Vísir - 02.04.1954, Blaðsíða 4
VISIB
Föstudaginn 2. apríl 1954.
D A G B L A D
Ritstjóri: Hersteinn Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónssoa.
Skrifstofur: Ingólfsstræti 3.
Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR H.F.
Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm línur).
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
VÍÐS JÁ1
VISIS:
„Amerísktir áróiur".
TT'ins og vænta mátti hljóp það ónotalega fyrir hjartað á
Þjóðvilja-piltunum, þegar sagt var frá því hér í blaðinu
á dögunum, að loftbelgur með áróðursflugritum gegn einræðis-
klíkunni í Kreml hefði borist vestur yfir járntjald. „Föður-
landsást" kommúnista er jafnan viðkvæm og vörn þeirra fyrir
hina rússnesku trú stjórnast meir af tilfinningum en vitsmun-
um. Þess vegna eru þeir þess ávallt albúnir, að ganga í berhögg
við heilbrigða skynsemi, neita staðreyndum og hagræða sann-
leikanum eftir því sem bezt hentar hinum rússneska málstað
hverju sinni. í samræmi við þetta hefur sú ,,lína“ verið gefin
af þeim, sem fyrir þá hugsa, að hvenær sem einhverjar fregnir
berist að austan um óánægju rússneskra borgara með ríkjandi
þjóðskipulag, þá skuli það heita „amerískur áróður“.
Þegar Waltin ritaði bókina „Out of the night“, sem í ís-
lenzkri þýðingu heitir „Úr álögum“, var sá boðskapur látinn
út ganga, að maður þessi hefði aldrei verið til, og bókin væri
uppspuni eftir amerískt áróðursskáld. Þegar Kravchenko gaf
út hina stórmerku sjálfsævisögu. sína „Ég kaus frelsið“, sem
mun vera einhver allra sannasta og hlutlausasta lýsing á
harðstjórninni í „sæluríki kommúnismans“, sem til er, voru
málgögn Rússa hvarvetna látin hamra á því, að þessi maður
væri ekki til — Bandaríkjamenn hefðu skáldað þetta allt. En
um leið og reynt hefur verið að telja fólki trú um þessa fjar-
stæðu, hafa Rússar látið njósnara sína leita að manninum til
þess að koma honum fyrir kattarnef! Jafnskjótt og hann flýði
og hætti störfum í rússnesku verzlunarnefndinni og tók að
rita bókina bjó hann „við stöðugar ofsóknir og lífshættu, varð
að fara frá borg til borgar, skipta iðulega um gistihús og bú-
staði“, ganga undir gerfinöfnum og látast vera af ýmsum þjóð-
ernum, til þess að blekkja morðvargana, sem alltaf voru á
hælum hans.
Bók Kravchenkos hefur haft þau áhrif, að milljónir manna
víðsvegar um heim hafa gerst virkir þátttakendur í baráttunni
gegn því böli, sem hið kommúnistiska einræði hefur leitt yfir
fjölda þjóða. Hún hefur aukið skilning fólks á þeim ógnum,
sem milljónir saklausra manna og kvenna verða að þola í
fangabúðum og þrælanýlendum harðstjórnarinnar í Kreml.
Og það er vonlaust verk fyrir málpípur Rússa að reyna að
blekkja vitiborið fólk með því, að þetta sé amerískur áróður,
því frá sjálfum höfuðstöðvunum í Moskvu hafa þrásinnis komið
fregnir, bæði í útvarpi og blöðum, sem sanna það, að höfundar
framannefndra bóka fara með rétt mál. Vilja ekki Þjóðvilja-
piltarnir taka saman fyrir lesendur sína, hvað margir ráð-
herrar, miðstjórnarforsetar, hershöfðingjar, marskálkar og
aðrir hátt settir embættismenn hafa veið teknir af lífi sem
landráðamenn og svikarar í Rússlandi síðan kommúnistar
komu þar til valda? Og hvað hafa margir verið náðaðir, sem
fengist hafa við „meinlaust gaman“, eins og grjótkastið á Al-
þingishúsið hérna um árið heitir á máli Þjóðviljans?
Allir, sem ekki eru blindaðir, eða vísvitandi ofurseldir,
hinu austræna ógnarvaldi, munu eiga auðvelt með að trúa þvi
að þjóð, sem við sííkt harðræði hefur búið um áratugi, muni
ekki vera allskostar ánægð með hlutskipti sitt og sé jafnvel
farin að hugsa um að hrinda af sér okinu. Og að foringjar
þeirra samtaka, sem til uppreistar kynnu að hugsa, noti flugrit
til þess að koma boðum sínum til fólksins, er síður en svo
ótrúleg saga, þótt umboðsmenn Rússa við Þjóðviljann telji að
þeir, sem slíku trúa, séu með delerium tremens. Það er gömul
saga, að þeir, sem sjálfir eru bilaðir á vitsmunum, þykjast
vera alheilbrigðir, en halda að allir aðrir séu geggjaðir.
Sú saga hefur nú einnig borizt að austan, að áskrifendum
rússneskrar alfræðaorðabókar hafi fyrir nokkru verið sendar
10 eða 20 prentaðar blaðsíður um Beringshafið, í sama broti
og bókin, með fyrirmælum um að skera úr henni
jafnmargar síður, sem fjalla um hinn aftekna fyrrverandi dánu-
mann, Bería, og líma þennan fróðleik inn í staðinn. Hans1!
áður blessaða nafn og allt sem á hann minnir skal nú afmást úr
vitund þjóðarinnar, því það kom allt í einu upp úr dúrnum við
dauða föður Stalíns, að Bería var svikari. En af því að framtíðin
má ekki vita það, að þessi svikari hafi fæðst á hinni helgu grund
kommúnismans, þá verður nafn hans að afmást og gleymast, og
ef einhverjir vestrænir aulabárðar „með delerium tremens*
skyldu fara að tala um þennan mann sem Rússa, er vitanlega
ekki til viS því nema eitt sjálfsagt svar — að hann hafi aldrei
verið annað en amerískur áróður! ýcjck -
Harðar depiur i Japan
um !ög, sem bairna kermiírum þátttöku
í stjornmálastaffsemL
Japan er eitt þeirra landa,
þar sem kommúnistar hafa
ekkert tækifæri látið ónotað íil
þess að koma sínum mönnum
að í ýmsum stofnunum — og
ekki sízt skólum landsins.
Stjórn landsins gerir sér ljósa
hættuna, sem af þessu stafar,
og hefur gripið til róttækra
ráðstafana til þess að koma í
veg fyrir, að þeim haldist þetta
uppi.
Lagði stjórnin tvö lagafrum-
vörp fyfir þingið í þessu skyni
og samkvæmt þeim eru fram-
vegis þung viðurlög við því, ef
kennarar og starfsmenn upp-
eldis- og menntastofnana taka
þátt í stjórnmálastarfsemi. Lög-
in mættu harðri mótspyrnu, á
þeim gi’undvelli, að með þeim!
væri brotið í bága við ákvæði
um menntunax-frelsi í stjórn-
arskránni sem kom til sögunn-
ar eftir seinni heimsstyrjöldina.
Flokkar þeir, sem standa að
stjói’n Shigeru Yoshida greiddu ';
atkvæði með frumvörpunum
(256), en kommúnistar og jafn- j
aðarmenn gegn (137). Yfir 70
þingmenn greiddu ekki at-j
kvæði. Frumvörpin voru. af-
greidd til efri deildar.
Refsiákvæðin.
Samkvæmt ákvæðum frum-
varpsins er hægt að dæma
hvern þann kennai’a, sem í
kennslustund eða utan vinnur
í þágu pólitísks málefnis, í eins
árs fangelsi og 30.000 yena sekt
(svarar til 84 dollara), en það
mun vera um tveggja mánaða
meðalkaup japansks kennai’a.
— Sömu ákvæði gilda um þá
meðlimi skólafélaga o. s. frv.,
sem reyna að hafa áhrif á aðra
nemendur til þess að taka af-
stöðu með eða móíi stjómmála-
flokkunum.
neðri deild þingsins, bæði á
nefndafundum og er þau voru
tekin fyrir á þingfundi og olli
það einkum deilum, að sumum
þótti fulllangt gengið, eins og
fi’umvörpin komu frá stjórn-
inni. Sættu harði'i mótspyrnu
blaða- og ekki eing'öngu rót-
tæku blaðanna, heldur blað-
anna í Tokio yfii’leitt. Blaðið
Ashai sagði, að engin lög síðan
Japan fékk sjálfstæði sitt aftui’,
legðu slikar þömlur á nienn í
öðrum stéttum, sem nú á
kennai’astéttina, og bætti því
við, að stjórnin myndi aldrei
geta fengið þjóðina -til þess að
samþykkja gei’ðir sínar í þessu
máli.
500.000 kennarar
eru í kennarasambandinu og
þeir áforma að halda áfi’am
mótmælafundum og segjast
vera staðráðnir í að knýja
stjórnina til undanhalds í mál-
inu.
Sex Sierfylki.
Tilkynnt var í Tokio fyrir
nokkrum dögum, að komið yrði
á fót landvarnaliði, sem í væi’u
sex hei-fylki, búin bandarísk-
um vopnum af nýjustu gei’ð.
Viðurværi Islend-
inga betra en flestra
þjóða annarra.
Þjóðaragi nauðsyn.
Talið er að hér sé um að
ræða hluta stórrar áætlunar
ríkisstjórnarinnar til þess að
hei’ða eftirlit og koma á r.uuð-
synlegum aga með þjóðinni,
eftir upplausnina sem kom í
kjölfar styrjaldarinnar, um leið
og þjóðin endurvopnast með
aðstoð Bandaríkjanna. En það
er sagt vera ekki sízt vegna
kommúnistahættunnar, sem
japanska stjórnin telur nauð-
synlegt að endurvígbúnaður sé
hafinn.
Kennarasambandið
á bandi kommúnista.
Með ákvæðunum varðandi i
félög nemenda og kennara mun
vera sér?taklega átt við. jap-
angka kennarasambar.dið, sem
er talið vera rnjög undir kom-
múnjstískum áhrifum. Kenn-
arasambandið.Kefir jafnvtl not-
að skólafrídaga til þess að æsa
nemendUr upp gegn stjórninni.
Stundum höfðu kennararnir
þann hátt á, að kenna á sunnu-
dögum, en gera mánudaginn að
frídegi, til þess að halda „ínót-!
mælafundi“. j
Harðar umræður.
Lögin voru mjög umdeild íl
Hagskýrslur sanieinuðu þjóð-
anna liafa birt niðurstöður
• rannsókna í 40 löndum á mat-
ai’æði manna.
Þar sést t. d. hve margar hita-
einixxgar hinar ýmsu þjóðir fá
í daglegri fæðu sinni. í eftirfar-
andi töflu er þjóðunum i-aðað
niður eftir hitaeiningafjölda,
sem íbúarnir hafa aðgang að
daglega:
3000 Jiitaciningar eða rneira.
Þjóðir eftirtalinna landa hafa
í daglegi’i fæðu sinni 3000 hita-
einingar eða meira: írland,
Nýja Sjáland, Finnland, Ástr-
alía, ísland, Danmörk, Ai’gent-
ína, Sviss, Bandaríkin, Svíþjóð,
Uruguay, Noregur og Kanada.
2800—2799 lixitaeiningar:
Bretland, Belgía, Luxembui:g
og Holland.
2400—2599 hitaeiningar:
Tyi’kland, ísrael, Cyprus,
Griddland, Ítalía og Portúgal.
2000—2199 þitaeiningar:
Ceylon, Japan, Indó-Kína og
Pakistan.
Minna en 2000 hitaeiningar
hafa bjóðir Burma og Indlands.
í öllum 16 löndum Evrópu
fyrir utan Frakkland, ísland
og Svíþjóð, hei'ir kjötneyzla
minnkað til muna síðan fyrir
heimsstyrjöidina. Sumstaðar
hefir kjötneyzlan minnkað
furðulega mikið, en þar hefir
þá mjólkurneyzlan aukizt . að
miklum mun.
Stórskctalið uppreistar-
manna Jhefur haldið uppi
ákafri skothríð á Dienbienfu.
Varnarlið Frakka svarar í
sömu mynt og hefur náð
stöðvum, er 'það niissti í gær.
Umi’æða úm kjarnofku-
sprengjur verífur í neðri
málstofu brezka þingsinss á
mánudag.
jr
Uthiutun styrkja
til skálda og lista-
manna.
Útlilutað hefir verið styrkj-
um til skálda, rrthöfunda og
listamanna.
15.000 kr. hlutu: Ásgrímur
Jónsson, Davíð Stefánsson,
Guðm. G. Hagalín, Halldór K.
Laxness, Jakob Thoi’arensen,
Jóhannes S. Kjarval, Jón
Stefánsson, Kristmann Guð-
mundsson, Tómas Guðmunds-
son, Þórbergur Þói’ðai’son.
9000 kr. hlutu: Ásmundur
Sveinsson, Elinborg Lámsdótt-
ir, Finnur Jónsson, Guðm. Böð-
varsson, Guðm. Daníelsson,
Guðm. Einarsson frá Miðdal,
Gunnlaugur Blöndal, Gunn-
laugur Scheving, Jóhannes úr
Kötlum, Jón Björnsson, Jón
Engilberts, Jón Þorleifsson,
Kristín Jónsdóttir, Magnús Ás-
geirsson, Ólafur Jóh. Sigui’ðs-
son, Ríkarður Jónsson, Sigur-
jón Jónsson, Sigurjón Ólafsson,
Stéinn Steinarr, Sveinn Þórar-
insson, Þorsteinn Jónsson.
5400 kr. hlutu: Eggert Guð-
mundsson, Friðrik Á. Brekkan,
Guðm. Frímann, Guðmundur
Ingi, Heiðrekur Guðmundsson,
Jakobína Johnson, Jóhann
Briem, Jón Leifs, Jón Nordal,
Karl Ó. Runólfsson, Páll ís-
ólfsson, Sigurður Einarsson,
Sigurður Sigurðsson, Sigurður
Þórðarson, Snorri Arinbjarnar,
Snorri Hjartarson, Stefán Jóns-
son, Svavar Guðnason, Vil-
hjálmur S. Vilhjálmsson, Þor-
valdur Skúlason, Þórunn Elfa
Magnúsdóttir,
3600 kr. hlutu: Árni Björns-
son, Árni Kirstjánsson, Björn
Ólafsson, Brynjólfur Jóhannes-
son, Elías Mar, Eyþór Stefáns-
son, Guðrún Árnadóttir frá
Lundi. Halldór Sigurðsson
(Gunnar Dal), Hallgrímur
Helgason, Helgi Pálsson, Hösk-
uldur Bjöx-nsson, Jakob Jóns-
son, Jón úr Vör, Jón Þórarins-
son, Jórunn Viðar, Kristjan
Einarsson frá Djúpalæk, Krist-
inn Pétui’sson, Magnús Á.
Árnason, Ólafur Túbals, Rögn-
valdur Sigurjónsson, Sigurður
Helgason, Tryggvi Sveinbjörns-
son, Þórarinn Jónsson, Þor-
steinn Valdimarsson, Ævar
Kvaran.
3000 kr. hlutu: Agnar Þórð-
arson, Ármann Kr. Einarsson,
Björn Blöndal, Emilía Jón-
asdóttir, Friðfinnur Guðjóns-
son, Gísli Ólafsson, Gretar Fells,
Guðrún Indriðadóttir, Gunnar
Gunnai’sson yngri, Gunnfnður
Jónsdóttir, Gunnþórunn Hall-
dórsdóttir, Halldór Helgason,
Helgi Valtýsson, Hjörleifur Sig-
urðsson, Jónas Jakobsson,
Kjartan Guðjónsson, Kristján
Davíðsson, Ólöf Pálsdóttir, Sig-
urður Róbertsson, Steingevður
Guðmundsdóttir, Veturliði
Gunnarsson, Vilhjálmur frá
Skáholti, Þóroddur Guð-
mundsson, Þorsteinn Jónsson
frá Úlfsstöðum.
f úthlutunarnefndinni áttu.
sæti: Þor^teinn Þoi;steinsson
sýslumaður, formaður, Þorkell
Jóhannesson prófessor, ritari,
Kiyp! gull og sllfsif