Vísir - 17.08.1954, Qupperneq 8
TlSIB er ódýratta biaSið «g þð það RSI-
breyttasta. — Hrf-agiS i i-tnx 'ltM'eg
* geiist áskrifendnr.
WISSB.
Þek Ktn gerast kaupendur VtSIS eftir
19. hveri mánaðar fá blaðið ókeypli fM
minaðamóta. — Siml 18«».
Þriðjudaginn 17. ágúst 1954.
Prestssetrið og kirkjan í Odda á Rangárvöllum 181$, J
Vörður efnir til
ferðar um sögustaði.
Skygnzt um á slóðum Gunnars og Njáls.
Gera má ráð fyrir, að mikiS
ájölmenni taki þátt i hópferS
Jþeirri, sem landsmálaiélagið
"Vörður ráSgerir um sögustaSi
Hangárvallasýslu næstkomandi
-sunnudag.
Lagt verður af stað frá Sjálf-
stæðishúsimí kl. 9 á sunnudags-
•znorgun, og verða sögufróðir
znenn með í förinni, sem munu
skýra það helzta, sem fyrir aug-
un ber.
Við Ægissíðu verðiu’ numið
staðar og þar skoðaðir hinir
furðufegu hellar og jai’ðgöng,
sem ýmsir telja, að séu allt frá
tímum Papa. þarnæst verður
•ekið að Odda og staldrað við um
stund á þessu fornfiæga mennta-
seti’i.
þá vei'ður ekið í Fljótshlíð og
farið um sveit Gunnai-s. Á Hlið-
arenda verður nokkui’ viðdvöl,
- en síðan -ekið að Bergþörshvoli,
en staðui-inn gefur nóg tiletni til
hollalegginga og hugleiðinga. oa:
fi’óðir menn munu skýra frá
ýmsu í sambandi við staðinn.
Síðan verður farið að Keldum
A Bangárvöllum, en þar eru fom
rnannvii’ki og bvggðasafn.
Að Iokum ekið hjá Gunnai-s
holti og skoðuð sandgræðsla þar,
sem er iiið merkilegasta fyriu
tæki.
Fargjaldi hefur verið mjög
stiílt í hóf, aðeins 100 krónur á
tnahn, og er matur þar innifal-
inn. Miðar eru seldir í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins.
Sjómaður sírýkur
af Batory.
Einkaskeyti frá AP. —
K.höfn á laugardag.
Enn hefir sjómaður stroldð
af pólska farþegaskipinu Batory
- og leitað hælis sem flóttamaður.
Gerðist þetta á föstudaginn,
þegar skipið var að fara héðan.
Stökk maðurinn fyrir borð, en
lögreglubátur náði honum og
flutti til lands.
Fjórir menn hafa þá strokið
af Batory upp á síðkastið, og
gerðu tveir það saman, þegar
. skipið kom úr leiðangiú til ís-
lands í sl. mánuði.
Efna til hljómleika á
Akureyri.
Lúðrasveit úr varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli efndi til
hljómleika á Akureyri um
helgina.
Hafði kvenfélagið Framtíðin
boðið lúðrasveitinni norður, en
hún hafði efnt til hljómleika
þar í vor við mikla aðsókn.
Voru áheyrendur þá um 1000
samtals.
Yfir 15 metra í
kúiuvarpi.
Um helgina fóru 25 iþrótta
menn frá íþróttafélagi Reykja-
víkur austur að Selfossi tii
keppni í frjálsum iþróttum.
Mjög góður ái’angur náðist i
einstökuin gféinum svo sem 100
ni. hlaupi og kúluvarpi.
í 100 metra hlaupi sigraði
Guðnnmdur Vilhjálmssön Í.R. á
10.7 sék. og náði þar með tilskild
um lágmarkshraða til keppni á
Evrópumeistai’amótinu í haust.
Skúli Thorarensen Í.R. varp-
aði kúlunni 15.01 mctra og hefur
aðeins Huseby einn kastaö
kúlú lengra hér á landi.
Atmar árangur varð sem hér
segir:
í 800 m ldaupi sigraði Sigurð-
ur Guðnason Í.R. á 2:10.0 mín.
og sömuleiðis sigraði hann í 300
m hlaúpi á 9:35,8 mín. í Iiá-
stökki bar Ingólfur Rárðarson,
Self. sigiu’ úr býtum A 1:75 m.
Valdimar Örnólfsson Í.T. sigraði
i langstökki (i.70 in oy kringlu-
kasti 38.76 m. Björgvi i Hólm í.
R. sigraði í þrístökki 7!M5 m og
spjótkasti 46.38 m. Str gai’stökk-
ið vann B.iarni Linnet '.R. á 3:52
rn.
Veður vár einkar h gstætt til
képpui.
Færeyingar
sigruðu
ísfirðinga.
Færeyskur knattspyrnuflokk-
ur kom til ísafjarðar fyrir helgi
í boði ísfirzku knattspyrnufé-
laganna Harðar og Vestra.
Voru ísfirðingarnir með
þessu að endurgjalda boð Fær-
eyinga frá árinu 1949, en þá
fói’u ísfirzkir knattspyrnumenn
til Færeyja og kepptu þar.
Færeyingarnir standa aðeins
nokkra daga við á ísafirði og
var ákveðið að þeir kepptu þar
tvisvar við ísfirzk knattspyi’nu-
lið. Fyrri leikurinn fór fram s.
1. laugardag og kepptu Færey-
ingarnir þá við úrval úr ísa-
fjarðarfélögunum, Herði og
Vestra. Færeyingarnir báru sig-
ur úr býtum og skoruðu 4
mörk gegn 1. Dómari var Sverr-
ir Guðmundsson.
Á sunnudaginn bauð bæjar-
stjórn ísafjarðarkaupstaðar
Færeyingunum í skemmtiferð
til Önundaitf j arðar, Dýrafarðar
og Súgandafjarðar. Létu þeir
mjög vel af ferðinni og rómuðu
bæði náttúrufegurð og móttök-
ur allar.
Gert er ráð fyrir að seinni
kappleikurinn milli Færeyinga
og ísfirðinga fari fram á morg-
un.
Tveir Pólverjar flýja sæluna
á krossviðar-kajak.
Komust tiS Borgundarhólms
eftir mikið vo9k.
Fulltrúadeildin heft*
ir starfsemi
kommúnista.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Fulltrúadeild Bandaríkja-
þings hefur samþykkt frum-
varp, sem miðar að því að hefta
starfsemi kommúnista í land-
inu.
Hnigur frumvarp þetta í svip
aða átt og það, sem öldunga-
deildin samþykkti á dögunum,
og var það samþykkt með 305
atkvæðum gegn 2. Þó er þetta
frumvarp fulltrúadeildarinnar
frábrugðið öldungadeildarfrum
vai’pinu að því leyti, að refsi
ákvæðum er sleppt, en hins veg
ar er kommúnistaflokknum
bannað að bjóða fram til þings
eða bæjarstjórna eða hvers
konar trúnaðarstarfa. Flokkur-
inn er sviptur öllum réttindum,
sem aðrir flokkar njóta. Þá eru
og ákvæði í því, sem segja, að
ef verkalýðsfélag sé í höndum
kommúnista, skuli þ(að svipt
öllm réttindum og viðurkenn-
ingu, sem slík samtök njóta.
Einkaskeyti frá AP.
Rönne, Borgundarh. í gær.
Danskir lögreglumenn fundu
í gær tvo pólska flóttamenn,
heldur illa á sig komna, sem
höfðu flúið frá Póllandi í kajak.
Áður hafa flóttamenn frá
járntjaldslöndunum komizt und
aii með ýmsum hætti, svo sém!
í flugvélum, skriðdrekum og!
járnbrautaiÁögnum, en þetta
er víst í fyrsta sinn, sem menn]
komast úr sælunni austan
tjalds á kajak. |
Menn þessa bar að landi á
Borgundai’hólmi eftir mikið
volk og voru þeir þreyttir og
illa haldnir. Þeir gengu þegar
4U Wændabýlis og báðu um
hjálp. Lögreglan tók þá í vörzlu
sína, þar til umsókn þeirra um
hæli sem pólitískir flóttamenn
hefur verið athuguð.
Fyrst í stað var erfitt að
skilja flóttamennina, sem eru
um tvítugt, en síðar, er náðzt
hafði í túlk, kom í ljós, að þeir
höfðu róið í vesturátt í tvo sól-
arhringa í farkosti sínum, sem
gerður vár úr krossvið og ó-
traustur mjög, eins og nærri má
geta. Illt var í sjóinn'og gengu
öldurnar yfir þá.
Ekki er full-ljóst, hvort þeir
hafi lagt af stað frá Póllandi eða
Austur-Þýzkalandi. Menn þess-
ir vérða síðar fluttir tii Kaup-
mannahafnar og mál þeirra
rannsakað þar.
í Kaupmannahöfn ver.ða
mennirnir yfirheyrðii- með að-
stoð túlks, og ákvörðun tekin
um, hvort veita skuli þeim
dvalarleyfi.
i 48.000 verk'amenr ' gúmmí-
j iðnaðinum í Band íkjunum
hafa gert verkfal! Iófst það
* í gær.
Bílum ekið út af.
í morgun sáu vegfarendur,
sem óku um Mosfellssveitarveg,
bíl á hvolfi utan við veginn
skammt frá Grafárholti.
Ekki voru menn þar neinir
viðstaddir og ekki sáust nein
merki um slys. Lögreglan hef
ur mál þetta til meðferðar.
Á sunnudagsnóttina hafði bif
reið verið ekið út af Suðurlands
braut milli Grensásvegar og Há
logalands. Bifileiðin var mann-
laus, þegar að var komið og
ekki var vitað um orsakir ó-
happsins. Lögreglan gerði ráð-
stafanir til þess að ná bifreið-
inni upp og fjárlægja hána.
KR:Akranes í úr-
slitum aiinað kvöld.
A morgun fer fram úrslita-
Ieikur í knattspyrnumóti ís-
lands, og eigast þá við Akur-
nesingar og KR.
Skagamenn standa betur að
vígi, þar sem þeir hafa unnið
alla leiki sína, og hlotið 8 stig,
en KR-ingar hafa unnið þrjá
leiki en gert eitt jafntefli, og
hafa því 7 stig. Nægir Akur-
nesingum því jafntefli til þess
að vinna mótið, en KR-ingar
verða að sigra Skagamenn til
þess að verða meistarar. Munu
KR-ingar hafa hug á því að gef-
ast ekki upp fyrr en í fulla
hnefana.
Óánægja nei til-
lögur Frakka.
Hollenzka stjómin hefir ’lýst
yfir óánægju sinni yfir tillög-
um fijönsku stjórnarinnar vegna
væntanlegs Evrópujhers.
Segir þar, að ef tillöguriiar
kaemu til franikvæmda, myndi
þær raska éðli og tilganga Ev-
rópuhersins, og að vonlítið sé
um samkomulag um þær á
fundi þeim, sem boðað hefir
verið til í Briissel. Formælandi
bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins lét svo um mælt, að mik-
ið væri í húfi í sambandi við
stofnun Evrópuhersins. Þar
gæfist Vestur-Evrópuþj óðunum
gullið tækifæri til þess að
standa að sameiginlegum land-
vömum undir sameiginlegri
yfirstjórn.
Skálað fyrir Mao.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Sendinefnd verkamanna-
flokksins brezká, sem nú et
stödd í Peking, sat í gær veizlu
mikla, er kínverska kommún-
istastjómin hélt þeim.
Þar flutti Clement Attlee,
formaður néfndarinnar, ræðu,
þar sem hann minnti á, að það
hefði verið brezka verkamanna
stjórnin, sem viðurkenndi
stjórn Mao-tse-tungs á: sínum
tíma. Var ræðu hans ákaflega
vel tekið.
Síðan mælti Chou-en-lai, ut-
anríkisráðherra Pekingstjórnar
innar, fyrir minni Elísabetar
Bretadrottningar, en Attlee
svaraði með því að mæla fyrir
minni Mao-tse-tungs.
Eldur i ftveim
brögguflti.
í gærmorgun sáu vegfarendur,
var slökkviliðið kvatt í geymslu
bragga við Reykjavíkurveg.
Þegar að var komið var eld-
ur í kassadóti og rusli, sem þar
var geymt. Eldurinn var fljót-
lega slökktur og skemmdir urðu
litlar.
Auk þess hafði eldur verið
kveiktur í fatadóti í bragga við
Sölfhólsgötu. Var hann slökkt-
ur þegar í stað. Loks var eldur
kveiktur í einhverju rusli norð
an við Arnarhól, en ekki hlút-
ust af því neinar skemmdir.
Tók of mikið
upp í sig.
Einkaskeyti frá AP. —
Kaupmauuahöfu í gær.
Danir hafa ekki notið mikiUac
sólar í sumar, og ailir hafa þráð
hana.
Wiig Nieisen veðurfræðingur
hélt á föstudaginn, að hann gæti
lofað Kaupmannahafnarbúum
sól yfir helgina og sagði: „Ef
ekki verður sól um helgina, skal
ég eta hattinn minn.“
Hgnn neyddist til að leggja
sér þottlokið til munns í dag.
Verkama5ur slasast
á Kvíkurflugvelli.
í gærdag slasaðist maður á
Keflavíkurflugvelli með þeim
hætti að hann féll úr mikilli
hæð ofan á steingólf í húsi, sem
er í smíðum.
Maður þessi er frá Siglufirði
og heitir Hilmar Jónsson. Var
hann fluttur í sjúkrahús varn-
arliðsins til aðgerðar. Hafði
hann ifiotið mikinn áverka á
höfði, en ekki er vitað hvort
um höfuðkúpubrot er að ræða.