Vísir - 27.07.1954, Blaðsíða 1

Vísir - 27.07.1954, Blaðsíða 1
VI L r v 11 árg. J)riðjndaginn 27. juli 1954. 187. tfol. Síldin þokast n<er landinu. Loftbardaginn við Kína litil síld nálægt því en stendur 40 milur út af því norður og austur af Langanesi, háðnr utan landhelgi. Varðskipið Ægir kom í gær úir síldarleit fyrir Norðurlandi og fer bráðlega í annan síldar- leiðangur. Vísir átti stutt viðtal í morg- un við Jón Jónsson fiskifræð- ing, sem stjórnaði síldarleit- inni og fékk hjá honum eftir- farandi upplýsingar: Seinast var skipið norður af Húnaflóa, fyrir norðan 38. hreiddarbaug og fengust þar miklar síldarlóðningar á Asdic- tæki og dýptarmæh. Lögðum þar reknet og fengum síld í þau. 36—38 sm., fallega. Fitu- prófanir á henni hafa ekki enn farið fram. Urðum að hætta þarna í bili vegna veðurs, en höfum annars farið víðar og verður farið aftur yfir sama svæði. i • ■ ■’> Niðurstöður af athugunum til þessa eru, að lítil síld er næst landinu, en miklu meiri er f jær dregur, t. d. norður og austur af Langa- Tunmiveiðar á Rvíkurhöfn. Mikil athafnasemi var á ytri höfninni í morgun, og voru menn á vélbátum og trillubátum önnum kafnir við að hirða tunnur, sem þar voru á reki. , ,Þannig stendur á tunnum þessiun, að þær voru notað- ar til þess að halda á floti olíuleiðslu, sem flutt var úr Laugarnesi út í Örfirisey á vegum Esso-olíufélagsins. Síðan voru tunnurnar skorn- ar frá, er leiðslurnar voru komnar á sinn stað í nótt. Tunnumar munu hafa verið um 500 að tölu, að |því er hafnsögumenn tjáðu Vísi í morgun. nesi stendur hún 40 mílur út af landinu og virðist hún hafa þokast nær, en þarna fannst hún með sömu tækj- um fyrir mánuði 70—75 mílur frá landinu. Annars er samanburður erf- iður við fyrri ár, þar sem þau tæki sem nú eru notuð við síldarleitina, voru ekki notuð þá. IHvlðri frá Horni til Langaness. Frá fréttariturum Vísis. Sigluf. og Raufarh. í morgun. Engin síld hefur borizt á land, hvorki á Siglufirði né Raufarhöfn undanfarinn sólar- hring, vegna óhagstæðs veðurs. Fréttaritari Vísis á Siglufirði tjáði blaðinu í morgun, að haugasjór væriúti fyrir, allt frá Horni og austur að Langanesi. Fjölmörg skip hafa legið í vari á Siglufirði, og ekkert getað að- hafzt vegna veðurs. Svipaða sögu var að segja frá Raufarhöfn, en þar lá mikill skipafjöldi inni í morgun. Þó var veður heldur tekið að lægja einkum fyrir sunnan Langanes, og voru nokkur skip farin að tínast út í morgun. Dauft er yf- ir öllu athafnalífi á báðum stöð- unum, engin söltun en almenn deyfð í bili. Borgarstjórasonur fangelsaður. Róm á laugardag. Sonur borgarstjórans hér, Salvatore Rebecchinis, hefur verið handtekinn fyrir að vera valdur að dauða tveggja kvenna. Sonurmn, Gaetano, er húsa- meistari og hrundi hús, sem var að reisa með þeim afleiðing- um, að tvær konur biðu bana. Bræðskisíldarafl- inn 107.000 mál Á miðnætti s.l. laugardag nam bræðslusíld samtals 107.- 678 málum en 45.176 í fyrra á sama tíma. Alls hefur verið saltað í 33.836 tunnur, og er það ekki nema þriðjungur þess, sem búið var að salta á sama tíma í íyrra. Fiskifélag íslands hefur látið frá sér fara hina venjulegu afla skýrslu um síldveiðar lands- manna, og' eru þetta meginatriði hennar: * w Búið er að frysta síld, er nemur 7341 tunnu, en á sama tíma í fyrra 4666 tunnur. Alls sturida nú síldveiðina 190 skip, samkvæmt upplýsing- um F. í. og af þeim hefur 181 skip fengið einhverja veiði. 122 skip hafa fengið yfir 500 mál og tunnur. Togarinn Jörundur frá Ak- ureyri er aflahæstur hinna stærri skipa — hefur fengið 3274 mál og tunnur. M.s. var með um 37000 mál. Feikna gremja rikir í Bands- rfkjiHium yfir árásunum. Einkaskeyti frá AP. New York í morgun. Feiknagremja ríkir í Banda- ríkjunum yfir árásum kín- verskra orustuflugvéla aðfara- nótt mánudags síðastliðins, sem um varð kunnugt í gær. Voru árásarflugvélarnar tvær og báðar skotnar niður, því að bandarísku orustuflugmennirn- ir svöruðu þegar skothríð þeirra. - Er það í samræmi við stefnu Bandaríkjanna, að snúast til varnar, ef ráðist er á herafla Bandaríkjanna, hvort sem er á sjó, landi eða í lofti. Var á þetta lögð áherzla í gær af Stupp flotaforingja, yfir- manni bandaríska. Kyrrahafs- flotans, og Carney yfirflotafor- ingi tilkynnti, að leitinni á svæðinu, þar sem Skymaster- flugvélin brezka yar skotin nið- ur, yrði haldið áfram. Dulles utanríkisráðherra birti tilkynningu í gaer og fordæmdi árásina harðlega. Lýsti hann yf- Nelson flugkappi væntan- legur hingað í vikmmi. Hanvi flaug fyrstur manna hingað fyrir 30 árurn. Mannkindin er 2500 millj'ónir Hefir fimfaldazt á 300 árum. Einkaskeyti frá AP. — París í gær. Hagstofan franska hefur gef- ið út skýrslu um mannfjölda í heiminum, svo og með ýmis konar fróðleik um Frakka sjálfa. Hagstofan gerir ráð fyrir, að mannfjöldinn í heiminum hafi rúmlega tvöfaldazt undanfarin hundrað ár, verið um 1160 mill jónir árið 1850, en gizkað er á, að hann sé um 2500 milljónir nú. Fyrir 300 árum er gizkað á, að mannfjöldinn í heiminum hafi verið um 500 milljónir. Mannfjöldimi mun hafa tvö- faldazt í Evrópu síðustu 100 árin, en t. d. ferfaldazt í Rússlandi, og hann sexfald- azt í Norður-Ameríku á Innan fárra daga er væntan- iegur hingað Erik H. Nelson flugkappi, sem fyrstur manna flaug hingað til lands árið 1924. Það er Flugmálafélag fslands, sem stendur fyrir boði þessu, og er svo ráð fyrir gert, að af- hjúpuð verði minningartafla í Hornafirði, en þar lenti Nelson hinn 2. ágúst 1924 á leið sinni frá Orkneyjum, en hann var þá hnattflugi, eins og rosknir Reykvíkingar munu minnast af þeirra tíma frásögnum. Alls voru flugvélarnar fjór- sama tíma, að áliti hagstof- unnar. í Frakklandi hefur fólksfjölg unin verið hæg, og hefur þjóð- inni aðeins fjölgað um 7 millj. síðan 1850, svo að nú eru Frakk ar taldir 43 milljónir. Barnadauðií Frakklandi. Dánartala ungbarna í Frakk- landi náði lágmarki á síðasta ári, varð 36 af 1000, miðað við fyrsta aldursár. Barnadauðinn er mjög mismunandi eftir at- vinnu föður. Var hann lægstur hjá tannlæknum, er misstu 16 af 1000 börnum á fyrsta ári. Lyfjafræðingar misstu 17 af hverjum 1000 börnum, læknar 21 barn. Hæst varð dánartalan hjá námumönnum eða 80 börn af hverjum 1000. Rhee hylltur i Washington. Einkaskeyti frá AP. Washington í morgun. Syngman Rhee forseti Suður- Kóreu kom til Washington í morgun í viku opinbera heim- sókn. Meðan hann dvelst hér ávarp ar hann báðar deildir þjóðþings ins á fundi í sameinuðu þingi. Rhee var tekið með kostum og kynjum. Nixon varaforseti, Radford flotaforingi og ýmsir ráðherrar tóku á móti honum. Var því næst ekið um skreyttar götur til Hvíta hússins og var gífurlegur mannfjöldi með öil- um götum, sem ekið var um. ar, sem lögðu upp í hnattflug frá Seattle í Washington-fylki í Bandaríkjunum í aprílbyrjun 1924. Ráðgerðir voru 45 við- komustaðir á leiðinni, enda flugvélar þeirra ma ólíkt ó- traustari en nú gerist. Þetta voru einhreyfla tvíþekjur, sem varla myndu þykja boðlegar í dag, enda var þetta talin mikil glæfraf.r og gífurlegur viðbún- aður til öryggis þessum fífl- djörfu flugmönnum. M. a. má geta þess, samkvæmt frásögn Vísis 4. ágúst 1924, að fjögur herskip voru á Norður-Atlants- hafi til þess að gæta flugleið- arinnar: Beitiskipið Richmond var við Orkneyjar, Billingsley var milli Orkneyjar og Fær- eyja, Reid milli Færeyja og ís- lands og Raleigh við Horna- fjörð. ir því, að hún hefði verið gerð yfir rúmsjó og á svæði þar serrt björgun fór fram. Hafi þetta verið 12 sjómílur utan land- helgi Hainaneyjar. Undir eins og Dulles hafði birt þessa yfir- lýsingu fór hann að boði Eisen- howers forseta á fund hans í Hvíta húsinu og sátu æðstu menn landvarnanna fundinn. Að þessum fundi loknum fór Dulles á fund Sir Roger Makin, sendiherra Breta, og er það ætl- un manna, að hann muni fara fram á það við Breta, að sendi- ráð þess í Washington komi á framfæri mótmælaorðsendingu. en Bandaríkin hafa enga diplo- matiska fulltrúa hjá kínversk- um kommúnistum, þar sem þeir viðurkenna ekki stjórn þeirra. Sendiherra Ráðstjórnarríkj-: anna fór óvænt á fund Dullesar. Eden, sem í gær gerði neðrí málstofu brezka þingsins grein fyrir afsökunarbeiðni komm- únistastjórnarinnar í tilefni af hinni grimmilegu árás komm- únista á hana, mun nú í dag gera grein fyrir loftbardagan- um undan Hainan-ey og við- horfi eftir hann. Heimsblöðin ræða árásina. í heimsblöðunum er að sjálf- sögðu ekki um meira rætt í morgun en loftbardagann og kemur m. a. fram í brezkum blöðum, að atburðir þeir, sem gerzt hafi sýni, að ekki veiti af, að þeir Molotov og Chou En-lai fræði undirmenn sína um það hvað átt sé við með orðunum friðsamlegur, gagn- kvæmur tilverurréttur. Dailv Sketsch segir, að nú hafi komm- únistum verið svarað á þann eina veg, sem þeir skilji, og í þessu blaði og fleiri brezkum kemur fram, að Bretar megi vera þakklátir fyrir hve fljótt Bandaríkjamenn brugðu við að serida flugvélaskipin á vett'- vang þótt að vísu segi í einu þeirra, að kommúnistar kunni að hafa tekið það sem ögrun. — Daily Express ver algerlega Bandaríkjamenn og segir, að Bretar ættu að standa með Bandaríkjamönnum og gera sér grein fyrir, að þeir séu vinir þeirra, en jafnframt ættu þeir einnig að gera sér ljóst hverjir, þættust vera vinir þeirra. Nelson komst hingað fyrstur af þeim félögum, og lenti í Hornafirði á sjóflugu sinni síðdegis 2. ágúst. Hafði hann þá verið 8% klst. á leiðinni frá Kirkwall í Orkneyjum. Þrjár flugur lögðu af stað, en tvær þeirra urðu að snúa aftur vegna þoku, en Nelson hélt áfram. N’lson kvaðst vera óþreyttur með öllu, er hann lenti, en mörg hundruð manns höfðu flykkzt á staðinn til þess að fagna honum í lendingunni: Saga þessa flugs verður ekki Framh. a 2. síðu. Kanadastjórn eim í vaffa. Einkaskcyti frá AP. Ottawa í morgun. Kanadastjórn hefur ekki enn tekið ákvörðun um þátttöku i störfum eftirlitsnefndarinnar með vopnahléi í Indókína. Vill Kanadastjórn fá ákveðitt’ loforð og tryggingu fyrir, að nefndin geti starfað hindrunar-: laust.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.