Vísir - 22.08.1953, Blaðsíða 1
VI
»3. árg.
Laugardaginn 22. ágúst 1953
189. tbl.
---;....
Útlegð Marokké-
soldáns vekur gremju
í Egyptalandi.
Fregnin um útgerð Marokkó-
soldáns til Korsíku hefur vakið
mikla gremju í Egyptalandi.
Nagíb forsætisráðhérra, sem
staddur er í pílagrímsferð 1
Mekka, hinni helgu borg Mú-
hameðsmanna, bað fyrir soldán
inum ásamt miklum mann-
fjölda. Þúsundir Múhameðstrú-
armanna í Egyptalandi hafa
tekið undir gremjuyrði vara-
forsætisráðherra Egypta, sem
stjói-nar landinu í fjarveru
Nagíbs, en hann hefur mót-
mælt fi-amferði Frakka við
soldáninn í Marokkó, sem nú
hefst við í útlegð á Korsíku.
Hins vegar herma fregnir frá
Marokkó, að hinum nýja soldáni
sé vel fagnað af ættarhöfðingj-
um og jörlum þar. Einkum voru
fagnaðarlætin mikil í Fez, en
vopnaðir fjallabúar munu ætla
að fylgja hinum nýja soldán,
er hann heldur innreið sína í
Rabat, hina fornu höfuðboi'g
landsins.
Sérstakur Akureyrar-
þáttur í vetrardagskA!
útvarpsins.
Til umræðu hefur komið, að
taka upp fastan Akureyrarþátt
í næstu vetrardagskrá Ríkisút-
varpsins.
Þeir Vilhjálmur Þ. Gíslason
útvarpsstjóri og prófessor Ólaf-
ur Jóhannesson formaður út-
varpsráðs voru nýlega á ferð
á Akureyri til þess að ræða og
athuga þetta mál.
Ráðgert er, að í byrjun verði
útvarpað frá Akureyri sem svar
ar hálfri klukkustund á viku
og reynir útvarpið að fá trún-
aðarmann á Akureyri til þess
að annast þættina og sjá um
þá. Sömuleiðis verður útvarp-
ið að fá þar einhvern samastað
þaðan sem þáttunum verður út
varpað. Mjög fullkomin upp-
tökutæki eru þegar til á Akur-
eyri í þessu skyni.
Formaður útvarpsráðs, próf.
Ólafur Jóhannesson, lét svo um
mælt, að Ríkisútvarpið myndi
af fremsta megni stuðla að því,
að lyfta undir hvers konar
menningarstarfsemi í bæ og hér
aði, m. a. með því, að koma
útvarpsefni utan Reykjavíkur
á framfæri.
Þegar de Gasperi hafði gefizt upp við stjómarmyndun, fór svo
á Ítalíu, að maður að nafni Pella tók það hlutverk að sér og
heppnaðist að mynda stjóm. Áður hafði annar maður reynt —
árangurslaust — og heitir hann Attilio Piccioni. Myndin er
tekin, þegar hann talar við fréttamenn um tilraunir sínar.
Júlí varð metmánuður
hjá Flugfélagi íslands.
Flugvélar FÍ fluttu 7297 farþega, —
fleiri en í nokkrum mánuði öðrum.
Bandaríkjamenn hafa samið
við ítalska verksmiðju um her-
gagnasmíði fyrir 250 millj. kr.
Farþegar hjá Flugfélagi ís-
lands urðu fleiri í júlímánuði
síðastliðnúm en í nokkrum öðr-
um mánuði í sögu félagsins, eða
samtals 7297.
Næstflestir hafa farþegar orð
ið í ágúst í fyrra, en þá fluttu
flugvélar félagsins samtals 7188
farþega. Til samanbui'ðar má
geta þess, að í júlí í fyrra urðu
farþegar FÍ 6416 talsins.
Farþegar í innanlandsflugi í
júlí s.l. urðu 6226, en í sama
mánuði í fyrra vox'u þeir .5505.
Gullfaxi flutti nú 1071 farþega
milli landa, en 911 í sama mán-
uði í fyrra.
Vöruflutningar félagsins inn-
anlands námu í júlí s.l. sam-
Yfir 100 jarðskjálftakippir
á einum sólarhring.
tals 93 lestum, en rúmum 60
lestum á sama tíma í fyrra.
Milli landa námu vöruflutning-
ar nú 14.334 kg., en rúmum
8000 kg. á sama tíma í fyrra.
Póstflutningar fara heldur
minnkandi, en fluttur var póst-
ur í júlí s.l. er nam 1759 kg.,
en 2466 kg. á sama tíma í fyrra.
Gullfaxi var á flugi nær alla
daga mánaðai’ins, en alla daga
var eitthvað flogið.
I Flugvélar félagsins fóru í 9
Grænlandsferðir, en til f erðanna
| voru notaðar Ðouglas-vélar,
I Katalína-flugbátar og Gullfaxi.
i Flogið var til Ella-eyjar, Meist-
| aravíkur og ein ferð norður á
Faxavatn með Lauge Koch og
menn hans, en vatn þetta er
norður á 82. breiddai'stigi.
Síðdegis í gær átti Vísir tal
við Eystein Tryggvason veður-
fræðing, en hann hefur urnsjá
ineð jarðskjálftamælum Veður-
stofunnar.
Kvaðst Eysteinn þá vera bú-
inn að lesa af mælunum fram
til klukkan 4 e. h. í gær og hefðu
þeir sýnt hræringar til kl. 11.30
í gærmorgun.
En á þessum eina sólarhring,
eða frá kl. 11 í fýrramorgun og
til kl. 11.30 í gærmorgun hefðu
jarðskjálftamælarnir sýnt —■
hvorki meira né minna en rösk-
lega 100 jarðskjálftakippi. —
Fiestir höfðu þeir þó verið litl-'
ir nema þeir, sem fundust umt
og eftir hádegið í fyrradag. j
Stefna jai'ðskjálftanna vii'ð- j
ist vera um það bil ‘í háaustur I
frá Reykjavík.
Ókyrrd í te.
Lissabon (AP). — Vaxandi
ókyrrðar gætir £ Goa, smáný-
lendu Portúgals á Indlands-
strönd.
Hafa menn farið í hópgöngur
og' borið spjöld með kröfum um,
að nyiendan verði afhent Ind-
landi. Almenningur mun þó una
hag sínum vel, því að lífsskil-
yrði eru betri, í Góa en víðast
á Indlandi.
Ðregur til samkomulags í
verkfallsmálum Frakka.
Verkamenn utan samtaka kommún-
ista hverfa nú aftur til vinnu sinnar.
Dregið hefur úr verkföllun-
um í Frakklandi xneð því að
forystumenn verkalýðssamtaka
jafnaðarmanna og kaþólskra
hafa skipað meðlimum þeirra
samtaka að hefja vinnu á ný
á sviði póst- og símamála og'
víðar. I
Hafa fulltrúar þessara sam-
taka átt viði'æður við í'íkisstjórn i
Laniels og orðið samkomulag
um að hefja vinnu á ný. Með-
limir sömu verkalýðssamtaka
við neðanjarðarbrautir París-
arborgar, sti'ætisvagna, raf-1
stöðvar í eigu ríkisins, gasstöðv
ar og víðar, munu einnig taka
upp vinnu.
Hins vegar hafa foi'ystumenn j
verkalýðssamtaka kommúnista
eða CGT, ekki tekið þátt í við-
ræðunum við ríkisstjórnina, og
halda þau áfrám verkfalli sinna
manna.
Hefur stjórn Laniels lofað
verkalýðssamtökum jafnaðar- ’
manna og kaþólskra, að gegnj
því að tekin verði vinna upp áj
nýjan leik, skuli stjórnin fi-esta
áformum sínum um að lækka
kaup opinberra starfsmanna eða
lengja vinnutíma. Þá lofar rík-
isstjórnin því, að engir verka-
menn skuli verða látnir sæta
ábyi’gð fyrir þátttöku sína í
verkföllunum,—nema þeir, er.
gerzt hafi sekir um ofbeldis-*
verk.
Þykja þetta allmikil tíðindi,
með því, að atvinnulíf og sam-
göngur hafa verið lamaðar und-
anfarið vegna hinna mikiut
verkfalla í landinu.
Verkfall, sem boðað hafðf
verið í iðngreinum í einkaeign,
er ekki talið algert, eins og
sumir höfðu búizt við.
ísratil vill fá
meira regn.
íranskeisari kom til Bagdad
í írak í gær í hollenzkri flug-
vél, og var væntanlegur til Te-
heran í einkaflugvél sinni í
morgun.
í KLM-vélinni, sem kom frá
Róm, voru nokkrir aðstoðar-
menn keisarans svo og margir
blaðamenn, en enginn blaða-
maður frá Bretlandi fékk að
fljóta með, þar eð stjórnmála-
samband hefur ekki verið tekið
upp milli íransmanna og Breta.
Sendiherrar írans í París,
Washington og Brússel hafa
sagt af sér embætti, enda skip-
aðir af dr. Mossadek á sínum
tíma.
Hafði næst-
um handtekið
drottninguna.
London (AP). — Nýlega
munaði minnstu, að Júlíana
Hollandsdrottning væri tek-
in föst, er hún var stödd I
flughöfninni í Rotterdam.
Hafði drottningin lent þar
óvænt að kvöldi dags, er
öllum hliðum flughafnar-
innar hafði verið lokað, en
aðstoðarmaður hennar gerði
tilraun til að' brjóta eitt
hliðið upp til bess að hleypa
henni út. Var komið að þeini
meðan á þessu stóð, og ætl-
aði eftirlitsmaðurinn að
handtaka hjúin, er hann bar
kennsl á drottninguna.
Undirritaður hafa verið við-
skiptasamningar milli Ráð-
stjórnarríkjanna og Argentínu
og munu ársviðskipti nema sem
svarar til 51 millj. stpd.
Sansu er byrjað á hafn-
arbótum í Hornafirði.
Skipið er fljótt að fylla sig.
Sanddæluskipið „Sansu“ er
nú á Hornafirði og vinnur að
því að gera þar „skipaskurð",
eins og Vísir hefur áður skýrt
frá.
Samkvæmt símtali, sem blað
ið átti við Hornafjöi'ð í gær,
miðar verkinu vel áfram. Er nú
verið að dæla upp sandi við
bryggjuna og lízt mönnum vel
á vinnubrögðin. Skipið er fljótt
að fylla sig, en dálítið er það
mismi'i;andi, og fer það ei'nkúm
eftir þVí, hvort skeljasandur er
fyrir, en þá gengur það xnjög
fljótt, eða leirbotn, en þá tekui'
það lengri tíma.
„Sansu“ er nýbyrjað á grefti
inum, en nokkur tími fór í ým-
islegan undirbúning. Verkinu
mun eiga að verða lokið á sex
vikum.
Tíð er nú góð í Hornafirði, en
hefur annars verið afleit í þess-
um mánuði. Undanfarna fjóra-
fimm daga hefur verið brak-
andi þurrkur, og gera menn sér
nú góðar vonir um að ná inn
heyjum.
Uppskera verður ágæt.
Kartöfluuppskera og annárfa
matjurta virðist ætla að verða
ágæt í Hornafirði. Aðeins einn
vélbátur stundar síldveiðar f-rá
Hornafirði og hefur hann feng-
ið 20—30 tunnur í lögn. Ekk-
ert hefur enn verið saltað, en
sýnishorn hafa verið send til
Reykjavíkur til þesS að ganga
úr skugga um fitumagn hennar.