Vísir - 22.02.1954, Page 2
2
VÍSIR
Mánudaginn 22. febrúar 1954
aimennings.
Mánudagur,
22. febrúar, — 53. dagur árs-
ins.
Flóð
verður næst í Reykjavík kl.
20.11.
Ljósatími
bifreiða og annarra ökutækja
er kl. 17.45—7.40.
Næíurlæknir
er í Slysavarðstofunni, sími
5030.
Næturvörður
er í Reykjavíkur Apóteki, sími
1760.
K.F.U.M.
Biblíulestrarefni: Jóhs. 10,
12—21. Faðir minn elskar mig.
Útvarpið í kvöld:
20.20 Útvarpshljómsveitin;
Þórarinn Guðmundsson stjórn-
ar. 20.40 Um daginn og veginn
(Eggert Þorsteinsson alþm.).
21.00 Einsöngur: Svava Þor-
bjarnard. syngur; Fritz Weiss-
happel aðstoðar. 21.15 Erindi
Súezskurðúrinn (Högni Torfá-
son fréttamaður. 21.45 Erindi:
Gæzluvernd Sameinuðu þjóð-
anna' (Kristján Albertsson
sendiráðunautur). 22.00 Fréttir
og veðurfregnir. — 22.10
Passíusálmur (7). 22.20 Út-
varpssagan: „Salka Valka“ eftir
Halldór Kiljan Laxness; IX.
(Höfundur les). 22.45 Dans- og
dægurlög (plötur). Gengisskráning.
(Söluverð) Kr.
1 bandarískur dollar . . 16.82
1 kanadiskur dollar .. 16.88
100 r.mark V.-Þýzkal. 390.65
1 enskt pund 45.70
100 danskar kr 236.30
100 norskar kr 228.50
100 sænskar kr 315.50
100 finnsk mörk 7.09
100 belg. frankar .... 32.67
1000 franskir frankar .. 46.63
100 svissn. frankar .... 374.50
100 gyllini 430.35
1000 lírur 26.12
Gullgildi krónunnar:
100 gullkrónur = 738.95
(pappírskrónur).
HnMyáta ht. ZÍÍ 7
Lárétt: 1 Mannsnafn, 6 rán-
dýr (flt.), 8 eftir sár, 9 gras, 10
gróður, 12 álit, 13 óhljóð, 14
skýring (skst,), 15 auðnaðist,
16 iðnaðarmaður.
Lóðrétt: 1 Álit, 2 gryfja, 3
.. .stöð, 4 fangamark, 5 fugl, 7
hreyfði, 11 fæði, 12 áætla,
14 á húsi, 15 fangamark.
Lausn á krossgátu nr. 2136.
Lárétt: 1 Mógröf, 6 litla, 8 at,
9 ÓT, 10 dós, 12 atr., 13 UP, 14
AD, 15 eta, 16 svamlí.
Lóðrétt: 1 Mildur, 2 glas, 3
rit, 4 ÖT, 5 flot, 7 atriði, 11 óp,
12 Adam, 14 ata, 15 EV.
rfwwww-w
uvyywvvyvvvwvwwwv^wwwvvvvwu%AA»ws^vwvwwv
UV^.ViVUVWWWUWVWWWWWVWUWVVWWVVWVVrfV^^
WiAMWi
7ZZZZ H /I? ? A D
íwyww
/vwww WW.V/WW
yiysyyi^iy*, /wvrtwvw
ywwLlwvwftíWVVwiAWVVVWWWvniVww,ivn.,vvnjwwswjwflJ'
LnWWWWUUWUWWWWWWWWV'VlflJ »*>
Frá Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Bv. Ingólfur Arnarson land-
aði 15. þ. m. í Reykjavík 198
otnnum af ísfiski, aðallega
þorskl og karfa, og 9.4 tonnum
af lýsi. Skipið fór aftur á veiðar
í fyrradag. Bv. Skúli Magnús-
son er í Reykjavík. Fer á veið-
ar strax og nægilegur mann-
skapur fæst. Bv. Hallveig
Fróðadóttir fór á ísfiskveiðar
13. þ. m. Bv. Jón Þorlákssðn
fór á ísfiskveiðar 12. þ. m. Bv.
Jón Þorláksson fór á ísfiskveið-
ar 12. þ. m. Bv. Þorsteinn Ing-
ólfsson fór á ísfiskveiðar 14. þ.
m. Bv. Pétur Halldórsson fór á
saltfiskveiðar 5. þ. m. Bv. Jón
Baldvinsson fór á saltfiskveiðar
13. þ. m. Bv. Þorkell máni fór á
saltfiskveiðar 6. þ. rri.
Tímaritið Úrval.
Nýtt hefti af Úrvali hefur
borizt blaðinu. Efni þess er m.
a.: f appelsínulundum Spánar,
Áfengi í líkamanum, Sjálfs-
morðsárásir Japan í styrjöld-
inni, Meðal villimanna í Holly-
wood, Að lifa í 45° frosti, Stað-
reyndirnar fyrst. Getum við
skapað líf?, Óttist ekki um
börnin ykkar! Brúðan hennar
Bernadettu (smásaga eftir
Janos Bókay), Steinöldin er
ekki liðin, Réttir dagar á röng-
um stað, Eru dagar hvítra
manna í Afríku taldir? Málsvari
þrælanna, Læknirinn bak við
tjöldin, Að frjósa og þiðna,
Kyntáknið Marilyn Monroe, og
bókin: „Spirit of St. Louis“
eftir Charles A. Lindbergh,
flugkappa.
Sænskt handknattleikslið.
Handknattleiksráði Reykja-
víkur hefur verið veitt leyfi til
þess að fá hingað til landsins
handknattleikslið frá Idrotts-
föreningen Kamraterne í Krist-
ianstad í Svíþjóð, handknatt-
leikslið þetta er nú Svíþjóðar-
meistarar, en sem kunnugt er,
unnu Svíar nýlega heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik
(innanhúss) sem haldin var í
Svíþjóð í jan. sl. Þá kom lið
þetta hingað til landsins fyrir
nokkrum árum. Ef úr þessari
heimsókn verður sem ekki er
fullráðið, kemur sænska hand-
knattleiksliðið hingað síðast í
maí n. k. og keppir þá væntan-
lega bæði úti og inni.
Gullmerki ÍSÍ.
Samþykkti framkvæmda-
stjórn ÍSÍ að veita Hallsteini
Hinrikssyni íþróttakennara í
Hafnarfirði í tilefni af 50 ára
afmælis hans 2. febr. s.l. vegna
langs og heillaríks íþróttastarfs
í Hafnarfirði.
Samnorræn sundkeppni 1954
fer fram frá 15. maí til 15. sept.
í sumar og hefur Sundsamband
íslands allan veg og vanda af
henni.
Norrænt fimleikamót
Knattspyrnufélagi Reykjavíkur
hefur verið veitt leyfi til að
senda fimleikaflokk, á norrænt
fimleikamót sem haldið verð-
ur í Halden í Noregi frá 3. júlí
til 8. júlí í sumar.
Glímudómarar.
Framkvæmdastjóm ÍSÍ, hefir
nýlega borist niðurstöður prófa
er fóru fram að loknu glímu-
dómaranámskeiði G.R.R. á síð-
astliðnum vetri, og hefur fram-
kvæmdastjórnin samþykkt að
veita eftirtöldum mönnum hér-
aðsdómararéttindi í íslenzkri
m wwé íf31? isa cs k testuri. 16
y *{ I A1A4
Sltns 6434
glímu: Hirti Elíassyni, Ólafi H.
Guðmundssyni, Ingimar Sig-
tryggssyni, Sigfúsi Ingimundar-
syni, Sæmundi Sigurtryggva-
syni og Einar St. Einarssyni.
Landsflokkaglíman og
Íslandsglíman 1954
hafa verið ákveðnar á þeim
tíma sem hér segir, samkvæmt
tillögu Glímuráðs Reykjavíkur.
Landsflokkaglíman 2. apríl n.
k. og Íslandsglíman 23. maí n.
k. og hefur Glímuráði Reykja-
víkur verið falið að sjá um
þegsi bæði glíraumót.
Hvar eru skinin?
Eimskip: Brúarfoss fer til
Akraness í dag, Vestmanna-
un til Akraness, Vestmanna-
eyja, Newcastle, Boulogne og
Hamborgar. Dettifoss fór frá
Hamborg þ. 20. til Warne-
múnde og Ventspiels. Fjallfoss
fór frá Hamborg á laugardag til
Antwerpen, Rotterdam, Hull
og Reykjavíkur. Goðafoss er
væntanlega kominn til New
Yorlt. Gullfoss fór frá Reykjavík
kl. 5 á laugardag til Leith og
Kaupmannahafnar. Lagarfoss
kom til Reykjavíkur á föstudag
frá Keflavík. Reykjafoss er í
Hamborg. Selfoss fór frá Leith
á föstudag til Reykjavíkur.
Tröllafoss fór frá Reykjavík á
fimmtudag til New York.
Tungufoss fór frá Reykjavík
10. þ. m. til Recife, Sao Salva-
dor, Rio de Janeiro og Santos.
Veðrið í morgun:
Reykjavík S 4, 0. Stykkis-
hólmur SV 6, 1. Galtarviti SSV
4, 1. Blönduósi SSV 6, 1. Akur-
eyri S 6, 1. Grímsstaðir S 4,
-f-3. Raufarhöfn SSA 5, 2.
Dalatangi S 4, 1. Horn í Homa-
firði SV 5, 2. Stórhöfði í Vest-
mannaeyjum SV 8, 2. Þingvell-
ir SV 2, 0. Keflavíkurflugvöll-
ur SSV 3, 2.
Veðurhorfur, Faxaflói: Suð-
vestan og síðan vestan stinn-
ingskaldi með hvössum éljum.
Hekla
millilandaflugvél • Loftleiða,
kom hingað kl. 10 í morgun frá
Stafangri, og hélt áfram vestur
um haf eftir tveggja tíma við-
dvöl.
Hlutavelta Hringsins.
Mikill fjöldi manns kom í gær
í Listamannaskálann á Hluta-
veltu Hringsins og var þar jöfn
og mikil aðsókn allan daginn
og fram etfir kvöldi. — Eru
Hringkonur hinar ánægðustu
yfir árangrinum. — Ekki verð- j
ur kunnugt um hve mikið fé
hefur komið inn fyrr en á morg-
un og þá verða birt úrslitin í
happdrætti hlutaveltunnar.
Merkjasala KSVÍ
í gær og fyrradag gekk mjÖg
að óskum. Kaffisala fór fram
í gær á vegum KSVÍ í Sjálf
stæðishúsinu og var aðsókn
mikil. Lúðrasveit Reykjavíkur;
í aðalkaffitímanum inni í hús-
inu, því að veður vegna þótti ~
ekki heppilegt að leika á Aust-
urvelli, eins og ráðgert hafði
erið. — Ekki er enn kunnugt
um árangurinn af merkjasöl-1
unni.
I
Togarar.
Jón Þorláksson kom inn f
gærmorgun með brotið spil. —
Af]i hans var um 100 smál., §
enda ekki verið lengí úti.
Harðfiskur á kvöídhorð-
ið. Fæst í næstu matvöru-
búð.
Harðfisksalan
DAGLEGA NYl'T!
Vínarpylsur
Medisterpylsur
Kjötfars
Fiskfars
Laugaveg 78 <?ími 1638
Smurt braöð og sriittur 4
til allan daginn. Vinsam- jj
lega pantið tímanlega, ef
um stóra pantanir er að
ræða.
M$öt& GrmssBaa&ti
Snorrabraut 56,
símar 2853, 80253.
Nesveg 33, sími 82653.
Melhaga 2, sími 82936.
Dansleikur
Hljómsveit Kristjáns Kristjánssonar leikur.
Með hljómsveitinni leikur hinn bráðsnjalli jazzsöngvari \
og saxofónleikari AL TIMOTIIY.
Seinustu forvöð að heyra þenna snjalla hljómlistar-
mann.
Heildsali
óskar eftir fjársterkum manni í félag við sig. Hefur skrif-
stofur og geymslupláss við höfnina, ennfremur síma. —
Maður, sem hefur umráð yfir pósthólfi gengur fyrir. Með
öll tilboð verður farið sem trúnaðarmál.
Tilboð merkt: „Viðskipti við útlönd 472“, sendist
Vísi sem fyrst.
Æðalimmslmir
Gíímuráðs Reykjavíkur
verður haldinn í Félagsheimili K.R. við Kaplaskjólsveg
mánud. 1. marz n.k. kl. 8,30 e.h.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Glímuráð Reykjavíkur.
Matreiðslukona
óskast á Hótel Sigurðar Skúlasonar í Stykkishólmi. —
Eigandinn verður til viðtals á Njálsgötu 98 í dag
mánudag frá kl. 4—8 e.h., sími 5067.
i
Móðir mín,
Marta Þórarinsdóttír
andaðist sunnudaginn 21. febrúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Helga Viggósdóttir.
/