Vísir - 04.12.1952, Síða 2
VlSIR
Fimmtudaginn 4. desember 1952»
Hitft og þetta
Erasmus Darwin var afi
Charles Darwins og 18. apríl í
vor sem leið, voru Iiðin 150 ár
frá því er hann lézt. Hann var
læknir, var mjög hugmynda-
auðugur maður og hafði mikið
ímyndunarafl. Hann skrifaði
margar bækur, sem sýndu að
hann var sonarsonur hans og
hafði lært af honum, því að
þar var drepið á framþróunar-
kenningu, sem Charles sagði
að hefði „verið fyrri til en La-
marck“. Erasmus hélt því
fram að jurtirnar væri ekki
gjörsneyddar skyni og vilja.
Hann var hrifinn náttúruskoð-
ari og vísinadmaður.
•
Hringjarinn gretti sig. —v
Það var mikið uppnám í Töns-
berg síðastliðið vor út af því
að menn fullyrtu að hringjari
þar hefði grett sig og sýnt með
látbragði sínu að honum mis-
líkaði það, sem presturinn sagði
er hann var að halda likræðu.
— Þetta dró dilk á eftir sér.
Safnaðarnefndin ætlaði að
rannsaka málið og blöðunum
var mjög tíðrætt um það, hvers
vegna hringjarinn hefði grett
sig. „Tönsbergblad“ heldur því
fram að hér sé um að ræða
gamlar væringar og stöðugar
milli prestins og klukkarans.
Skard biskup lét svo um mælt
að málið myndi athugað.
•
Við erum búin að fá nýtt
bam, heima.
Hvar fenguð þið það?
Hann Jón læknir kom með
það.
Við fáum frá honum líka.
•
Það er svo fínt þetta fólk,
sem flutt í íbúðina þarna. Það
getur rakið ættir sínar alla leið
til Guðmundar ríka.
Já, það getur verið. En hús-
gagnasalinn ætlar samt að
sækja húsgögnin þess á morg-
txn. —
•
Sagt er að jafnan hafi verið
mjög gestkvæmt hjá Bismarck,
jámkanzlaranum. Og því er
einnig haldið fram, að hann
hafi ætíð vakið gesti. sína kl.
6 árd. með því að skjóta af pí-
stólu. Gilti einu hvort gestirnir
voru tignir menn eða ótignir.
BÆJAR
Cíhu Mmi tiar....
Meðal bæjarfrétta Vísis hinn
4. desember 1922 voru þessar:
Þingmálafundur
fyrir Ámessýslu var haldinn
á Selfossi á laugardaginn. Hafði
þar verið samþykkt van-
traustsy firlýsing til stjórnar-
innar út af afskiptum hennar
af íslandsbanka og sölu Geysis-
hússins. Nákvæmar fregnir af
fundinum hafa Vísi ekki bor-
izt.
Rökkursöngvar •
heitir ljóðabók, sem kemur
út innan fárra daga. Höfund-
urinn er Kristmann Guðmunds-
son.
Jólabragur
er nú að koma á borgina.
Jólauglýsingar eru farnar að
birtast og jólauglýsingar komn-
ar í suma búðarglugga.
Fimmtudagur,
4. desember, — 339. dagur
ársins.
Rdfmagnsskömmtun
verður á morgun, föstudag-
inn 5. desember, kl. 10.45—
12.15 í II. hluta.
Handritamáíið
verður rætt á fundi rithöf-
undafélaganna beggja, sem
haldinn verður í Café Höll í
kvöld kl. 8.30.
K. F. U. M.
Barn er oss fætt. I. Mós. 22,
1—18. Hebr. 11, 17—19.
Handritin heim
er kjörorðið. Framlögum
veitt móttaka eða þau til-
kynnt í skrifstofu stúdenta-
ráðs, Háskólanum, Síma 5959.
Benedikt Sveinsson 75 ára.
Af mæliskveð j a.
Heill þér, höfðinginn háaldraði.
Hafðuþökk fyrir þjóðhollt stai'f.
Frelsisvinurinn fróði og glaði,
færðir kynslóðum konungsarf.
Frelsisandinn þinn ætíð svífi
yfir þessarar þjóðar lífi.
Þá mun vel farnast voru landi,
verða bægt frá því nauð og
grandi.
2. des. 1952. Jón N. Jónasson,
kennari.
Pöntunarfélag lögreglumanna
hefir til bráðabirgða fengið
afnot af herbergi í viðbyggingu
við mjólkurstöðina gömlu við
Snorrabraut.
Nýir húsasmiðir.
Eftirtaldir menn hafa fengið
leyfi til að standa fyrir bygg-
ingum í Reykjavík sem húsa-
smiðir: Guðmundur Berg-
mann Jónsson, Reynimel 26;
Guðmundur Tómasson, Skúla-
götu 54; Hákon E. Kristjánsson,
Þverholti 7; Jón Guðmundsson,
Barónsstíg 55; Kristján R. Sig-
urjónsson, Snorrabraut 35;
Þorsteinn S. ólafsson, Mána-
UrcMydta nr. Í7St
götu 5 og Sveinn Þorvaldsson,
Hofteigi 20.
Hvar eru skipin?
Eimskip: Brúarfoss fór frá
Rvk. 30 nóv. til Wismar. Detti-
foss fór frá New York 29. nóv.
til Rvk.. Goðafoss fór frá Rvk.
30. nóv. til New York. Gullfoss
fór frá Leith 2. des. til Rvk.
Lagarfoss og Reykjafoss eru í
Rvk. Selfoss fór frá Bremen í
fyrrad. til Rottex-dam. Trölla-
foss fór frá Rvk. 28. nóv. til
New York.
Ríkisskip: Hekla er á Aust-
fjörðum á suðurleið. Esja er á
leið frá Austfjörðum til Akur-
eyrar. Herðubreið er á Aust-
fjörðum á suðurleið. Skjald-
breið er í Rvk. Þyrill er norð-
anlands.
Skip S.Í.S.: Hvassafell fór
frá Stykkishólmi 2. þ. m. áleið-
is til Finnlands. Arnarfell er
væntanlegt hingað frá Spáni
nk. föstudag. Jökulfell er í Rvk.
Útvarpið í kvöld.
Kl. 20.20 íslenzkt mál. (Hall-
dór Halldórsson dósent). —
20.40 Tónleikar (plötur). —
21.05 Upplestur: Elrnboi'g Lár-
usdóttir les úr bók sinni, „Mið-
illinn Hafsteinn Björnsson",
öðru bindi. — 21.30 Einsöngur:
Aksel Schiöth syngur (plötur)..
—21.45 Veði'ið í nóvember.
(Páll Berþórsson veðurfræð-
ingur). — 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. — 22.10 Symfónisk-
ir tónleikar (plötur) til kl.
23.05.
Söfnin:
Landsbókasafnið er opið kl.
10—12, 13.00—19.00 og 20.00—
22.00 alla virka daga nema
laugardaga kl. 10—12 og 13.00
—19.00.
Þjóðminjasafnið er opið kl.
13.00—16.00 á sunnudögum og
kl. 13.00—15.00 á þriðjudögum
og fimmtudögum.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið sunnud. frá kl. 13.30—
15.30.
Náttúrugripasafnið er opið
sunnudaga kl. 13.30—15.00 og
á þriðjudögum og fimmtudögum
klö 11.00—15.00.
Vaxmyndasafnið er opið á
sama tíma og Þjóðminjasafnið.
Gengisskráning.
1 bandarískur dollar kr.
1 kanadískur dollar kr.
Ungur maður,
en ekki kona, varð fyrir meiðsl-
um við Þvottalaugarnar, eins
og Vísir greindi fi'á í gær. Leið-
réttist þetta hér með.
Veðrið.
S-gola síðar kaldi, þokusúld.
Stjörnubíó
sýnir þessi kvöldin kvikmynd-
ina „Hátíð í Havana". Þetta er
bráðskemmtileg amerísk
söngva og dansamynd, sem
kemur mönnum í hið bezta
skap, enda hefur aðsókn að
myndinni verið vaxandi. Desi
Amaz og Mary Hatcher fai'a
með aðalhlutverk. — Tvær
aukamyndir eru sýndar, frétta-
blað frá Politiken, og þar kom-
ið víða við, og skopmynd.
Borgfirðingafélagið
heldur spilakvöld og kvöld-
vöku í Breiðfirðingabúð £
kvöld. Félagar eru beðnir að
fjölmenna.
Skemmtifundi
Íslenzk-ameríska félagsins,,
sem halda átti annað kvöld er
frestað um óákveðinn tíma.
Sjö voru sólir á lofti.
Annað bindi a£ sjálfsævisögu
Guðm. G. Hagalins kom út í gær,
í gær kom á markaðinn ann-
að bindið a£ sjálfsævisögu Guð-
mundar G. Hagalíns rithöfund-
ar, og nefnir hann það „Sjö
voru sólir á lofti“.
Þegar fyrsta bindi sjálfsævi-
sögu Guðmundar kom út í
fyrrahaust, vakti sú athygli les-
enda fyrir það, hve vel hún
var skrifuð, fjörlega og
skemmtilega. Frásagnargleði
Hagalíns var þar í almætti.
„Sjö voru sólir á lofti“ er
allstór bók, röskar 230 þétt- og
smáttprentaðar síður, og nær
frá þeim tíma er höfundurinn
flytzt sem drengur með for-
eldrum sínum frá Lokinhömr-
um yfir í Haukadal í Dýrafirði
og til þess tíma er hann sem
unglingur lýkur námi við Núps-
skóla og gerist háseti á kútt-
ernum Elízu. í þessari bók
kennir margra grasa og þar
nýtur frásagnarlist höfundarins
sér til fulls.
Um viðhorf sín og ævisögu-
ágrip segir höfundur sjálfur m.
a.: „Eg hef alltaf haft ríka til-
hneigingu til að lifa mig inn í
það, sem verið hefur að gerast
í kringum mig, með þjóð minni
og í umheiminum, íhuga at-
hafnir, orsakir þeirra og af-
leiðingar — allt, sem reynist
örlagavaldur í lífi einstaklinga
og heildar“. Ennfremur segir
höf.: „Heildarupprifjun hina
liðna hefur ávallt verið mér
mjög eiginleg, og sú upprifjun
hefur varpað ljósi yfir, lífið á
líðandi stund, veitt því sam-
hengi við fortíðina og gefið því
fyllingu“.
Bókfellsútgáfan sér um út-
gáfuna og hefur gert bókina vel
úr garði í hvívetna.
SUmabúliH
GARÐUR
Garðastræti 2. — Sfmi 7299.
Amerískar vörur
Seljum í dag:
Telpuútiföt, mjög smekkleg
Barnasamfestingar, fóðraSir
GEYS8R H.F.
Fatadeildin
Láréttt: 1 Mannsnafn, 6
kvennafn, 8 fjall, 10 sýslu-
stafir, 11 viðgerð, 12 hljóðstaf-
ir, 13 fangamai'k, 14 gola, 16 á
sjó.
Lóðrétt: 2 Drykkur, 3 spil,
4 fangamark, 5 í hálsi, 7 fisk-
ur, 9 á fuglum, 10 sonur, 14
stafur, 15 tónn.
Lausn á krossgáiu nr. 1785.
Lárétt: 1 Snjáð, 6 kór, 8 ás,
10 ók, 11 skvetta, 12 ká, 13 TT,
14 æki, 16 Atson.
Lóðrétt: 2 Nk, 3 jóreyks, 4
ár, 5 páska, 7 skata, 9 ská, 10
ótt, 14 æt, 15 IO.
1 enskt pund ..
100 danskar kr. ..
100 norskar kr. ..
100 sænskar kr.
100 finnsk mörk
100 belg. frankar
1000 franskir kr.
100 tékkn. Krs. ..
100 gyllini ...:..
1000 lírur _______
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
16.32
16.78
45.70
236.30
228.50
315.50
7.09
32.67
373.70
32.64
429.90
26.11
Bátamir.
Línubátarnir héðan fengú í
gær þeixna ajia: Græðir tæpar
4 lestir og Svanur tæpar 3.
Hjónaefni.
Nýlega hafa ppinberað. trú-
lofun sína ■unglrá Erla Stein-
grímsdóttir, .Grettisgqtu .20, og
Guðmundur. Éngilbert Guð-
mundssqn. rtiísuðumaður,
Mávahlíð 41.
Anerískur bamafatuaiur
og snyrtivöi’ur
nýkomið.
Laugaveg .‘18.
Mafnarf
Afgreiðsia blaðsim tii fasíra ■ kplip'enda 1, HafHar-
firði, er á Linnetsstig 3 A.
Hafnfirðingar gerist kaupendur að v'ísi, haim <ar
ádýrastur í óskriít, aðeins 12 krónur mánaðargjaldið.
Áskriftasíminn í Hafnarfirði er 9189 frá S—6.
ÍÞagbtaSiS Vmir