Vísir - 31.10.1952, Blaðsíða 2
VÍSIR
Föstudaginn 31. október 1952
2'
BÆJÁR
frettir
Föstudagur,
Hitt og þetta
Stórskipið „Elísabet drottn-
ing“ fiutti nýlega fulltrúa
.margra þjóða á þing S. Þ. í
New York. I Southampton
komu 6 brczkir fulltrúar á
skipsfjöl, þar á meðal Sir Clif-
ford Norton og frú hans, einn
Tékki og einn Dani. I Cher-
bourgh koma á skipið Rúss-
arnir Vishinsky og Gromýko.
Þá komu þar og á slcipsf jöl þrír
Grikkir, 2 Tékkar í viðbót, 6.
Pólverjar, 2 Iraqbúar, 1 Egypti
og utanríkisráðherrann frá
Euxemburg.
•
Svíi einri gerði sér glaðan dag
er hann fór að heiman og loks
þegar dimmt var orðið og hann
orðinn all rykaður lagði
hann af stað til þess að leggja
á hestinn sinn, en náði þá í lcú
í staðinn.
„Hvaða herjans kuldi er
þetta,“ tautaði liann. „Eru þá
ekki eyrun frosin á merinni!“
Hann hafði rekizt á hornin
á kúnni.
Pat var hættulega veikur, og
Mike kom í heimsókn til hans.
Hann kleif upp í súðarkompuna
til hans, og reyndi að stappa í
hann stálinu. „Vertu óhræddur,
lagsmaður," sagði hann. „Þú
verður orðinn alheill, áður en
þú veizt af því. Þú lifir í fimm-
tíu ár enn.“
Eftir nokkra stund kvaddi
Mike vin sinn hressilega og
gekk til dyra. Um leið og hann
gekk út fyrir, rak hann sig upp
undir dyrastafinn. Þá varð hon-
um að orði: „Það verður svei
mér enginn leikur að koma lík-
inu út úr herberginu."
•
Frú McTavish: „Sandy, hér
koma gestir, sem ætla víst að fá
að borða.“
McTavisli: „Fljót nú — öll út
á tröppur með tannstöngla í
höndunum!“
Cíhu Aimi íar....
Úr Vísi fyrrum:
Rafmagnslaus varð bærinn
með öllu í gær. Var það kent
krapi, er setzt hafði í ristina
í stíflugarði rafmagnsveitunnar,
eins og venja er til í snöggum
frostum. Var unnið að þvi í
allan gærdag að hreirísa krapið
af ristinni, en alltaf þvarr
vatnið og ljósin dofnuðu í bæn-
um, unz þar kom, að þar var
ekkert Ijós. Síðustu fregnir frá
stöðinni í gærkveldi, voru á þá
leið, að engra bóta væri að
vænta á þessu fyrr en í morg-
unmálið. En í morgun var á-
standið alveg það sama. Urðu
margir þá til þess að hringja
upp rafmagnsstöðina, og var nú
svarað, að ekkert krap væri
lengur á ristinni, en áin sjálf
stífluð fyrir ofan efri veiði-
mannahúsin, og væri nú verið
að höggva hann upp. — í fyrra-
vetur kom það nokkrum sinn-
um fyrir, að krapastífla hljóþ
í vatnsleiðsluna, eins og nú, eii
hitt mun ekki hafa komið fyrir
áður, að áin sjálf hafi stíflazt.
Eru nú margir kvíðnir fyrir því,
að það kunni að koma oftar
fyrir í vetur, því að viðbúið er,
að frost verði nú meiri en í
fyrra.
31. okt. — 305. dagur ársins.
Rafmagnsskömmtun
verður á morgun, laugardag,
kl. 10.45—12.15, í 3. hluta.
Bólusetning
gegn barnaveiki. Pöntunum
veitt móttaka á þriðjudaginn 4'.
nóvember kl. 10—12 f. h. í síma
2781.
Hljómleikar
þeirra Marie Bryant söngkonu
og Mike McKenzie píanóleikara
og söngvara verða í Austurbæj-
arbíói í kvöld kl. 11.15. Hús-
fyllir var á hljómleikum þeirra
í gærkveldi, og var þeim for-
kunnar vel tekið.
Þjóðleikhúsið
sýnir Rekkjuna í kvöld kl. 8.
Gamla bíó
sýnir í kvöld hina frægu mynd
Uppreisnina á Bounty, sem áður
hefur verið sýnt hér við fá-
dæma aðsókn og undirtektir.
Charles Laughton þykir leika
snilldarlega í þessari mynd, en
Clark Gable þykir og liðtækur
sem fyrr.
Hvar ei-u skipin?
. Eimskip: Brúarfoss er á
Siglufirði. Dettifoss fór frá
Rotterdam í fyrrad. til London
og Reykjavíkur. Goðafoss er á
Hjalteyri, fer þaðan til Ólafs-
fjarðar og Austfjarða. Gullfoss
er í Kaupmannahöfn. Lagarfoss
fór frá Reykjavík í gærkvöld
til Vestmannaeyja og Breiða-
fjarðarhafna. Reykjafoss er á
Akranesi. Selfoss fór frá Leith
28. þ. m. til Gautaborgar, Ála-
borgar og Bergen. Tröllafoss er
í New York.
Ríkisskip: Esja er á Aust-
fjörðum á norðurleið. Herðu-
breið er á Austfjörðum á norð-
urleið. Skjaldbreið fer frá Rvík
á morgun til Húnaflóahafna.
Þyrill var á Sauðárkróki í gær
HrcMgáta nr. /7S6
Lárétt: 1 Málmur, 5 nýting,
7 tónn, 9 verzlun, 11 brott, 13
fylking', 14 sveia, 16 frumefni,
17 fóðra, 19 dimmir.
Lóðrétt: 1 Góðmálms, 2
sviptur, 3 glundroði, 4 menn, 6
hreinlætisathöfnin, 8 tímabils,
10 úr heyi, 12 hæstir, 15 jrödd,
18 sérhljóðar.
Lausn á krossgátu nr. 1756:
Lái'étt: 1 dóseht, 5 frí, 7 SP,
9 Nana, 11 kák, 13 Níl, 14 árna,
16 AA, 17 úlf, 19 garðinn.
Lóðrétt: 1 diskana, 2 sf, 3
ern, 4 nían, 6 balar, 8 j>ár, 10
nía, 12 knúð, 15 Ali, 18 FN.
á austurleið. Skaftfellingur fer
frá Reykjavík í dag til Vest-
mannaeyja. Baldur fór frá Rvík
í gærkvöld til Króksfjarðamess.
Skip SÍS: Hvassafell losar
síld í Aabo. Arnarfell fór frá
Fáskrúðsfirði 25. þ. m. áleiðis
til Grikklands. Jökulfell lestar
freðfisk fyrir Norðurlandi.
H.f. Jöklar: Vatnajökull kem-
ur væntanlega til Vestmanna-
eyja í dag frá Álaborg og Ham-
borg. Drangajökull fór hjá Belle
Isle í fyrradag á leið til New
York.
Eimskipafél. Reykjavíkur h.f.:
Katla er í Napoli.
Útvarpið í kvöld:
20.30 Kvöldvaka: a) Síra
Sigurður Einarsson flytur er-
indi: Einangrun sveitanna. b)
Útvarpskórinn syngur; Róbert
A. Ottósson stjórnar (plötur).
c) Þorsteinn Matthíasson kenn-
ari flytur frásöguþátt: Á
Strandafjörum. d) Benedikt
Eyjólfsson frá Kaldrananesi á
Ströndum kveður stökur. e)
Andrés Björnsson les frásögu
eftir Archibald Clark-Kerr:
Andinn í Meyjarklaustri. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.10
„Désirée“, saga eftir Annemarie
Selinko (Ragnheiður Hafstein)
— XIII. 22.35 Tónleikar (plöt-
ur).
Heima er bezt,
nóvemberheftið, er komið út.
Efni er m. a.: Skammdegisróð-
ur, eftir Magnús Jóhannsson;
Þar fór illa silfrið hennar Siggu
minnar, eftir Sigurjón frá Þor-
geirsstöðum; Stóraborg; Eldur-
inn í þjónustu mannkynsins;
Kattaeyjan; í rökkrinu, eftir
Þórarin Víking; Útilegumenn
og útilegumannatrú; Meistarar
miðaldanna; Vetur sezt að völd-
um, eftir Jórunni Ólafsdóttui-;
Barnið á árbakkanum; Hólm-
göngur; Stúlkan og hreysikött-
urinn; Herragarðsdraugurinn
og fleira.
Veðrið.
Lægð yfir Grænlandshafi á
hreyfingu norðaustur. Veður-
horfur: Vaxandi suðaustan eða
J sunan átt, hvassviðri og rign-
ing upp úr hádeginu.
Togararnir.
Hvalfell og Pétur Halldórs-
| son eru á leið til lándsins frá
Danmörku. Pétur Halldórsson
kom við í Englandi á heimleið
til þess að taka olíu. Jón for-
seti er á heimleið frá Þýzka-
landi. Keflvíkingur er á útleíð.
Geú' og Helgafell eru í slipp
og Harðbakur á að fara í slipp.
— Júní og Júlí eru á karfa-
veiðum.
Esso með 8 stig.
Vísi hefir verið bent á, að sú
villa hafi slæðzt í frásögn
blaðsins af úrslitum í firma-
keppninni á'dögimum, áð kapp-
lið Esso hafi hlotið 8 stig,. en
ekki 6, eins og þar. var. sagt.
Esso-kapplíðið varð annað í
röðinni í keppninni, en Héðins-
menn fyrstir eins og fyrr getur.
B.v. Marz
er væntanlegur frá Græn-
landí á þriðjúdag. Fer héðan
til Esbjerg. Neptúnus og Úr-
anus eru á saltifskveiðum við
Grænland. — Surprise er á
Karfaveiðum. Röðull er á fisk-
veiðum fyrir Þýzkalandsmark-
að. Bjarni riddari er að veiðum
við Grænland.
Ljósmyndasýning
Ferðafélags íslands verður
apnuð í Listamannaskálanum i
kvöld kl. 6.
---*-—.
-skAk-
Tefld á Haustmóti T.R. 21. okt.
1952.
Hvítt: Lárus Jóliannson.
Svart: Guðjón M. Sigurðsson.
1. d2—d4 d7—d5
2. Rgl—f3 Rg8—f6
3. e2—e3 g7—g6
4. c2—c4 Bf8—g7
5. Rbl—c3 0—0
7. 0—0 c7—c5
8. d4—d5 a7—a6!
9. a2—a4 e7—e6
10. e3—e4 e6Xd5
11. e4Xd5 Bc8—g4
12. Be2Xc4 Rb8—d7
13. Hfl—el Rd7—b6
14. Bc4—a2 c5—c4
15. h2—h3 Bg4—f5
16. Rf3—e5 Rf6Xd5
17. Rc3Xd5 Rb6Xd5
18. Ba2Xc4 Rd5—b4?
19. DdlXd8?>) Ha8Xd8
20. Bcl—g5 Hd8—c8!
21. Hal—cl Rb4—c2!
22. Rc4Xf7 Hf8Xf7
23. Re5Xf7 Rc2Xel
24. HclXel Kg8Xf7
25. Hel—e?| Kf7—g8
26. He7Xb7 Bf5—e4
27. Hb7—b6 h7—h6
28.Bg5—-e3 Hc8—c6
29. Hb6—b8f Kg8—h7
30. b2—b4 Hc6—c4
31. f2—f3 Be4—c2
32. b4—b5 Hc4—a4
33. b5—b6 Bc2—d3?
34. Hb8—d8 Ha4—alf
35. Kgl—h2 Bd3—f5
36. b6—b7 Hal—bl
37. g2—g4 Bf5—e6
38. Hd8—e8 Be6—d5
Gefst upp.
F.L hefur samstarf
¥ið 40 flugfélög.
Flugfélag Islands hefur nú
gert gagnkvæma farmiðasölu-
samninga við næstum 40 flug-
félög víða um heim. -
Félagið hefur nýlega tekið að
sér aðalsöluumboð hérlendis
fyrir brezka flugfélagið BEA,
og' selur miða þess samkvæmt
reglum fjárhagsráðs um far-
seðlasölu með erlendum flug-
félögum. FI annast og móttöku
varnings, sem á að flytjast með
vélum BEA innan Evrópu.
Bandaríkin krefja iússa
um skaðabætur.
New York (AP). — Banda-
ríkjastjórn krefst bóta af Ráð-
stjórninni fyíir flugvélina,
sem skotin var niður fyrir 10
dögum fyrir norðan Japan.
■ f nýrri orðsehdingu er því
algerlega heitáð, að flugvéiin
haf i verið voþnuð, eins og
Rússar hafa haldið fram, en
þeir héldu því einnig fram, að
hún hefði skotið á rússnesku
orrustuflugvelarnar. í orðsend
ingu Bandaríkj astjórnar segir,
að þetta séu staðlausir stafirt
1) 18. —“—. Fram til þessa
hafa átökin verið alljöfn, en
hér var Rf6 betri leikur.
2) Gott var 19. D—b3 og
svartur má alvarlega gá að sér.
Ef t.d. 19 —'R—c2, þá RX
f7f! Eðea ef 19. —D—e7 þá
B—d2! — Ekki er létt að sjá
hvernig svartur kemst lijá
skakkaföllum, eftir hinn gerða
leik er breytist viðhorfið þann-
ig að nú er þáð hvítur, en ekki
svartur, sem á örðugt með að
losna úr klípunni og er nú
líklegast ekki viðbjargandi.
3) 33. —“— Hér missir svart-
ur þráðinn, gefur hvítum jafn-
teflismörguleika, gott var B—
f5.
4) Nú átti hvítur kost á jafn-
tefli með K—f2, B—f5. 36.
b6—b7. H—bl. 37. b7—bXD,
HXb8. 38. HXb8, B—e5f. 39.
B—f4, BXb8. 40. BXb8 og er
þá komið í þekkta jafnteflis-
stöðu með ósamlitum biskup-
um. — Héðan af er voðinn vís
þar sem hvítur getur nú ekki
borið biskupinn fyrir skákina á
e5.
-----♦-----
Jazzgestunum
íagnað í Austur-
bæjarbíói.
Húsfyllir var á hljómleikun-
um í Austurbæjarbíó í gær-
kveldi, og fögnuðu áheyrendur
ákaft beim, er þar komu fram,
einkum hinum erlendu gestum,
Marie Bryant söngkonu og
Mike McKenzie, píanóleikara
og söngvara.
Marie Bryant er bandarísk,
kunn fyrir söng sinn með
hljómsveitum, en auk þess
dansar hún, og kemur yfirleitt
vel fyrir á sviði, enda vakti
hún feikna hrifningu áhorf-
enda. Flest lögin, sem hún
söng, könnuðust menn við, og
spillti það ekki ánægjunin.Mike
McKenzie er geisidökkur,
brezkur Afríkumaður, berst lítt
á, þar sem hann situr við slag-
hörpuna, leikur og syngur.
Hann hefur ekki mikla rödd,
en beitir hljóðnemanum þeim
mun betur, er hann syngur
einn, en auk þess sungu þau
saman nokkur lög. Mike lék
eitt lag, sem ekki telst til dæg-
ur- eða jazzlaga, eftir De Falla,
og fögnuðu menn því ekki síð-
ur en Basin Street, Rum-Boo-
gie og fleiri lögum.
Rhythma-tríó Guðmundar
R. Einarssonar aðstoðaði gest-
ina, og gerði það vel, en svo
mikill alvörubragur var á
mannskapnum, að það var lík-
ast því, sem væri hann stadd-
ur í biðstofu tannlæknis. Þá
kom og fram hljómsveit Eyþórs
Þorlákssonar og þokkalegur
kvartett (Smára-kvartettinn),
og íoks Dixieland-hljómsveit
Þórarins Óskarssonar. Vakti
stíll þessarar hljómsveitar mik-
inn fögnuð, en til skamms tíma
mun svonefndur Dixielandstíll
ekki hafa átt upp á pallborðið
hjá jazzmönnum. Svavar Gests
kynnti atriðin, var röskur, og
minnti helzt á sjónhverfinga-
mann, en hefði getað látið ó-
gert áð þakka háttvirtum á-
heyrendum fyrir að þeir skyldi
ekki hafa framið ólæti á hijóm-
leikunum. Ókunnugt fólk gæti
haldið, að slíkt væri alsiða við
sííkr tækifæri.