Vísir - 22.03.1954, Page 8
VlSIR er ódýrasta blaSið og bó bað fjöl-
breyttasta. — Hringið í síma 1S60 ®g
gerist áskrifendur.
WISI
Þeir sem gerast kaupendur VlSIS eftir
10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis tií
mánaðamóta. — SLmi 1680.
Mánudagiim 22. marz 1954.
Skíðamól iteykjavíkur
* r
Armann átti báða Reykjavíkur-
meistarana í svigi.
— en það voru þau Stefán Kristjáns-
son og Arnheiður Ámadóttir.
Skíðamót Reykjavíkur hófst í
gær með svigkeppni karla,
kvenna og drengja í ölluni
flokkum. Keppnin £ór fram í
Hamragili vi ðKolviðarhóI og
var bæði veður og færð góð.
Keppendur í mótinu voru
samtals um 40 og urðu þau
Stefán Kristjánsson og Arnheið
ur Árnadóttir Reykjavíkur-
meistarar, en þau eru bæði Ár-
menningar.
Úrslit í einstökum flokkum
urðu sem hér segir:
A-flokkur karla.
1. Stefán Kristjánss. Á. 95.8 sek.
2. Guðni Sigfússon Í.R. 97.3 —
3. Eysteinn Þórðars. Í.R. 98.1 —
4. Ásgeir Eyjólfsson Áf 101.6 — ■
í þriggja manna sveitakeppni
sigraði sveit Í.R. á 311.0 s.ek.
Næst varð sveit Ármanns á
314.3 sek og þriðja í röðinni
sveit K.R. á 380.8 sek.
B-flokkur karla.
lJPétur Antonsson Val 93.2 sek.
2. Matthías Sveinsson Á. 96.0 —
3, Jakob Albertss. Í.R. 101.5 —
C-flokkur karla.
1. Kolbeinn Ólafss. Á. 86.2 sek.
2. Haraldur Árnas. Í.R. 94.5 —
3. Óttar Viðar Á. 99.5 —
Kvennaflokkur.
1. Arnheiður Árnad. Á. 64.9 sek.
2Jngibjörg Árnad. Á. 72.3 —
3. Hjörd. Sigurðard. ÍR. 88.6 —
Drengjaflokkur.
1. Svanb. Þórðars. Í.R. 46.4 sek.
2. Þorb. Eysteinsson Í.R. 52.5 —-
3. Leif Gíslason K.R. 58.7 —
Mótið heldur væntanlega á-
fram um næstu helgi og verður
þá kepþt í stórsvigi svo fremi
sem snjór og veður leyfa. Sú
keppni fer að öllu forfallalausu
fram í Jósefsdal.
Þetta er Gísli Magnússon
píanóleikari, sem heldur hljóm-
leika r. morgun og miðvikudag
í Austurbæjarbíó.
Danslagakeppni SliT:
jt
/Utavísa hestamannsins" og
,Ó, Stína " komust í úrslit í
undankeppni.
Um þessa helgi fór fram fyrri „Fornólf"
hluti í undankeppni um beztu
gömlu og nýju danslögin, sem
SKT efnir til.
Eins og Vísir sagði frá á sín-
um tíma, bárust alls 135 lög til
keppninnar, en þar af komu
34 til greina. Nú hafa 17 þeirra
verið leikin, en hinn helmingur
inn verður leikinn í GT-húsinu
um næstu helgi.
Af lögum við gömlu dansana
þóttu þessi fjögur bezt í undan-
keppninni: „Á Hveravöllum“,
eftir „Huldu“. Göngulag“, eftir
„813“. „Ómar vorsins“, eftir
GÚN6AR
Lítill afi á Sifðurnesjum, enda
ekki róið suns staðar.
Afli Suðurnesjabáta var lítill
um helgina, enda ekki róið
sums staðar.
Línubátar, sem gerðir eru út
frá Keflavík, reru ekki í gasr,
né heldur í fyrradag. Afli netja
báta var lítilfjörlegur, að því
er fréttamaður Vísis tjáði blað-
inu í morgun, meðalaflinn 2—4
lestir. f dag voru allir bátar á
sjó, enda gott sjóveður, norðan
kaldi. M.s. Dísarfell lestaði fiski
Eldor við
Hjólb arðann.
Um hádegið á laugardaginn
var slökkviliSlj kvatí að Hjól-
fearðanum á Ilvsrfisgötu.
Hafði þar kvi’mað í ónýtum
hjólbörðum og BJru gúmmíi úti
á bak við húdT, en skemmdir
urðu engar.
Ráðstjórnin íúrrneska hefur
sent 3 mótmrlr.rrðsending-
undangengna 3 daga til rík-
isstjórna N.Æ.-ríkja, varð-
andi erlcndar h rrstöðvar í
löndum b:::rrr., b. e. Hol-
lands, GriLLirnds .cg Tyrk-
lands. ”**!'!
mjöl í gær og í nótt, en Detti-
foss er nú að lesta freðfisk.
Sandgerðisbátar reru ekki í
gær, því að ekki er róið á sunnu
dögum á vertíðinni eftir 15.
marz. Þeir reru heldur ekki á
laugardag. í dag eru allir bátar
þaðan á sjó.
Hins vegar voru Grindavík-
urbátar á sjó í gær. Af línu-
bátum vár Vonin frá Grenivík
hæst með IIV2 lest, en afli var
yfirleitt jafn, um 10 lestir á
línubát. Netjabátar öfluðu illa,
en meðalafli mun hafa verið
tæpar 3 lestir á bát, en þar af
fór eitthvað í fiskimjölsvinnslu,
fiskurinn gamall í netunum.
Vestmannaeyjafréttaritari
Vísis kvaðst hafa heldur léleg-
ar fréttir að segja í morgun.
Sumir bátar voru að vísu með
dágóðan afla, en mest var þetta
þriggja nátta fiskur í netunum,
og þar af leiðandi slæmur fisk-
ur, sem ugglaust fer í fiski-
mjölsverksmiðju. Hæst mun
Gullborg hafa verið, en hún
fékk um 2500 fiska. í dag eru
allir bátar á sjó, nema fjórir,
sem eru í landi meðan verið er
að greiða úr netjaflækjum og
dyttað að veiðaríærum.
og „Ástavísa hesta-
mannsins“, eftir „Fák“.
Af nýju danslögunum þóttu
þessi bezt: „Kom þú til mín“,
eftir „Förumann“. „Brúnaljósin
brúnu“, eftir „Morgun". „Dóra
litla“, eftir „38“, og „Ó Stína“,
eftir „Plútó“.
í dómnefnd keppninnar eru
þeir Carl Billich, Þorvaldur
Steingrímsson og Bjarni Böð-
varsson.
Lögreglufréttir:
Um miðjan dag á föstudag,
kom lögreglan tveimur ungum
drengjum til hjálpar, sem voru
ósjálfbjarga í Tjörninni.
Höfðu drengirnir dottið í
Tjörnina, en þegar þeir ætluðu
að bjarga sér til lands sátu þeir
fastir í leðju og gátu sig hvergi
hreyft. Kom lögreglan drengj-
unum til hjálpar og flutti þá í
land.
Þekkti liöfuðklútinn sinn.
Á föstudagskvöld kom ame-
rísk kona á lögreglustöðina og
skýrði frá því að sér hefði
horfið fyrir þremur mánuðum
mjög sérlcennilegur höfuðklút-
ur. En þá um kvöldið þegar hún
var á ferð í miðbænum þekkti
1 hún klútinn á höfði stúlku sem
þar var á ferð. Lögreglumenn
fóru ásamt hinni erlendu konu
að leita klútsins, en ekki er
I Vísi kunnugt hvern árangur
hún bar.
Ársþingi iðnreke
lauk í gær.
Síðasti fundur ársþings iðn-
rekenda var haldinn í gær. —
Voru þá rædd tollamál, láns-
fjármál, útfluíningsmál o fl.
Meðíylgjandi tillögur voru
m. a. samþykktar á þinginu:
Utanríkisviðskipti.
Ársþing iðnrekenda 1954 skor
ar á ríkisstjórnina að hlutasí til
um, að fulltrúi frá F.Í.I. verði
ávallt í nefndum þeim, sem
kosnar verða á hverjum tírr.a
til að semja um viðskipti við
erlend ríki.
Iðnaðarskýrslur.
Ársþingið lýsir þakklæti til
Hagstofu íslands fyrir söfnun
og útgáfu á skýrslum um ís-
lenzka iðnaðarframleiðslu. Er
þess fastlega vænzt að áfram-
hald verði á reglulegri útgáfu
skýrslnanna a. m. k. á þr'ggja
ára fresti.
Jafnframt vill ársþingið vekja.
athygli á þeim mikla fróðleik
um þróun íslenzks iðnaðar, sem
í skýrslum þessum felst og hvet
ur ráðamenn þjóðarinnar til að
kynna sér, hversu ríkan þátt
iðnaðurinn á nú í íslenzku at-
hafnalífi.
Iðnaðarbankinn.
Ársþingið fagnar því, hve
rekstur Iðnaðarbankans hefur
gengið að óskum.
Jafnframt átelur ársþingið
harðlega þann seinagang, sem
orðið hefur á 15 millj. króna
ríkisláninu til stofnunarinnar
og telur knýjandi nauðsyn til
þess að framkvæmd verði á-
kvörðun síðasta Alþingis, þar
sem ríkisstjórninni var veitt
heimild til lántöku vegna bar.k-
ans.
Gegnir furðu að síðan Alþingi
veitti þessa heimild, sem ekki
fæst notuð, hefur verið rætt uni
að samþykkja vegna einkaíyr-
irtækja ábyrgðir, margfaldar að
upphæð við hina fyrirhuguðu
lántöku vegna Iðnaðarbankans.
Útflutningur iðnaðarvara.
Ársþingið telur, að það hljóti
að vera höfuðstefna þjóðarinn-
ar í atvinnumálum, að fram-
leiðsla hennar til útflutnings
verði sem mest fullunnar iðnað-
arvörur og neyzluvörur, sem
vinni sér markað erlendis und-
ir íslenzkum vörumerkjum.
Beint samband við neytandann.
er sá traustasti grundvöllur und
ir öruggan markað, sem á verð-
ur kosið. Ein hagstæðasta leið-
in að slíku marki er sú kynn-
ingarstarfsemi, er fer fram á
vörusýningum víða um heim.
Með þátttöku í sýningu í
Brússel er hér brotin ný braut,
sem ber að fagna og vænta góðs
árangurs af.
Nokkrar fleiri ályktanir voru
gerðar og verður þeirra síðar
getið.
Að loknum þingstörfum þakk
aði formaður Iðnrekendafélags
ins, Kristján Jóh. Kristjánsson,
þingfulltrúum fyrir störf þeirra
á þinginu, lýsti ánægju sinni yf-
ir auknum skilningi stjórnvalda
á málefnum iðnaðarins, flutti
kveðju og árnaðaróskir frá for-
seta íslands, herra Ásgeiri Ás-
geirssyni og sagði þinginu slitið..
íimm ölvaiir bílstjórar leada í
árekstrum um helgina
- en sá sjöttl Senti i áflogum.
Úrslitin
Harðar og Gunn-
geirs í
Nú dregur til úrslita í bridge-
keppni Bridgefélagsins og er að
eins ein umferð eftir, sem spil-
uð verður í kvöld.
Verður úrslitasennan á milli
sveita Harðar og Gunngeirs,
sem nú eru orðnar sýnu efstar
og sveit Harðar þó einu stigi
hærri.
Núna um helgina voru sex
ölvaðir bifreiðasjórar hand-
teknir, sem allir jhöfðu lent í
meir eða minna harkalegum á-
rekstrum, nema einn, en sá
hafði lent í áflogum.
-V; ' ; ! ■ t
Fyrsti áreksturinn var á
laugardagskvöldið á ellefta tím-
anum. Var lögreglunni tilkynnt
að bifreið hefði verið ekið á
rafmagnsstaur við Bústaðaveg
og áreksturinn það harður að
raflínur slitnuðu af staurnum
en bíllinn sat þess í stað fastur
þangað til kranabíll var
fenginn til þess að losa hann.
t Var bíllinn mikið skemmdur.
Við athugun kom í ljós, að
ökuþórinn var undir áhrifum
gfengis.
Seinna þessa sömu nótt hand-
tók lögreglan tvo aðra bifreið-
arstjóra, sem báðir höfðu lent
í árekstrum, en hvorugur á-
rekstranna var þó harður og
| ekki verulegar skemmdir á
j farartækjunum.
Um sexlevtið í gær hafði ölv-
! aður maður komið a’:andi að
■ húsi einu hér í bænum, lé+ ó-
friðlega og lenti þar í 'handa-
I lögmáli við húsverja. Var lög-
reglan fengin til þess að skakka
leikinn og handtók hún hinn
öldrukkna bifreiðarstjóra.
í nótt varð mjög harkalegur
árekstur milli tveggja bifreiða
sunnarlega á Suðurgötu og
lentu þar saman sendiferðabíll
og jeppi. Báðar . bifreiðamar
skemmdust svo mjög að þær
mega heita ónýtar eftir því sem
sjónarvottar töldu. Kona sem
var farþegi í annarri bifreið-
inni slasaðist og varð að flytja
hana til læknis til aðgerðar.
Sjötta ölvunartilfellið við
akstur var einnig í nótt, er ölv-
aður bifreiðarstjóri ók á ljósa-
staur, en hraðaði sér að svo
búnu burt. Hafin var leit að
manninum og fannst hann eftir
nokkra stund. Hann játaði að
hafa verið ölvaður.
Sir Ralph Stevenson sendi-
herra Breta í Kairo hefur
tvívegis síðan á laugardag
rætt við utanríkisráðherra
Egyptalands um árásirnar á
brezka hermenn á Suezeiði,
en þær hafa verið tíðar
að uudanförnu. S.I. föstudag
ræddi Sir Ralph við Naguib
forseta.