Vísir - 26.08.1953, Síða 1
43. irg.
Miðvikudaginn 26. ágúst 1953.
192. tbl.
Hitastig Heklu er nú 450 stig.
Hefir kólnað um
80 stig frá í fyrra.
itthnganir gcrðar
á fjallinu.
segulmagni o. fl.
Hekla hefur kólnað um 80
gráður síðan í fyrra, samkvæmt
mælingum, sem Þorbjörn Sig-
urgeirsson framkvæmdastjóri
Kannsóknaráðs ríkisins, fram-
kvæmdi í fjallinu s.l. laugar-
dag.
Þorbjörn mældi hitann á
. norðausturbarmi axlargígsins,
og reyndist hann nú vera 450
stig. Við mælingarnar notaði
Þorbjörn tvennskonar mæla,
svokallað thermo-element og
annan sjálfvirkan mæli, sem í
er einskonar ,,spírall“, sem vef-
ur upp á sig við vaxandi hita,
en síðan má Iesa hitann á mæl-
inum.
Sumir hafa talið, að gufu-
mökkur úr Heklu hefði verið
meiri nú en oft áður síðan
Hekla hætti að gjósa. Þetta er
heldur ósennilegt, enda ber
misjafnlega mikið á gufumekk-
inum eftir því, hvernig viðrar
hverju sinni. Talið er fullvíst,
að jarðskjálftarnir, sem nýlega
varð vart fyrir austan fjall,
hafi átt upptök sín nálægt
Hveragerði.
Segulmælingar
framkvæmdar.
Þá hefur Þorbjörn Sigun-
geirsson unnið að segulmæling-
um hérlendis í sumar.
Notaði hann til þess tæki,
sem hann hefur að láni frá
veðurstofunni dönsku, og fór
hann víða í þessu skyni. Mæl-
ingar þessar miða að því að
ákveða segulkraft og stefnu,
og fylgjast með breytingum, er
verða á segulsvæði jarðarinnar,
en þær eru miklar, sem m. a.
koma fram í „misvísun“ á átta-
vitum. Ætlunin er að endur-
taka þessar mælingar á nokk-
urra ára fresti.
Aðdráttarafl mælt.
Þá hefur próf. Trausti Ein-
arsson unnið að mælingum á
aðdráttarafli jarðarinnar á
ýmsum stöðum á landinu, en
til þess hefur hann tæki frá
-raforkumálaskrifstofunni. .Af
mælingum þessum má m.a.
ráða, hvers:könar bergtegundir
eru undir.
Loks hefur Tómas Tryggva-
son unnið að biksteinsrannsókn
um í Loðmundarfirðd ásamt
npkkrum- Englendingum.
¥11 rait'iifí'Stefa
á hfél&im.
Detroit. — Ford-verksmiðj-
urnar ætla að sýna í Evrópu
bil, sem smiðaður hefur verið
í tilraunaskyni.
Er bíllinn kallaður X-100 og
er búinn svo mörgum nýjung-
um, að hann hefur verið nefnd-
ur tilraunastofa á hjólum. —
Verður hann sýndur í Bretlandi
og Frakklandi í október.
Svissneskir vísindamenn hafa
lengi unnið kappsamlega að
mælingum á hreyfingum skrið-
jökulsins á Monta Rosa. Eru
þeir búnir að gera um 80 m.
langan gang inn í íshelluna, og
reka ógnarlanga fleina niður í
gegnum hana, til að kanna
hreyfingar jökulsins. Flugmað-
ur einn, Geiger að nafni, mesti
fullhugi Sviss á því sviði, fær-
ir leiðangursmönnum vistir og
lendir smáflugu sinni á jöklin-
um. Myndin hér að ofan er tek-
in, þegar hann hefur flogið upp
af jöklinum ogheldurtilbyggða.
RK brást vel við
beiðni Grikkja.
Genf. — Rauða kross-félög
17 bjóða hafa sent Grikkjum
mikiar nauðsynjar vegna land-
skjálftanna á Jónaeyjum.
Birgðir þær af allskonar
varningi, sem borizt hefur,
nema alls um hálfri milljón
dollara, og frá Genf fluttu
amerískar flugvélar 20 lestir af
hverskyns nauðsynjum.
Meiðsli af ölvun
og árekstri.
í gærkveldi skarst ölvaður
maður hér í bænum á flösku og
var hann fluttur á læknavarð-
stofuna til athugunar og að-
gerðar.
Meiðslin, sem voru á hendi,
reyndust ekki mikil og var
manninum leyft að ■ fara heim
til sín að aðgerð lokinni.
Arekstur.
Síðdeg'is í gær varð árekstur
milli tveggja bifreiða á mótum
Reykjanesbrautar og Kársnes-
brautar og meiddist annar bií'-
reiðarstjórinn lítillega.
Brunakall.
Laust eftir hádegið í gær var
i slökkviliðið kvatt að fæðingar-
deild Landspítalans en þar hafði
sviðnað út frá straubolta og
1 myndazt töluverður reykur. —
Skemmdir urðu óverulegar.
Ölvun við akstur.
Einn bifreiðarstjóri var tek-
inn fastur í gær grunaður um
að hafa verið ölvaður við akst-
ur.
Armann stiga-
hæst á Rm.
Reykjavikurmeistaramótinu
í frjálsum íþróttum er nú lokið
og varð Glímufélagið Ármann
stigahæst með 86 stig. K.R.
varð næst með 82 stig.
í gær lauk tugþrautinni með
sigri Guðm. Lárussonar Á., er
hlaut 4981 stig. Næstur varð
Valdimar Örnólfsson Í.R. með
4743 stig og 3. Hörður Haralds-
son Á. 4673 stig.
Keppt var ennfremur í gær
í 10 km. hlaupi og bætti Krist-
ján Jóhannsson Í.R. þar sitt éig-
ið met um röskar 14 sekúndur.
Hið nýja íslandsmet hans á
vegarlengdinni er 31:45.8 mín.
Ráðgert að hefja byggingu
Hallveigarstaða í haust.
Þeir verða miðstöð félagslífs kvenna í
feænum jafnframt gisti- og veitingahús.
Vonir standa til að framkvæmdir hefjist í haust við bygg-.
ingu Hallveigarstaða. Verið er að Ijúka við teikningar að hús-»
inu, fjárfestingarleyfi er fengið og nú hefur byggingunni end-«
anlega verið valinn staður, en hún verður á lóðinni við Garðar-*
stræti milli Túngötu og Öldugötu.
Hallveigarstaðanefnd hefur
unnið að þessu máli frá 1945 cg
hafa nú safnazt um 2 milljónir
krónur til byggingarinnar, þar
af eru margar herbergisgjafir
Löndunarbannið:
Sambykkt á-
fram með 14
atkv. meiri-
hluta.
Brezkir fiskkaupmenn sam-
þykktu með mjög knöppum
meirihluta á fundi, er þeir
héldu í Grimsby í gær, að
halda áfram fast við löndun-
arbannið á íslenzkum fiski.
Á fundinum voru 330 fisk-
kaupmenn og voru mjög
skiptar skoðanir á því, hvort
halda ætti löndunarbanninu
áfram, sem marka má af því,
að framhald löndunarbanns-
ins var samþykkt með aðeins
14 atkvæða meirihluta.
Virðist skoðun fiskkaup-
mannanna í þessu máli hafa
breytzt mikið frá því, er
löndunarbannið hófst, en þá
voru aðeins örfáir menn,
sem voru því mótfallnir. —
Ákveðið er, að annar fisk-
salafandur verði í Hull á
föstudaginn.
frá einstökum svéitarfélögum1.
og öðrum félögum, svo og mi an
ingargjafir og fleira þéss háttar.
Ráðgert er að í byggingunnj
verði um 40 herbergi, a^allega'
eins manns og verða herbergin
leigð út að vetrinum fyrir stúllc
ur utan af landi, sem dveíjast
við nám í Reykjavík, en afí
sumrinu er ráðgert að Hallveig
arstaðir verði reknir sem gisti—
og veitingarhús, þvi að þar:
verða einnig' samkomu- og veifc
ingasalir, og er ætlunin að hafat
í þeim matsölu allt árið. Auk
þess, sem þarna verður matsala
og gisting, verða Hallveigar-
staðir miðstöð félagslífs kvenna
í bænum. Þar verða smærri sal-
ir fyrir fundi einstakra félaga
og félagsstjórna, skrifstofur og
annað þess háttar, en allir,
stærri fundir kvenfélaganna og
samkomur verða í aðalsam-
komusalnum.
Eins og kunnugt er, var Ha’l-
veigarstaðanefnd eitt sinn bú-
in að fá lóð fyrir bygginguna
við Tjörnina, en sú lóð þykir
helzt til viðamikil, því sam-
kvæmt skipulaginu, verður að
byggja þar stórhýsi mikil. Það
varð því að ráði, að Hallveigar-
staðanefnd hvarf aftur að sinni
gömlu lóð við Garðastræti, enda
þótt hún hafi í upphafi þótt
heldur lítil fyrir Hallveigar-
staði, en þar má t. d. ekki byggja
hærri hús en þriggja hæða. Nú
er Sigvaldi Thordarson arkitekt
að ljúka við teikningar að bygg
ingunni á þessum stað, og
standa vonir til að byggingar-
framkvæmdir hefjist í haust.
Slys í Ölfusi.
Piltuir »§ stállia fæiia -
af tsKÍpaðii og slasast.
Uin helgina varð það slys í
Ölfusi, að umg stúlka og piltur
féllu af palli vöruhíls og slös
uðust.
Voru þau og fleira fólk að
koma af dansleik, og voru eng-
ar grindur á bifreiðarpallinum,
svo að þau tvö, sem að ofani
getur, féllu af honum, er bif-
reiðin tók beygju. Var gert að
meiðslum piltsins í Hveragerði,
en stúlkan var flutt hingað til
bæjarins og lögð í Landspítal-
ann.
I Suður-Kóreu var uppbyggingin hafin, áður en vopnaviðskiþtum lauk. Er hér
verkefni að ræða, og bömin leggja einnig hömd á plóginn. Sýnir myndin, hvernig
við ' að afna saman þeim múrsteinum, sem nota má á nýjan leik.
um mikið
þau hjálpa
«