Vísir - 01.07.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 01.07.1954, Blaðsíða 8
 VlSIB er ódýrasta blaðlð og þó þaS f jöl- j — j breyttasta. — Hringið í s*ma 1860 eg gerist áskrifendur. WI Fimmtudaginn 1. júlí 1954. Þeir sem gerast kaupendur VtSIS eftír 10. hvers mánaðar fá blaðið ókeypis tH mánaðamóta. — Stmi 1660. ..................■--------------------na Hungursneyð vofir yfir í Ferrara-héraði á Ítalíu. Búpeningur fellur úr hungri og þorsta vegna 2ja mánaða verkfalls landbúnaðarverkamanná. Einkaskeyti frá A. P. Róm, 28. júní. í meira en tvo mánuði hafa landbúnaðarverkamenn ■ Ferr- ara-héraði verið í verkfalli, og nú vofir hungur og liorfellir yfir héraðinu. Þetta er meðal blómlegustu héraða Ítalíu, en nú er vofa hungurs og ofbeldis hvarvetna á reiki. Héraðið hef ur verið svo .frjósamt, að það hefir verið kallað „Litla Holland", en um síðustu helgi höfðu 100,000 landbúnaðarverkamenn verið verkfalli í rétta tvo mánuði, og hvorugur aðilinn lætur bilbug á sér finna. Ofbeldið sjá menn, þegar „-þeir eru á ferð um vegina um sveitirnar, því að verkfalls- menn hafa stráð nögium og glerbrotum og jafnvel gert virki, til að hindra, að bændur geti flutt búpening sinn tii annarra héraða til að forða þeim frá dauða. af hungri. — Við götuvirkin standa verk- fallsmenn vörð með heykvíslar og barefli, og hvað eftir annað hefur komið til átaka milli þeirra og lögreglunnar, sem reynir að halda vegunum opn- um. Hundruð manna hafa slas- azt í þessum skærum. Verkfallsmenn, konur þeirra og börn svelta heilu hungri, því að fjármunir eru ekki fynr hendi til að kaupa brauð og viðbit. í gær seldi til dæmis stærsta brauðgerðarhúsið i borginni Jolanda di Savoia að- eins tíu brauð, því að kaup- menn treysta sér ekki lengur til að lána verkfallsmönnum, en brauðið kostar 50 lirur (ca. 1.60 kr.). f héraðinu eru um 4000 bændabýli og segja bændur, að kommúnistar stjórni verkfall- inu og komi í veg fyrir sam- Ttomulag. Kaupamenn höfðu um 17.000 lírur á mánuði, en auk þess fengu þeir mat og vistir til að fara með heim. Þeir krefjast 20% kauphækkunar, auk bættra vinnuskilyrða. Þeir, sem vinna dag og dag, höfðu 120 lírur á klst. og krefjast þeir sömu hækkunar. Nokkrir sunnaitbátar komnlr ncrður. Veðrátta óhagstæð og engin síldveiði enn. . .Nokkrir síldveiðibátar héðan að sunnan eru nú komnir liorður og mikill fjöldi báta nærri til- búinn að fara, en veðráttan ann- ars þannig- þessa dagana, að held- ur dregur úr mönnum að hraða sér mikið. Bátarnir Fanney og Helga voru komnir til Raufarhafnar á mánudag og Björn Jónsson er kominn til Siglufjarðar. Um seinustu helgi fóru Sæfell, Rifs- nes, Sigurður Pétur o. fl. Reykja víkurbátar. Tíð er enn óhag- stæð nyrðra með tilliti til veið- anna. Rússar o§ Júgóslavar mestir ræðarar.v London (AP). — Rússar hafá sent þátttakendur í Henlay- róðrana — mesta mót af því tagi — að þessu sinni. Unnu þeir í gær í kappróðri á bátum fyrir fjóra menn, en í eintrjáningaflokki varð fyrst- ur Júgóslavi, enda þótt gert hefði verið ráð fyrir, að Rúss- inn mundi verða skæður þar. Júgóslavinn varð svo langt á undan honum, að ekki var hirt um að „taka tíma“ Rússans. Veður óhagstætt á Hjalt- landi, betra í Svíþjóð. Ilumbungur hindraðl rann- sóknir á Hjaltlandi. London í morgun. Veður var óhagstæðast til vísindarannsókna á Hjaltlands- eyjum í gær af þeim stöðum, sem frétzt hefur til. Þar var dumbungur allan -daginn, svo að ekki var hægt að framkvæma neinar rannsókn ir. Viðast um Bretland var veð- ur hins vegar gott, svo að „sót- glerja”-vísindamenn gátu virt sólmyrkvann fyrír sér að vild . sinni. Flestir vísindamenn voru staddir í Suður-Svíþjóð, en þar voru alls 54 leiðangrar frá 13 þjóðum, og var veður sæmilegt þar, nokkurt skýjafar, en ekki svo, að það kæmi að veru.legri sök. En fyrir mestum vonbrigð- um munu stjörnufræðingar í Hamborg hafa orðið, því að þar hafði annar stærst stjörnukíkir lieims verið fullbúinn til notkunar í fyrradag, og þegar til kom var þykkt loft, svo að ekk- ert sást. Er spegill þessa kíkis svo stór, að einungis spegillinn á Palomar-fjalli í Bandaríkjun- um er stærri. En stærðin nægði ekki, því að sólin sást ekki. Fréttaritarar síma annars um margt fleira en athafnir stjörnu fræðinga og annarra vísinda- manna. í París gafst mönnum til dæmis kostur á að drekka nýja cocktail-tegund, „Eclipse Special“. í Skotlandi, þar sem almyrkt var, röltu hænur til kofa sinna og fóru að verpa. Og í London brá Philip her- togi sér upp í þyrilvængju, til þess að sjá tunglskugg'ann úr lofti. Sólmyrkvinn. Myndin er tekin á Skógasandi. Ljósm.: Þ. Jóseps. Sólmyrkvinn vakti óskerta athygli hér sunnanlands. Á Norðurlanili sást hann ekki sökum {fimmviðris. Sólmyrkvinn sem gekk yfir Island í gær vakti óskerta at- hygli hér sunnanlands, enda veður hið ákjósanlegasta til þes að fylgjast með honum. Á Norðurlandi gegndi allt öðru máli, því þar var alskýjað og drungalegt veður. Á Akur- eyi'i grillti aðeins til sólar augnablik um það leyti sem myrkvinn var sem mestur. Annars sást alls ekki til sólar og urðu það mönnum mikil vonbrigði. Fjöldi Reykvíkinga fór héð- an úr bænum í fyrrakvöd og í gærmorgun austur á almyrkva svæðið og mun enginn hafa séð eftir því, þar sem hér var um undarlegt fyrirbæri að ræða, sem ekki kemur yfir ísland aft- ur næstu tvær aldirnar eða vel það. Fjöldi manns fór austur að Dyrhólaey eða Vík í Mýrdal, aðrir austur undir Eyjafjöll en flestir munu hafa farið í Land- eyjarnar og var manmargt á öllum þessum stöðum. Flugfélag íslands sendi tvær flugvélar í sólmyrkvaflug aust- ur á Skógasand og bauð m. a. fréttariturum blaða og útvarps í þá ferð. Lent var austur á Skóga- sandi laust eftir kl. hálftólf og var tunglið þá mjög tekið að skyggja fyrir sólu. Úr því gekk myrkvinn hratt yfir og varð al- myrkvað örstutt augnablik rétt eftir ld. 12 en úr því gægðist á sólarröndina aftur og birti úr því óðfluga að nýju. Birtan varð mjög annarleg, bæði fyrst á undan og eftir al- myrkvanum, en einkum þó meðan á honum stóð. Bláleitt rökkur færðist óðfluga yfir og varð allt að því að næturdimmu þá stuttu stund sem almyrkvað varð. Himininn varð dimmblár sem að nóttu og ein skær stjarna sást blika á himni. En við sjóndeildarhringinn allt í kring var undarlega rauð- eða logalitur bjarmi sem jók mjög á hina undarlegu og annars náttlegu stemningu. Rétt fyrir Þorsteinn Jónsson flugmaður virðir fyrir sér sólmyrkvann. og eftir myrkvann sá annarleg- ar ljósrákir bærast yfir jörðina, en sú sýn varði ekki nema ör- litla stund. Hvar sem maður sást skyggn- ast til himins um sólmyrkva- leytið í gær gaf að líta fólk með litað gler, sem hélt því fyrir augu sér, fyrst og fremst til þess að skemma ekki augun en líka til þess að greina myrkv- ann betur. Á Guðnastöðum í Landeyjum unnu íslenzkir og erlendir vís- indamenn sameiginlega að rann sóknum í sambandi við myrkv- ann. Meðal annars verður ná- kvæm hnattstaða íslands að- eins greind eða mæld í sam- bandi við slíkt fyrirbæri og hefur það út af fyrir sig mikla vísindalega þýðingu í för með sér. Skilyrði til rannsókna voru hér hin ákjósanlegustu og má vænta mikils árangurs af þeim. O Laudvarnanefndin franska kemur saman á fund í dag. Ely hershöfðingi flytur skýrslu um Indókínastyrj- öldina og flýgur svo austur. Brezk luxusfiug- vél yfir Rvík í gær í gærmorgun kom hingað til Reykjavíkur brezk .farþega- flugvél af nýrri gerð, en flug- vél þessi var á leið vestur um haf. Flugvélin er af svokallaðri Heron-gerð. — Eru þær yf- irleitt nýjar af nálinni, þær elztu ekki nema 5—6 ára og þykja hinar ágætustu flugvél- ar. Farþegarými hafa þær yfir- leitt fyrir 12—14 farþega, en vélin sem kom hingað í gær er sérstök „luxusvél" með hvers konar þægindum og aukaút- búnaði og hún rúmar aðeins 6 farþega. Hún kom frá Prest- wick í gærmorgun, hafði hér viðstöðu í allan gærdag en átti síðan að halda vestur um haf, því hún hefur verið seld til Kanada. Á meðan hún stóð hér við í gær var m. a. flugvallastjóra ríkisins, forráðamönnum flug- félaganna, forstjóra loftferða- eftirlitsins og fleiri boðið að skoða flugvélina. Flugvalla- stjóra, Agnars Kofoed Hansen, var boðið að fljúga vélinni hér í umhverfi bæjarins í gær og ságði hann að þetta væri kosta- gripur hinn mesti, þægileg í meðförum, sparneytin og hiu vandaðasta í hvívetna. Taldi hann mjög koma til greina að nota slíkar vélar til innanlands- flugs hér á landi. Ofið á vefstól í Lista- mannaskálamim. Heimilisvefstóll (Nadeau- borðvefstóll), er til sýnis á af- mælissýningu Handíða og myndlistarskólans í Lista- mannaskálanum. Stóls þessa hefir áður verið getið í blöðum bæjarins, en hann þykir hið mpsta þarfa- þing. Þá eru og til sýnis margar gerðir efna, sem ofin voru í stólnum. í kvöld kl. 9 mun Falkner vefnaðarkennari vefa á stólinn og skýra gerð hans. Ásmuitdur Bjarnasoit fimmtarþrautarmeistari. í fyrrakvöld fór hér fram fimmtanþrautarkeppni, mjög fjölmenn. Sigurvegai'i varð Ásmundur Bjanrason, K.R., er hlaut 2580 st. Annar varð Þórir Þorsteins- son, Á., með 2345 st. Nánar verður sagt frá keppninni í blaðinu á morgun. Eru að Ifuka úð að iiirða. Þeir bændur í Eyjafirði, sem fyrstir hófu slátt, Iuku við að slá tún sín 18. júní. Eru þeir nú að hirða síðustu heyin.’ Er það talið einsdæmi hér um slóðir. Töðugjöldin verða þvi snemma í ár. • Spaak utanríkisráðh. Belgtu ræðir á miðvikudag við Mendes-Francé um Evrópu- sáttmálann. • Frakkar hafa yfirgefið vamarstöðvar sunnan Hanoi — samkvæmt áætiun.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.