Vísir - 11.11.1953, Síða 5

Vísir - 11.11.1953, Síða 5
Miðvikudaginn 11. nóvember 1953 V1SIR ‘ 1 í brekkunni austan Lækjargötu stendur tvíl>-ft timburhús. Það er málað ljósgTÓum lit, stórt og myndarlegt, og á bví er engin nýjabrumssvipur, — stíllinn látlaus en virðulegur, — elfur tímans hefur léð því bað fyrirmannssnið, sem gengur í berhögg við alla tizku og allar kenjar. I»etta hús er citt fárra Jiúsa í Reykjavík, sem unnt væri að sæma lýsingarorðinu „klassískt“. Það stendur þarna uppi í brekkunni og horfir yfir miðbæinn — og liefur séð kynslóðir konia og fara. Áður fyrr rann lækur vúð túnfótinn niður undan því. Nú er lækurinn iborfinn uitdir breiðgötuna miklu, sem ber nafn lians fram undan þessu húsi. Hvert mannsbam í bænum veit, að þetta er Meimtaskólinn, og þó að tíu menntaskólar rísi upp í Reykja- vík, verður bó aðeins citt hús, sem ber nafnið Menntaskóli, helzt með stórum staf, og það er þetta hús í brekkunni upp af Lækj- argötu. Allir vita, að þetta virðulega, formfasta, en yfirlætislausa hús, er orðið meira cn 100 ára gamalt, og gamlir nemendur Jians geýmá í hug sér um ókomin ár minninguna um aldaraf- mæli hans, árið 1946, þegar þeir þyrptust að húsinu úr öllum áttum og úr öllum landsfjórðungum, til þess að votta því virðingu sína, — jafnvel ást. Það er líka kunnara en frá þurfi að segja, að ferill skólans sem menntastofnunar er miklu Iengri en tilvist þessa húss, — liann verður rakinn um Bessastaði og austur í Skálholt um nokk - ur hundruð ár. Hann er því langsamiega elzta menntastofnun landsins. Hið aldna Menntaskólahús geymir dýrar minningar. Þar var Þjóðfundurinn haldinn, og þar mótmælti Jóu Sigurðsson í mafni konungs og þjóðarinnar, og á marmaratöflu á þverbita í anddyri skólans má lesa orðin „In hac schola Niels R. Finsen didicit':, sem merkja, að þar hafi N.R.F. stundað nám. Þar jttafa ýntsir mætustu menn þjóðarinnar unt aldar bil sótt fræðslu og búið sig undir frekari menntun í þágu þjóðarinnar. Upp Skólabrúna hafa gengið feimnir nýsveinar, en á þrepum þess hafa nýbakaðir stúdentar sungið „Valete, studia“ og „Sjung om studentens lyckliga dag.“ — Ýmsir mestu lærdómsmenn þjóðarinnar hafa stundað þar kennslustörf á þessari. öld, sent íiðin er frá byggingu þess, menn, sem nemendur jafnan minnast með virðingu og þakklæti. — í Samborgaraþættinum i dag verður spjallað lítillega við Einar Magnússon, sent þar hefur stundað kennslu í nteira en 30 ár. Eins ocj að líkum lœtur, eru þeir orðnir cerið margir, nem- endurnir, sem Einar Magnús- son hefur kennt í Menntaskól- anum þessi þrjátíu ár, og ekki hefur hann sjálfur tölu á þeim. En víst er um það, að þeir skipta mörgum þúsundum. Höfundur þessara þátia er í hópi þeirra, sem eitt sinn sátu á skólabekk hjá Einarí Magnús- syni, og það hefur farið eins um hann eins og svo fjölmarga aðra, að sú vinátta, sem tókst með nemanda og kennara „end- ur fyrir löngu“, hefur haldizt og styrkzt fram á þenna dag. Ef til pill er það sennilegasta og gleggsta skýringin á því, að Einar Magnússon er mikilhœfur kennari, sem alltaf hefur náð góðum árangri í starfi sínu, að hann hefur gert sér far um að skilja nemendur, verið vinur þeirra án þess þó að glata á neinn liátt þeirri virðingu, sem nauðsynlegt er, að nemandinn beri til kennara síns. En. ef ég skrifa meira í þessum tón, er ég hræddur um, að iEnar striki það út í próförk, þótt allt. sé þetta satt og rétt, og vendi ég því mínu kvœði í krnss: '' Einar Magnússon er Árhesing- ur, fœddur að Miðfelli í Hruha- mannahreppi 17. marz alda- mótaárið. Hann er því byrjaður á sjötta tugnum, en þaö virðist ■ekki, hafa mikil áhtif á hann, hvorki i fasi né tali, því að hann er einn þeirra vianna, sem ekki virðast eldast, eða er þetta kannske hugarburður gamals nemanda í sambandi við kenn- ara sinn? Foreldrar hans voru Magnús Einarsson, bóndi á Miðjelli, og Sigríður Halldórsdóttir kona hans, frá Neðra-Seli á Landi. Faðir Einars lézt, er hann var á þriðja ári, og 11 ára gamall flyzt hann til bœjarins með móður sinni, og siðan búa þau í húsinu númer 5B við Grund- arstíg, sem segja má, að sé i hjarta gamla austurbœjarins, og enn þann dag í dag telur Einar, að Þingholtin séu hinn raun- verulegi miðdepill bœjarins, og um þaö erum við sammála, hvað sem Vesturbœingar hafa um það að segja. Einar gekk að sjálfsögðu i gamla barnaskólann við Tjörn- ina, stundaði nám hjá Morien Hansen, Siguröi Jónssyni, Hall- grími Jónssyni og fröken Guð- laugu Arason, en fyrsti kennari hans var Helgi Hjörvar. Einar Magnússon tekur að stunda nám í Menntaskólanum árið 1914, í upphafi heimsstvrj- aldarinnar fvrri.' Það er'rétt 'áð sþyrja hariir: hdkkurra ‘ kþtirh- inga. þe’gar hér er köniiö sögú. Segðu okkur eitthvað frá skólaárum þínum. Ég skal fara fljótt yfir sögu. Ég var í skólanum árin 1914— 19, tók 5. og 6. bekk á einum vetri. Bekkjarbræður mínir og samtíðarmenn í skóla voru flestir ágætismenn, sem síðar uðu þjóðkunnir, margir hverjir. Ég man, að með mér voru m. a. í 1. bekk þeir Tómas Jóns- son borgarritari, Sveinn læknir Gunnarssón, Óskar Norðmann stórkaupmaður og Iialldór heit- inn Halldórsson, bankastjóri á Isafirði og bræðurnir Bolli og Sigurður Thoroddsen verkfræð- ingar. í 4. bekk bættust i hópinn Guðmundur Hagalín, Hermann Jónasson, Emil Jóns- son Þórður Eyjólfsson o. fl. Annars var mikið los á skóla-; haldi á styrjaldarárunum, t. d. j féll niður kennsla að nokkru leyti einn veturinn vegna þess, að ekki þótti kleift að hita upp skólahúsið. Kolin voru svo afskaplega dýr, eða um 300 krónur lestin, en það var of- boðslegt fé, miðað við verðlag þá. Ég útskrifaðist stúdent 19 ára, en margir voru yngri. Þessi árgangur hafði á að skipa ó- venjulega ungri stúdentasveit. Emil Jónsson vitamálastjóri var t. d. 16 ára, Sigurður Thorodd- sen á 17. ári, Bolli 18 ára, Óskar Norðmann 17 ára. Ég held, að skýringin á því, að svo ungum mönnum tókst að verða stúd- entar hafi helzt legið í því, að þá lærðu menn miklu meira i barnaskóla. Barnafræðslan er allt önnur nú, og nú virðist það ekkert aðalatriði að læra sem mest. Hvernig stóð á því, að þú fórst guðfræðideild? Ég var eiginlega óráðinn i hvaða menntun ég ætti að afla mér í háskóla. Hins vegar stóð hugur minn ekki til þess að læra lög, læknisfræði, að ég tali ekki um eðlis- eða efna- fræði. En ég kaus guðfræðina, af því að hún er ákaflega menntandi fag. En mest af öllu fýsti mig að fara út. í heim, ungur stúdent. Það varð því úr, að árið 1920 fór ég á segl- skipinu „Harrý“, sem var i. förum fyrir Natan & Olsen, til Noregs. Við tókunv land i Bergen. Ég hafði reiðhjól með mér að heiman, og nú tók ég mig til og hjólaði frá Bergen, um Þelamörk og til Kristjaniu, en svo hét höfuðborg Noregs þá, og þaðaii til Gautaborgar. Þetta tók eitthvað 3 vikur, minnir mig. Sjómcnuska og flakk. í Gautaborg réðist ég sjó- maður á sænskt skip, sem hét „Rana“. Við fórum til Englands, en svo var skipið kyrrsett þar vegna skulda, og þar dvaldi ég næstu sex mánuðina, lengst af i Newcastle við Tyne-fljót. Það yrði of langt mál, ef ég ætti að segja fi'á því öllu, en margt gerðist spauglegt í því. Síðan var ég sendur til Kaupmanna- hafnar. Þar var ég í tvo mán- uði, í febrúar og marz 1921. Svo fékk ég fé, sem ég átti geymt heirna, og fór til Ítalíu í ferðagalsa. Þar flakkaði ég um, og fór fótgangandi alla leið suður til Napoli. Þaðan komst ég yfir til Rúmeníu, sið- an til Konstantinopel, en þar vann ég fyrir mér í einn mán- uð, en tvo í Aþenu. Svq fór ég til Tunis í Norður-Afríku, og þaðan til Antwerpen. Svo fór ég þaðan sem venjulegur ferða- maður til "Hafnar. Á þessum tima mátti heita, að Suður- Evrópa eða Balkanskagi væ-i okkur íslendingum lokaður heimur. Leiðir íslendinga lágu sjaldnast lengra en til Hafnar, Þýzkalands eða Englands. Þeir voru víst ekki margir íslend- ingarnir, sem höfðu komið til Aþenu milli þessa tíma, sem ég var þar á ferðinni og er Tómas Sæmundsson dvaldi þar. Það er víst óhætt að segja, að í vitund íslendinga hafi Suður- Evrópa þá verið fjarlæg sólar- lönd. Hvenær hefst svo kennslan? í apríl 1922 kom ég héiin eftir tæpra tveggja ára flakk, og tek þá til við guðfræðina. Jafnhliða henni byrja ég svo at) kenna við Menntaskólann. Bjarni heitinn Sæmundsson sagði við mig: ,,Þú hefur verið í Grikklandi. Þú getur kennt landafræði.“ Og það varð úr, og nú hef ég kennt við skólann i 31 ár samfleytt. — Árið 1925 lauk ég embættisprófi í guð- fræði, en gerðist aldrei prestur, heldur hélt áfram kennslunni, eins og ég sagði áðan. Lengst af kenndi ég landafræði, en nú er hætt að kenna það fag í skólanum. Etigin Iandafræði? (Þegar hér er komið, verð ég svo hissa, að ég endurtek. spurninguna, því að þetta vissi. ég ekki). Nei, engin landafræði. — og það hefur furðulegar af- leiðingar. Saga og landafræöi eru vitanlega skyld fög, og gott eða jafnvel nauðsynlegt er aö hafa landakort við sögukennslu. Nú kemur það fyrir, að nem- endum er fyrirmunað að geta fundið Dóná á kortinu, og með öllu ókleift, að þekkja sundui Rúmeníu, Búlgaríu og Tékkó- slóvakíu. Hins vegar vita allir hvar Kórea er, vegna blaða- skrifa um stríðið. Og ef manni dytti í hug að biðja suma nem- endur um að sýna sér Mongólíri eða Mansjúríu, þá væri sú bón út í bláinn. Þetta stafar vita- skuld ekki af þvi, að nemendur séu ógreindari enn fyrr. Síður en svo. En það kemur til af þvi, að undir staðan er svo léleg undir menntaskólanámið. Ég skal segja þér hreinskilnislega: Þú myndir ekki kannast viö þig, ef þú kæmir í ’skólann núpa. Sjáðu til dæmis þessa dönsku stíla. Þeir eru úr þeim 3. bekknum, sem skárstur er. (Og ég verð að játa, að þeir eru ekki glæsilegir. Hvernig mega þá hinir lakari vera?) Hvað liefur þú kennt mörgum nemendur? Það hef ég ekki hugmynd um, en þeir hljóta að skipta mörgum þúsundum. Ég hef kennt í Menntaskólanum,' Verzlunarskólanum, Kvenna- skólanum og um árabil við undirbúningsdeild fyrir ungl- inga, sem ætluðu upp í Mennta- skólann. Undirbúningsdeild mín þótti gefast vel, og mínir nem- endur komust yfirleitt upp. En þetta varð til þess, að sam- þykktir voru gerðar æ ofan í æ, einkum af hálfu barnakenn- ara, og leiddu þær m. a. til, að barnaskólarnir tóku sjálfir við undirbúningnum. En það er önnur saga, sem ég rek ekki hér. En ég held, að ég hafi aldrei komið neinum fábjána í skólann. Nú er ekkert sérstakt. inntökupróf í Menntaskólanum. heldur landspróf, sem Mennta- skólinn hefur engin afskipti af. Okkur er meinað að hafa hönu í bagga um það, hvaða nem- endur skuli halda áfram i Menntaskóla. Síðan hefur fólk aukizt í skólann, langt umfram það, sem ætti að vera. Þú ert scm sé ekki ánægður með ástandið. Nei. — Nú virðist vera litið svo á, að allir eigi jafnauðveli með að læra, og keppa beri að því að útskrifa sem flesta stúd- enta, án þess að tryggt sé, að menntun þeirra fái staðizt sanngjarnar fcföíur. Kringúm árið 1937 var tala nemeiida í Menntaskólanum um 220. Nú er hún kringum 500. Þetta er algerlega óeðlileg aukning, og þó er tveim bekkjum færra í. skólanum. Það liggur í hlutar- ins eðli, að meðalkunnátta. stúdenta sem útskrifast er lak- ari en áður var. Ég hygg, að £ minni tíð hafi beztu árgangar skóláns útskrifazt á árunum. 1930—40, enda var nemenda- fjöldi- þá hæfilegur: Þ’éir seir.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.