Vísir - 10.11.1954, Blaðsíða 1

Vísir - 10.11.1954, Blaðsíða 1
44. árg. Fimmíudaginn 11. nóvember 1954 257. tbl. Víg&iÉÐía&ur 8®|c5verja ; VerSur eftlrmaBur Routm- els yflriiaiur herslns ? Bandaríkin leggja allt fram, sem með þarf, fyrir allt að 10 milljörðum dollara. Binkaskeyti frá AP. Bonn í gær. Líklegt er talið, að Ludwig Cruewell, fyrrverandi hershöfð- ingi verði skipaður yfirmaður vestur-þýzka hersins, sem stofn- aður verður eftir fullgildingu Parísarsamninganna. Hann er 64 ára og var í sein- ustu heimsstyrjöld yfirmaður Afríkuhers nazista og tók við af Rommel., er hann varð yfirmað- lir vélahersveitanna. Cruewell er næstum sköllóttur og notar gler- augu. Hann hefur að undanförnu verið starfsmður iðnaðarfyrir- tækja í Ruhr, og hefur hann oft sagt, að hann hefði ekki í hyggju að gerast hermaður að nýju. En hann er viðurkenndur einn af heztu liermönnum Þjóðverja á síðari timum, og er talið að bæði stjórnarflokkarnir og stjórnar- andstæðingar geti fallist á hann, þar sem hann sé lýðræðissinni og eigi i engu sammerkt með hinni prússnesku liðsforingja- tnanngerð. Bretar tóku Cruwell höndum að morgni dags nokkurs 1941 er þyrilvængja hans varð að nauð- lenda sunnan Tobruk. Var hann fangi það, sem eftir var striðs- ins. Tveir aðrir fyrrverandi hers- höfðingjar eru taldir líklegir til þess að taka við störfum í hinum mýja, vestur-þýzka her. Aniiar er Adolf Heusinger, er var einn þeirra, sem Hitler vék frá,' eftir tilræðið 20. júlí 1944, en hinn er Hans Speidel, sem um tima átti -sæti í herráði Rommels í Frakk- Jandi. Vestur-þýzki herinn fær að lik- indum bandariskar F-8C Sabre þrýstiloft.sorustuflugvélar og brezka Cenlurion-skriðdreka. — Flest er lierinn þarfnast munu Bandaríkin leggja til, og er áætl- aður kostnaður 10 milljarðar dollara. Havenga tekur við af Maian. Einkaskeyti frá AP. — Johannesburg í gær. Það er nú talið víst, að Þjóð- ernissinnaflokkurinn sé búinn að ráða við sig, hver verður eftirmaður cU,. Malans. Flokksþingi hefir verið stefnt saman þann 30. þ. m., og mun dr. Malan þá segja af sér formennsku í flokknum. Mun fj ármálaráðherrann, Nik- olas Havenga, sennilega verða formaður flokksins og þá for- sætisráðherra landsins. Ekki vitað um nem stys i óveðrmu. Ekki er vitað um neitt slys, sem orðið hafa af völdum óveð- ursins, að því er slysavamafélag- ið skýrði Vísi frá í morgun. Símasambandslaust var við nokkrar verstöðvar, og hefur slysavarnafélagið haft samband við þæi' eftir að símasamband komst á aftur, e nhvergi frétt um nein slys, enda munu bátar yf- irleitt ekki hafa farið A sjó í of- viðrinu. HeHishei&i éfær, vt&ar ittfærL firjsivíknrleið er agæt. Samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fékk í morgun er Hellis- heiði ófær og ekki byrjað að ryðja hana. Yfir Holtavörðuheiði var slarkfært í gær fyrir stóra bíla. í gærkvöldi snjóaði mikið og er Hellisheiði talin ófær. Tveir mjólkurbílar, sem lögðu af stað að austím í morgun, munu hafa ætlað að reyna að komast suður heiði, en mikll snjór er fi’á Svína- dal austur yfir miðja heiði, og því hæpið að þeir komist suður yfir. þingvallaleiðin átti að heita fær í gær. en eftir snjókomuna í gærkvöld er á henni mikill, jafn- fallinn snjór á alllöngum kafla, og leiðin illfæx'. Hvalfjarðarleiðin er ei'fið, eink- anlega kringum Fosshól. Jeppi komst vestur í Dali í gær, en þeir sem í honum voru ux'ðu að moka talsvert til þess að kom- ast áfi'am. Slarkfært var yfir Iloltavöx'ðu- heiði í gær fyrir stóra bíla. Bílar Nox'ðurleiða fóru noi’ður í mox'g- un. Mjólkin. Mjólkurbílax’nir að austan fóm Krýsivíkut'leiðina i morgun, aðr- ir en þeír tveir, sem áður voi'u nefndir.; Kom hinn fyrsti um kl. 10 og mun nú vei'a skotfæii á þessari leið. Hér sést Geir Jón Helgason f. lögregluþjónn ásamt fjölskyldu sinni, og er myndin tekm vestan hafs. Geir Jón fluttist vestur um liaf fyrir tæpum þrem árum, en er nú í heimsókn hér. Britir Vísir við hann viðtal í dag inni í blaðinu. Sl. ár ferfiiðust 1,7 mDI|. inanns nei séríeyífsvagnum. Humlega 15 milljj. kr. voro greidd- ar í largjöld. A fyrstu 10 mánuðum þessa át|s hafa 800 þúsund manns ferðast með sérleyfisvögnum á leiðunum Reykjavík, Hafnar- fjörður og Reykjavík, Vífils- staðir, Vatnsendi, en það er lang fjölmennasta sérleyfisleið landsins. Á öllu árinu í fyrra nam far- þegafjöldinn á þessari leið 961 þúsundi. Önnur fjölfarnasta leiðin er Reykjavík, Sandgerði, en á þeirri leið hafa tveir sérleyfis- hafar fólksflutninga og flutti aimar þeirra, en það er Kefla- víkurhreppur, samtals 162250 farþega það sem af er þessu ári, en hinn sérleyfishafiim, Stein- dór, flutti nokkru minna. Aðrar fjölfarnar sérleyfis- leiðir eru Selfoss, Árnessýsla; Reykjavík, Stokkseyri ogy Reykjavík, Mosfellsdalur, en fluttir hafa verið 30—40 þús. farþegar á hverri þessara leiða það sem af er árinu. Á einstöku leiðum hafa orðið meiri flutningar á 10 fyi-stu mánuðum þessa árs heldur en á öllu árinu í fyrra. Þannig hafa verið fluttir mun fleiri flutningar axxkizt nokkuð. Sama gegnir á Borgai'fjarðarleiðum, bæði á leiðinni um Uxahryggi til Hreðavatns og eins á milli Borgarness og Reykjavkurj Einnig er um nokki-a aukningu að í'æða á Snæfellsnesleiðum og þó einkum á sérleyfisleið- unum Reykjavík, Hvanneyri; Ólafsfjörður, Siglufjörður og Akureyri, Torfafellsá. Á áiinu sem leið nam tala séi’leyfishafa 83 eða 14 fleiri en árið áðiir. Sérleyfisleiðirnar vour 138 talsins og kílómetra- fjöldi þessara leiða 11197. Alls voru rösklega 200 bifreiðar í notkxm á þessum leiðum, en ferðafjöldinn nær 118 þúsund. Meðal farþegafjöldi í hverri ferð var 14.2, en heildar-far- þegafjöldi 1680 þúsund. Gi'eidd- ar voru í fargjöld rúmlega 15 millj. kr. Fyxir 10 árum ferðuðust 1040 þús. farþegar með séi'- leyfisleiðum og greiddu þá ekki nema tæpar 4 millj. kr. í far- gjöld. Þá voru sérleyfishafar 65 að tölu og sérleyfisleiðirnar 85. — 2 menn í baii í höfninni í gær. Tvö hraustmexini fengxi sér bað í böíninni í gær, og létu sér ekki bilt við verða, þótt kalt væri í veðri og vatni. JTm klukltan 4 í gærdag var lögi'eglunni tilkýnnt að maður uokkui' hcfði stungið sér til sunds fram af Ingólfsgarðinum. Fói- lpgreglan á staðinn. og „veiddi" mánninn upp úr sjón- um, og fæi'ði hann á lögi'eglu- stöðina, Reyndist maðui'inn vei a ölvaður. Léeknii- var fenginn til þess að líta á manninn og taldi liann að honurn yrði okki meint af volkinu. Hann var þó í gxezlu i fangageymslu lögi'eglunnai', meðan honum var að hitna. Klukkan 9 í gærkvöldi var lög- i'eglunni tilkynnt um annaii mann, sem væi'i að svamla i höfninni. Ilafði sá faJlið niður á nxilli skips og bryggju, en ekki er vitað hvort þar var um ásetn- ing að i-æða eða hvort mannin- um hefur oi'ðið fótaskortur. Hann var einnig mjög ölvaður og var fluttur í lögreglustöðina og færð- ur í þui'r föt. Mun honum ekki hafa orðið neitt meint af volk- inu. farþegar á milli Reykjavkur og Hrunamannahrepps nú held- ur en á öllu árinu í fyrra. Á Þingvallaleið hafa farþega- Aðalfundur Varðal^ í kvöld. Landsmálafélagið Vörður held» ur aðalfund sinn í Sjálfstæðis- húsinu í kvöld, og hefst fundur- inn kl. 8.30. Þegar stjórnarkjöri og öði'iim venjulegum aðalfundarstörfum hefur vei'ið lokið, mun Ólafui' Thors forsætisráðherra flytja ræðu um stjórnai’samstai'fið. —- Mun hann í'æða það, sem flokk- arnir sömdu um að gera að verk- efnum sínum, er stjórn var mynd- uð, hvernig fi-amkvæmdir hefðit gengið og fi'amtíðai’horfur. Er áreiðanlegt, aðfélagsmenu' munu hafa áhuga á að hlýða á! ræðu forsætisráðherra, og verð- ur fundurinn vafalaust fjölsótt-* ur og fróðlegur. j Tvær íslenzkar leikkonur við nám í Svíþjóð. SkaiiMTihlaiftp varð af Isingu. Eins og getið var í Visi í gær, varð Reykjavík rafmagnslaus um kl. 10,30 í gærmorgun. Stafaði þetta af ísingu og seltu, sem settist á víra og einangrara. Var gripið til Elliðaárstöðvarinn- ar til að dreifa orku um bæinn, og síðan til gömlu Sogslínunnar, þar sem skammlilaup hafði oi'ðið í tengivirki við Elliðaár. Viðgerð var lokið að fullu um kl, 2 í gær. Hafa fengSð sænskait ríkisstyrk fif dvafarinitar Einkaskeyti til Vísis. Stokkhólmi í gær. Tveir ágætir fulltrúar íslenzkr ar leikmenningar dveljast í Stokkhólmi um þessar mundir, Bryndís Pétursdóttir og Sigríður Hagalín. Þær hafa, eins og kunnugt er, fengið ríkisstyx'k til þess að kynna sér leildist og ætla að kynna sér sænska leiklist svo sem unnt ei'. Þær segjast þegax' hafa séð og lært margt og kveðast vera mjög hrifnar af sænskri leiklist. Við ætlum bráðum til Gautaborgar og við hlökkum mikið til að sjá þar, eina kvenleikhússtjórann í Svi- þjóð, hina frægu leikkonu Kai'itv Kavli, sem meðal leikara sinna hefur hinn unga og mjög nm- deilda leikara Per Oscarson. Það. an ætlum við til Halsingborg 03 Malmö, en á báðum þeim stöðuxn eru góð leikhús og ágætir lefk. arar. j

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.