ástæðu til slíkra aðgerða, og hefur jafnframt lýst yfir því, að
hann óskaði eftir að málið yrði útkljáð með dómi. Félagsfundur
járniðnaðarmanna, sem haldinn var í fyrrakvöld mun hafa tekið
mjög í sama streng, en ályktað jafnframt að rétt væri að félagið
höfðaði mál til þess að rétta hlut þeirra manna, sem upp var
sagt starfi. Þar sem málshöfðun er þannig ákveðin og dóms er
að vænta um ágreininginn sem báðir aðilar kveðast reiðubúndr
til að hlíta, skyldu menn ætla að ekki væri frekari aðgerða
þörf í bili.
Félag járniðnaðarmanna lætur þó ekki þar við sitja að
ákveða málshöfðun, heldur ályktar það einnig og ber fram þá
málaleitan við Alþýðusamband íslands og Fulltrúaráð verka-
lýðsfélaganna, að þessir aðilar beiti sér fyrir eins dags verkfalli
hér í bænum í samúðarskyni við þá járniðnaðarmenn, sem upp
var sagt. En hafi verið ástæða til að höfða mál til að rétta við
hlut þeirra, ætti að vera óþarft og jafnvel viðsjárvert að efna
jafnframt til verkfalls og þvæla öðrum aðilum inn í deilu þá,
sem dæma á um af þar til haefum dómstóli. Ályktanir fundarins
stangast í rauninni innbyrðis, sem ekki er heldur merkilegt,
þ>ar sem kommúnistar eiga aðallega í hlut varðandi fram bornar
tillögur. , ^
Að öðru leyti verður engin afstaða tekin til ofangreindrar
deilu, en þó liggur í augum uppi, að samtök verkalýðsins verða
að varast að dæma í deilumálum fyrirfram og stofna á þeim
grundvelli til vandræða. Samkvæmt lögum fjallar sérstakur
<lómstóll um brot á samningsbundnum ákvæðum varðandi kaup
og kjör, skyldur og réttindi þeirra, sem í hlut eiga, eða sker
xneð öðrum orðum úr deilum vinnuveitenda og vinnuþiggenda,
evo sem aðilar virðast einnig ásáttir um í þessari deilu. En
vilji verkalýðssamtökin virða lög og rétt, verða þau að varast
að beita ólögmætum verkföllum, sem aðeins geta spillt, en ekki
bætt málstað þeirra og teflt hagsmunum verkamanna í voða í
því sambandi. Hinar einkennilegu ályktanir félags járniðnaðar
manna munu gerðar með hliðsjón af kosningum til Alþýðu
sambandsþings, sem nú standa fyrir dyrum, en ekki verður séð
að þar sé öðru frekar miðað við hagsmuni þeirra manna, sem
upp var sagt vinnunni.
Um 100 bílar við fjár-
flutninga í næstu viku.
Fé að vestaii flutt sjóleiðis siiiðui*.
Hert eftiriit
T)örn og unglingar hafa lagt það í vana sinn, að hanga á
veitingahúsum og þá aðallega í smáholum, yfir einhverju
gutli, sem þeim er þar bruggað og á engan hátt getur talist
skaðvænlegt fyrir heilsu þeirrá. Slík hegðan barna og unglinga
mun vera gersamlega óþekkt annarsstaðar en hér, og á Norður-
löndum eru þess tæpast dæmi, að börn og unglingar fái að fara
inn á veitingahús, nema í fylgd með fullorðnu fólki. Þótt veit-
ingar þær, sem í té eru látnar í smáholunum séu í sjálfu sér
skaðlausar, er hér um illan sið að ræða og mikinn tíma, sem
fer til ónýtis og verra en það, með því að ofangreint hangs
verður bein ástríða hjá unglingum þessum.
Lögreglustjóri hefur nú auglýst, að hér eftir verði börn og
unglingar að hafa í höndum vegabréf, þannig að þau geti
sannað aldur sinn, en eigi ella á hættu að verða frá vísað í
kvikmyndahúsum og veitingastöðum hér í bænum. Hefði slíkt
eftirlit mjög gjarnan mátt vera strangara allt til þessa, en lofs-
vert er þó að hafizt er handa til þess að útrýma ósómanum.
Barnaverndarnefnd mun hafa eftirlit með framferði barna á
veitingastöðum, en með því fámenna starfsliði, sem nefndin
hefur yfir að ráða, er ekki við að búast að komið verði í veg
ífyrir allar misfellurnar í fari barnanna.
Um næstu helgi hef jast hin-
ir miklu fjárflutningar, sem
áður hefur verið sagt frá hér í
blaðinu, að fram myndu fara á
þessu hausti.
Búið er að taka ákvarðanir
um fjárkaupasvæðið fyrir
norðan og ráða bílstóra til þess
að annast flutninga fjárins
suður.
Það eru um 16.000 fjár, sem
ráðgert er að kaupa fyrir norð-
an, í austustu hreppum Eyja-
fjarðarsýslu, Suður-Þingeyjar-
sýslu, öllum hreppum sýslunn-
ar, og einum hreppi í Norður-
Þingeyjarsýslu (Kelduhverfi).
Fjárflutningarnir hefjast um
næstu helgi og hafa verið ráðn-
ir um 100 bílstjórar til að ann-
ast flutningana, flestir úr Ár-
nessýslu og Þingeyjarsýslum,
en nokkrir úr Reykjavík. í
hverri bifreið verður aðstoðar-
maður til þess að hafa eftirlit
með fénu.
Fullyrða má, að aldrei hafi
jafnmargt fé verið flutt hér á
landi jafnlanga leið, og er það
allra von, að þessir fjárflutn-
ingar megi ganga að óskum.
Gert er ráð fyrir, að unnt verði
að flytja féð alla leið suður, án
þess að taka það úr bílunum,
nema úr Kelduhverfi. Fé það-
an verður hvílt á leiðinni. Á
hverjum bíl verða frá 45 og upp
í 70 kindur (þeim stærstu).
Ekið verður suður heiði, um
Borgarfjörð og Uxahryggi, svo
sem fyrr hefir verið getið.
Fé þetta fer eingöngu í Ár-
nessýslu, austan við Þingvalla-
vatn og Sog.
Kringum 24.-25 þ. m. hefj-
ast svo fjárflutningar af Vest-
fjörðum. Þaðan verða flutt
nokkur þúsund fjár og verður
það mestallt flutf sjóleiðis og
fer það í Árnes’sýslu vestan
Sogs. Það verður flutt sjóleiðis
til hafna við Faxaflóa, nema
að ráðgert er að flytja fé úr
tveimur hreppum við Djúp
suður Þorskafjarðarheiði í bíl-
um.
Til viðbótar því, sem að ofan
segir, er þess að geta, að mikl-
ar vegabætur hafa verið gerðar
undangengnar 5—6 vikur á
Uxahryggjaleiðinni, og var veitt
til slíkra framkvæmda fé á
fjárlögum vegna fyrirhugaðra
fjárflutninga. Hafa tveir flokk-
ar unnið að þessum fram-
kvæmdum með allmiklum véla-
kosti, undir stjórn tveggja
verkstjóra, annar Þingvalla-
megin frá, hinn Borgarfjarðar-
megin frá. Er það mjög gleði-
legt, að samtímis því, að greitt
er fyrir fjárflutningunum með
þessum framkvæmdum, eru
gerðar mjög gagnlegar vega-
bætur fyrir framtíðina.-
Má vel taka það fram í þessU
sambandi, að skoðun margra er,.
að þarna verði framtíðarleið, er
fram líða stundir — bæði sum-
ar og vetur, og mikið af Hval-
fjarðarumferðinni beinast þang;
að. Er þessi leið mun styttri eri
Hvalf j arðarleiðin.
Hvert skal halda ?
Helgaferðir eru nú senn á j ferð um Krýsuvík og Þingvöll^
enda og ferðafélög og aðrir sem
að ferðalögum standa, sem óð-
ast að leggja árar í bát.
Ferðafélag íslands
mun samt efna til gönguferð-
ar á Esju n. k. sunnudag kl. 9
árdegis, en það verður vafa-
laust ein af síðustu ferðum fé-
lagsins á þessu ári.
Ferðaskrifstofa ríkisins
efnir til venjulegrar hring-
ferðar um Þingvöll og Krýsu-
vík á sunnudaginn og enn-
fremur til berjaferðar í Þing-
vallasveitina.
Orlof og
Guðmundur Jónasson
efna til 4 daga ferðar til
Fiskivatna og Snjóöldufjall-
garðs með viðkomu í Land-
mannalaugum. Sú ferð hefst kl.
2 á laugardaginn.
Orlof efnir ennfremur til
berjaferðar vestur á Snæfells-
nes á morgun kl. 9 árdegis og
verður komið aftur á sunnu-
dagskvöld. Dvalið verður í
tjöldum við Búðir.
Auk þessa efnir Orlof til
tveggja eftirmiðdagsferða á
sunnudaginn, önnur er hring-
en hin austur á Loftstaðahól^
til Stokkseyrar og Eyrarbakka.;.
Popliníbarnagalla
nýkomið.
HAFNAP
HAFNARSTRÆTI 1t
Sölubörn
óskast til að selja merki
Heilsuhælissjóðs N.L.F.Í. á
morgun. Merkin verða af-
hent á Mánagötu 13 og Ás-
vallagötu 39. Góð sölulaun.
Fappírspokagerðin fi.f.
Vitastig 3. Allsk. pappírspokar
♦ BERGfAlÆli ♦
Vegabréf
unglinga.
I dagblöðunum hefir verið
birt auglýsing frálögreglustjóra
þess efnis, að gefin sé út inn-
lend vegabréf fyrir unglinga,
svo þeir geti sannað aldur sinn.
Vegabréf þessi eru gefin út af
skrifstofu lögreglusjóra og í
auglýsingunni er unglingum
bent á að afla sér slíkra vega-
bréfa, sem afgreidd eru ókeyp-
is. Auglýsir lögreglustjóri þetta
í framhaldi af því, að gefin hafa
verið út fyrirmæli til veitinga-
manna um að framfylgja sett-
um reglum um lágmarksaldur.
Nauðsynleg
ráðstöfun.
Því ber að fagna, að lögreglu-
stjóri hefur endurnýjað fyrir-
mæli sín, einkum til veitinga-
staða. Væri það áreiðanlega
mjög vel þegið af mörgum for-
eldrum, að banninu væri
stranglega framfylgt, en ekki
er nokkur vafi á því, að mikill
fjöldi unglinga undir 16 ára
aldri situr öllum stundum í
veitingahúsum þeim, sem al-
mennast eru kallaðir „barar“.
Erfitt er oft fyrir afgreiðslu-
fólk að gera sér nákvæma grein
fyrir aldri unglinganna. Leysir
þá vegabréfið allan vandann,
og sé ekkert vegabréf fyrir
hendi mætti á þeim grundvelli
neita viðkomandi um afgreiðslu.
Miðist við 21 ár.
Eiginlega er nauðsynlegt, að
allir unglingar undir 21 árs
aldri hafi vegabréf, og væri þá
miklu hægara um vik — t. d. í
sambandi við dansleiki — að
koma í veg fyrir, að unglingar
undir vissum aldri sæki slíkar
skemmtanir. Eins og ástatt er
nú í skemmtanalífinu, og dæm-
in sanna deginum ljósara hvert
stefnir, er bráð nauðsyn að
gripið sé sterklega í taumana,
ef verða mætti til þess að vernda
æskulýðinn fyrir miður heppi-
legum áhrifum.
Áfengiskaup og annað.
Það hafa lengi verið lög, að
ekki megi selja yngra fólki en
21 árs áfengi, og' býst eg við,
að þeirri reglu sé yfirleitt fylgt,
þegar þess er kostur. Aftur á’
móti geta afgreiðslumenn í út-
sölum áfengisverzlunarinnar offc
ekki vitað með vissu, hvoru
megin við aldurstakmarkið við-
skiptavinurinn er. Eins er það:
á dansleikjum og veitingahús-
um, þar sem áfengi er haft um
hönd. En með því að ganga ríkfc
eftir því, að allir unglingar
gangi með vegabréf, er mikið:
spor s.tigið í rétta átt.
Tel eg að lögreglustjóri sé hér
á réttri leið í vandasömu máli,
og mun síðar nánar- ræða hag—
kvæmni .vegabréfa á öðrum
sviðum. — kr.
Gáta dagsins.
Nr. 244.
Grátt læðist inn með
veggnum
og grípur þig, ef þú getur
þess ekki strax?
Svar við gátu nr. 243.
Uppblásinn líknarbelgur.