Vísir - 13.04.1954, Síða 1
44. árg.
Þriðjudaginn 13. apríl 1954.
85. tbl.
SksttaáSagnlits
Skattstjórinn í Reykjavík
hefir auglýst að i>eir sem telja
sig eiga rétt til skattalækkunar
samkvæmt nýbreyttri skatta-
löggjöf, verði að hafa komið
upplýsingum um ;,>að á fram-
færi við Skatíastofuna í síðasta
lagi 22. t). m.
Jafnframt þessu auglýsir
Skattstjórinn helztu atriði eða
ákvæði hinna nýju skattalaga,
sem fela í sér auknar frádrátt-
arheimildir og eru þess eðlis að
frekari upplýsinga er þörf en
í framtali greinir.
Þarna er um 9 greinar að
ræða og fjalla þær um skatt-
frelsi sparifjár, húsaleigufrá-
drátt, iðgjöld á lífsábyrgðum,
iðgjöld af ólögboðnum lífeyris-
trygfingum, ferðakostnað, hlífð
arfatakostnað fiskimanna, frá-
drátt vegna stofnunar heimilis,
frádrátt vegna keyptrar heim-
ilisaðstoðar og söluhagnað.
Þá skal almenningi bent á
það, að Skattalögin hafa nú
verið sérprentuð í heild, ásamt
leiðbeiningum um framkvæmd
hinna nýju ákvæða og fást þau
gögn á Skattastofunni.
Skattstjórinn í Reykjavík,
Halldór Sigfússon, hefur tjáð
Vísi að breytingar þær, sem Al-
þingi gerði nú á skattalögunum,
torveldi mjög öll störf starfs-
fólks Skattstofunnar, enda sé
fyrirsjáanlegt að skattálagn-1
ingu verði lokið mun seinna en
venjulega.
Afvopmin cg k|arnarkusftirlit.
Dulies og Eden á fundum. — Ósamkomulag
í Öryggisráðinu.
Mynd þessi var tekin í Mindelunden er forseti íslands, hr.
Ásgrei Ásgeirsson lagði krans við minnismerki danskra frelsis-
vina er féllu á stríðsárunum í baráttunni við Þjóðverja.
Grunur um íkveikju
á LindargöÆu.
Fólk vaknaði við reyk í húsinu.
I stuttií máll
• Dr. Jagan leiðtogi Fram-
faraflokksins í Brezku Gui-
ana hefur verið dæmdur í
misseris fangelsi fyrir að
hlýða ekki boði landsstjór-
ans um að halda kyrru fyrir
í Georgetown. Dr. Jagan var
handtekinn í þorpi sem er
65 km. frá höfuðhorginni.
© í Ottawa, Ihöfuðborg Kan-
ada, hefur verið undirritað-
ur samningur milli Japan
og' Kanada, sem með samn-
ingunum veitir Japan „beztu
kjararéttindi“.
© Uppreistarmenn hafa gert
4 misheppnaðar tilraunir til
að ná afíur stöðvum, sem
þeir misstu í gagnárás
Frakka, og er nú hlé á bar-
dögum.
© Tito, forseti Júgóslavíu, sem
er í opinberri heimsókn í j
Tyrklandi, er kominn til
Ankara, og var tekið með j
virktum af Bayat forseta og
öðru stórmenni.
© Hussein Jordaniukonungur
kvað svo að orði nýlega, að
hin mikla hjálp, sem ýmsar
þjóðir veittu Israel, hefði
nBestum stöðvað efnahags-
lega þróun í Jordaniu,
vegna 'þess að þar yrði að
leggja megináherzlu á land-
varnir vegna þeirrar hættu,
sem af Israel stafaði, eu allr-
ar Arabaþjóðirnar teldu ör-
yggi sínu ógnað af Israel.
Hussein, sem er 18 ára,
sagði þetta eftir árás Israels
Síðastliðinn sunnudagsmorg-
un, á meðan fólk var þó enn í
fasta svefni, mnnaði litlu að
meiri háttar eldsvoði yrði hér
í bænum.
Hafði verið kveikt í kjallara
húsins nr. 36 við Lindargötu,
sem er stórt tvílyft timburhús,
en fólk sem býr á hæðinni fyr-
ir ofan vaknaði við reyk og
kvaddi slökkviliðið á veítvang.
Atburður þessi skeði laust
eftir kl. 5 á sunnudagsmorgun-
inn. En þannig hagar tii á Lind
argötu 36, að í kjallara hússins
er ónotuð geymslukompa. í
henni voru hillur, sem klæddar
voru með pappír úr sements-
pokum og í honum hafði kvilcn-
að og sums staðar sviðnað
timbrið undir pappírnum.
Á hæðinni fyrir ofan er íbúð
og þar vaknaði einhver við
reyk. Vissi sá ekki hvað var um
að vera en gerði slökkviliðinu
strax aðvart. Þegar það kom á
vettvang hafði eldurinn dvín-
að eða slokknað af sjálfu sér,
en inni í kompunni fannst eid-
spýtustokkur sem benti til þess
að þar hafi einhver verið á
ferð og valdið íkveikju, ann-
aðhvort viljandi eða óviljandi
Munaði litlu að þarna hlytist
af eldsvoði sem gat haft ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar í för
með sér, þar sem þarna var um
stórt íbúðarhús og eldfimt að
ræða.
Kviknaði í bíl.
Því sém næst á sömu mínútu
og ' slökkviliðið var kvatt á
Lindargötuna var það kallað á
Reýkjavíkurveg vegna bíls er
kviknað hafði í. Hafði eitthvert
logandi eldfæri verið skilið
eftir í framsætinu á bílnum og
enda þótt eldurinn yrði fljót-
lega slökktur hlutust af tölu-
verðar skemmdir.
Eldur í Höfðaborg.
Laust eftir hádegið í gær
hafði kviknað út frá jarðsam-
bandi eldavélar í Höfðaborg.
Kviknaði í skáp undir vaski í
sldhúsinu en slökkviliðinu
tókst fljótlega að kæfa hann.
Skemmdir urðu litlar.
Tilkynnt hefur verið opin-'
berlega, að í samræmi við það,
sem áður var tilkynnt, hafi full- j
trúi Breta í afvopnunarnefnd-.
inni sent öðrum fulltrúum í
nefndinni uppkast að ályktun-
artillögu, sem sé í samræmi við
þá stefnu, sem Bretar hafi áð- j
ur boðað varðandi afvopnun og
kjarnorkueftirlit: |
Skipuð verði undirnefnd, sem
skili áliti fyrir 15. júli næstkom
andi, og eigi í henni sæti full-
trúar þríveldanna, Ráðstjórn-
arríkjanna og Kanada. Af-
vopnunarnefndin kemur sam-
an á morgun og tekur ályktun-
artillöguna fyrir. — Þegar
nefndin kom saman á fyrsta;
fund sinn í síðastl. viku, bað
Vishinsky um frest, þar til á
morgun. Kvaðst hann bíða fyr-
irskipana frá stjórn sinni.
Viðræður Dulles og Eden.
Dulles og Eden ræddust við
bæði árdegis og síðdegis í gær.
Á árdegisfundinum ræddu þeir
ástand og horfur í Israel og
Arabaríkjunum en á síðdegis-
fundinum ræddu þeir Suðaust-
ur-Asíu og þá einkum Indó-
kína. Stjórnmálafréttaritarar
telja, að ágreiningur þeirra
milli hafi ekki reynzt eins mik-
ill og mátt hefði ætla, en raun-
ar hefur ekkert verið tilkynnt
opinberlega um viðræður
þeirra, og verður ekki fyrr en
Dulles hefur rætt við Bidault
utanríkisráðherra Frakklands,
en Dulles flýgur til Parísar
síðdegis í dag til viðræðna við
hann.
Blöðin heimta
upplýsingar.
um viðræðurnar og segja, að
þess verði að krefjast, að Eden
skýri þinginu ítarlega frá um-
ræðunum, áður en þingmenn
fara heim í páskaleyfi. Eitt
blaðið kemst svo að orði, að
öll þjóðineigi heimtingu á að
fá vitneskju um hvers Dulles
hafi spurt og hverju Eden hafi
svarað.
Öryggisráðið á fundi.
Það kom enn saman á fund
í gærkveldi og ræddi kærur og
gagnkærur Israelsmanna og
Araba. — Ekki náðist sam-
komulag um málsmeðferð frek
ara en á fyrra fundi ráðsins. —•
Vesturveldin vilja ræða allar
kærur og gagnkærur, en full-
trúi Libanon að rædd verði sér
staklega ákæran á hendur Isra-
el fyrir hina grimmilegu árás á
Jordaníuþorpið Nahhalin.
Spell unnin á bifreiðum.
Arekstras* ©g umffegiqSarslys.
manna á þorpið Nahhalin,
þar sem felldir voru 9 menn
og 13 særðir. „Eftir árásina
á Nahhalin þarf heimurinn
ekki framar vitnanna við um
Israel“. Hann kvað stór-
veldin hafa í hendi sér að
hafa hemil á Israel.
í gærkvéldi voru unnin spell j
á tveimur bifreiðum hér íbæn-
um. Stóð önnur í Vonarstræti
en liin á stæðinu við Hótel
Skjaldbreið.
í gærkveldi kom maður á
lögreglustöðina og tilkynnti að
skemmdarverk hefði verið unn-
ið á bifreið sinni, sem hann
hafði skilíð eftir í Vonarstræti.
Höfðu rafleiðslur bílsins verið
skornar sundur og auk þess ver
ið stolið töng o. fl. úr bílnum. J
Nokkuru síðar tilkynnti ann-
ar bifréiðaeigandi að sams
konar spell hefðu verið fram-
in á sinni bifreið, sem stóð á
stasðinu hjá Hótel Skjaldbreið.
Sá hann til tveggja unglings-
pilta, sem komnir voru inn í
bifreiðina, en þegar þeir urðu
hans varir hlupu þeir á brott.
Þegar maðurinn kom. að bifreið- 1
inni var búið að skera á raf-
leiðslur hennar. Málum þessum
var vísað til rannsóknarlög-
reglunnar.
Hálka í umferSS.
í gærmorgun ók bifreið út af
Hafnárfjarðarveginum sunnan
Þóroddsstaða, lenti þar á síma-
staur og braut hann. Orsök
þessa óhapps var talin vera
hálka á veginum.
í nótt var svo ekið á mann-
lausa bifreið hér í bænum og
hún skemmd lítilsháttar. Sá sem
árekstrinum olli fór , sjáifur
niður á lögreglustöð og til-
kynnti óhapp sitt, sem hann
kvað hafa stafað af hálku.
Umferðarslys á Miklubraut
í gærkveldi varð umferðar-
slys á Miklubraut með þeim
hætti að bifreiðarstjón ók þar
á tunnu sem stóð við uppgröft,
við það lenti bifreiðin ofan í
holu og valt á hliðina. Bifreið-
arstjórinn handleggsbrotnaði
og fór úr liði, en drengur, sem
var farþegi í bílnum, ylapp ó-
meiddur.
Húsverjar ónáðaðir.
í nótt var kvartað yfir því
til lögreglunnar frá húsi einu
hér í bænum, að þar stæði mað
ur við dyrabjöllu útidyra,
hringdi án afláts og vekti hús-
'verja með látum sínum.
Lögreglan fór á staðinn, en
þá var henni skýrt frá að mað-
Skipshöfnin af Glað
bjargaðist í
gúmmíbát.
Eins og skýrt var frá í Vísi
í gær bjargaði brezkur togari
áhöfninni af vélbátnum „Glað“
ifrá Vestmannaeyjum í gær-
morgun.
Fann togarinn skipshöfnina í
gúmmíbjörgunarbát, og hafði
hún verið í honum 22 klukku-
stundir. Hafði Glaður orðið fyr-
ir brotsjó og sokkið skyndilega,
en skipshöfnin komist í gúmmí
bátinn.
§>!Óðssto£fllUlB m
k.ses » sjfloi’ÍAtsitdi
Slysavafnafélagi íslands hef-
ur borizt kr. 500.00 að gjöf frá
G. K.B. með ósk um að fé þetta
mætti verða stofn að sjóði, sem
síðar yrði varið til kaupa á
sporliundi.
Ennfremur hefur gömul kona
H. Þ. og ,,Leopold“ lagt fram
sínar hvorar hundrað krónurn-
ar í sama tilgangi.
Sýna þessi framlöf og skrif
blaða að undanförnu um mál
þetta, að talsverður áhupi ríkir
meðal almennings fyrir því, að
sporhundur verði keyptur til
landsins.
ur þessi hafi rétt áður horfið
og ekið burt í bíl.
En nokkru síðar kom sami
maður að húsinu aftur og hélt
áfram uppteknum hætti en fór
svo skömmu áður en lögreglan.
kom í annað' sinn.
Fékk stein í höfuðið.
í gær lenti steinn í höfði sex
ára gamallar telpu, Sigrúnar
Sigurgeirsdótur, Mýrargötu 12,
og var hún flutt í Landsspítal-
ann til aðgerðar. Meiðsli henn-
ar voru þó ekki talin alvarleg
og var hún flutt heim að að-
gerð lokinni.