Vísir - 01.07.1954, Blaðsíða 1
bústað
Á myndinni sést Toriello, ut-
anríkisráðherra •' stjórn
Arbentz, hins landflóttaforseta
Guatemala.
44, árg.
Fimmíúdaginh 1. júlí 1954.
144. tbí.
¥1
Brýnust nauðsyn að
sinna Evrópumálunum.
Churchill og Eden á heimleið.
Spaak og Mendes-Fi'ance ræddusí
vid i gœr.
Einkaskeyti frá AP.
New York í morgun.
Churchill og Eden eru komn-
ir hingað aftur, og halda heim-
leiðis í kvöld á hafskipinu
■Queen Elizabeth.
Engin opinber tilkynning var
gefin út í Ottawa, að loknum
viðræðunum þar, en Churchill
sagði við burtförina, að mörg
vandamál hefðu borið á góma.
Hann sagði, að nú væri brýnust
nauðsyn, að sinna Evrópumál-
unum, Þá sagði hann, að ef sú
hugmynd kæmi fram hjá ein-
hverrí samveldisþjóðinni, að
halda samveldisráðstefnu um
SA-Asíu vandamálin og varn-
arbandalag, myndu Bretar ekki
verða því mótfallnir.
Spaak og Mendes-France
á fundi í gær.
Spaak utanríkisráðherra
Belgíu og Mendes-France for-
sætisráðherra Frakklands
ræddu Evrópusáttmálann í gær
í París.
Þeim kom saman um, að
gagnlegt væri, að haldin yrði
ráðstefna um sátmálann þegar,
er Frakkland hefði gert grein
fyrir afstöðu sinni til hans, og
kvaðst Mendes-France vongóð-
ur um, að nefndin, sem skipuð
var til að samræma skoðanir
stjórnmálaflokkanna í þessu
efni, myndi geta gert grein fyr-
ir árangrinum af starfi sínu
bráðlega.
Hreinsun í Tékkóslóvakíu.
Fyrrverandf forsætisráÓherra dæmdicr.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Útvarpið í Moskvu hefur
skýrt frá því, að fyrrverandi
varaforsætisráðherra í Tékkó-
slóvakíu hafi verið dæmdur í
langa fangavist.
Maður þessi, Jan Sevcik,
hafði verið rekinn úr stjórn-
inni árið 1952, en hann hafði
verið varaforsætisráðherra um
tíma. Hafði hann verið tekinn
í kommúnistaflokkinn eftir að
hann tók völdin í landinu, en
fyrir viku fór að kvisast í Prag,
að hann mundi hafa verið dreg-
inn fyrir dómstólana. Yfirvöld-
in í Tékkóslóvakíu sögðu þó
ekkert um þetta, og það var út-
varpið í Moskvu, sem varð fyrst
til að skýra frá örlögum manns-
ins.
Sevcik var ákærður fyrir
sams konar afbrot og Beria
— meðal annars að hafa tek
ið þátt í samsæri gegn stjórn
arvöldum landsins.
Meðal Tékka í London er lit-
ið svo á, að komúnistar í Tékkó-
slóvakíu muni nú vera að
hreinsa til meðal þeirra, sehi
Skýjað loft
um land allt.
Hægviðri er nú um land
og heldur vætulegra útlit en
verið hefur.
Skýjað loft er um land allt
og víðast úrkomulaust, nema
smáskúrir á Suðausturlandi og
Vestfjörðum. Hitinn sunnan-
lands var í morgun 8—10 stig,
en á Norðurlandi 5—7 stig,
nema til fjalla. Á Grímsstöðum
var að eins 3. stiga hiti.
Horfur eru á suðlægri átt og
rigningu sunnan og suðvestan-
vert landið, er líður á daginn.
Þetta er Carlos Castillo Armas
ofursti, yfirmaður hers upp-
reisnarmanna í Guatemala.
þeir hleyptu inn í flokkinn eft-
ir valdatökuna, og að vænta
megi meiri frétta af þessu,
ur en langt um líður. Það þykir
einnig einkennilegt — eða ein-
kennandi — að það skuli vera
útvarpið í Moskvu, sem skýrir
fyrst frá þessu.
Vopnahlésviðræðyr hafnar
í San Salvador.
Koinmúnistsir handteknir I
hundraðatali í Guatemala.
Einkaskeyti frá AP.
New York í morgun.
Viðræður eru nú hafnar í San
Salvador, höfuðborg E1 Salva-
dor, um vopnahlé í Guatemala,
og taka þátt í þeim sem aðal-
menn Monzon ofursti, hinn nýi
valdhafi í Guatemala, og Armas
hershöfðingi, foringi innrásar-
manna.
Sendiherrar Bandaríkjanna í
San Salvador og Guatemala-
borg fóru með Monzon á fund-
inn og beita þar áhrifum sínum
til þess, að fullt samkomuJag
náist um vopnahlé.
Kommúnistahandtökur.
Haldið er áfram, að handtaka
kommúnista, og skipta þeir þeg
ar hundruðum, sem handteknir
hafa verið. Mikill mannfjöldi
hefui' safnast saman fyrir utan
bústaði erlendra sendiherra,
sem kommúnistar allmargir
beðið um vernd. Einkan-
lega er mannmargt fyrir utan
mexikanska sendiherr-
ans, því að orðrómur er á kreiki
um, að Arbenz forseti hafi leit-
þar hælis.
Dulles flytur ræðu.
Dulles utanríkisráðherra
Bandaríkjanna flutti ræðu í
gærkveldi, sem útvarpað var
um öll Bandaríkin og' endurúí-
varpað víða um lönd.
Dulles kvað svo að orði, að
nýr og glæsilegur sigur hefði
unnist í baráttunni gegn komm
únismanum. Hann rakti hvern-
ig kommúnistar hefðu unnið að
því að ná fótfestu í Vesturálfu,
m. a. í Guatemala, þar sem svo
var komið, að öllum var ljóst,
að náið samstarf var meðal for-
sprakka. alþjóðakommúnismans
og valdhafanna. — Dulles hét
því, að af Bandaríkjanna liálfu
yrði haldið áfram ósleitilegri
baráttu gegn kommúnismanum,
o;í einnig lofaði hann hverju
Vesturálfuríki sem væri fullrt
aðstoð til þess að uppræta þaa
skilyrði, sem skapa jarðveg
fyrir kommúnismann.
Sala litaðra glerja var stö&vui.
Gróðafíknir náðungar ætluðu að hagnast
á sólmyrkvanum.
Fyrir hádegið í gær, þegar
sýnt þótti að bjartviðrið myndi
haldast og hægt yrði að fylgjast
með sólmyrkvanum, varð allt
í einu mikil eftirspurn eftir
hlífðargleri.
Þegar eftirspurnin fór vax-
andi því lengur sem nær dró
myrkvanum, fór jafnframt að
bera á því að litað gler var selt
hér í bænum. Einhver sem hafði
keypt slíkt gler, fór með það á
lögreglustöðina til athugunar.
Lögreglan kvaddi borgarlækni
til og bað um álit hans, en hann
taldi glerið ekki koma að not-
um fyrir augun og vera jafnvel
hættulegt. Stöðvaði lögreglan
þá frekari sölu á þessum glerj-
um og aðvaraði almenning, eft-
ir því sem við varð komið, að
nota þau.
Aftur á móti fékkst rafsuðu-
gler á nokkrum stöðum hér í
bænum, en það mun hafa hlíft
augunum á fullnægjandi hátt.
Frétzt hefur að rafsuðugler það
sem fáanlegt var, hafi gengið til
þurrðar á skammri stund.
Maðurinn á myndinni heitir
Somoza, forseti í Nicaragua,
en hann hefur, að sögn, stutt
uppreisnarmenn 1 Guatemala.
Lærír sund 62ja ára.
Frá fréttaritara Vísis
á Akureyri. —
Til að örfa þátttöku Akur-
eyringa í Samnorrænu sund-
keppninni, er hafið námskeið
fyrir konur.
Er það á vegum ungfrú Þór-
höllu Þorsteinsdóttur, íþrótta-
kennara. Einn þátttakandinn er
62 ára gömul kona, sem aldrei
hefur lært sund áður, en elzti
þátttakandinn er 65 ára og
hefur ekki synt s.l. 45 ár.
83 hvalir höf&u
vei&zt í gær.
Hvalveiðarnar ganga sæmi-
lega nú, en afli var heldur
tregur framan af.
H.f. Hvalur hóf veiðarnar
þann 22. maí s.l. með fjórum
hvalveiðiskipum, eins og und-
anfarið. Veiðin hefur glæðzt
síðustu daga, og í gærmorgun
höfðu alls veiðzt 83 hvaiir.
Mest af veiðinni fer í bræðslu
en nokkuð- er fryst, það nýjasta
til manneldis hér, en nokkuð
af kjötinu er fryst til útflutn-
ings og notað sem dýrafóður
þar.
fogarar fara
á síldveiðar.
Fyrsti togarinn fór á síldveið
ar fyrir helgi.
H.f. Kveldúlfur gerir tvo tog->
ara út á síldveiðar í sumar og
er annar þegar farinn.
Er það Egill Skallagrimsson,
sem lét úr höfn hér laugardag
s.l. Unnið er að því útbúa Ask
til síldveiða og mun hann fara
bráðlega. — Báðir þessir tog-
arar afla í bræðslu og leggja
aflann upp á Hjalteyri.
Bæjarútgerð Reykjavíkur
hefur til athugunar hvort gera
skuli út togara á síldveiðar, en
fullnaðarákvörðun hefu)' ekkt
verið tekin.
Enn bryðjtaverk
i Túnis.
Tunis (AP). — Fellaghar
gerðu í gær árás á fosfat-námu
og ’ ústaði skógarhöggsmanna
i V.-Túnis.
Manntjón varð ekkert af
völdum árásarinnar, en fellag-
har brenndu mörg hús skóg-
arhöggsmanna, auk þess sem
þeir brenndu sex bíla til ösku.
Skothríð í
Jerúsalem.
Jerúsalem í morgun.
Herflokkur ísraels og Jord-
aníu skiptust á skotum hér í
gærkveldi allt til miðnættis.
Nokkurt hlé varð á, er Ben-
neke hershöfðingi, formaður
Vopnahlésnefndar SÞ. hafði
mælzt til þess, að menn hættu
þessum leik.
Brátt hófst skóthríðin aft-
ur, og sneri hann sér þá til for-
sætisráðherra ísraels og Jord-
aníu og endurtók tilmæli sín.
Skothríðinni lauk um mið-
nætti.
Ekki er kunnugt um mann-
tjón í þessari viðureign. (
Brezk lest setur
hraðamet.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
Sú lest, sem Bretar eru
einna stoltastir af, hrað-
lestin, sem gengur undir
nafninu „Elizabethan“ og
heldur uppi ferðum miliii
Lundúna og Edinborgar,
setti nýtt hraðmet á þeirri
leið í gær. Leiðin er 640
km. og var lestin 6 klst. og
25 mín á leiðinni að norðan.
Hvergi er numið staðar á
leiðinni og var meðalhraði
lestarinnar nærri 106 km, á
klst. j