Vísir - 12.10.1953, Side 8
Ptáx m gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvera mánaðar fá blaðið ókeypis til
mánaðamóta. — Sími 1660.
nsit
VÍSIB er ódýrasta blaðið og J»ó það fjöl>
breyttasta. — Hringið í simt 1660 eg gerist
áskrifendur.
Mánudaginn 12, október 1953
Styrktarfélag fatlaðra og lamaðra ieggur
fram Vi millj. kr. til nýja Landspítalans.
Þar verður sérdeild fyrsr fatlaða og bæklaða
sjúklinga, auk þjáSIunardeildar.
Frá aðalíundi íélagsins t «.►«*“i*.
Á aðalfundi Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í gær var
skýrt frá því, að framkvæmdaráð félagsins hefði boðið að leggja
til Landspítalans % miilj. króna, gegn því skilyrði, að í hinni
nýju byggingu sem framkvæmdii- eru liafnar við, verði full-
komin deild fyrir fatlaða og bæklaða sjúklinga, auk fyrirhug-
aðrar þjálfunardeildar fyrir slíka sjúklinga.
— Félagið hefir eflzt mjög'
fjárhagslega á hinum skamma
tíma, er það hafir starfað, og
eru megintekjur þess ágóða-
hluti af eldspýtum. |
Aðalfundurinn var haldinn í
Oddfellówhúsinu og var hann
settur af formanni félagsins, ’
Svavari Pálssyni, en fundar-
stjóri var Friðfinnur Ólafsson,
varaformaður.
Hagur félagsins.
Svavar Pálsson las upp end-
urskoðaða reikninga og gerði
grein fyrir störfum félagsins,
er var stofnað 2. marz 1952, og
var þetta fyrsti aðalfundur
þess. Hreinar tekjur fram-
kvæmdasjóðs félagsins hafa
numið kr. 433.013.32 frá stofn-
un þess til 30. sept. 1953, en
tekjur alls kr. 435.842.33 (mis-
munur kr. 2.829.01) þ. e.
greiðsla til ferðakostnaðar
vegna skýrslusöfnunar og
greiðsla árgjalds til Evrópu-
bandalagsins (Association Eu-
ropéenne Contre La Poliomeye-
lite). Tekjur félagssjóðs námu
2.145.00 (hluti af árgjöldum
félagsmanna, en ýms útgjöld
námu kr. 1.875.78 Hreinar
tekjur kr. 269.22.
I
Eldspýtnaágóðinn
væntanl. 400 þús. kr.
árlega.
Sv. P. kvað aðalverkefni fé-
lagsins hafa verið að sínna
fjárhagsmálum þess. — Aðal-
tekjur félagsins eru ágóðahluti
af eldspýtum, sem nánara
verður getið, árgjöld félags-
manna, ævifélagagjöld, minn-
ingargjafir,' en auk þess hafa
félaginu borizt stórgjafir, m. a.
gjöf afhent Jóh^nni Sæmunds-
syni prófessor áð upphæð 50
þús. kr. Félagið héfir tekið við
sjóðseign Sjálfsbjargar, stuðn-
ingsfélags lamaðra og fatlaðra,
sem ákveðið var að afhenda
félaginu sem arftaka þess. Ár-
gjöldin námu 28.8 þús. kr., en
ævifélagsgjöldin 31 þús. Rík-
isstyrkur nam 17 þús. kr., minn-
ingargjafir 11 þús. kr.
Formaður skýrði sögu eld-
spýtnamálsins, sem hér eru
ekki tök á að segja nema í
höfuðatriðum. Hann og Jóhann
Sæmundsson prófessor ræddu
þessa fjáröflunarleið við hlut-
aðeigandi stjórnarvöld og for-
stöðumann Tóbakseinkasölu
ríkisins, auk þess sem bréfa-
skriftir fóru fram um málið, og
heimilaði fjármálaráðh. það
með bréfi 2. sept. 1952, að
tvennskonar verð yrði á eld-
spýtum, þ. e. venjulegt verð og
hærra verð, sem næmi 10 aur-
um á stokki, og gengi tekjurn-
ar af hækkuninni til félagsins
fyrst um sinn eða þar til öðru
vísi yrði ákveðið. — Sala eld-
spýtnanna hefir gengið vonum
framar og var þessu vel tekið
af kaupmönnum, sem greitt
liafa vel fyrir þessu, og öllum
almenningi. Fyrsta sendingin
seidist upp á mánuði, en eigi
þótti ráðlegt að panta meira í
byrjun en gert var, þar til
reynsla fengist. Varð svo nokk-
urt hlé, sem eldspýturnar með
merki félagsins fengust ekki,
en síðan hefir verið séð um, að
þær væru alltaf fáanlegar, og
virðist mega gera ráð fyrir 400
þús. kr. árstekjum af þessu fyr-
ir félagið, sjái fjármálaráðh. sér
fært að láta þetta fyrirkomu-
lag haldast. Það er að sjálfsögðu
að mestu leyti vegna þessara
tekna, að félagið hefir getað
heitið framlaginu til nýja
Landspítalans, eins og Hring-
urinn og Krabbameinsfélagið
hafa gert, og hafa þessar fram-
réttu hendur þessara félaga
orðið hvatning til þess, eins og
próf. Jóh. Sæmundsson vék að
á fundinum, að hraða fram-
kvæmdum í stækkunarmáli
spítalans, en stækkunin hefir,
sem kunnugt er, dregizt allt of
lengi. Formaður gat þess með
þakklæti, að firmað sem fram-
leiðir eldspýturnar, hafi fallið
frá aukakostnaði við að setja
merki félagsins á eldspýturnar,
Samstarf
við erlend félög.
Formaður sagði, að félagiö
hefði haft samband við
Framh. á 7. síðu.
Saltflskurinra minsii
en §1. ár.
Saltfiskaflinn 30./9, nam
39.5 þús. lestum eða um 7.4
þús. I. minna en á sama tíma í
fyrra, en 6.6 þús. 1. meiri en á
sama tíma í hitt eð fyrra.
Miðað við fullstaðinn salt-
fisk var aflinn sem hér segir:
’53
’52
’51
Bátafiskur 21.008 1.
Togarafiskur 18.511
39.519
Bátafiskur
Togarafiskur
21.443 1.
25.550
Bretar og Ibn Saud
deila um Buraimi.
iandaríkjastjórn reynir aó miðia má!um.
Buraimi nefnist strandhérað
Arabíu, við Persaflóa, sem
valdið liiefir vaxandi ágreiningi
milli Breta og Ibn Sauds kon-
ungs í Saudi-Arabíu. — Banda-
ríkjamenn hafa reynt að miðla
máluin í deilunni.
Greinir menn á um, hvort ol-
íuhagsmunir muni ligja til
grundvallar, eða að hitt megi
vera, að Bretum sé það metn-
aðarmál, að slaka ekki til, þar
sem fyrri tilslakanir þeirra í
löndum Araba hafa valdið þeim
miklum álitshnekki. — Þarna
eru öll landamerki óglögg of
sumstaðar engin, og' kom
ekki alls fyrir löngu til
ágreinings milli valdhafa
46.993
Bátafiskur
Togarafiskur
18.039 1.
10.876
28.915
í fyrrasumar voru saltfisk-
veiðar stundaðar af kappi sem
kunnugt er og Esbjerglandanir
byrjaðar.
Frost framundan.
Norðan hvassviðri var í morg
un um meginhluta landsins og
er Iíklegt, að norðanáttin muni
haldast frarn á morgundaginn.
Búast má við 4—5 stiga .nætur-
frosti í nótt.
Á Austfjörðum var vindur
hægur í morgun. Snjókoma var
frá Vestfjörðum allt austur á
Melrakkasléttu, en bjártviðri
sunnan lands og austan. Frost
var 2—3 stig á Vestfjörðum, en
hlýjast 5 stig á Dalatanga. —
Um kl. 9 í morgun var hiti um
frostmark í Reykjavík.
Verkíall í knkmg.
Framfaraflokkurinn svo-
nefndi í Brezku Guiönu hefur
boðað allsherjarverkfall í dag.
Er það gert til þess að mót-
mæla frávikningu 6 ráðherra
flokksins. — Ekki hafa enn bor
izt fréttir um þátttöku í verlc-
fallinu.
Happdrætti Háskólans:
40 þús. kr. á
nr. 15.314.
Síðastl. laugardag var dreg-
ið í 10. flokki happdrættis Há-
skólans.
Að þessu sinni voru vinning-
ar alls 850, svo og tveir auka-
vinningar, samtals 414.300 kr.
Hæsti vinningurinn, 40 þús. kr.,
féll á nr. 15.314, sem var heil-
miði, keyptur hjá Helga Sívert-
sen. 10 þús. kr. féllu á nr. 2585,
f-jórðungsmiðar, einnig hjá H.
S. 5 þús. kr. féllu á nr. 19.021,
fjórðungsmiða, tvo hjá Pálínu
Ármann, einn á Akureyri og
einn í Borgarnesi.
Kompásvökva
stolið.
Borið hefur á því að stolið
hafi verið áttavitavökva úr
bátum liér á höfninni, en hér
er um eiturvökva að ræða og
því stórhættulegur til drykkj-
Hafa rannsóknarlögreglunni
borizt kærur um að stolið hafi
verið af kompásum úr tveimur
bátum, sem liggja á höfninr.i
við Grandagarð. Sömuleiðis
hefur fregnazt að stolið ha?i
verið vökva af fleiri kompás-
um úr bátum við hÖfnina.
Rannsóknarlögreglan kvaðst
hafa átt tal um' þetta við Kon-
ráð Gíslason kompásasmið, tn
hann réttir alla áttavita og
fyllir þá. Sagði hann að metliyl
alkohol (tréspiritus) væri á
öllum kompásunum, en sú teg-
und alkohols er banvæn til
drykkjar og þykir rannsóknar-
lögreglunni því ástæða til þess
að vara menn við neyzlu þessa
drykkjar ,ef það hefur vakað
fyrir mönnurn þeim, er stálu
kompásunum og kompásavökv
anum.
Saudi-Arabíu og Breta í vernd-
arríkinu. Aden. — En sl. haust
sendi Ibn konugur 40 vopnaða
menn og 40 óvopnaða til Bura-
imi, og sendu Bretar þangað
300 manna flokk innfæddra
hermanna. — Á hinu umdeilda
svasði eru 9 þorp og íbúarnir
samtals um 10.000. — Saudi
fjölskyldan réð yfir svæðinu
frá 1800—1870, en þá fekk hér
aðið sjálfstæði, að nafninu að
minnsta kosti en að undanf.
hefir áhrifa Ibn Sauds gætt
aftur, og íbúarnir, sem eru fá- t
tækir, látið sér það vel líka,
því að þeir vænta sér góðs af
áhuga hins auðuga þjóðhöfð-
ingja. Bretar láta sem ágrein-
ingurinn sé ekki mikilvægur,
og alls ekki vegna olíuhags-
muna ,og sama segja Banda-
ríkjamenn. Segir í skeyti frá
Washington, að ekki sé vitað
að nokkur Bandarikjamaður.
hafi stigið þarna fæti sínum,
en kannske einhverjir flogið
yfir það! — Ibn Saud segir, að
traðkað sé á rétti íbúanna, og
kemur fram sem ákafur tals-
maður þehra. — Bandaríkja-
menn segjast vilja miðla mál-
um, vegna þess að nýjar deilur
milli Breta og Araba kunni að
hafa mjög skaðleg áhrif að því
er varðar sambúð vestrænu og
Arabaþ j óðanna.
Góð skemmtun hjá
Fegrunarf élaginu.
Kabarettt Fegrunarfélagsins
hafði fyrstu sýningu sína í Sjálf
stæðishúsinu í gærkvöldi og
var húsið fullskipað.
Hallbjörg Bjarnadóttir hermdi
eftir ýmsum þekktum söngv-
urum, svo sem Paul Robeson,
Gigli, A1 Jolson, Stefáni Islandi
og fleirum, og þótti vel takast,
enda var henni klappað lof í
lófa. Þá kom fram ensk fegurð-
ardís, Dorothy Neal að nafni,
og teiknaði fyrst fáeinar mynd-
ir fyrir áhorfendur, en afklædd-
ist síðan að mestu. Virtist það
.falla í góðan jarðveg, og sýndi
hún þannig nokkrar „myndir“
með félaga sínum, vel vöxnum
ungum manni með krafta í
kögglum. Loks kom þarna fram
hraðteiknarinn Fini, sem sýndi
mönnum nokkrar skopteikning
ar við góðar undirtektir.
KR sigraði í
haustkeppni nni.
K.R. bar sigur úr býtum í
haustmóti meistaraaflokks, sem
lauk í gær.
Þá fóru fram tveir leikir:
Víkingur tapaði fyrir Fram, sem
skoraði 3 mörk gegn engu, en
siðan sigraði K.R. Val í góðum
leik með 4 mörkum gegn engu.
K.R. sigraði með yfirburðum
á mótniu, skoraði samtals 8
mörk gegn engu, og hlaut að
launum Kalstað-bikarinn, sem
um var keppt.
Teflir fjöltefli í
kvöld.
Rússneski skákmeistarinn Ala-
toreev teflir fjöltefli í Tjarnar-
café uppi í kvöld kl, 8.
Skákmenn velkomnir, en þess
Banaslys á
Siglufirði.
Á föstudaginn varð umferð-
arslys á Siglufirði með þeim
afleiðingum, að átta ára gam-
all drengur beið bana.
Kom drengurinn, Erlingur
.Stefánsson, hjólaði eftir Kirkju
stíg, en um leið var vörubifreið
ekið aftur á bak úr Lindargötu
»inn á Kirkjustíg og þar sem
hált var, mun Erlingur ekki
hafa getað stöðvað sig, svo að
þann lenti aftan á vörubílnum.
Var honum ekið strax í sjúkra-
hús, én andaðist á leiðinni
þangað.
• •
Orendur maður
finst á götu.
Laust fyrir hádegið í gær var
lögreglunni tilkynnt um mann,
sem lægi á Egilsgötu, móts við.
húsið nr. 12.
Var sjúkrabifreið sótt og mað
,urinn fluttur á Landspitalarm,
en við athugun kom í ljós, að
.maður þessi var Jón Guðlaugs-
son bifreiðarstjóri til heimilis
Bragagötu 34B. Hann hafði ver
ið á gangi eftir Egilsgötunni,
en hnigið niðu rog mun hafa
látizt samstundis.
Tap á rekstri Evrópuflugfé-
lagsins brezka (BEA) nam
er óskað, að beir hafi með sér hálfri annari milljón punda á
•töt. j sl. ári.