Vísir - 22.09.1953, Side 8

Vísir - 22.09.1953, Side 8
Þeír i«m gerast kaup«ndar VtSIS eftir 10. hvers mánaðar íá blaðiS ókeypis tií mánaðamóta. — Sími 1660. WISIR Þriðjudaginn 22. september 1953. VlSIB er ódýrasta fclaðio og bó það fjel- breyttasta. — Hringið í sima 1660 og gerist ásbrifendur. Óbreytt ástand eftir 2ja klst. ræðu Vishinskys. Fjölgun á Kóreufundinum rædd í dag. Dagskrárnefnd SÞ tekur í dag ákvörðun um, hvort taka skuli á dagskrá tillögur komm- únista um útvíkkun stjórnmála fundarins. — Vesturveldin eru því andvíg. Það er Vishinsky, sem vill fá tilmæli Pekingstjórnarinnar og N.-Kóreustjórnar, tekin fyrir, en þær.vilja fá fleiri þjóðir á xáðstefnuna en aukaþingið hafði áður samþykkt. — Frétta ritarar síma, að Vesturveldin séu þeirrar skoðunar, að ef farið yrði að hræra í þessu aft- ur, eftir að aukaþing SÞ hefur fjallað um málið, yrði það enn dregið á langinn, en það gæti haft hættulegar afleiðingar, og hindrað að samkomulag næðist um frið í tæka tíð. . >#. Gömlu tillögurnar enn. í New York höfðu menn beð- ið með nokkurri óþreyju eftir ræðu Vishinskys, sem hann flutti í gær, en hún olli mikl- run vonbrigðum, þar sem hann gaf ekki neitt til kynna er sýndi að hann vildi yerða við tilmæl- um Eisenhowers og leggja fram sannanir fyrir friðarvilja Rússa og einlægni, A.-Kóreu minntist hann vart og bar að lokum fram gömlu afvopnunartillögurnar, Kvöldverður fyrir frumsýningar. Leikhúsgestir munu margir fagna þeirri nýbreytni, sem Þorvaldur Guðmundsson veit- ingamaður í Þjóðleikhúsinu, hyggst taka upp í sambandi við frumsýningar. Á morgun (miðvikud.) vei'ða salir Leikhúsgjallarans opnir frá kl. 6 en það kvöld er frum- sýning á „Einkalífi", eftir Noel Coward. Frá þeim tíma geta gestir fengið kvöldverð, fjór- réttaðan, ef þeir óska. Borð- pantanir eru í miðasölunni eða í síma 82636 á morgun kl. 2—4 og á miðvikudag frá kl. 3. — Þorvaldur mun hafa þennan hátt á veitingum á frumsýning- um leikhússins í vetur, ef sýnt er, að gestir vilja notfæra sér hann. sem hann hefur borið fram reglulega allt frá árinu 1948, og verið jafn reglulega felldar. Þar í eru tillögur um að draga úr vígbúnaði svo nemi V,, en þar sem Rússar hafa vígbúizt þjóða mest, yrðu þeir eftir slíka afvopnun þjóða sterkastir, og því vilja þeir við engum öðr- um líta. Vishinsky talaði í næstum tvær klukkustundir. Er það rr>ál manna, að eftir ræðu hans sítji allt við sama. Kammertónleikum útvarpað. í kvöld verður útvarpað kamm ertónleikum Ríkisútvarpsins. j Sú nýbreytni verður við þessa I tónleika, að útvarpað verður úr salarkynnum Listasafns ríkis- ins í Þjóðminjasafnshúsinu. Það hefur verið stundað um alllangt skeið í nokkrum öndvegissöfn- um erlendis, t. d. í Ríkissafn- inu í Amsterdam, í Washington og víðar, að halda slíka hljóm- leika. Eftir rejmslu þeirri, sem fékkst á Reykjavíkursýning- unni, má ætla, að þarna sé um góðan samkomustað að ræða og gott sé að útvarpa þaðan. Viðfangsefnin verða tvenn, kvartett í C-dúr eftir Mozart og oktett í Es-dúr óp. 20, eftir Mendelsohn. Þessir flokkar eru þættir í þeii-ri skipan hljómsveitarmála ríkisins, sem nú hefur verið tek inn upp, og útvai’pið væntir að oi-ðið geti til þess að auka fjöl- breytni tónlistai’flutningsins. Fjárflutningar með skipum að hefjast. Skriður er nú að komast á fjárflutningana — búið að flytja austur 6—700 fjár, af þeim 6—7000 sem flutt verða úr Þingeyjarsýslum. Fjárflutningar af Vestfjörð- um eru í þann veginn að byrja. Sennilega leggur fyrsta skiptið af stað suður með fé á morgun eða miðvikudag. Nokkrar slysfarir um helgina. Engin aharleg lEBeiðsIi. Nokkur niinni háttar um- ferðarslys urðu hér í bænum um helgina, eða frá því á föstudag síðdegis og þar til í fyrradag. Á fimmta tímanum á föstu- daginn varð drengur lVz árs að aldri, fyrir bifreið, sem ekið var út úr poi'ti við Ingólfssti’æti. Drengxv’inn, Bjarni Geirsson, Ingólfsstræti 7, var fluttur á Landspítalann, en meiðsli hans reyndust óveruleg. • Sama kvöld hrasaði vai'ð- maðurinn í botnvörpungnum Kai'lsefni, þegar hann var að fai'a út í skipið. Hann meiddist það inikið við fallið að flytja varð hann á Slysavai’ðstofuna | til athugunar. Blaðinu er ekki kunnugt um hve mikil meiðsli hans voru. Um 9 leytið á laugai'dags-' kvöldið varð slys í Kirkju- sti'æti gegnt Hótel Skjaldbreið. Þar varð Petrína Magnúsdóttir, Bii'kimel 8, fyrir bíl og var flutt á Landspítalann. Hún skrámaðist á höfði og fæti og fékk heilahristing. Meiðsli hennar voru ekki talin alvai'leg. Á sunnudagsmoi'gun kl. um 6 var ekið á ölvaðann mann á gatnamótum Snorrabi'autar og Laugavegs. Bifreiðin ók burt án þess að bifreiðai’stjórinn skipti sér af hinum slasaða manni. Hafði maðurinn skorizt á augabrún og var fluttur á Landspítalann til aðgei'ðar. Síðdegis á sunnudag varð kona fyrir bifreið á Hring- bi'aut, skammt frá Stúdenta- garðinum, Konan kvartaði und- an eymslum í mjöðm og var flutt á Landspítalann til at- hugunar. Stormar við Bretiand í gær valda tjóni og töfum. ftkíga sukku eða rak á laaad. Mörg leikrit á döfinni hjá Þjóðleikhúsinu. Jófaleíkritið veróur „Piltur og stúSka' Næstu vxðfangsefni Þjóðleik- hússins, auk „Einkalífs“, sem þegar hefir verið getið, verða „Sumi-i hallar“ og „Valtýr á gxrænni treyju“. Hið fyrrnefnda er eftir Bandaríkjamanninn Tenn- essee Williams, og heitir á frummálinu „Summer and Smoke“. Það hefir hlotið fá- gætar vinsældir vestan hafs og víðar. „Valtýr á grænni treyju“ er byggt á sögu Jóns Björns- sonar, og hefir hann sjálfur samið leikrit úr því. Þá má ixefna gamanleikinn „Harvey“ eftir Bandaríkjakonuna Mary .Chase. Það hefir hlotið feikr.a vinsældir. Jólaleikrit leikhúss- ins verður svo „Piltur og stúlka“, eftir Emil Thoroddsen, byggt á skáldsögu Jóns Thor- oddsens. Fastráðnir leikarar við Þjóð- leikhúsið (þ. e. þeir, sem eru á föstum launum allt árið) eru 15, og hefir einn bætzt við síð- an í fyrra, Baldvin Halldórs son. Aðrir leikarar, sem vinna við leikhúsið á svonefndum B-samningil eru 9, eða einum fleiri en í fyrra, og hefir Rúr- ik Haraldsson bætzt við. Þeim er tx-yggð föst greiðsla fyrir tiltekinn kvöldafjölda, sem þeir vinna, en eru ekki fastráðnir allt árið. i Sænskur sjómaður drukknar. Það slys vildi til í gær, er Bláfell var statt milli Reykja- víkur og Akraness, að einn skip verji féll fyrir borð. Náðist hann skömmu síðar upp í þilfar, en var þá meðvit- undarlaus. Voru þegar hafnar lífgunartilraunir og skipinu siglt á fulltri ferð í höfn. Sjúkra liði hér hafði verið gei’t aðvart, og höfðu þeir nauðsynlegan við búnað, m. a. lækni og sjúkra- bifreið. Um leið og skipið lagði að bi'yggju, var maðurinn flutt ur í Landspítalann og var lífg- unartilraunum haldið áfram á leiðinni, m. a. með sérstöku á- haldi til lífgunar úr dauðadái. Tilraunir þessar voru allar á- rangurslausar, og lézt maður- inn skömmu síðar. Maðurinn, Svíi, var um tvítugt. London (AP). — Miklir vestan- og suðvestan stormar hafa geisað á Bretlandseyjum og siglingaleiðum í grennd við þær. Tjón hefir orðið á skipum og mannvirkjum. Flutningaskip frá Libei'iu 700 m. frá Landsenda og kom franska hai'skipið Ile de France því til hjálpar. Meiri hluta skipshafnai’innar hafði vei'ið bjai'gað, er síðast fi'éttist. — Franskur togari, sem var stadd- ur úti fyrir írlandsströndum, fékk á sig sjó og fyllti vélar- rúrrxið, en togarann í'ak á land. Áhöfninni var bjai'gað,- nema einum manni, sem drukknaði. — Mörg skip bi-otnuðu og allur fiskibátaflotinn í Cornwall leit- aði hafnar. Nokki'ar skemmdir urðu á mannvirkjum í hafnarbæjum. Hafskipið Queen Elisabeth komst ekki inn til Southampton í gær vegna stoi-msins og vai'ð að biða úti fyrir, þar til lægði. Hun er frjáfs ferða sinna. Ekkert hefur enn spurzt til frú McLean, en talið að hiín sé í Austurríki. Af hálfu brezkra stjórnar- valda hefur verið sagt, að frúin sé að öllu frjáls ferða siiina. Hins vegar verður fylgzt með því, sem upplýst verður um ferðir hennar, þar sem það kynni að leiða eitthvað í Ijós * um hina brezku embættismenn, McLean, mann hennar, og Bur- gess, sem hurfu —■ að því er ætlað er austur fyrir járntjald. Hvatt til íriðsam- legra skipta. Beyinn af Túnis hefur birt ávarp til þjóðar sinnar. Var ávarpið flu.tt í tilefni koinu nýs fransks landstjóra og hvetur beyinn eindregið til friðsamlegrar lausnar deilu- mála. Kvað hann hinn nýja landstjóra friðarins og samvinn unnar mann. Erfðafjendur ákveða ftand. Haft er eftir Adenauer kansl- ara V.-Þ., að fundur Frakka og Þjóðverja um óleyst vandamál muni verða haldinn í október. Honum hafði þá borizt svar- bréf Bidaults, þar sem hann fellst á slíkan fund að tillögu hans, en í bréfi Bidaults var hvorki minnzt á stað né stund. ...........-■« ■ ■ „Hveitibrauðs- dagar" á enda. N. York (AP). — f nóvember 1954 fara fram næstu þing- kosningar í Bandaríkjunúm. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og eru leiðtogar beggja þingflokka farnir að „þukla á vopnunum“. Á tímabilið, sem liðið er síð an Eisenhower tók við völdum, er litið sem eins konar hvíld írá öllum stórátökum, enda kalla ■ blöðin það 5 gamni „hveiti- brauðsdagana“. — Þeim var talið lokið með ræðu, sem Tru man fyrrverandi forseti hélt í Detroit á Verklýðsdeginum (Labour Day), en það var fyrsta stórræðan, sem hann hefur haldið frá því er haiin lét af embætti. Heræfingar fflöðuvík. í BaUettskólinn hefst bráðlega. Ballettskóli Þjóðleikhússins tekur bráðlega til starfa. Erik Bidsted og kona hans, sem hér voru við kennslu í fyxra, eru væntanleg hingað á næstunni og taka þá til þar sem frá var horfið, en eins og menn muna, meiddist Bidsted á leiksviði hér og varð að hætta sýninguxn og kenjislu. Nem- Á tímabilinu fi'á 26. til 30. september, að báðum dögum meðtöldum, munu fara fram heræfingar á vegum Atlants- hafsbandalagsins nyrzt á Vest- fjörðum á svæðinu milli Hæla- víkui'bjargs að austan, Hauga- hlíðar að vestan, suður undir botna Veiðileysu og Hesteyi'ar- fjarðar og 6 rnílur á haf út. — Nánai’i takmörk þessa svæðis ei'u þessi: Að austan 22°33.5’ v.l. Að vestan 22°49.5’ v.l. A.ð norðan 66°33.7’ n.br. Að sunnan 66°22.5’ n.br. Ráðstafanir hafa verið gerð- ar til þess að korna í veg fyrir að farið verði inn á svæðið meðan á æfingum stendur, og eru menn varaðir við því að gera tilraxinir til þess. (Fr á ríkisstj órninni). Hann fær 100 þús. dollara. Tilkynnt var í Washington í gær, að 100.000 dollara verð- launin fyrir MIG-flugvél, yrði greidd kommúnistiska flug- mamúnum, sem lenti slíkri flugvél við Seoul. Enn fremur, að hann fengi vernd sem pólitiskur flóttamað- ur — en ekki var tekið fram í hvaða landi hann fengi aðset- ur. Ekki er enn kunnugt um þjóðerni flugmannsins. Fólk af grískum ættum í New York hefur safnað 45.000 dolluíum handa bágstöddu fólki á landskjálftasvæðinu í Grikklandi. endur voru uxn 7Ó í fyrra, flestir á aldrinum 10—12 ára, og virðist áhugi engu minni fyrir þessari lisfgrein í ár. Þessi mynd sýnir greinilega, hversu stór landhelgi Ástralíu er orðin vegna bess, að stjórn landsins hefur lýst yfir, að hún hafi slegið eign sinni á land- grunnið. Nær landhelgin allt að 2®0 mílum á haf út.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.