Vísir - 03.02.1953, Page 8
liÆSNAS OG LTFJABÐÐIR LJÓSAT1MI
Vanti yður lækni kL 18—8, þá hringið i Wi IgW Mg bifreiða er frá 16,25 til 8,55.
Læknavarðstofuna, sími 5030. \W A mSrn m Flóð er næst í Reykjavík kl. 20,40.
| Vörður er í Lyfjabúðinni Iðunn, sími 7911. * vjhV Uhí UHBH Lmmmm lhhkSh *
Þriðjudaginn 3. febrúar 1953
Talsvert u« ölvun og afbrot
í bænum um síðustu helgi.
Fyrsti boiskapur
Eisenhowers.
Enn vantar skýringar á við-
bótarfénu „íslenzka."
R^skingar, þjófnaðii* og rúðnbrot.
Töluvert mikið var um ölv-
un hér í bænum um helgina og
liafði lögreglan mikið að gera,
<enda þótt ekki drægi til neinna
jneiri háttar tíðinda.
í fyrrakveldi var lögreglan
kvödd að Hótel Borg vegna
áfloga þar fyrir framan hótelið'.
Handtók lögreglan mann, sem
í ryskingum þessum hafði rifið
Jrakka annars manns. En er
lögreglan hafði tekið skýrslu
af atburði þessum, sleppti hún
manninum. Nokkrum klukku-
stundum síðar kom þessi sami
maður svo aftur á lögreglu-
stöðina og kvaðst þá sjálfur
hafa orðið fyrir árás. Var hann
iþá reiður mjög og kvaðst mun
lcæra árásina til rannsóknar-
lögreglunnar. Fékk lögreglan
handsamað árásarmanninn.
í fyrrakvöld var hringt á
icj'gjregluvarðstofuna og beðið
rrm aðstoð vegna amerísks
manns, sem búsettur er vestur
á Melum. Hafði ölvaður maður
xáðizt inn í íbúð hans og látið
•dólgslega. Var maðurinn horf-
ánn á brott þegar lögreglan kom
á vettvang, en hún hafði þó
-upp á honum skömmu síðar.
Á laugardaginn för ölvuð
ikona inn í kjallaraíbúð eina hér
i bænum og stal þar kápu, en
hélt að því búnu út í danskt
kolaskip. Þangað var konan
sótt og kápan tekin af henni.
Einn maður var tekinn um
helgina fyrir ölvun við akstur.
í fyrrinótt voru brotnar rúð-
ur í hurðum tveggja verzlana
hér í bænum með því að kasta
steinum inn um þær. Þetta var
annarsvegar í verzluninni
Portland á Njálsgötu 26, en
hinsvegar i vefnaðarvöruverzl-
una Hafblik á Skólavörðustíg
17. Á hvorugum staðnum hafði
verið farið inn.
„Góðir eiginmenn
sofa heima“.
Á morgun verður frumsýnd-
ur hjá Leikfélagi Reykjavíkur
gamanleikurinn „Góðir eigin-
menn sofa heima“.
Höfundurinn er Englending-
urinn Walter Ellis. Inga Lax-
ness þýddi, en Einar'Pálsson
annast leikstjórn. Alfreð And-
résson fer með aðalhlutverkið,
en auk hans leika þau Einar
Pálsson, Inga Laxness, Gunnar
Bjarnason, Guðjón Einarsson,
Brynjólfur Jóhannesson, Einar
Ingi Sigurðsson, Auður Guð-
mundsdóttir og Gerður Hjör-
leifsdóttir.
Þúsundir fjölskykha í Mysore
prófa„ timabilsketmingima."
lndverjar athuga möguleika
á takíi¥i©i*kuii bam@Igsiae
Þéttbýlið er víða mesta
vandamál, sem þjóðir og ríkis-
stjórnir eiga við að stríða.
Svo er til dæmis í Kína og á
Indlandi, þar sem fólkið er í
xauninni oi’ðið of margt, til þess
að landið geti brauðfætt það
með þeim ræktunaraðferðum,
ssem víðast eru notaðar, enda
•aldagarnlar. Drepsóttir og
hungursneyðir eru í rauninni
það eina, sem hefur einhvern
hemil á fólksfjölguninni.
Takmörkun barneigna mætir
"víða mikilli mótspyrnu, svo sem
í löndum kaþólskra og annars
staðar, þar sem ofsatrúarmenn
eru áhrifamiklir. Þannig þykir
það hin mesta goðgá að nefna
slíkt á Indlandi, þótt horfellir
sé þar „daglegt brauð“, ef svo
má til orða taka. Þrátt fyrir
þetta hyggst Indlandsstjórn þó
athuga, hversu framkvæmanleg
takmörkun barneigna sé, og
hefur leitað til Sameinuðu
þjóðanna, sem fyrir nokkru
hafa sent sænskan hagfræðing,
próf. Sten Wahlund, til þess að
athuga þessi mál.
Wahlund nvjn rannsaka,:
hvort beiting „tímabilakenn-
ingarinnar“ svokölluðu hefur
áhrif á fæðingafjöldann. Kenn-
ing þessi hefur komið af stað
miklum umræðum, en hún
byggist á þeirri tilgátu, að til
sé „örugg“ og „áhættusöm"
tímabil í kynlífi kvenna, svo
að þær sé ekki frjóar nema
nokkurn hluta þess tíma, sem
líður milli þess, sem þær hafa
á klæðum.
Rannsókn Wahlunds mun
verða fyrsta tilraunin til þess
að beita þessari kenningu í
framkvæmd, og verða nokkur
þúsund fjölskyldur í Mysóre-
ríki fengnar til þess að prófa
hana. Þeim munu verða gefn-
ar nákvæmar leiðbeiningar, en
annar fjölskylduhópur, sem
engin fyrirmæli fá í þessu efni,
mun verða hafður til hliðsjón-
ar. Eins og gefur að skilja tekur
það talsverðan tima, að fá úr
því skorið með nokkurri vissu,
hvort kenningin sé óbrigðul
eða því sem næst, og er árang-
urs. ekki að, yænta fyrr en eftir
18 mánuði.
7. flotinn hætti gæziu-
störfum ¥ÍÖ Kína.
N. York (AP). — Eisenliower
flutti þjóðþinginu fyrsta ár-
lega boðskap sinn, í gær.
Langmesta athygli vakti yf-
irlýsing hans um Kína, Formósu
og 7. flota Bandaríkjanna, sem
framvegis yrði ekki látinn ann-
ast gæzlu, sem raunverulega
væri landvörn fyrir kínverska
kommúnista. Yfirlýsing Eisen-
howers vakti mikinn fögnuð
þingmánna republikana, en
þeim kafla ræðu hans, sem
fjallaði um aðstoð við Evrópu,
var tekið með þögn. — Bretar
eru kvíðnir vegna yfirlýsingar
Eisenhówers um Formósu og
gerir Eden grein fyrir ■ málinu
í dag.
Eisénhower héfur boðið René
Mayer forsætisráðherra Frakk-
lands og Bidault utanríkisráð-
herra til Washington síðari
hluta marz. — Rene Mayer
lagði áherzlu á það við Dulles
í gær, að Frökkum væri veittur
aukinn st'uðningúr í Indókína
Slæm er samviskan, þegar Þfóðviljinn þegir.
7 umferðlr búnar í
Skákþingi Norðiendinga.
Skákþing Norðlendinga
stendur yfir um þessar mundir
á Akureyri.
Eftir 6 fyrstu umferðirnar
var Jón Þorsteinsson efstur með
5V2 vinning, en Guðjón M. Sig-
urðsson, er tekur þátt í mótinu
sem gestur, var næstur með 5
vinninga.
Sjöunda umferð fór fram í
fyrradag og urðu úrslit þessi:
Margeir vann Albert, Jón Þ.
vann Steinþór, Guðjón M. vann
Kristinn, Júlíus Bogason vann
Guðjón Eiðsson en biðskák varð
milli Jóns Ingimarssonar og
Haralds Bogasonar.
4 uppreistarmenn
felldir í gær í bardaga
akkaskaga.
voru
Mal-
Ekki treystir Þjóðviljinn sér
enn til þess að gefa skýringu á
því, hvernig hann hyggst greiða
að fullu kostnaðinn við fyrir-
hugaða stækkun blaðsins.
„íslenzka blaðið“ getur ekki
mótmælt því, að stækkunin
kostar hálfa milljón á ári, en
„íslenzkt fé“ á aðeins að fá til
að greiða helming þeirrar fjár-
hæðar. Þetta sjá allir, sem við
blaðaútgáfu fást. En þögnin er
skiljanleg, því að hið „íslenzka
blað“ fær styrk erlendis frá, til
viðbótar þeim styrk, sem feng-
inn er árlega til þess að stand-
ast þann halla, sem þegar er á
rekstri blaðsins.
Væri samvizka Þjóðviljans
eins góð og þeir „íslenzku“ vilja
vera láta, þá stæði víst ekki á
því, að mönnum væri boðið að
skoða reikningshaldið, til þess
að sjá, hversu mikið „íslenzkt
fé“ fæst fyi-ir blaðið. En á slíku
boði er varla von, því að þar
er ekki hreint i pokanum.
Eftirtektarvert er það líka,
að Þjóðviljinn fæst ekki til þess
að minnast á prósentureikning
sinn og Land og Folk, þegar
efnt er til safnana. Dæmi þau,
sem Vísir nefndi í gær um safn-
anirnar til Land og Folk, em
af því tagi, að hinu „íslenzka
blaði“ mun þykja heppilegast
að „þegja þunnu hljóði“ um
þau.
En þegar Þjóðviljinn þegir,
þá er eitthvað bogið við sam-
vizkuna!
Nýjasta lýðveldið
— á 2000 eyjum.
Ibúar Maldive-eyja, sem eru
suðvestur af suðurodda Ind-
lands, stofnuðu lýðveldi um
áramótin.
Soldánar hafa setið þar á
veldisstóli í 836 ár, og var sá,
sem hefði orðið soldán, kjörinn
fyrsti forseti hins unga lýð-
veldis. Eyjarnar eru 2000 að
tölu og eru næstum 750 km.
frá hinni nyrztu til syðstu.
Eyjaskeggar er.u rúmlega 82
þúsund.
Aldrei fleiri um-
sóknir um náms-
styrki en nú.
Á yfirstandandi ári sækja
138 nemendur inn framhalds-
styrk eða lán af fé því er Al-
'þingi veitir árlega íslenzkum
námsmönnum erlendis.
Auk þeirra 138 er sækja um
framhaldsstyrk eru 93 sem eru
að hefja nám á erlendri grund,
eða hafa ekki hlotið námsstyrk
eða námslán áður.
Eru þetta fleiri umsóknir, en
nokkuru sinni fyrr.
Menntamálaráð úthlutar
styrkjum þessum og lánum.
Verilag á verkuðum saltfiski
helzt vonandi óbreytt.
Ástæða til að ótiast lægra vei'ð á óverkuðum.
Strandhögg í
Indo-Kína.
Hanoi (AP). — Frakkar settu
nýlega lið á land í hafnarbæ
nokkrum í Indó-kina um 250
mílur norðaustur af Saigon, en
kommúnistar höfðu bje þennan
á sínu valdi.
í skjóli skothríðar frá her-
skipum og með vernd flugvéla
var lið sett á land á tveimur
stöðum og sótt allangt fram.
Var liðið nokkrar klukku-
stundir í landi. Tilgangurinn
var að eyðileggja birgðir upp-
reistarmanna af vopnum og
öðru. Gekk innrásarleiðangur
þessi í öllu samkvæmt áætlun.
Þungir skatta;r
á Bretum.
Á sl. ári höfðu 38 manns í
Bretlandi 100,000 pund í tekjiur
eða meira — en fyrir fjórum
'árum höfðu 56 menn svo háar
tekjur.
Þar að auki hafa 173 menn
tekjur, sem eru milli 5000 og
100,000 sterlingspund á ári.
Fyrir' fjórum áxum voru 246
menn í þessum tekjuflokki. En
þegar búið er að taka alla skatta
af þessum mönnum hafa aðeins
60 þeirra 6000 punda árstekjur.
Vísir hefur spurt Kristján
Einarsson, frkvstj. S.Í.F., um
ástand og liorfur varðandi sölu
á saltfiski og verðlag.
Kvað hann svo að orði, að
vonir stæðu til að verðlag á
verkuðum saltfiski heldist ó-
breytt, en nokkur ástæða til
að ótt&st að verð á óverkuðum
saltfiski lækkaði eitthvað.
Kristján kva'ð ástand og
horfur sVipaðar og verið hefoi
í markaðslöndunum, nema á
Ítalíu. — Þar væru fyrir hendi
óvanalega miklar saltfiskbirgð-
ir' miðað við árstímann, svo
sem fyrr hefur verið getið'.
Katla er nú að taka saltfisk
á ýmsum höfnum. Hún fer
hringinn, er búin að vera á
Austfjöröum, og er nú á Akur-
eyri. Tekur hún 16—1700 lest-
ir af verkuðum saltfiski á ýms-
um höfnum og flytur til Grikk-
lands og Ítalíu.
Væntanlegt er hingað fyrri
hluta vikunnar danskt skip,
sem á að flytja 1500 lestir af
verkuðum fiski til Spánar.
Eins og áður hefur verið get-
ið var sett met í saltfiskfram-
leiðslu íslendinga árið sem leið
(yfir 63 þúsund lestir) á tím-
anum frá upphafi síðari heims-
styrjaldar. Gera jná ráð fyrir
mjög mikilli saltfiskframleiðslu
í ár, ef sæmilega aflast.
SymfóníuWjóm-
leikar á morgun.
í kvöld efnir Symfóníuliljóm-
sveitin til hljómleika í Þjó'ð-
leikhúsinu og hefjast þeir kl.
8.30.
Á efnisskránni eru Symfónía
í c-dúr, svokölluð Linzarsym-
fónía eftir Mozart, Örlagaljóð'
eftir Brahms, sem flutt verður
með aðstoð Samkórs Reykja-
víkur, Börn í leik, svíta eftir
Bizet og loks Nótt á Nomastóli,
fantasía eftir Mussorgsky.
Stjórnandi hljómsveitarinnar
er að þessu sinni Abraham Ott-
ósson.