Vísir - 03.02.1953, Side 1

Vísir - 03.02.1953, Side 1
VI 43. árg. Þriðjudaginn 3. febrúar 1953 27. tbl. „Hans Egede" næsta viðfangs- efni Þjéileikhiíssins. yEfingar laafnar á rismiklu leijkriti eiíir Ifavíd Stefánsson. Næsta meiri háttar viðfangs- cfni Þjóðleikhússins verður sjónleikurinn „Hans Egede“, eftir Davíð Stefánsson. Æfingar eru þegar hafnar af j kappi, að því er Vísi var tjáð í morgun. Lárus Pálsson er leik- stjóri, en aðalhlutverkið síra Hans Egede, sem nefndur hefur verið postuli Grænlands, fer Jón Sigurbjörnsson með. Jón hefur áður leikið í Þjóð- leikhúsinu við ágætan orðstír, en einna minnisstæðastur mun hann leikhúsgestum úr Sölu- maður deyr. Hann er nýlega kominn frá Ítalíu, þar sem hann var við söngnám, en hann er talinn hvorttveggja, góður leik- ari og söngmaður. Herdís Þor- valdsdóttir fer með hlutverk Geirþrúðar, konu hans, en í öðrum aðalhlutverkum eru Val- ur Gíslason og Haraldur Bjöms- son. Leikritið „Hans Egede“ gerist á fyrstu árum 18. aldar í Noregi, Danmörku og Grænlandi, og munu leiklistarvinir bíða með nokkurri eftirvæntingu þessa mikilfenglega sjónleiks frá hendi Davíðs Stefánssonar. Sýningar Þjóðleikhússins undanfarið hafa verið mjög fjölsóttar, húsfyllir á flestum sýningum, bæði hér í bænum og eins úti á landi, þar sem „Rekkjan" hefur verið sýnd á vegum þess. Það leikrit verður sýnt um helgina á Hellu í Rang- árvallasýslu og á Selfossi. Kostar V2 penny að slá Vn penny. Einkaskeyti frá AP. — London í gær. Það er áreiðanlegt, að myntslátta borgar sig ekki að öllu leyti. Sósíalistaþingmað- ur að nafni Lipton hefur bent á það, að í hvert slcipti, sem sleginn sé „farthing“ — f jórðurigur úr penny — kosti sláttan hálft penny, tvöfalt meira en gildi peningsins. Hann vill láta hætta þessari vitleysu! Butler fjármálaráð- lierra benti honum á, að þetta mál yrði að athuga í nánu samhengi við myntsláttu al- mennt, og sennilega myndi mörgum blöskra, ef allt, sem þyrfti, yrði hækkað um fjórðung úr penny. MilSjén manna í nauðum í Hollandi. James B. Conant, fulltrúi Bandaríkjastjórnar ■' Vestur- Þýzkalandi. Herta Kuusinen í ónáð. ¥rúlr ekki skýringum Rússa. Einn aðalleiðtogi finnskra kommúnista, Herta Kuusincn. hefur fallið í ónáð við það, að Tító-isma hefur skotið upp I kommúnistaflokki Finna. Herta hefur verið nlynnt. hægfara kommúnistum, sem hafa ekki fengizt til þess að leggja blessun sína yfir Slansky- málaferlin,, handtökurnar í Austur- Þýzkalandi og hin ó- vænta hreinsun í Sovétríkjun- um. leggja blessun sína yfir Slansky-málaferlin, handtók- urnar í Austur-Þýzkalandi og hina óvæntu hreinsun I Sovét- ríkjunum. Foringi þessara hægíara manna er Atos Wirtanen, sem er forsprakki ' hóps vinstri sósíaldemókrata, er hafa gert bandalag við kommúnista. — Hann hefur látið svo um mælt á opinberum fundr „Mér cru málaferlin óskiljanleg. ■ Þrcun- in í A.-Evrópu er ekki iýðj-æð- isleg.“ Annar hægfara kommúnisti, Raoul Palmgren, hefur verið rekinn úr stöðu sinni sem aðal- ritstjóri kommúnistadagblaðs- ins Vapaa Sana, af því að hann neitaði að birta skýringar Tass-fréttastofunnar á réttar- höldunum yfir Slansky og birti þess í stað frásögn vestrænna fréttastofnana af þeim. Frakkar yfir 43 milljónir í ár. París (AP). — Mannfjöldi í Frakklandi mun komast upp í 43 milljónir á þessu ári. Manntalsskýrslur sýna, að íbúar landsins voru 42,773,000 laust fyrir áramótin og gerir hagstofan ráð fyrir 400,000 fæðingum á árinu. Brezk farþega- vél ferst. London (AP). — Brezk flug- vél fórst í gær á leið frá Bret- landi til Jamaica og með henni 39 manns. Seinast heyrðist til flugvél- arinnar í gærmorgun, er hún var 350 mílur austur af Ný- fundnalandi. Þetta var fjögurra hreyfla vél frá Skyways Ltd. með 6 manna áhöfn, en farþeg- ar voru 33, þeirra meðal 10 hermenn, en hinir konur og börn. Harry S. Truman hafnar stöðum, þar sem 100.000 dollara árslaun eru í boði. „Þeh’ vilja aðeíras ssafnið siaitt**. segir hansa. N. York (AP). — Harry S. Truman, óbreyttur borgari, er ekki enn búinn að ráða við sig, hvað hann ætiar að taka sér fyrir liendur á næstunni. Víst er, að hann hefur hafnað mörgum tilboðum um atvinnu, og buðust honum þó miklu meira en forsetalaun hj á ýmsum þeirra, sem vildu fá hann í þjónustu sína. Eitt fyrirtæki bauðst meira að segja til þess að gera samning við hann til átta ára, og átti Truman að fá 100.000 dollara árslaun þar. Annað fyrirtæki vildi fá hann til þess að taka að sér yfirstjórn á sölu varnings þess, sem fyrirtækið framleiðir, og bauð það Lonum meira en 100.000 dollara árslaun fyrir. Truman hefur hafnað öllum slíkum tilboðum. Hann hefur látið svo um mælt, að honum komi ekki til hugar að taka við Uirfi, sem gæti leitt til þess, að einhver skuggi félli við það á embætti það, sem hann héfur haft á undanfömum áruni. Hann set- ur einnig tvö skilýrði varðandi starf það, sem hann kann að takast á hendur, í fyrsta lagi verður það að vera við hæfi kunnáttu hans Þar og í Bretlandi yitað um nærri 900 manns sem hafa farizt. Margra hundraða er saknað enn. Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. í morgun var kunnugt um 287 menn, sem farist hafa í aust- héruðum Englands, en í Hollandi er tala þeirra, sem drukknað hafa, komin yfir 600. Fólks er saknað í hundraðatali í hvoru landinu um sig. í Hollandi er um 1 milljón manna í nauðuin stödd, en í Bretlandi liafa yfir 8000 manns orðið að flýja heim- ili sín. að leýsa — og það yrði að gera á þeim grundvelli, að girt væri fyrir miklu meiri hættur en menn höfðu órað fyrir. Bæir, þorp og' heil héruð eru enn án rafmagns og gass og drykkjarvatnsskortur er mikill sums staðar. Þar sem sjór hefur runnið af landi er mikil ófærð. vegna bleytu og aurs, og varla eða ekki fært húsa milli. Fiskiflotinn til hjálpar. í Hollandi er ástandið verst á eyjunum í Scheldeósum. Sjór hefur flætt yfir sumar þeirra, svo aðeins sér á trjátoppa og efri hluta húsa. Á öðrum eyjum er fólk einangrað í þúsunda tali. Öllum fiskiflota landsins hefur verið stefnt til ákveðinna staða til aðstoðar við björgunarstarf- ið. Bandaríkjamenn hafa lagt til 20 „kopta“ og Bretar tíu, og eru sumir þeirra byrjaðir björg unarstarf. Kanadiskt herlið í Þýzkalandi bíður skipunar um að halda til Hollands. Er hér um verkfræðingadeildir að ræða, en tvær slíkar deildir franska hersins eru á leið til landsins. Kanada hefur boðið Bret- landi, Hollandi og Belgíu að- stoð og Véstur-Þýzkaland hefur boðið Belgíu aðstoð. Þar er manntjón ekki mikið, — 22 menn hafa farizt — en eigna- tjón er þar allmikið í strand- héruðunum, einkanlega í nánd við Ostende. Líklegt er, að nokkrir dagar líði, þar til sæmilega glöggt heildaryfirlit fæst um tjónið í Hollandi og Belgíu. Betri horfur. Hilversum-útvarpið sagði f morgun, að ástandið hefði held- ur batnað sumstaðar, t. d. Walchereney. Þar hefðu mer.ir nú allt á sínu valdi og væru dælur komnar í gang. Hér er þess að geta, að ekki hefur enn náðst til fjölda manna, einkanlega í eyjum og óshólmum, og almennt talið,- að dánartalan eigi enn eftir að hækka mikið í báðum löndum. Churchill sagði í gær, að hjálpar- og viðreisnarstarfsem- in væri mál allrar þjóðarinnar, og það yrði að leysa vandann á þeim grandvelli. Innanríkisráð- herrann, David Maxwell Fyfe, sagði í ræðu í gær, að hann myndi sitja fund daglega með þeim ráðherrum, sem færu með þau mál, er varða hjálparstarf- semina, en bæja- og héraðs- stjórnir hefðu fullt samþykki ríkisstjórnarinnar til allra nauð synlegra bráðabirgðaráðstafana. Nýi.r flóðgarðax brugðust. Dugdale ráðherra ræddi við- reisnarstarfsemina. Varnir gegn sjávargangi hefði brostið, jafn- vel þær sem miðaðar voru við þá mestu hugsanlegu hættum, sem menn gátu hugsað sér, og væri hér m. a. um að ræða varn argarða frá síðari árum, og áttu að duga í mestu sjávarflóðum, en fóru alveg í kaf eða brustu. Hann kvað flóð hafa komið, er mest gekk á, tveimur stundum fyrr en búist hafði verið við og haldist lengur. Eitthvert mesta verkfræðilegt viðfangsefni, sem nolckurn tíma hefði komið til sögunnar í Bretlandi, yrði nú og þekkingar, og það má ekki vera af því tagi, að ætla mætti að hann hafi einungis fengið það, af því að hann hafði verið forseti áður. Um starfstilboð þau, sem Truman hefur fengið, segir hann: „Þessir menn vilja aðeins fá mig í vinnu vegna stöðu þeirrar, sem eg var í til skamms tíma. Þeir vilja aðeins nota sér nafn mitt, og það kem- ur ekki til greina.“ Og hann bætti rið: „Eg verð brátt 69 ára. Starf með 109,009 dollara launum á ári í átta ár, yrði í rauninni ævistarf. Eg hdd ekki, að eg sé svo mikils virði, og enginn maðttr er það.“ Vantraust á Malan feilt. Pretoria (AP). — Þjóðþing Suður-Afríku hefur fellt van- traust á stjórn dr. Malans. Aðalflutningsmaður tillpg- unnar var . Strauss, leiðtogí stjórnarandstæðinga. Tillagan var felld með 83 atkvæðum gegn 68. > t

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.