Vísir - 01.07.1954, Blaðsíða 4

Vísir - 01.07.1954, Blaðsíða 4
VÍSIR WXSIR D A G B L A Ð Ritstjóri: Hersteinn Pálsson. Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3. Útgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSIR H.F. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimm iinur). Lausasala 1 króna. Félagsprentsmiðjan h.f. Uniiið fyrir gýg? Sú uggvænlega frétt hefur borizt ofan úr Borgarfirði, að þar hafi fundizt sauðkind, sem við slátrun reyndist vera með ýmsum einkennum svonefndar þurrmæði. Hefur þetta að sjálf- sögðu vakið ugg og kvíða, því að fjárskipti fóru fram á svæði þessu fyrir fjórum árum, og menn höfðu gert sér vonir um, að þær ráðstafanir mundu nægja til þess að vinna bug á vá- gesti þessum, enda þótt enn væri ekki liðinn svo langur tími, að full vissa væri fengin fyrir þessu. Menn munu minnast þess, að þegar fjárskiptin höfðu farió fram í Bor;.arfirði, voru nokkur brögð að því, að fjár væn ekki gætt svo skyldi, svo að hafa varð sérstakt eftirlit með því. Skal ekkert um það sagt, hvort þessu sé nú um a§ kenna, enda mun enginn þess um kominn, eins og sakir standa, en það ætti að minnsta kosti að hvetja menn til þess að auðsyna sér- staka varkárni, þar sem sauðfjársjúkdómarnir hafa geisað, enda þótt sigur haíi , irzt unninn í bili. Það tjón verður seint metið, sem þjóðin hefur beðið af völdum sauðfjársjúkdómanna, bæði beint og óbeint. Ymis ráö hafa verið reynd til að ráða niðurlögum þeirra, en ekki tekizt, og síðasta úrræðið var niðurskurður og fjárskipti, sem fram hefur farið í hverju svæðinu af öðru á undanförnum árum. Og eins og þegar er getið, gerðu menn sér nokkrar vonir um, að þetta mundi nægja til þess að vinna bug á mæðiveikinni, þótt það sé nú í meiri óvissu. Þess hefur verið getið, að bændur á bæjum þeim, þar sem hin sýkta sauðkind fannst, hafi verið mjög fúsir til samstarís við þá, er vinna fyrir hið opinbera að baráttunni gegn sauð- fjársjúkdómunum. Mun fé þeirra verða skorið þegar i sumar, og gætur hafðar á því, hvort sjúkdómseinkenni finnast i fleiri kindum, því að af því má væntanlega ráða, hversu mikii hættan er á því, að pestin sé raunverulega komin upp aftur og g^ti náð útbreiðslu á nýjan leik. En ekki er nóg, að þessir bændur einir auðsýni þegnskap i þessu máli, því að vitanlega ætti hver maður í þeirri stétt, að hafa vakandi auga með því, hvort einhver sjúkdómseinkenni koma fram í fé nú, svo að hægt sé í snatri að grípa til þeirva ráðstafana, sem unnt er, þótt ekki sé þær eins áhrifankar og æskilegt væri. Hið opinbera ætti einnig að gera allt, sem þvi er unnt, til að láta athuga fé að einhverju leyti í Borgarfiro ., ef auðið er, því að þar sem fundin er ein sauðkind með hættu- leg einkenni, geta fleiri leynzt í stofninum. Það væri vissulega kvíðvænlegt, ef það kæmi á daginn, að mæðiveikin væri komin upp aftur, og til einskis hefði veriá barizt undanfarin ár, með fjárskiptunum og öðru. Nú vor.a menn að sjálfsögðu, að sé svo ekki, en ef þær vonir rætasr ekki, þá er ekki annað að gera en að hefja baráttuna á ný meö öllum tiltækum ráðum og án þess að spara. Ekki þýðir að ieggja árar í bát, og með þolinmæði og þrautseigjú má vafr- laust vinna sigur í þessari baráttu eins og svo mörgum öðrum. En þangað til verður að hafa vakandi auga með fjárstofninum. Griðasáttmálar fyrr og mí. ’ i dögum Hitlers voru griðasáttmálar mjög í tízku. Hann gerði griðasáttmála við nágranna sína, hét að sýna þeim engan yfirgang eða ásælni, en réðst þó á þá, þegar honum þótti henta. Griðasáttmálar þóttu þess vegna öruggast teikn þess, að naziátar mundu ráðast á þá þjóð, fyrr eðá síðar, sem þé'r gerðu slíkan sáttmála við. Kommúnistar hafa margt af nazistum lært, og þeir hafa betrumbætt margt af því, sem nazistar beittu í baráttu sim. Nazistar sendu oft „ferðamenn“ til landa þeirra, sem þeii hugðust ná tangarhaldi á, en kommúnistar þurfa ekki slíka sendimenn, því að þeir eiga bandamenn og vini meðal heima- manna — kommúnistaflokka hinna ýmsu landa. Kommúnistoi gera líka griðasáttmála, og sá síðasti var gerður nýiega milli kommúnista í Kína og stjórnarinnar í Burma. Vitanlega er kínverskum kommúnistum óhætt að ge*a griðasáttmála við Burma. Þeir munu aldrei gera inniás þar. Kommúnistar í landinu gera bara uppreist til að frelsa lands- lýðinn, óg méð einhverjum dularfullum hætti munu þéi'r haía nóg af nýtízku vopnum og hergögnum. En kommúnístar í öðrum löndum koma þar hvergi nærri. Griðasáttmáli í gildi, og í framkvæmd. Hvað er XÝTT í knikmijhdaheiiftiiHutn ? „Rómeó ag Júlía“ á kvikmynd. Renato Castellani, hinn frægi ítalski kvikmyndaleik- stjóri er ekki hó.r í Ioftinu, eða aðeins 164 cm. En hann þykir þeim mun snjallari, og.um þessar mundir stjórnar hann töku kvikmynd- arinnar „Rómeó og Júlía-', eftir hinu fræga leikriti Shakespeares, á vegum kvik- myndajöfursins J. Arthur Rank. Alls lét hann taka 73.152 metra af filmu, sem hann síðan hefur skorið niður í 3300 metra, en það tekur um tvær stundir 1 að sýna myndina bannig, en það- þykir hæfilegt,- í . fyrsta þætti Shakespeares felldi , Castellani niður 500 línur og úr öðrum þætti 440 línur. Að- l alhlutverkið leikur 19 ára stúlka, Susan Shentall að nafm, sem Castellani telur frábæra að hreinleika og innra eldi. Ódteli tíhoriamdi. Þégar kvikmynd Fred Astaires „Bandwagon"' var frúmsýnd í Los Angeles, bar svo við, að einn áliorfandinn þótti svo ódæll, að varya þurfti honum ó dvr. Maður þessi baðaði út hcnd.- unum, sló taktinn og stappaði í gólfið af hrifningu. Um leiö mun hann í ógáti hafa sparkað í sessunaut sinn. Þegar búið var að varpa manninum á dyr, kom í ljós, að hann var engmn ann- ar en Fred Astaire sjálfur. ítalir borga sæmilega. Þýzkt tímarit greinir nýlega frá lcaupkjörum ítalskra kvik- myndadísa. i Gina Lollobrigida fær 200.000—265.000 mörk íyrir hverja mynd, Silvana Pam- panini um 150.000, og Anna Magnani 325.000—390.000 mörk. Þetta er allsæmileg borgun, þegar þess er gætt, að markið er um það bil 4 krónur. Chaplin 09 McCarthy. Charlie Chaplin á ekki aft- urkvæmt til Bandaríkjanna, eins og kunnugt er. Kona hans, Oona O’Neil, dóttir Eugene O’Neil rithöfund- ar, hefur afsalað sér bandarísk- um borgararétti. Chaplm hefur nú í hyggju að láta gera mynd í Bretlandi, sem fjallu á um öldungardeildarþingmann einn og viðureign hans við kom- múnista. Tekið er fram, aó myndin byggist á skáldsógu, og eigi ekkert skylt við veruleik- ann, en hins vegar rennur marga grun í, að hér muni Chaplin taka McCarthy 1 karphúsið. Rita veldur tjóni. Húseigandi nokkur ; Beverlej Hills í Hollywood hafði leigt Ritu Hayworth hús sitt. Hann sendi henni 5000 doll- ara reikning fyrir dvöl hennar þar. Hann skýrði svo frá, að tvisvar hefðu hvirfilbylir skollið á húsinu, maurar hefðu sótt að því tólf sinnum, en allc þetta hefði samt ekki valdiö eins. miklu tjóni og Rita og gestir hennar. Óvenjuleg kvikmynd. Allan Ladd hefur látið gera næsta óvenjulega kvikmynd. Hann tók ýmis atriði úr eldri kvikmyndum, sem þóttu svo léleg, að ekki var hægt að bjóða fólki upp á þær, límdi þær síðan saman og gerði úr þeim mynd, sem þykir mjóg skemmtileg. 30 ára starfsafmæli Abbotts og Costellos. Abolt og Costello héldu ný- lega upp á 30 á.ra samvinnuaf- mæli sitt. Sá feiti er 65 ára gamall og vegur 270 pund, en sá lýri ef 62ja ára. Sá feiti er íjórgiftur, en sá rýri er sagður óvenju greindur og talinn einhver bezti golfleikari Hollywood. Margt cr skritid 1000 pund& bætur fyrir aö geta ekki brosað eða kysst. Kona hafði meiðzt í bílslysi. Fimm hundruð pund eru eklli nægar bætur fyrir það að geta eklci brosað. Þetta var skoðun konu nokk- urrar, sem hafði orðið fyrii bílslysi, sem hafði þær afleið- ingar, að hún meiddist svo I andliti, að hún gat ekki brosoð á eftir, og dómararnir, sem áttu að dæma í máli hennar, voiu henni sammála, svo að skaða- bæturnar voru hækkaðar upp í 1000 sterlingspund. í marz-mánuði höfðu Green - hjónin, sem búsett eru i Lond- on, verið á ferð í bifreið sinni, ásamt dóttur sinni, er bifreiðin lériti í árekstri. Méiddist svo mikið, að tvo uppskurfí vafð að gera á andliti hénnaf til að draga úr lýtum, sem hún hafði orðið fyrir, en þó tókst læknum ekki að gera svo vel við meiðslin, að hún gæti broo- að. Það reyndist óframkvæm- anlegt, og frú Green hefur ekiii stokkið bros síðan. Þykir henni það mjög leiðinlegt, því að hún segir, að þegar hún sé í sarn- kvæmi, þar sem hún skemmti sér vel, haldi allir, aðr heríni dauðleiðist í raúninríi. Meiðsli frú Green höfðu einnig þær afleiðingar, að hún Fjmmtud,aginn;, 1;. júií ,1954. Það var nrikið um að vera í bænum í gær. Hið furðulega natt- úrufyrirbrigði, sólmyrkvinn, var aðalumtalsefnið. Fólk utan af landi flykktist til bæjarins lil þess að geta fylg'zt með myrkv- anum, en á götunúm mátti hvar- vetna sjá fólk með alls konar gleraugu, starandi mót sólu, er tunglið fór í veg fyrir hana. Var það ekki laust við að vera dá- lítið spaugilegt, enda þótt flestir niunu hal'a verið undir sörnu sök- ina seldir í því efni. Virtist aN menningur vel liafa lagt sér á minni aðvaranir um að horfa ekki berum augum á undrið. Börn lokuð inni. Margir voru svo varfærnir — og var það skiljanlegt — að loka börn inni, til þess að þau skemmdu ekki sjónina af tilvilj- un, þótt myrkvinn hefði kannske ekki í sjálfu sér verið neitt áhuga mál fyrir þau. Mátti lika taka eft- ir því, að fátt barna var á gnt- unum um hádegisbilið. En Iivað um það. Sólmyrkvinn virðist hafa orðið skemmtileg tilbreytni fyr- ir allan almenning, og velkonrið umræðuefni í stað striðsins i Guatemala, sem nú er lík i á enda. En márkverðastur hefur sól- myrkvinn verið fyrir vísinda- mennina, enda munu allmargir erlendir menn hafa lagt á sig ferð hingað til lands til þess að fyJgj- ast með lionum. En nóg um það. Söngkona undir smásjá. Hér fer á eftir stutt bréf frá „Sveitakarli“, er fyrtist við er liann las gagnrýnina á Soffiu Ivarlsdóttur á dögunum. Hann segir: „Undanfarið hefur nokkuð verið gert að því að narta i ung- frú Spffíu Karlsdóttur fyrir söng líerínar 17. júni s.l. Má sjálfsagt um það deila, hvort vísnavalið hafi verið smekklegt á þeim degi.. Þó mun óbælt að fullyrða, að; söngur ungfrúarinnar hafi ekki hneykslað allan almenning, né hnekkt vinsældum hennar. Fínar taugar. Það miiri víst aðallega hafa ver- ið fólk Ineð sérstaklega finar taúgar og óvenjuíega næma sið- ferðiskennd, sem gat hneykslast. Það mætti þó benda á, að vísurn- ar, sem Soffía söng voru, þó full- djarfar væru, sízt meiri óhroði en sumt það, sem gefið er út núna og kallast bókmenntir, og ýmsir svonefndir menntamenn keppast nm að lofa, t. d. Gerpla og fleíra. Mætti ætla að slíkum siðgæðis- vörðum ætti að vera það kapps- mál, að úti-ýnia slíkum bókmennt- um, jivi þær spilla áreiðanlega smekk og þjóðhollustu íslendinga í langtum ríkari mæli, en nokkr- ar meinlaúsár gamanvísur. Madama Baker. Ekki köeríri það á óvart, þóll sumt af þessu fólki, ei- mest hneykslaðist, og getur ekki viður- kennt hina ágætu íslenzku dæg- uríá gasÖngkonu sé meðal þeirra, er negrasöngkonan Madama Bak- er „söng' sig inn að hjártanií á.“ Sveitakar].“ Þetta var bréfið og lýkur Bergmáli með því í dag. — kr. getur ekki kysst síðan, því að hún finnur mjög til í vörunuvu við minnsta þrýsting á þær. - í undirrétti voru frúmi dæmdar 500 punda skaðabætur, én æðri réttur leit svo á, að það væri 1000 punda virði að geta hvorki brosað né kysst.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.