Vísir - 11.03.1953, Síða 1
43. árg.
Miðvikudaginn 11. marz 1953.
58. tbU
öænskur dægurlagasongvarx
syngur hér á vegum SIBS.
Snoddas kemur hingað n. k. sunnuda£
og syngur í Austurbæjarbíó.
Síesðra þt'tr droUningtma á iietdinum?
ngiendiitgar ætla að klifa Everest
i siiasta lagl á krýningardaginn.
Leiðangurinn allur kominn til Nepals
og farinn að rótum fjallsins.
AiÉa tjaldbúðír útbúnav í lilíðunum.
Einkaskeyti frá AP. — London í morgun.
Þótt ekkert hafi verið látið uppi um það, ef illa skyldi til
takast, er það álit manna, að brczki fjallagönguleiðangurinny
sem œtlar að klífa Mount Everest í vor, ætli sér að reyna að
komast upp á tindinn í síðasta lagi á krýningardag Elisabetar
drottningar.
Væntanlegur er hingað n.k.
sunnudag frægasti dægurlaga-
söngvari Svía, Snoddas, sem
á einu kvöldi varð frægur um
alla Svíbjóð, og segja sumir á
einu lagi, er feann söng í sænska
útvarpið í Stokkhólmi.
Snoddas, eða Göste Nord-
gren, eins og hann heitir réttu
nafni, er 25 ára gamali Svíi,
sem söng fyrst opinberlega í
útvarpið í Stokkhólmi fyrir lið-
lega ári. En á þessu eina kvöidi
varð hann strax landsfrægur,
en hann söng þá dægurlagið
„Flottar Kárlek“, sem siðan er
raulað af ungum sem gömlum í
Svíþjóð.
Það var blaðamaður Thorsten
Adenby, sem fyrstur kynnti
Snoddas fyrir höfuðstaðarbú-
um, en hann heyrði fyrst til
hahs í bænum Haderanda í N.-
Svíþjóð, og fékk hann með sér
til Stokkhólms til að syngja í
útvarpið þar.
Hingað kemur Snoddas á
vegum S.Í.B.S. og mun halda
hér fjórar söngskemmtanir, en
með honum verður kunnur
sænskur harmonikuleikari John
Formell og auk þess Thorsten
Adenbý, blaðamaður. Syngur
Snoddas í Austurbæjarbíó í öll
skiptin, en vegna þess að hann
hefur ráðið sig annars staðar á
eftir, getur hann aðeins dvalið
hér frá sunnudegi fram á
þriðjudag.
Saga Snoddas er mjög merki-
leg, því fyrir rúmu ári var hann
óþekktur fisksali í Norður-
Svíþjóð, og það var hrein til-
viljun sem réði því, að blaða-
maðurinn Adenby var þar á
ferð og heyrði til hans. En síðar.
hafa vinsældir þessa unga Svía
vaxið með degi hverjum.
Það mætti nefna sem dæmi
um vinsældir Snoddas, að á
einu ári hafa plötur þær, sem
hann hefur sungið inn á selzt
• •
Oryggismálin
og varnirnar.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag-
anna í Keykjavík heldur í kvöld
kl. 8,30 fund í Sjálfstæðishús-
inu. !
Umræðuefni verður öryggis-
málin og varnir landsins. Frum-
mælandi verður Bjarni Bene-
diktsson utanríkisráðherra.
Mun hann þar m. a. gera að
umtalsefni þau blaðaskrif, sem
orðið hafa um stofnun innlends
hers.
Þess er að vænta, að fulltrú-
ar mælti vel og stundvíslega,
enda er mikil nauðsyn á því að
ræða þessi mál í hópi trúnaðar-
manna Sjálfstæðisflokksins.
í 500 þúsund eintökum, en
tekjur hans af þeim verið 24
þús. krónur.
Þegar S.Í.B.S fór þess á leit
við Snoddas, að hann kæmi
hingað, tók hann málaleituninni
vel og bauðst til þess áð svngja
á vegum sambandsins án end-
urgjalds.
Árás á flugvél
barilega mótmæll
Var skolin uigur
yfir I^rzkalandi.
Einkaskeyti frá AP. —
Dulles utanríkisráðherra
hefur falið sendiherranum í
Prag að mótmæla eíns kröftug-
lega og frekast er unnt árás-
inni á bandarísku Thunderjet-
flugvélina í gær.
Voru tvær bandarískar
Thunderjet-flugvélar á venju-
legu eftirlitsflugi innan landa-
mæranna, þegar tvær MIG-
flugvélar komu aðvífandi frá
Tekkóslóvakíu. Skotið var við-
vörunarskoti, en MIG-flugvél-
amar svöruðú skothríðinni,
með þeim árangri, að önnur
Thunderjet-flugvélin hrapaði
til jarðar, en flugmaðurinn
bjargaðist í fallhlíf ómeiddur.
Hin Thunderjet-flugvélin varð
ekki fyrir árás og lenti heilu
og höldnu. Þetta gerðist í
grennd við Regensburg um 23
kílómetra vestan tékknesku
landamæranna.
Á árinu sem leið voru 19641
farþegi fluttir milli íslands og
útlanda, og er það hæsta far-
þegatala í millilandaferðum frá
því 1949.
Til úllanda fóru héðan 9875
farþegar, sem er um 200 far-
þegum fleira en árið áður, en
hingað til lands komu aftur á
móti 9766 manns, sem er um
900 farþegum fleira en árið
1951.
Meira en helmingur þessa far-
þegafjölda á s.l. ári voru ís-
lendingar, eða 10105 talsins, en
útlendingar voru 9536.
Með skipum ferðuðust 11257
farþegar en 8384 með ílugvél-
um. Sú var þó tíðin fyrstu ár-
in eftir stríðið að mikill meiri
hluti allra farþegaflutninga fór
fram á flugvélum. En til þess
lágu ýmsar ástæður, fyrst og
fremst ónógur og slæmur skipa
Háskáiahappdræt&iði:
25 þús. kr. féílu
á ur. 7864.
I gær var dregið í 3. fl.
Happdrætíis Háskólans.
Að þessu sinni voru vinning-
ar. alls 600, og tveir aukavinn-
ingar, samtals 272.400 krónur.
Hæsti vinningurinn, 25 þús.
kr., féll á nr. 7864, fjórðungs-
miða, selda á ísafirði, Sel-
fossi, Hofsósi og hjá Palínu Ár-
mann. 10 þús. krónur féllu á
nr. 1745, fjórðungsmiðar, aila
hjá P. Ármann. 5 þús. krónur
féllu á nr. 24.262, einnig fjórð-
ungsmiða, tvo á Kópaskeri, og
tvo hjá Pálínu Ármaim.
Skipi „báf-volg" af
geíslðverkttnimi.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Þrjú skipa þeirra, er notuð
voru við kjarnorkutilraun Breta
við Monte Bello-ey, eru enn
hættuleg vegna geislaverkana.
Þess er þó getið, að geisla-
verkana hafi ekki orðið vart
í þeim fyrr en þau voru dregin
um sjó, þar sem þau „smituð-
usí“ eftir sprenginguna. Segir
flotamálaráðuneytið, að þau sé
„hálf-volg“, en úr því verður
bætt í þurrkvíum með sérstök-
um ráðstöfunum.
kostur, en tiltölulega góður
flugvélakostur, hræðsla við
tundurdufl og svo loks að pen-
ingageta var þá almennt meiri
hjá fólki. En eins og greina má
af ofannefndum tölum ferðast
nú nær 3 af hverjum 5 farþeg-
um með skipum.
Árið 1949 var metár eftir
stríð í farþegaflutningum milli
íslands og útlanda og ferðuðust
þá 23294 manns milli landa.
Jodl sýk'naður.
Miinchen (AP). — Þýzkur
elómstóll hefur sýknað Alfreð
Jodl hershöfðingja af að hafa
verið nazisti.
Jodl var tekinn af lifi í Núrn-
berg árið 1946 ásamt foringjum
nazista. Dómstóllinn ákvað
einnig , að eigur hans skyldi
ekki gerðar upptækar.
Nú líður enginn dagur svo,
að ekki segi fleiri eða færri
ensk blöð frá athöfnum fjall-
göngugarpanna, en þeir eru all-
ir komnir til Nepals, dvergrík-
isins í hlíðum Himalaja-fjalla,
sem „á“ eina hlið Everest-tinds
og hefur það því í valdi sínu,
hverjir og hversu margir menn
reyni að klífa fjallið á ári
hverju.
Sumir fjallgöngumannanna
eru komnir til Katmandu, höf-
uðborgar Nepals, en aðrir hafa
farið til Bhatgon, en þaðan er
240 km. leið að rótum Everest-
fjalls. Hafurtask leiðangursins
— 4,5 smálestir — er komið
þangað, og í gær fór fyrsti hóp-
ur 300 buðrarmanna af stað á-
leiðis til fjallsrótanna.
Þaulvanir
fjallamenn.
í leiðangrinum eru 13 Eng-
lendingar — alvanir „Alpinist-
ar“ eða fjallamenn — og meðal
burðarmanna þeirra er maður
að nafni Tensing, sem var með
Svissurum í fyrra. Hann er, eins
og allir burðarmennirnir, af
Sherpa-kynþættinum, er allir
Everest-leiðangrar treysta á.
Hefur verið ákveðið, að hann
eigi að vera í þeim fámenna
hópi, sem gerir Ioka-atlöguna
að fjallinu, því að hann var
annar tveggja í síðasta leið-
angri, sem áttu aðeins um 800
fet ófarin á tindinn á sl. hausti,
er illviðri neyddu Svisslendinga
til undanhalds.
Læra a£
reynslu annara.
Svisslendingar þeir, er klifu
fjallið síðast, telja að leiðang-
urinn enski sé a. m. k. að einu
leyti verr búinn en þeir. Álíta
Svisslendingar, að súrefnistæk-
in ensku sé of þung, en tæki
þeirra sjálfra reyndust einnig
of þung, þótt þau væru hin létt-
ustu, sem notuð höfðu verið.
Foringinn
bjartsýnn.
Fyrirliði leiðangursins brezka,
John Hunt oíursti, er bjartsýnn
um árangurinn. Hann bendir á,
að leiðangurinn geti hagnýtt sér
reynslu allra fyrri leiðangra,
því að í þessu efni er ekkert„
sem heitir „hernaðarleyndar-
mál“ — en er hann hefur rætfc
um þetta við blaðamenn, hefur
hann jafnan slegið varnagla og
sagt: „Veðrið er það eina, sem
getur brugðizt að öllu leyti eins
og jafnan áður.“
Atlaga í maí.
Síðasta þorpið, sem leiðang-
urinn kemur við í, heitir Nam-
chee Bazaar. Handan þess byrja
erfiðleikarnir, og í hlíðum fjalls
ins verður komið fyrir átta
tjaldbúðum með hverskyns út-
búnaði, en þær síðustu verða
í 27—28,000 feta hæð. Þaðan.
verður atlagan gerð, og hún.
mun hefjast í maí — eða fyrstu
dagana í júní, ef veður leyfir„
ítalir taldir
eiga olíuna.
Einkaskeyti frá AP.
Róm í morgun.
Dómstóll í Genúa hefur
hafnað kröfu Brezk-iranska
olíufélagsins um löghald á
olíufarmi skipsins Miriella,
sem flutti 5000 lestir af olíu
frá Abadan.
Löghald var lagt á farm-
inn, meðan dómstóllinn at-
hugaði kröfu félagsins, en
farmurinn verður nú leystur
úr lögbanni, þar sem dóm-
stóllinn kontst að þeirri
niðurstöðu, að olían hefði j
verið löglega flutt frá Persíu. |
Lík rekur eystra.
í gærmorgun rak lík eina
skipverjans á v.b. Guðrúnu„
sem fórst undan Landeyjar-
sandi fyrir skemmstu.
Þrettán ára unglingspiltur„
sem hafði gengið á fjörur aust-
ur undir Dyrhólaey, fann í gær—
morgun sjórekið lík. Gerði hannt
þegar aðvart, og reyndist það
vera af Guðna Rósmundssyni„.
stýrimanni á vélbátnum.
Amerísk þingnefnd hefur lagt
til, að Hawaii verði 49. fylkiðj;.
Nær 20.000 manns milli
íslands og útlanda sl. ár.
fflæsta farþegatala Irá 1949.