Vísir - 21.04.1953, Blaðsíða 1
43. árg.
Þri&judaginn 21. apríl 1953.
89. tbL
Stórvirkar ýtur að verki við lokun Bessastaðatjarnar-óss
>*
Os Bessastaðatjarnar
fylltur upp í gærkveldi.
Unnfð síeituEaust frá kl. 4 til miðnættls.
Ósi Bessastaðatjarnar var
lokað í gærkvöldi að viðstödd-
um forseta íslands, herra Ás-
geiri Ásgeirssyni, Emil Jóns-
syni vitamálastjóra o. fl. Var
unnið sleitulaust að lokun óss-
ins með stórvirkum tækjum frá
kl. 4 síðdegis til miðnættis.
Fengnar voru tvær stórar
ýtur til viðbótar þeim, sem fyr-
ir voru, og alls 9 í notkun í
gær, en ein þeirra bilaði, en
það kom þó ekki að sök, því að
önnur reyndist nothæf til þess
að vinna verk hennar, að ryðja
grjóti í ósinn. Viðbótarýturn-
ar voru frá vegagerð ríkisins,
en hinar, sem í notkun hafa
verið, munu vera frá Ræktun-
ársambandi Kjalarnesþings.
Á flóðinu í gærkvöldi var
uppfyllingin í ósnum einum
metra fyrir ofan yfirborð sjáv-
ar, en nú er smástraumsflóð og
verður nú haldið áfram að
hækka uppfyllínguna og treysta
svo að hún verði nægilega hátt
yfir stórstraumsflóði.
í grein í Vísi í gær var sagt
frá þeim óvanalegu og merku
Friðrik Ólafsson tryggði sér
í gærkvöldi í annað sinn Is-
landsmeistaratitilinn á Skák-
þíngi Islendinga, og er hann
þó aðeins 18 ára að aldri.
Gerði Friðrik í gærkveldi
jafnteflí við Inga R. Jóhanns-
son, er tryggði honum öruggan
sigur. Hlaut hann 6% vinning
af 9 mögulegum, vann 5 skákir,
gerði 3 jafntefli en tapaði sínni
skák (fyrir Sveini Kristíns-
syni).
Öðru.m skákum í landsliðs-
flokki varð ekki lokið í gær-
kveldi nema skák þeirra Egg-
erts Gilf'er og Guðmunaar Ag.
er varð jafntefli.
í meistaraflokki vann Jón
Víglundsson Ágúst Ingimund-
arson, Þórður Jörundsson vann
Anton Sigurðsson og Margeir
Sigurjónsson vann Þórð Þórð-
arson. Hinar þrj'ár skákirnar
fóru í bið.
• í k-völd kl. 8 verður 10. um-
ferð og sú næst síðasta i meist-
araflokki tefld, svo og biðskák-
ir í öðrum flokkum.
framkvæmdum, sem hér er um
að ræða. Er það ánægjulegt
hve vel þetta hefir gengið og
óskandi, að takast megi að
treysta svo uppfyllinguna, að
tilganginum með verkinu verði
að fullu náð.
í greininni í gær féll _það
niður, að yfirumsjón verksins
hefir vitamálaskrifstofan með
höndum.
Snjóbílnum geng-
ur nu
Norðurfcrðir geta
liafizt bráðflega.
Horfur eru þær, að norður-
ferðirnar komist í gott horf þá
og þegar.
Fært er orðið venjulegum
bifreiðum milli Hrútafjarðarár
og Sauðárkróks, og snjór á
Holtavörðuheiði hefur sjatnað
mikið.
Er talið, að það sé ekki nema
eins dags verk að moka heið-
ina. Blaðið fékk þessar upp-
lýsingar í morgun hjá Norður-
leiðum. Áætlunarbíll með póst
og farþega leggur af stað héðan
í fyrramálið og verður farið í
snjóbíl yfir heiðina.
Sænski snjóbíllinn, sem var
á Blönduósi, er seinast var frá
honum sagt hér í blaðinu, kom
til Akureyrar á miðvikudag. —
Höfðu þeir Ingimar Ingimars-
son og Garðar Þormar frá
Norðurleiðum, sem voru með
hann, gert þar við það, sem
lagfæra þurfti, en þetta var
fyrsta ferð snjóbílsins (og því
reynsluför) og eftir að frá
Blönduósi fór gekk allt ágæt-
lega. Meðan snjóbíllinn var á
Akureyri fór hann fyrir Akur-
eyringa til Dalvíkur m.a. —
Flórida-hraðlest
hleypur af sporinu.
New Yörk (AP). — MikiS
járnbrautarslys varð í morg-
un nálægt mörkum Suður-
Karoíinu, Bandaríkjunum. Á
annað hundað manns særð-
ust, en allmargir biðu bana.
Nákvæmar fregnir hafa
ekki enn borizt um mann-
tjón, né hver var orsök slyss-
ins, en kunnugt er, að hrað-
lest, sem er í förum milli
Floridaskaga og New York,
Iiljóp af sporinu.
Hópur æðarhigla
flygur á skip.
Aíburður, sem telja verður
næsta fátíðan, kom fyrir ó
strandferðaskipinu Ilerðubreið
fyrir helgina.
Skipið, sem var á leið til
Reykjavíkur að austan, var að
sigla inn Hornafjarðarós. Voru
notaðir ljóskastarar, því að
þetta var um nótt (aðfaranótt
föstudags sl.) til þess að glöggva
sig betur á innsiglingunni.
Vildi þá svo til, að fuglahóp-
ur flaug á skipið, blindaður af
Ijóskösturunum. Flugu sumir á
siglutré, reiða eða stjórnpall
og stýrishús. Drápust margir
fuglanna við þetta, eða væng-
brotnuðu. Þegar að var gáð
kom í'ljós, að þetta voru æðar-
fuglar, og þótti skipverjum
þetta illt, að fuglinn skyldi far-
ast á þenna hátt.
Vísir hefir frásögn sína eftir
áreiðanlegri heimild, og var og
fullyrt, að þetta væri sjaldgæft
á strandferðaskipum.
Ekki veit Vísir, hve margir
æðarfuglarnir voru, en þetta
mun þó hafa verið stór hópur.
Elísabett II.
27 ára s dag.
London (AP). — Elisabet II.
Bretadroítning er 27 ára í dag.
í íilefni af afmæli hennar eru
fánar dregnir að hún um land
allt, skotið af fallbyssum o. s.
frv.
Tryggt vopnahié í Kóreu
mikiivægast sem stendur.
Churchill ræðir heimsmálin í neðri
deild brezka þingsins.
Einkaskeyti frá AP. —
Churchill ræddi nokkuð horf-
ur í alheimsmálum í neðri mál-
stofu brezka þingsins, en mun
að líkindum gera þeim málum
meiri skil við umræðu um ut-
anríkismálin í málstofunni um
miðbik næstu viku.
Churchill kvaðst ekki líta á
ræðu Eisenhowers á dögunum
sem ögrun og hann kvaðst vona,
að sá velvildarhugur, sem nú
3ja ára dreng^
ur bföur baua
s bífslysi.
í morgun, Iaust eftir kl.
10, varð banaslys á Skafta-
hlíð, rétt ofan við gatnamót
Lönguhlíðar.
Þar varð 3ja ára drengur,
Bjarni Ársælsson, sonur
Ársæls Júlíussonar bókara í
Lönguhlíð 9 fyrir olíubíl og
beið bana.
Um nánari tildrög slyssins
er blaðinu ekki kunnugt.
HohavöróuheRM
rudd.
I morgun var byrjað að ryðja
snjó af veginum yfir Holta-
vörðuheiði.
Líkur eru fyrir, að verkið
sækist greiðlega. Er kominn
mari í snjórnn, sem sjatnar óð-
um, en í byggð hefur snjórinn
eyðst örara, þar sem hlýindi
eru þar mun meiri en uppi á
heiðinni, og er orðið fært fyrir
bíla milli Grænumýrartungu í
Hrútafirði og Sauðárkróks.
Klakalag í vegum er mjög
þunnt og má búast við, að vegir
vaðist upp víða. Þar sem um-
ferð er mikil meðan vatn hefur
ekki sigið niður að ráði. Áætl-
unarbíll Norðurleiða fór norður
í morgun með um 10 farþega
og póst.
kæmi víða fram, leiddi til þess,
að helztu menn stórveldanna
ræddust við. — Churchill kvað'
engan geta enn gert sér greiii.
fyrir breyttu viðhorfi eftir and-
lát Stalins. Hann sagðist ekki
búast við, að Rússar svöruða
Eisenhower strax.
Ekki slaka á
vörnunum.
Nú er frekara þörf þolinmæði
en að hraða málunum, sagði
Churchill, en ef heiðarlegt sam-
komulag næðist um vopnahlé í.
Kóreu opnaðist. leið til þess að
koma á tryggum friði. Ekki
kvað Churchill fært að draga
úr varnarsamtökunum enn sena.
komið er.
Fyrirspyr j andinn, Herbert
Morrison fyrrverandi utanrík-
isráðherra, þakkaði svörin fyr-
ir hönd jafnaðarmanna, og lét
sér þau vel líka. Sagði hann,
að vonandi kæmi jafnmikil vel-
vild og skilningur fram hjá öðr-
um stjórnmálaleiðtogum sena
Churchill.
Umræðunni um fjárlögin lauk:
í gærkveldi, eftir nokkrar orða-
hnippingar milli Butlers og
Bevans. — Butler lýsti yfir því,
fyrir hönd stjórnarinnar, að hím.
aðhylltist skoðanir þær um.
efnahagsmál, sem fram hefðu
komið í ræðu Eisenhowers for-
seta.
Dvalarheimili sjómanna
rís af grunni í sumar.
FgárfestÍMgarleyffí fengið, iitfeoðs-
frcstnr á eiada í mestu vikn.
Tivolí tekur bráð-
lega til starfa.
Eigendur Tívolí hafa látið £
það skína að til mála komi að
veita einstaklingum eða félög-
um heimild til þess að hafa
eigin skemmtitæki í garðinúm
í sumar.
Enn fremur hafa eigendurnir
ráðgert að leigja út ýms
skemmtitæki Tívolís, svo sem
rakettubraut, skotbakka, spegla
sal, draugahús, flugvélahring-
ekju og barnahringekju.
Þá hefur verið auglýst eftir
tilboðum frá þéim er vilja ann-
ast sælgætissölu, rjómaíssölu og
pylsusölu í sumar.
Iðuuðurlíauk.i.io2
teltur til starfa
/ » / /
i juni.
Samþykkt hefur veríð, aS
Iðnaðarbankinn hefji starfsemi
sína 25. júní n. k.
Eins og áður hefur verið
greint frá, verður starfsemi
bankans í húsnæði Nýja Bíós
við Lækjargötu.
Fjárfestíngarleyfi er fyrir1
nokkru fengið til þess að hefj-
ast handa um að reisa dvalar-
heímili aldraðra sjómanna í j
Laugarási, og má gera ráð fyr-
ir. að verkið hefjist af krafti
nú um mánaðamótin.
Útboðsfrestur er útrunninn
þriðjudag 28. þ. m., en vitað er,
að 17 aðilar hafa sótt skilriki
og lagt fram skilatryggingu, en
í útboðinu er gert ráð fyrir, að
framkvæmdir hefjist strax.
Það, seín gert verður, þegar
ákveðið hefir verið, hver skuli
reisa þessi mannvirki, er að
steyptur verður og gerður fok-
heldur meginhluti dvalarheim-
ilisins, eða þrjú sambyggð hús,
en ráðgert er, að því verki verði
lokið íyrir haustið.
Undanfarið hefir verið unn-
ið af kappi við að sprengja
fyrir skólpleiðslum, en það er
erfitt verk og seinunnið, en þó
er því nú langt komið. Lokið
er .vinnu við sjálfan grunninn,
og er því nú ekkert að vanbún-
aði til þess að byrja að reisa
þetta mikla mannvirki, og láta
þar með óskadraum gamalla
sjómanna rætast.
tonn á 3 dögum.
Y.b. Hvítá, sem stundar
netaveiðar, og hefur lagt
netin fyrir austan Vest-
mannaeyjar, á heimamiðum
Vestmannaeyinga, hefur afl-
að fádæma vel í tveim síð-
ustu veiðiferðum. Hvítá koin
í nótt af veiðum með 70
tonn af ágætum fiski, sem
háturinn hafði fengið á 3
dögurn við Eyjar. f veiðiferð-
inni á undan var aflinn 68
lestir eftir 5 daga útivist.
Hefur afli mikið glæðst við
Vestmannaeyjar og neta-
bátar yfirleitt aflað mjög
vel.