Vísir - 07.05.1953, Blaðsíða 1

Vísir - 07.05.1953, Blaðsíða 1
43. árg. Fimmtudaginn 7. maí 1953. 101. tbi. Tilhæfuhys og furðuleg forsí5u-„frétí" áiþ.b „Alþýublaðið“ birtir í morgun á forsíðu fjögurra dálka „frétt“ um olíuverð, sem heita má, að sé uppspuni og þvæti- ingur frá rótum. En það, sem vérra er við slíkan frétta- burð er, að ritstjórn blaðsins hefði með tveim símtölum til olíufélaganna getað fengið upplýst hið sanna í málinu, og þannig sloppið við að gera sig að fífli með svo ósæmilegum skrifum og illkvittnilegum. Þar er t. d. fjargviðrað um, að olíufélögin hér selji benzín og olíur á óbreyttu verði, meðan stórfelldar iæklt- anir eiga sér stað á heimsmarkaðinum. Hefði ritstjórn Alþýðublaðsins kært sig um, hefði verið innan handar að fá það staðfest, að fyrir fáum dögum, eða hinn 1. maí, lækkaði olía til togara um 63 krónur hver smálest, eða ur kr. 425 í kr. 362. Þetta hefði sem sagt kostað eitt símtal. Um hinar „stórfelldu lækkanir“ á heimsmarkaðinum er þetta að segja í stuttu máli: Hin síðasta lækkun, sem orðið hefur á benzíni, var 11. marz 1953, en sú lækkun nemur tæpl. 1 eyri á lítri í útsölu hér heima. Gasolía (til húsa og vélbáta) hækkaði hinn 31. marz 1953 um tæpl. Vi eyri á lítra, en þegar hefur verið vikið að olíunni til togara. Geta má þess verðlagseftirlitið hefur nú með höndum útreikninga á gasolíu og benzíni, og má vænta niðurstöðu þeirra innan fárra daga. Hefði blaðinu verið sæmra að bíða þeirra útreikninga. Geta má þess að lokum, að eftir verkfallið í vetur lækkaði hráolíuverð og benzín hér um 4 aura pr, lítra. án nokkurra heimsmarkaðsbreytinga. Ný stefnubreyting i Panmunjom. Fangagærla í Kóreu samfjykkt af kommúnistum. Þorkell Magnússon er sýnilega æfðari og reyndari hnefaleika- maður en Friðrik Clausen, sem liór sést hvíla sig eftir harða hríð. (Ljósm.: E. Vignir). Bretimi gengur mfsjafnlega að selja útleudíngum flugvélar. Japanir ætla að kaupa risaflugvélar. Einkaskeyti frá AP. — Tokyo í morgun. Á fundinum í Panmunjom í morgun féllust kommúnistar ó- vænt- á þá tillögu Samcinuðu þjóðanna, að hlutlausri þjóð yrði falin gæzla þeirra striðs- fanga, sem ekki vilia hverfa lieim eftir að vopnahlé hefur verið gert, og fari gæzlan fram í Kóreu. Hafa. kommúnistar þannig fallið frá því, að fangarnir verði fluttir til hlutlauss lands til gæzlu. Er hér um svo mikla tilslökun að ræða, að segja má, að viðhorfið hafi breyzt aftur mjög til batnaðar. Þó eru fram komnar tillögur frá baðum að- ilum, sem vafasamt ei hversu gengur að ná samkomulagi um, m. a. frá kommúnistum um skipun hlutlausrar nefndar, sem hafi eftirlit með heimsendingu fanga, og eiga fulltrúa frá Póllandi og Tékkóslóvakíu að eiga þar sæti. Mikilvægar tillögur. En hvað sem um þessar tii- VÍSIR. Á laugardag kemur Vísir út fyrir hádegi, og verður sá háttur á útkomu blaðsins á laugardögum í sumar, eins og verið hefur. Athygli manna skal vakin á því, að efni, sem birtast á í laugardagsblaðinu, aug- lýsingar, greinar og annað, verður að hafa borizt fyrir kl. 7 á föstudagskvöld. lögur verður telur Harrison, aðalsamningamaður S. þj. þær svo mikilvægar, að ríkiSstjórn- ir beggja styrjaldaraðila verði um þær að fjalla, áður en end- anlega ákvarðanir verða teknar á fundum í Panmunjom. Hefur fundum nú verið frest- að til laugardags, meðan hlut- aðeigandi ríkisstjórnir hafa til- lögurnar til athugunar. Mikifl aðséfcn lijá Engílberts. Málverkasýning Jóns Engil- berts - Listamannaskálanum vekur mikla athygli og hefnr verið vel sótt. í gærkveldi höfðu 700 manns komið að skoða myndir Jóns, og er það ágæt aðsókn, þar sem sýningin hefur aðeins verið op- in í hálfan annan dag. Níu myndir hafa þegar selzt, en sýn ingin er opin kl. 1—10 e. h. Tíðarfar er nú hagstætt um land allt, en fyrstu daga. sum- arsins var lítt sumarlegt víSa. Mjög hefur hlýnað í veðri undangengin dægur og þiðnar snjór óðum, en hann er enn mjög mikill víða, jafnvel sums staðar í byggð. Sauðburður er aðeins byrjaður á stöku stað, en byrjar ekki almennt fyrr en eftir miðbik mánaðarins. Snjór er sagður mikill enn í Slvs í Grundarfiii'ði: Maður brennist við amoníaksprengingu, í morgun brenndist maður af fljótandi annnoniaki í hrað- frysíihúsinu í Grundarfirði, á andliti og höndum. Maður þessi vann þar að við- gerðum og hefur blaðið heyrt að sprenging hafi orðið í amm- oniakinu. Um hve alvarleg brunasár er að ræða, verður ekki sagt að svo stöddu, þar sem læknir er ekki á staðnum. Voru þegar gerðaí ráðstafanir til þess að fá sj úkraflugvglina til að sækja manninn, en þar sem flugvélin getur ekki lent í Grundarfirði, nema meðan lág sjávað er, fer hún þangað ekki fyrr en síðdegis. Kemur hún væntanlega hingað með mann- inn kl. 7 í kvöld. ........- Vann með 141 km. meðalhraða. f lok apríl var háður „Mille miglia“-kappaksturinn á Ítalíu, einn hættulegasti í heimi. Mille migliá þýðir 1000 míl- ur, en vegalengdin er 932 mílur eða um 1500 km. Sigurvegari varð sonur milljónamæringsins Marzottos, sem ók vegarlengd- ina með 141 km. meðalhraða, og er það talsverður hraði, er þess er gætt, að ekið er um þjóðvegi en ekki á kappaksturs- braut: Hraði Marzottos var nýtt met. —-..« Snrásöluverð : Verð lækkaði á 11 teg. í apríl. Smásöluverð á matvælum og öðrum vörutegundum hefur tekið litlum breytingum und- angengnar vikur. Um það bil og blaðið var að verða fullbúið til prentunar barst því frétt frá skrifstofu verðgæzlustjóra um hæsta og lægsta smásöluverð í nokkrum smásöluverzlunum 5. þ. m. Samkvæmt yfirlitinu hefúr verð hækkað á 7 vorutegund- um, en lækkað á 11, en bæði hækkanir og lækkaid: eru ó- verulegar, svo að ség.ia má að verðlag hafi litlum breytingum tekið, sem að ofan greinir. Gilsfirði og Reykhólasveit, og eins á Austurlandi, en í Húna- vatnssýslum og Skagafirði mun orðið snjólaust, nema í upp- sveitum. Víða er allmikill vatns elgur, því að sólbráð er mikil og snjór bráðnar ört. Fjallvegir eru ekki allir færir enn. Unnið mun að mokstri á Öxnadalsheiði, sem vonir eru um að opnist þá og þegar, Svína dalur á leiðinni úr Dölum í Einkaskeyti frá AP. — London í morgun. Þótt erfiðlegar ætli að ganga að selja Comet-vélarnar til ann arra þjóða en vonazt hafði ver- ið til, örvænta Bretar ekki í þeim efnum. Til dæmis hefur fyrir skemmstu verið ákveðið, að A- bandalagsríkin fái brezka þrýsti flugvélar fyrir meira en tvo milljarða króna, og verður þar um tvær gerðir að ræða. — Slökkvtiiðið 2svar á ferðinitl í gær. Slökkviliðið var tvisvar á fcrðinni í gær, en í hvorugt skiptið af miklu tilefni. Kl. 17.24 í gær var tilkynní, að eldur væri í rusli á þaki geymsluskúrs h.f. Hamars við Norðurstíg 5. Var búið að slökkva, er slökkviliðsmenn komu á vettvang, en börn munu hafa verið á ferðinni. Kl. 22.38 í gærkvöldi var til- kynnt um eld í timburhúsinu nr. 65 við Laugaveg. Var eldur í geymslu, sem Aðalsteinn Jó- hannsson meindýraeyðir hefur þar. Var eldurinn fljótlega kæíð ur, án þess að verulegt tjón hlytist af. Gilsfjörð, er enn ófær, og eins fjallvegir norðaustanlands. — Yfirleitt horfir svo, að snjóa muni leysa ört og gróður kom- ast vel af stað fljótlega, svo fremi að ekki komi til óhag- stæðra veðurbreytinga. Sunnanlands snjóaði lítið, eins og allir muna, og eru tún farin að spretta og nál komin í mýrar. Má heita, að kominn sé sauðgróður. Verða það Bandaríkjamenn, sem greiða fyrir flugvélar þess- ar, því að það léttir á fram- leiðslu þeirra heima fyrir. Gashverfillinn. Þá hafa tilraunir með flug- ur, sem búnar eru gashverfli — er snúa loftskrúfunum — gefist svo vel, að Bristol-smiðj- urnar hafa ákveðið að smíða nýja og stærri gerð af Britannia vélinni. Hin nýja gerð á að geta flutt 120 farþega, en sú gerð, sem þegar er í notkun, flytur „aðeins“ 104 manns. Þá verður nýja gerðin búin fjórum hreyfl- um, er framleiða alls 16,600 hestöfl. Fyrstu flugurnar verða afhentar eftir 3—4 ár. Hið nýja flugfélag Japana hefur þegar pantað nokkrar Comet-vélar, en það hefur einn ig hug á að kaupa Britannia- vélar, er verða með stærstu flugvélum heims, þegar hin nýja gerð verður framleidd. — Hafa Japanir mikinn hug á að færa út kvíarnar á sviði flug- mála. BjörgunaraðstaBa spfilist á Dynskógaf jöru. Klausturbræður brugðu sér nýlega austur á Dynskógafjöru til þess að athuga aðstæður í sambandi við járnið, sem þar liggur grafið, og málaferlin mildu hafa staðið um. Virðist þeim aðstaða til björg- unar hafa mjög spillzt síðan frá var horfið í fyrra. Telja þeir fjöruna mjög hafa stytzt, sjálf- sagt um eina 40 metra, en þetta torveldar enn björgun járnsins þegar þar að kemur. Hæstiréttur mun taka málið fyrir í þessum mánuði, líklega þann 18., en að sjálfsögðu verð- ur ekkert gert í björgunarskyni, fyrr en hann hefir fjallað um málið. Snjór bráðnar nú ört úti um land. Tiðarfar er hagstætt, þótt fjallvegir sé víða ófærfr enn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.