Vísir - 23.08.1954, Page 1
44. árg.
====r
189. tbk
VI
H
I *
■ I
v
Mámudaginn 23. ágúst 1954. ’$jt|$S|i|f9|*|'
íslenzka knattspyrnulandsliðið fór utan með millilandaflug-
vél Loftleiða fyrir helgina, en hún flutti það til Gautaborgar.
Á morgun verður háður kappleikurinn við Svía, og fer hann
fram í Kalmar, og er búizt við miklum fjölda áhorfenda, eins
og áður ver sagt í skeyti til Vísis. (Ljósm.: P. Thomsen).
Oþokkar hells áfengi í barn.
Afflskonar strákapör drukkinna
iinanna um helgina.
Árla laugardagsins voru tveir
menn hér í bænum staðnir að
þeim fáheyrða óþokkaskap að
hella áfengi ofan í fjögurra ára
gamlan dreng.
Var drengurinn sonur annars
mannsins. Fólk varð vart við
þetta svívirðilega athæfi og var
lögreglunni gert aðvart. Náði
hún í báða mennina, tók dreng
inn af þeim, en setti þá síðan
í fangageymslu.
En fyrir utan þetta bar ó-
venjumikið á hverskonar stráka
pörum og óþokkaskap ölvaðra
manna hér í bænum og ná-
grenni hans um helgina.
Eitt meðal annars var það,
að þrír fullorðnir menn, sem
voru á ferð í bifreið uppi á
Kjalarnesi, gerðu sér leik að
því að bera mikið af stórgrýti
á veg heim að bæ einum þar
á nesinu, og gera heimreiðina
þangað óökuhæfa. Mennirnir
náðust og voru þeir allir undir
áhrifum áfengis.
Á sunnudagsmorguninn los-
aði ölvaður maður báta, sem
bundnir voru við Verbúða-
bryggjurnar. Maðurinn náðist
og var settur í fangageymslu
en bátarnir bundnir aftur við
bryggju.
Aðfaranótt sunnudagsins
voru fjórir menn teknir fastir
fyrir ölvun við akstur og sá
fimmti fyrir tilraun til þess að
aka bíl undir áhrifum áfengis.
Sörnu nótt handtók lögreglan
fáklæddan mann, sem spíg-
gporaði klæðlaus eða klæðlítill
eftir Austurstræti. Lögreglan
tók hann í vörzlu sína.
Snemma í gærmorgun var
hringt til lögreglunnar frá Kópa
vogi og henni tilkynnt um hús-
brotstilraun, sem þar hafði ver
ið framin seinni hluta nætur.
Höfðu tveir öldrukknir menn
gert tilraun til þess að brjóta
upp húsdvr. Notuðu þeir til
þess bílíjöður og hafði þeim
tekizt að sprgngja upn ,- mekk-
lás og sömuleiðis brutu þeir
ljósker við eða yfir dyrunum.
En þegar þar var komið sögu
urðu húsbrotsmenn varir manna
ferða og lögðu á flótta. — Að
minnsta kosti annar þeirra
þekktist örugglega og hefur
hreppstjórinn í Kópavogi mál-
ið til meðferðar.
Um miðjan dag í gær fleygði
maður sér í Reykjavíkurhöfn.
Maður þessi, sem var drukkinn,
náðist og jafnaði hann sig fljótt
við hjúkrun og aðhlynningu.
í gær kom erlend stúlka á
lögreglustöðina og kærði yfir
því að rétt áður hefði komið
til sín ölvaður maður og stolið
frá sér 500 krónum í pening-
um ásamt einhverju fleiru. —
Stúlkan gaf nákvæma lýsingu
á manninum og er málið nú í
rannsókn.
Fyrir helgina féll ölvaður
maður skyndilega niður í Aust
urstræti. Hann var fluttur á
slysavarðstofuna til athugunar,
en þarna virtist ekki vera um
annað en ölvun að ræða. Rakn-
aði hann innan stundar úr rot-
inu og var hann þá fluttur heim
til sín.
í nótt datt maður aftur fyrir
sig á stéttinni við bifreiðastöð
Hreyfils á Kalkofnsvegi. Mað-
urinn var fluttur í sjúkrabíl á
Landspítalann og þar kom í
ljós, aS hann myndi hafa hlotið
heilahristing.
Keppni milli
Hollandsfara
annarra
skákmanna.
I fjáröflunarskyni fyrir skák-
mennina sem fara eiga á al-
þjóðamótið í Hollandi á næst-
unni hefur komið til tals að
efna til skákkeppni milli þeirra
annarsvegar og jafnmargra
manna úr Taflfélagi Reykjavík-
ur hinsvegar.
Ekki hefur enn verið ákveð-
ið hverjir valdir verða af hálfu
Taflfélagsins, en það ræður yf—
ir fjölmörgum ágætum skák-
mönnum og má meðal þeirra
nefna þá Guðjón M. Sigurðs-
son, Ásmund Ásgeirsson, Svein
Kristinsson, Lárus Johnsen,
Jón Pálsson, Birgir Sigurðsson,
Óla Valdimarsson og Eggert
Gilfer svo aðeins nokkrir séu
nefndir. Fyrrverandi Norður-
landameistari í skák, Baldur
Möller, kemur ekki til greina
vegna fjarveru sinnar.
Ennþá hefur hvorki verið
valinn staður né stund til
keppninnar og e. t. v. mun
almenningur vilja einnig gera
tillögur um það hverjir valdir
verða og hvaða staður valinn
yrði fyrir keppnina.
Er þess að vænta að slík
keppni yrði vel sótt og að hún
gæti orðið til þess að veita
Hollandsförum nokkurn farar-
eyri í aðra hönd.
Færeyingar keppa
við Val.
Búast má við f jölmenni á í-
þróttavellimum í kvöld, er
frændur vorir, Færeyingar,
tefla fram úrvals-knattspyrnu-
flokki gegn meistaraflokki
Vals.
Færeyingar hafa háð fjóra
leiki hérlendis, þar af unnið
þrjá, síðast úrval Akureyringa,
og hefur frammistaða þeirra
því verið með miklum ágætum.
Þetta er í fyrsta sinn eftir
sti’íð, að Færeyingar sækja ís-
land heim til þess að heyja hér
knattspyrnukappleiki.
Víkingur sér um móttökur
hér, en Færeyingar eru okkur
miklir aufúsugestir. Leikurinn
hefst kl. 8.
Briissel-ráðstefnan varð
árangurslaus.
Hlendes-France og Eden fljúga tll London
í dag og ræða við Churchill.
- Times telur horfurnar mjög alvarfegar.
Einkaskeyti frá AP. —
London í morgun.
í morgun er það höfuðefni |
brezkra blaða, að enginn árang- 1
ur náðist á fundinum í Brtissel,1
og eru horfurnar taldar ákaf-
lega alvarlegar. — Mendes-
France forsætisráðherra Frakk-
lands og Eden utanríkisráð-
herra Bretlands fljúga til Lon-
don í dag, íil viðræðna við Sir
Winston Churehill á sveitar-
setri hans.
Mendes-France flýgur þe«^i
að fundinum loknum til Parísar
til þess að gera stjórn sinni
grein fyrir því, sem gerðist í
Brussel, og árangrinum af við-
ræðunum við Churchill. Eden
hefur dvalizt að undanförnu í
sumarleyfi í Austurríki og ætl-
aði að dveljast þar lengur sér
til hvíldar og hressingar, en
sá, sér nú ekki annað fært en
að hverfa heim til Englands
þegar. Þess er getið, að Mend-
es-France hafði boðað, áður en
hann fór til Brússel, að hann
mundi fara á fund Churchills,
áður en hann færi heim.
Verkfallið í Bayern
hefir staðið
í 3 vikur.
Einkaskeyti frá AP. —
Berlín í morgun.
Verklýðsmálaráðherra Bay
ern hefur tilkynnt, að hann
muni í dag gera nýja tilraun
til að fá málmiðnaðardeiluna
leidda til lykta.
Ekki eru menn trúaðir á, að
verkamenn muni fallast á til-
lögur hans, ef þær ganga í þá
átt, sem ætlað er, að báðir að-
ilar fallist á bindahdi gerðar-
dómsúrskurð.
Verkfallið hefur nú staðið á
þriðju viku og gætir áhrifa þess
æ meira í ihinnkuðum útflutn-
ingi.
Dómari rekinn
Fannkoma og jarðhrun
í Alpafjöllum.
Þrumuveður mikið gekk yfir rnegmlantíið
og Bretland í gær. — Tjón af vafnav'öxtum.
Einkaskeyti frá AP. —í þorp nokkurt, sem varð hart
A TPa, A
1
Enn virðisi eiíthvað ókyrrt
í Rússlandi, að því er ensk hlöð
herma.
Ha'fa þau það.eftir rússneska
útvarpinu, a í vikunni sem
leið' hafi forseti hæstaréttar
Sovét-Arrneníu verið settur frá
embætti fyrirvaralaus t.
London í morgun.
í nótt fennti í Alpafjöllum í
1300 metra hæð og ofar. Úr-
hellisrigningar hafa verið dög-
um saman í dölum þar og ár
flætt ýfir bakka sína og jarð-
lirun orðið víða, m. a. á Norður-
ftalíu.
Þar hefur járnbrautarlestum
seinkað og vatn flætt yfir rækt
arlönd. í Austurríki flæddi inn
úti í flóðunum í sumar.
3 útvarpsstöðyar
kommúnisía þögnuðu
Þrumuveður gekk yfir mörg
lönd álfunnar í gær og í A.-Þ.
Þögh ,:ðu ailar útvarpsstöðvar
komr.’.únisia. í Brétlandi laust
eldingu niður í fjölda húsa. —
Geysileg úrkoma kom í kjölfar
þrumuveðursins og í Wales og
suðvesturhéruðum England8
flæddi yfir akra.
Mendes-France sjálfur
samþykkur sáttmálanum.
Mendes-France sjálfur vill
staðfestingu Evrópusáttmálans.
Adenauer kanslari V.-Þ. gat
þess að loknum einkafundi.
þeirra í gærkvöldi, og að M,-
Fr. væri samþykkur því, að
Vcotur-Þýzkaland fengi fullt og
óskorað sjálfstæði hvað sem lið1
Evrópusáttmálanum.
Fögnuður í Moskvu.
I útvarpinu í Moskvu var svö
að orði kveðið í gær, er lokatil-
kynningin hafði verið birt, en
með henni var staðfest, að eng-
inn árangur hefði orðið, — að
hún sýndi, að bandarísk utan-
ríkisstefna hefði beðið nýjan ó~
sigur.
Hvað ber að gera?
Lundúnablöðin ræða hvað
gera beri nú, þegar Brussel-
ráðstefnan er farin út um þúf-
ur. Daily Herald, blað Verka-
lýðsflokksins, segir þetta mestæ
áfallið um mörg ár fyrir vest-
ræna samvinnu. Kallar blaðið
það kaldhæðni, að Frakkar
sjálfir skyldu verða til þess að;
rífa niður það, sem verið var
að byggja upp að þeirra eigin.
tillögum. Times telur horfurnar
mjög alvarlegar og hvetur tiL
athafna, til þess að afstýra frek:
ari óheppilegum afleiðingum.
þess, að samkomulag náðist
ekki. Daily Mail segir, að dag-
urinn í gær — er ráðstefnunni.
lauk, hafi verið dimmur dagur
fyrir Vestur-Evrópu og Frakk-
ar eigi sökina, en fyrir alþjóða-
kommúnismann hafi dagurinn.
verið hinn ánægjulegasti. New
Chronicle segir, að það sé mesfe
undir Frakklandi komið hversií.:
fari um Þýzkaland, en heims
friðurinn sé aftur undir þv :
kominn hvernig ÞýzkalandsmáÍ.
inu reiði af. — En í blöðunum.
er einnig slegið á þá strengi,,
að þrátt fyrir að tillögur Frakkæ
fengju engan byr, sé áfram ein-
ing ríkjandi um vestræna sam-
vinnu, hvaða leiðir sem farn-
ar verði. Er m. a. bent á, að:
efla Norður-Atlantshafsvarnar
bandalagið.
í Frakklandi
ríkir gremja yfir pVí,* áð hifn
löndin, sem standa að varnar-
samtökum Vestur-Evrópu, sam.
einuðust gegn tillögum Frakka,,
og kom það einnig fram hjá.
írönsku fuíltrúunúm í Brússel..
Frakkar stóðu þar gersamlega.
einir. Kom greinilega fram í
Brússel, að tortryggnin gegn.
Þjóðverjum er rótgrónust í.
Frakklandi, en í hinum lönd-
j unum er það ekki lengur talið^
vænlegt til samstarfs að ala á.
henni. — Nokkurs beygs gæt-
í vestrænu löndunum um það,.
að svo kunni að fara, að ósam-
komulagið leiði til stjórnar-
myndunar, er taki vinsamlegri
afstöðu gegn Rússum.