Vísir - 10.10.1953, Blaðsíða 1
*
iS. árg.
Laögardaginn 10. október 1953.
231. li>l.
Skofárás á ieigubsfstjéra
og mannfjöSda í nétt
Bíbtjórimt missis' st|érn á bílmim og eknr
á mann.
í nótt handtók lögreglan tvo
menn hér í bænum og haíði ann
»r, þeirra gerzt sekur um að
skjöta á leigubifreiðarstjóra og;
síðan á mannfjölda austast í
Austurstræti.
Um kl. 1.40 í nótt urðu þrír
lögregluþjónar varir við það,
að ekið hafði verið á mann í
Pósthússtræti gegnt lögreglu-
stöðinni. Var þar um að ræða
bifreiðina R 2392, en sá sem
fyrir bifreiðinni varð, heitir Jós
ef Gislason, Lindargötu 6.
Skýrði bifreiðarstjórinn á R
2392 frá því, að hann hafi verið
Laniel verst
falli tvisvar.
París <AP). — Tvaer van-
trauststillögur á frönsku stjórn-
ina voru feldar í gær, ön«iur
með allmiklum atkvæðamun.
Hin fyrri vár ffá jafnaðar-
mönnum og var felld með 53
atkv. meirihluta, en sú síðari
frá kommúnistum, með 158
atkv. meirihluta.
Laniel-stjórnin er talin all-
miklu traustari í sessi eftir
þessar atkvæðagreiðslur, þótt
hvergi nærri sé örugt, að hún
standist öll áföll, sem koma
kunna.
Haustmótft heldur
áfram á morgun.
Haustmóti meistaraflokks
verð’ur haldið áfram á morgun,
©g verða þá tveir Ieikir.
Keppnin hefst kl. 2, og
keppa þá Fram og Víkingur, en
strax á eftir KR og Valur. Dóm-
arar verða þeir Frímann Helga-
son og Hannes Sigurðsson.
Segja má, að nú sé hver síð-
astur að sjá meistaraflokkana
eigast við á þessu hausti, og
ættu knattspyrnuunnendur því
ekki að missa af þessu tækifæri.
með tvo farþega í bifreið sinni
og hafi annar þeirra skotið á
sig úr riffli. Skotið lenti i
hnakka bifreiðarstjórans og og
við það missti hann stjórn á
bifreiðinni, svo hún lenti upp á
gangstéttina og varð þar Jósef
fýrir lienni.
Bættust nu tveir lögregluþjón
ar í hópinn og fluttu þeir bif-
reiðarstjórann, Sigfús Halldórs-
san, Þvottalaugum, og Jósep á
lögreglustöðina en síðar voru
þeir fluttir í sjúkrabifreið. á
Landspítalann. En hinir þrír
lögreglumennirnir, sem f'yrst
komu á staðinn, hófu leit að
árásarmanninum og íélaga
hans, en þeir höfðu hlaupizt á
brott úr bílnum, strax og hann
staðnæmdist á götunni.
Höfðu þeir félagar komizt
inn í portið hjá Nýja bíó en
komizt þar í sjálfheldu og urðu
að fara út um sama ganginn aft-
ur til baka. Voru lögreglumenn
irnir þá komnir að ganginum,
ásamt allmörgu fólki, sem safn
azt háfði sainan.
Hafði árásarmaðurinn þá hlað
ið ryffil sinn að nýju og skaut
í áttina að lögreglumönnunum
og mannfjöldanum, en ekki er
vitað til að skotið hæfði neinn.
Réðust lögreglumennirnir þá
og mannfjöldinn allur á árásar-
manninn og félaga hans og tóku
þá báða fasta. Sá, sem var með
riffilinn, heitir Rúnar Sófus
Hansen Ilöfðaborg 18, en fé-
lagi hans, Gísli Magnússon,
Efstasundi 21. Voru þeir fluttir
í fangageymslu lögreglunnar.
Báðir voru þeir undir áhrifum
áfengis.
Meiðsli bifreiðarstjórans, Sig
fúsar Halldórssonar, reyndust
ekki eins alvarleg og haldið var
í fyrstu, enda hafði kúlan ekki
komizt inn úr höfuðkúpunni.
Sá, sem varð fyrir bifreiðinni,
Jósef Gíslason, slapp óbrotinn,
en marðist bæði á fæti pg
mjöðm. Þeir voru báðir fluttir
heim til sín í morgun.
Uppskera í bæjargörðunum.
Heiísufar bæjar-
versnar.
Heilsufar í bænum var lield-
ur lakara vikuna 27. sept. til 3.
okt., en vikuna þar á undan.
Einkum hefir kvefsóttar- og
kverkabólgutilfellum fjölgað.
Eins hefir kikhóstatilfellurir
fjölgað.
Skýrslur bárust t'il skrifstofu
Borgarlæknis frá 32 læknum,
en 27. vikuna þar áður. Farsótta-
tilfellin voru sem hér segir:
Kverkabólga 105 (66), kvef-
sótt 174 (125), barnsfararsótt.
1 (0), kveflungnabólga 7 (5),
iðrakvef 43 (32), innflúenza 4-
(0), munnangur 9 (3), kikhósti.
19 (8), hlaupabóla 3 (5), ristill
1 (0).
Kartöfluuppskeran hér fór
míkið fram úr áætlun.
Hver Reykvíkingur neytir 100
kg. af kartöflum á ári.
7 ára drengur drukknar
í Reykjavíkurhöfn.
Týndist í gær, fannst örendur
x mnrgun framuitdaii §lippnuni.
Sá hörmulegir atburður gerð-
ist í gærkveldi eða nótt, að
sjö ára drengur, Ólafur Guð-
björn Júlíusson að nafni,
drulcknaði í Reykjavíkurhöfn.
Ekki er vitað, með hverjum
hætti slys þetta hefur orðið, en
samkvæmt upplýsingum, sem
Vísir fékk hjá lögreglunni í
morgun, er þetta vitað:
Ólafur litli mun hafa farið
um borð í Gullfoss með föður
sínum síðdegis í gær. Síðan
gerist það, að þeir feðgar verða
viðskila, og tilkynnir þá faðir
tírehgsins lögreglunni um það,
er hann fer að óttast um dreng-
inn, sem ekki kémur heim. Var
lýst eftir Ólafi litla í útvarpinu,
en lögreglumenn hefja leit um
borð í Gullfossi, Tröllafossi,
með fram skipum, hafnarbakk-
anum og bryggjum með Ijós-
kösturum til kl. 4 í nótt. Síðan
er leit hafin enn á ný með birtu
í morgun, og um 8-leytið fundu
tveir lÖgreglumenn, þeir Ás-
mundur Matthíasson og Bogi
j Bjamason, drenginn örendan
í sjónum fram undan slippnum.
j Ólafur litli var sonur hjón-
anna Gunnhildar Pálsdóttur
i og Jóns Júlíusar Jónssonar,
í Breeðraborgarstíg 26 hér í bæ.
Uppskerumagn í kartöflu-
■görðum Reykvíkinga liefur
nicir en. tvöfaldazt á við það,
sem bað hefur mest orðið áður,
samkvæmt upplysingum sem
Visir fékk hjá ræktunarráðu-
naut bæjarins, E. Mahmjtiist.
Var í íyrstunni gizkað á að
kartöfluuppskera Reykvíkinga
yrði í haust um 40 þúsund
tunnur, eða helmingi.meiri en i
fyrra, því þá varð hún 20200
tunnur. Annars hefur kartöflu-
uppskeran orðið mest á einu
ári áður 24000 tunnur, en það
var í hitteðfyrra. Nú hafa hins-
vegar uppskeru skýrslur bor-
izt bæði úr leigugörðum, erfða-
festulöndum og bújörðum i
bænum og samkvæmt þeim
hefur uppskeran orðið um
54000 tunnur. Jafnframt hefur
komið í ljós að meðaluppskeran
hefur orðið 13,6 föld.
Ræktunarráðunautur sagði að
ástæðurnar fyrir þessari miklu
uppskeru væru tvær. Annars-
vegar óvenju hagstætt tíðarfar
og hinsvegar það, að garðlöndin
hafa verið aukin um 20—30
hektara á sl. ári. Loks má geta
þess að nýting hefur verið ágæt
enda tvívegis úðað gegn
kartöflumyglunni og henni þar
með að heita má algerlega
haldið í skefjun.
Aflað hefur verið upplýsinga
uh hve mikil neyzluþörf Reyk-
víkinga er fyrir kartöflur og
komið í ljós að það muni vera
sem næst 1 tunna 100 kg. a
hvern íbúa. Er það sem næst
30 kg. meira á hvern ein-
staltling, heldur en atvinnu-
deild Háskólans gerði ráð fyrir
í athugunum sínuni fyrir
nokkrmn árum.
Reynzlan hefur sýnt að
kartöfluneyzla er töluvert
meiri í kaupstöðum og kaup-
túnum heldur en í sveitum.
Bktturinn var
sleginn 5 sinnum.
EiðsvöIIur- á Oddeyri er cinn
af fegurstu reitum bæjaríns,
segir í íslendingi nýlega.
Er þetta ekki stór þlettur, en
í sumar hefur hann verið sleg-
inn fimm sinnum, og mun það
einsdæmi. Var vöílurinn fyrst
•sleginn 29. maí, en siðast 20.
geptem.ber sl. .
Kafbátsmenn
gistu aftur.
Eins og memi vita hafa ani-
erískir kafbátar legið hér að
undanförnu eftir æfingarnar á
dögumun.
Þegar illt er í sjóinn, eins og
stundum hefir orðið undanfar-
ið, er erfitt að komast um borð
í kafbáta vegna byggingarlags
þeirra, og hafa sjóliðar því tví-
vegis orðið að fá gistingu í
landi. Gistu þeir í síðara skipt-
ið í Skátaheimilinu aðfaranótt
fimmtudags.
Fyrsta frostnóttin
í dag var fyrsta frostnóttin í
Reykjayík, komst frostið upp í
4 stig, og 8 stig á Þingvöllum.
Hér í Reykjavík hefur mælir
að vísu staðið á 0 að næturlagi
og snjóað, en mælir ekki farið
niður fyrir 0. í morgun kl. 9
var frostið hér 0,7 stig.
Veðurhorfur: Vaxandi aust-
anátt og frostlaust sunnanlands,
dálítil rigning við suðurströnd-
ina, en úrkomulauæst eða lítið
við Faxaflóa, og einnig norðan-
lands.' ___________
Nýr pípulagningameistari.
Tryggvi Gíslason, Urðarstíg
14, hrfir verið löggilt.ur til að
standa fyrir pípulögnum í
Reykjavík.
Fóru víða fyrir
lítið fé.
Tveir Akureyrarstúdentar^
þeir Baldtir Jónsson og Gunn-
laugur Kristinsson, gerðu víð-
reist um Evrópu í sumar fyrir
lítinn pening.
Fóru þeir um Kaupmanna-
höfn til Þýzkalands og Ítalíu..
en heim um Frakkland og Eng- .
land, að því er ,,Dagur“ skýrir
frá. Þeir ferðuðust frá Hara-
borg til Mílanó „á fingrunum“,,
þ.e. þeir fóru ókeypis með
ýmsum bifreiðum, sem þeir
stöðvuðu með bendingum. —r
Hvarvetna var þeim sýnd gest-
risni og vinsemd, og varð ferðin.
þeim lærdómsrik og mjög ódýr.
Riíssar smíðu5u
18.000 herflug-
vélar sl. ár.
Flugtímaritið ameríslta,,
Aviation Age, telur að Rússar
hafi framleitt yfir 18.000 her-
flugvélar á sl. ári.
Áætlar tímaritið, að orustu-
flugvélar hafi verið um 10.000!
samtals, sprengjuflugvélar um
1800, flutningaflugvélar 1400
og ioks 5000, sem notaðar eru
til þjálfunar og í ýmsum öðrum
tilgangi. Meðal flugvélanna er
sprengjuflugvél með 6 hreyfl
um, sem álitið er að muni get-a
flogið til Bandaríkjanna og
heim aftur frá bækistöðvxim í
löndum Rússa.
Aheit
á Strandarkirkju afh. Vísi:
E. Þ. 170 kr. G. B. 50. Elin 100.
N. N. -40 kr.
Var tæpan sól-
arhring.
London (AP). — Brezk
þrýstiloftsflugvél af Canberra-
gerð sigraði í kappfluginu til
Churchbridge í Nýja Sjálautli,
flaug vegalengdina, nærri 20
þús. krn. á 23 klst. 51 mín og 7
sek.
Áströlsk Canberra-flugvél
varð önnur. — Tvær af 5 Can-
berraflugvélum hættu áður en
komið var á leiðarenda, önnur
í Perth i Ástralíu vegna bil-
unar, hin á Kókoseyjum, vegna
þess að hjólbarði á lendingar-
hjóli sprakk. v"