Vísir - 27.07.1954, Blaðsíða 8

Vísir - 27.07.1954, Blaðsíða 8
 ylsm er ódýraita Ma$i3 og þé það fjðl- m brayttaita. — Hrlagið f dma lfSA «g gerlst áskrlfendur. irfl sir Þelr sem gerast kaupendur VÍSIS eftir lð. hver* mánaðar fá blaSið ókeypi* tfl mánaðamóta. — Simi lSCf. JJriðjadaginn 27. júlí 1354. 10.000 manns hafa flúii Alhanfu til lúgoslaviu. IJppþof urðu víðít eftir að Hoxha varö að fara frá. T' Einkaskeyti frá AP. — Rómaborg í gær. Flóttamenn, sem hingað eru komnir frá Albaníu, herma að svo miklar óeirðir hafi orðið í landinu, að við borð liggi að borgarastyrjöld geisi. Oeirðir jþessar brutust út, er Enver Hoxha forsætisráðherra varð að iara frá. þetta er haft eftir flóttamöun- tim, sem nýkomnir eru til Bari á austurströnd Ítalíu. en ekki hefur tekizt að fá staðfestingu á, að fregnirnar séu réttar. — Margt styður þó, að þær hati ■við eitthvað að styðjast. Hoxha hafði verið forsætisráð- herra frá 1945, en beið að lokura -ósigur fyrir yfirmanni lögregl unnar og erkifjándmanni sínum, Mehmet Sþeru innanríkisrað- herra, sem nú er orðinn forsætis- •ráðherra. — Áreiðanlegar fregnir frá Tirana herma, að þar sé allt með kyrrum kjörum. Flótta- ntennirnir höfðu haldið því fram, að óeirðirnar væru eink- >um í bæjum og þorpum í grennd við- landamæri .Túgóslavíu og Grikklands. — Hoxha varð að fara frá vegna þess að haan vildi efnahagsbandalag við Júgóslavíu, en efnahagsástandið í Albaníu er mjög slæmt. — Albanía er umkringd ríkjum, sem eru andvíg Kremlvaldinu, Óku ölvaðir. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu lögreglustjórans á Keflavíkurflugvelli, hefur fátt- borið til tíðinda þar undan- farna sólarhringa. Aðfaranótt mánudags sl. voru tveir menn handteknir, er .staðnir voru að því að aka bif- reið undir áhrifum áfengis. — Mál þeirra er í rannsókn. og frá öðrum kommúnistalönd- um (nema Júgóslavíu) er ekki hægt að komast þangað nema í flugvélum eða kafbátum. — Tal- ið er, að 10.000 manns hafi flúið Albaníu til .Túgóslavíu. — í 9 ár hafa kommúnistar hlaðið lofi á Hoxha. Hann heldur að visu völdum í flokknum að nafninu til, en er þó talin hröpuð stjarna. %II Ans biskups fundii í Skálholti. Við uppgröftur á hinum forna kirkjugrunni í Skálholti hefur fundizt innsigli Árna biskups. þykir fundur þessi allmerki- legur, en innsiglið er sporöskju- lagað og á það letrað „Síg(illum) d(omini) Arnonis“, en það er latína og þýðir innsigli Árna biskups. þrír biskupar, sem hétu Árni, sátu í Skálholti í káþólskum sið: Staða-Árni þorláksson, Árni Helgason og Árni Ólafsson hinn mildi, sem uppi yar á 15. öld. Ekki er vitað með vissu, hver þremenninganna hefur átt hinn fundna grip, en þó öruggt að ein- hver þeira átti það. Eins og Visir hefur áður greint frá, stunda nokkrir menn uppgröft í Skálholti, m. a. Christie fornleifafræðingur fra Osló, dr. Björn Sigfússon há- skólabókavörður og fleiri. Verkinu miðar vel áfram, enda góð tíð undanfarið til þess, en langt er þó í land til þess, að því sé lokið. Alls jafnað niiur 90.4 millj. króna á Rvíkinga. Ýmsar upplýsingar varöandi niðtirjöfnun 1954. Zarah Leander dægurlagasöng- kona væntanleg hingað í ágúst. iSfHS Itefir Ýmis áform á pi*i«>iiiinuiii iiiii átvegnn skemmtikrafta liingað. Vonir standa tll, að Zarah JLeander, hin knnna, sænska dægnrlagasöngkona og kvik- myndadís, komi hingað á veg- um S.Í.B.S. í sumar. Vísir hafði pat af þessu og átti af því tilefni tal við Kjartan Guðnason, fulltrúa S.Í.B.S., sem hefur haft milligöngu um þetta mál. það er ekki alveg öruggt, að 'Zarah Leander komi hingað þar :sem lokasvar hefur ekki borizt frá henni, en sennilegra er það þó. Síðast, er vitað var til, var 'hún í Finnlandi og skemmti þar við mikinn fögnuð, enda er hún óefað með allra vinsælustu og áheyrilegustu dægurlagasöng- konum Norðurlanda, og þo.tt víðar væri leitað. Sennilegt er, að margir íslénd- ingar hafi séð hana leika í kvik- vmyndum, en hún lék m.a. í mörgum þýzkum myndum hja UFA-félagin'u óg.. fleirum, ávailt við mikinn orðstír. Gert er ráð fyrir, ef allt fer að vonum, að Zarali Leander komi hingað í ágústlok næst- komandi, og haldi hér söng- skemmtanir á vegutn S.Í.B.S. -- Með henni verða aðstoðarstúlk- ur, svo og lcunnur dægurlaga- söngvari, en ekki er kunnugt um nafn hans ennþá. Forráðamenn S.Í.B.S. hafa ekki verið iðjulausir undanfarið frekar en endranær, og hafa þeir ýmis áform á prjónunum i sambandi við tekjuöflun til þjóðþrifafyrirtækja S.Í.B.S. — Er Vísi kunnugt um, að reynt er að útvega fleiri kunna skemmtikrafta, án þess þó að geta greint nánar frá því í bili. En það verður að öllu forfalla- lausu í haust. * , , ,«í Þetta er Ólafur Ágúst Ólafs- son núverandi golfmeistari. — Eftir fyrsta dag keppninnar var Albert Guðmundsson með lcegsta höggafjölda, en síðan fór Ólafur fram úr honum og hélt forustunni eftir það. Bróðir Ólafs, Gísli lœknir, var nokkrum sinnum golfmeistari fyrir fáum árum. (Ljósm.: Ragnar Vignir). Meistarakeppni Eór fram í golfi um s.l. helgi og fóru leikar sem hér segir: 1. Ólafur Á. Ólafsson 310 högg 2. Þorv. Ásgeirsson . . 320 — 3. Ewald Berndsen . . 321 — 4. -5. Jakob Gíslason .. 325 — 4.-5. Ól. Bj. Ragnarss. 325 — 6.-7. Albert Guðm.son 328 — 6.-7. Sveinn Ársælsson 328 — Úrslit í 1. flokki. 1. Jóhann Eyjólfsson 340 — 2. Jóhann Þorkelsson 346 — 3. Thor Hallgrímsson 347 — Úrslit í öldungakeppni. Halldór Magnusson án forgjafar 83 högg Ásgeir Ólafsson með forgjöf * 77 högg. Samkvæmt fjárhagsáætluu bæjarins fyrir yfirstaudandi ár skyldi jafna niður 86.4 millj. kr., en vegna lagabreytingar um brottfall og lækkun stríðsgróða- skatts, en bæjarsjóður hefur fengið 45% af þeim skatti, var sú áætlunaruphæð hækkuð i 90.4 millj. kr. Tekjur til útsvars eru hreinar tekjur til skatts, samkvæmt lög- um nr. 46/1954, um tekjuskatt og eignarskatt, Hefur því vid ákvörðun útvars verið leyfður allur sá frádráttur, sem heimil- aður er eftir þeim lögum, þar með talinn fæðis- og hlífðarfata- kostnaður sjómanna á fiskiskip- um, ferðakostnaður þeirra skatt- greiðenda, er fara langferðir vegna atvinnu sinnar, kostnað- ur vegna heimilisaðstoðar, er gift kona vinnu fyrir skalt- skyldum tekjum, kostnaður við stofnun heimilis og námskostn- aður* gjaldenda. Til tekna eru ekki taldír, fremur en tii skatts, vextir af skatfrjálsri innstæðu né sá eignarauki, sem stafar af aukavinnu, sem einstaklingar leggja fram utan reglulegs viiinutíma við byggingu íbúða til eigin afnota. Af tekjum, eins og þær eru ákvarðaðar samkv. ofanrituðu, greiðast útsvör eftir þeim regl- um, sem hér fara á eftir: Einstaklingar. Af 15—55 þús. kr. greiðast 400 kr. af 15 þús. og 15% af afgangi. Af 55—125 þús. kr. greiðasi 6400 kr. af 55 þús. og 20% ai afgangi. Af 125 þús, kl. og yfir greiðast 20400 ki’. af 125 þús. kr. og 25% af afgangi. „Fór holu“ í einu höggi. I golfmóti, sem fram fór á golfvellinum hér fyrir viku, gerðist það, að einn keppenda sló knött sinn í holu í einu höggi, en það er óvenjulegt af- rek. Alls voru 30 keppendur í móti þessu, og var það Ólafur Ágúst Ólafsson, sem nú er orð- inn golfmeistari, eins og sagt er frá á öðrum stað í blaðinu, sem þetta gerði. Var það 7. hol- an og er höggfærið þar 190 m. og talið venjulega, að þörf sé fyrir fjögur högg fyrir hana. Þykja það hvarvetna mikil tíð- indi, þegar menn „fara holu“ í einu höggi. Frá útsvari, ein og það reik ast samkvæmt þessurn stiga, er • veittur fjölskyldufrádráttur, 700 fyrir konu og sama uppivæð fyr- ir hvert barn innan 10 ára am’ ■. urs á framfæri gjaldanda. Frek- ari frádráttur á úrsvari er veilt- ur þeim gjaldendum, sem á het- ur fallið kostnaður vegna veik- inda eða slysa, ennfremur ef starfsgeta þeirra er skert vegna örorku eða aldurs. Einstæðar mæður fá tvöfaldan persónufrá-! drátt fyrir hvert barn á fram- færi. iSamkvæmt þessu er útsvars- stigi einstaklinga lækkaður úr 20% í 15% á tekjur frá 25—55 þús. kr. Persónufrádráttur er hækkaður úr kr. 450 í kr. 7J0, eða um 55.5%, og hefur því hækkað, miðað við árið 1952 urn. 133 %%. Eign. Eign til útsvars er skuldiaua eign til skatts samkv. 1. nr. 46/j 1954, um tekjuskatt og eignar- skatt. þó er fasteignamat yfir- leitt þrefaldað við ákvörðum eignarútsvars, og regiur laga um afskriftir eigna ekki taldar bind- andi, sbr. 4. grein laga nr. 66/] 1945, um útsvör. Hlutabréfaeign er ekki talin með eignum ein- staklinga, heldur á haua lagt lijá félögunum sjálfum. Umsetning. Gjaldendum, sem hafa með höndum atvinnurekstur eð t sjálfstæða starfsemi, er gert að greiða útsvar af umsetningu. þessi útsvör voru 1953 að meðai- tali 1.025% af umsetningu, en eru í ár 0.764%, og nemur lækk- un þeira þannig 25.5% að meðai* tali. Voru dr. John gefin deyfilyf ? Rússar hefja sjálfir yfirheyrslur. Einkaskeyti frá AP. — Bonn í morgnn. Schröder, innanríkisráð- herra, sagði á þingfundi í gær, að ef til vill hefði læknirinn, sem fór með dr. John til Aust- ur-Berlinar, gefið honum eit- urlyf. Líkur bentu til, að dr. John hefði verið ginntur þangað, og svo meinað að fara til V.- Berlinar aftur. Ráðherrann sagði að dr. John hefði án sinnar vitundar skrif- ast á við erindreka frá Austur- Þ zkalandi, sem hefði hvatt hann til að söðla um og ganga í fylkingu með kommúnistum, en dr. John harðlega neitað. Fluttur til Potsdam. í blaðinu Der Abend, sem gef- ið er út í Vestur-Berlín, segir að dr. John hafi verið fluttur til Potsdam degi eftir að hann var ginntur til Austur-Berlínar. Þangað var honum ekið í rúsneskri, lokaðri bifreið til höfuðstöðva MVD (rúss- nesku leymilögreglunnar). Vestur-þýzka blaðið „Bild Zeitung11 segir, að háttsettur rússneskir embættismenn hafi þegar lagt af stað frá Moskvu flugleiðis til þess að vera við- staddir yfirheyrslurnar yfir dr. John. Var send einkaflugvél með þá. Síðari fregn hermir, að yfirheyrslurnar muni fara fram í Atzy, aðalskrifstofum her- námsstjórnarinnar, og verði reynt að hafa upp úr dr. John allt, sem hann viti um áform V.-þýzku stjórnarinnar og vest- rænu þjóðanna um öryggismál og andkommúnistisku neðan- jarðar starfsemina í Austur- Þýzkalandi, sem stjórnað er frá V.-Þýzkalandi. Þekkti A.-Þ. kommúnista? Vestur-þýzka lögreglan er sögð hafa komizt á snoðir um, að dr. John hafi skrifast á við þrjá austurþýzka leiðtoga, þeirra meðal son Pieck forseta A.-Þ. Þá segir lögreglan, að há- skólinn í Leipzig hafi 1933 neit- að að taka gilda doktorsritgerð dr. Wolfgangs Wohlgemut, af því að hann var kommúnisti. Doktorstitilinn fékk hann svo hjá kommúnistum 1948 við há- skólann í Austur-Berlín.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.