Vísir - 01.07.1953, Side 8

Vísir - 01.07.1953, Side 8
Þdr tem gerast kaupendur VÍSIS eftir lt. hver» mánaSar fá blaðiS ókeypis til mánaðamóta. — Sími 1660. V18IE VÍSBR er ódýrasta blaðið og þó það fjöl- breyttasta. — Hriogið í síma 1660 mg gerist áskrifendur. Miðvikudaginn 1. júlí 1953. um næstu helgi. Ur' möi'fjii er nð velja9 ntj marfjt hcegt að sjjtí. Um næstu helgi verður efnt iil eftirtálinna ferða héðan úr bænum: Ferðafélag íslands efnir til þriggja 1 V-> dags ferða um helgina. Lagt verður af stað í þær allar kl. 2 e.h. á laugardag og komið aftur ú sunnnudagskvöld. Ein þessara ferða verður í Landmannalaugar, en þangað efnir félagið til ferða um hverja helgi í sumar. Þeir sem óska geta dvalið þar milli ferða og komið um næstu helgi á eftir. Önnur ferðin verður í Þjórs- árdal og verður gist í tjöldum. Þriðja ferðin er upp á Heklu. Verður ekið á laugardagskvöld austur að Heklurótum, gist þar í tjöldum en gengið á sunnudag á fjallið. Farfuglar fara austur að Hagavatni á laugardag. Á sunnudag verður gengið á Langjökul eða Jarl- hettur eftir atvikum, en komið heim um kvöldið. Þann 11. júlí hefst hálfs- .mánaðar sumarleyfisferð til Norður- og Austurlandsins og um svipað leyti hjólferð um Austurland. Verður farið á skipi til Hornafjarðar, hjólað um Austfirði og Fljótsdalshérað og væntanlega flogið til baka. Orlof og Guðmundur Jónasson efna til fjögurra ferða um helgina. Þær eru: 1. Öræfaferð. Lagt verður af stað kl. 2.00 á laugardaginn og ekið á 1. degi að Kerlingaíjöll- um. Á öðrum degi verður geng- ið á Snækoll og ekið til Hvera- valla, en á 3. degi verður geng- ið í Þjófadal, á Rauðkoll o. fl. Á þriðjudag verður ekið að Hvit- árvatni og gengið á Bláfell og komið heim um kvöldið. 2. Ferð að Hreðavatni. Lagt verður af stað kl. 2.00 á laug- ardag og ekið að Hreðavatni. Síðan verður ekið heim um Uxahryggi á sunnudagskvöld. 3. Ferð í Þórsmörk. Lagt verður af stað kl. 2.00 á laugar- daginn og ekið heimleiðis á sunnudaginn. 4. Ferð í Þjórsárdal. Lagt verður af stáð kl. 2.00 á laugar- dag og ekið að Stöng og Ásólfs- . stöðum. Sunnudaginn verður gengið í Gjána eða inn að Háa- fossi. Síðan ekið heim. Hin fjölbreytta áætlun sun — arsins er nú um það bil að koma út og verður hennar getið ar síðar. nán- Ferðaskrifstofa ríkisins efnir til eftirtalinna ferða: 1. 1 dags ferð: Gullíoss — Geysir — Brúarhlöð kl. 9 ár- degis. Væntanlega komið he.m um Hreppa eða Þingvelli. 2. Eftirmiðdagsferð í Hval- fjörð á laugard. og sunnud., ef hvalur er inni. Á leiðinni komið við á Reykjalundi og nýju Á- burðarverksmiðjunni í Gufu- nesi. 3. Hringferð: Krísuvík — Strandakirkja — Sogsfossar — Þingvéllir. Lagt af stað á sunnud. kl. 13,30. 4. Þórsmörk. (2ja daga fei'ð). Áætlunarferð farin um næstu helgi. Lagt af stað á laugardag Konuna á myndinni kusu blaðámenn í New York nýlega „Miss Ballyhoo11, sem útleggst „ungfrú brauk og braml“. — Heitir hún Irmgard Paul, er 21 árs og fædd í Þýzkalandi. eftir hádegi og komið aftur á sunnudagskvöld. 5. Kirkjubæjarklaustur. (3ja daga ferð). Lagt af stað á laug- ardag kl. 14.00. Á laugardag verður ekið frá Reykjavík — Seljalandsfoss — Skógafoss — Víki — Klaustur. Sunnudagur: Skoðaður Systrastapi og aðrir merkir staðir. Ekið í Fljóts- hverfi. Mánudagur: Kirkju- Framh. á. 7. síðu 14 MIG-vélar skotnar niður. Tokyo (AP). — 14 MIG- flugvélar voru skotnar niður fyrir kommúnistum í gær yfir Norður-Kóreu. Útvarp kommúnista í Pyon- yang sakar Mark Clark um tvískinnungshátt og segir aug- ljóst, að hann hafi vitað, að Syngman hafi ætlað að sleppa föngunum. Íþróttakeppni KR og Keflvíkinga. Síðastliðinn laugardag var liáð hér í bænum stigamót í frjálsum íþróttum á milli Knattspyrnufélags Reykjavík- ur og Keflvíkinga. Mótið er háð í tvennu lagi og fer seinni hlutinn fram í næstu viku. Keppa tveir menn frá hvoru félagi í hverri g'rein og standa leikar eftir fyrri daginn þannig að K.R. hlaut 38 stig, en Keflvíkingar 36 stig. Mótið fór fram á íþróttasvæði K.R. við Kaplaskjólsveg. Árangur í einstökum grein- um varð sem hér segir: 100 m. hlaup vann Ásmundur Bjarna- son K.R. á 11,1 sek. 1500 m. hlaup Svavar Markússon R.R. 4:20,8 mín. Kringlukast Þor- steinn Löve K. 44,98 m. — Sleggjukast Þórður Sig'urðsson K.R. 44,74 m. Langstökk Garð- ar Arason K. 6,45 m. Hástökk Jóhann Benedikfsson K. 1,70 m. og 4X100 m. boðhlaup sveit K.R. á 46,2 sek. 102 hvalir komnir að landi. Alls hafa nú veilfet 102 hval- ir af bátum h.f. Hvals í Hval- firði. Undanfarið hefur dimmviðri frekar hamlað veiðum, en þó hefur aflazt betur en um svipað leyti í fyrra. Megnið af hvai- kjötinu er fryst á Akranesi og verður flutt til Englands. FRIEDRICH KANDLER, foringi á leikvelli, hægri bak- vörður, reyndum landsliðs- maður. HERBERT GROHS, miðframherji, lék á síðustu Ólympíuleikum (Helsingfors 1952). Austurríkismejm keppa við KR. Austurrísku knattspyrnu- mennirnir keppa í kvöld við KR, sem hefur fengið nokkra menn úr öðrum félögum til þess að treysta lið sitt. Að þessu sinni mun Sveinn Helgason, hinn trausti fram- vörður úr Val, leika með KR, en auk hans tveir knattspyrnu- menn af Akranesi, þeir Halldór Sigurbjörnsson og Pétur Ge- orgsson. Á undan þessum leik ætla drengir úr Austurbæ að keppa við jafnaldra sína úr Vesturbæ. Síldarlegf nyrðra. Ekki eru nema tvö skip byrjuð síldveiði frá Siglufirði, en þau hafa bæði orðið vör og telja síldarlegt úti fyir. í fyrrakvöld kom Særún til Siglufjarðar með 142 tunnur síldar, sem hún fékk í hring- nót. Hún fór strax út altur og kom í gær með rúmiega 200 tunnur, sem hún veiddi g'rynn- ra. í gær kom Bjarr.i með 100 tunnur síldar. Óljósar fregnir bárust um að v.b. Ágúst Þórarinsson, sem var að koma að sunnan og var á ieið austur með Norðuiiandi í gær hafi orðið síldar var,. en hann var ekki kominn til hafn- ar í morgun. Síldin, sem landað hefur ver- ið á Siglufirði, veitídist 35—40 sjómílur undan Sauðanesvita. Þar voru í gær þrju finnsk síldveiðiskip og sáu Særúnar- menn að Finnarnir voiu að salta á þilfari. Rauðáta er mjög hikil í síldinni, sem þykir góðsviti. — Fitumagn síldarinnar sem land- að heí'ur verið á Stg.ufirði, hefur verið rannsakaö og reyndist allt upp í 14%.. í morgun hafa engar sildar- fréttir borizt. Eldur kom í morgun upp í húsi Nörregaards við austan- verðu Siglufjörð. Nörregaard býr einn í húsi og var að yíir- gefa það og beið eftir áætlun- arbíl, er hann varð eids var í húsi sínu. Slökkvilið korn á vettvang og kæfði eldinn. Ein- hverjar skemmdir urðu. Fékk ágætan lúduafla. V.b. Orn Arnarson kom til Hafnarfjarðar á laugar- dagskvöld með ágætan lúðu afla, um 10 smálestir. Örn Arnarson, sem er 65 smál. bátur, fékk aflann djúpt út af Reykjanesi. Goðaborg... Framh. af bls. 1 gryfjunum 14. maí s.l. byss- urnar og var lögreglunni strax gert aðvart um fundinn. Fyrri hluta júnímánaðar fékk rannsóknarlögreglan grun á hverir valdir myndu vera að'- innbrotinu og stuldinum, tók piltana fasta og játuðu þeir á sig verknaðinn. Við rannsókn málsins upplýstist einnig um nokkra aðra þjófnaði, sem þeir höfðu gert sig seka um. En þéss skal getið, að hvorugur pilt- anna hefur verið dómfelldur áður. Bíður mál þeirra nú dóms. í hinum horfna peningaskáp voru um 7000 krónur í pening- um, auk skjala og annarra verð mæta, og m. a. var í skápnum mjög' dýrmætur einbaugur..— Úrin, sem piltarnir stálu, hafa flest komið til skila aftur. Útsölu ÁVR á Akureyri verður lokað. Akureyringar samþykktu að láta loka útsölu Áfengisverzl- unar ríkisins þar á staðnum. í gær voru talin atkvæði, en atkvæðagreiðslan fár fram jafn hliða Alþingiskosningunum. -— 1730 vildu láta loka vínbúðinni, en 1274 voru á móti því. 332 tóku ekki afstöðu til málsins og skiluðu auðu, en ógildir seðlar voru 33. Alls greiddu atkvæði 3369. Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir, að vínbúðinni verði lokað á Akureyri eftir sex mán- uði, nema Alþingi ákveði aðra lausn á þessum málum. 2 minkar drepnir yið Elliðaár. Lögreglan skaut tvo minka í Elliðaárhólmanum í gær- kveldi. Verkamaður, er var að g'rafa fyrir rafveitukapli sem á að leggja frá Rafveitunni í smá- íbúðahverfið, varð var við tvo minka í urð í Elliðaárhólman- um, og gerði hann lögreglunni aðvart. Lárus Salómonsson fór á staðinn í gærkveldi og skaut þar tvo minka með skamm- byssu. KEA greiðir 190 þús. í útsvar. Frá fréttaritara Vísis. Akureyri í morgun. Samkvæmt skaitskránni, sem út kom í gær, hefur í ár verið jafnað niður um 8.5 millj. króna á samtals um 3600 gjaldendur. Af fyrirtækjum hér í bænum eru þessi hæst: KEA 189.430, Útg.fél. Akureyinga 122.260, Amaro h.f. 43.790, Kaffi- brennsla Akureyrar 45.240, SÍS á Akureyri 36.290, Vélsmiðjan Atli h.f. 36.300 og Bygginga- vöruverzlun Tómasar Björns- sonar 22.810. Af einstaklingum eru þessir hæstir: Kristján Kristjánsson 25.480, Gunnar Auðunsson skip stj. 24.200, Helgi Skúlason augnl. 22.000, Sverrir Ragnars 21.970, Valgarður Stefánsson stórkaupm. 19.720, Tómas Stein grímsson stórkaupm. 19.440 og Jakob Frímannsson 19.720. 10 sýnmgar á Topaz á Akureyri. Alls 17 éiiingar norðanlands. Akureyringar kunna sýnilega vel að meta franska gaman- leikinn Topaz, því a'ð hann hefur nú verið sýndur tíu sinn- urn bar nyrðra við húsfylli og hinar beztu undirtektir. Eins og Vísir hefur áður skýrt frá, er leikflokkur frá Þjóðleikhúsinu nú á fero norð- anlands og sýnir Topaz. Héfur leikritið nú verið flutt 17 sinn- um, á Akureyri (10 s.), Ssuð- árkróki, Dalvík, Húsavík og Siglufirði. Þá hafa Ólafsfirð- ingar sótt það fast að fá leik- flokkinn þangað; og verður sýning þar á morgun. Síðan mun leikflokkurinn halda til Blönduóss og þaðan til Vestfjarða og flytja Topaz á ísafirðd, Önundarfirði, Dýra- firði, Patreksfirði og Bolunga- VÍlí. La Traviata var flutt í Þjóðleikhúsinu í síðasta sini' í gær, og eru sýningar þá orðnar alls 26, en undirtektir hafa verið eindæma góðar, eins og alkunna er. Hjördís Schymberg óperu- söngkona söng fyrir skemmstu fyrir vistmenn að Reykjalundi. Var hún sérstaklega hrifin af húsakynnum þai' og fyrirkomu- lag'i öllu. Hún hefur nú ákveðið að hafa eina sjálfstæða söng- skemmtun hér áður en hún fer, líklega á fimmtudag eða föstu- dag í Þjóðleikhúsinu. Ágóðinn á allur að renna til starfsemi Revkjalundar. Nú er leikár Þjóðleikhússins á enda, og verður hlé til hausts. Þó verða ballett-sýningar í ágúst, eins og getið hefur verið.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.