Vísir - 20.01.1955, Síða 8
VlSTK er ódýrasta blaðtS og |»ó J>a5 fjöl-
breyttasta. — HringtJf í síma 1660 og
gerist áskrifendur.
IÞeir, sem gerast kaupendur VÍSIS eftir
10. hvers œánaðar, fá blaðið ókeypis tíl
mánaðamóta. — Sími 1660.
Fimmtudaginn 20. janúar 1955
rg slys og árekstrar
ötum Reykjavíkur í gær.
Maður verður bráðkvaddur á götu.
f gær var allmikið um
slys og árekstra hér í bænum
og meðal annars var slökkvi-
liðið í fjórum tilfellum beðið
xim sjúkrabifreið til þess að
flytja slasað fólk.
Fyrsta slysið varð í gær-
morgun um hálf ellefu leytið á
Hverfisgötu, en þar ók bifreið
á 6 ára gamlan dreng. Dreng-
urinn var fluttur í sjúkrabif-
reið í Landsspítalann, en
meiðsli hans ekki talin mikil.
Rétt fyrir kl. 5 í gærdag
varð aldraður maður fyrir
bifreið á mótum Klapparstígs
og Skúlagötu. Maður þessi
lilaut skurð á höfuð og hendi
og var fluttur í Landsspítalann
til aðgerðar, en heim til sín
síðan, enda töldu læknar
meiðsli hans ekki alvarleg.
Kona varð fyrir bifreið á
rmótum Lönguhlíðar og Miklu-
ibrautar um átta leytið í gær-
'ÍKveldi. Hlaut hún sár á höfuð,
en að öðru leyti eklii talin
•alvarlega meidd. Hún var flutt
i Landspítalann.
Loks meiddist drengur, lík-
Jega á skautum, fyrir framan
-Slökkvistöðina. Mun drengm'-
inn hafa snúist á fæti og var
hann fluttur heim til sín.
Mikil hálka var á götum
ibæjarins fram eftir degi í gær,
~og orsakaði hún allmargá bif-
reiðaárekstra, en ekki er talið
-að þeir hafi orðið stórvægilegir.
".I einum árekstrinum lentu
jprjár bifreiðir.
Maður verður
Vbráðkvaddur.
Síðdegis í gær, eða laust eftir
ikl. 6 var lögreglunni tilkynnt
að aldraður maður hefði hnigið
:niður á mótum Grettisgötu og
Vegamótastígs og væri hann
sýnilega aðframkominn. Þegar
lögreglan kom að manninum
virtist hann örendur og stað-
festu læknar það, er komið var
með manninn á Landspítalann.
Maður þessi hét Magnús Þor-
steinsson, til heimilis að Fjöln-
isvegi 18 og var hann áttræður
að aldri.
Bíll brennur.
Um hálffimmleytið í nótt
komu tveir menn á lögréglu-
stöðina og tjáðu logreglunni
að þeir hafi þá skörainu áður
verið á ferð uppi við Selás þar
sem þeirf sáu bifreið standa í
björtu báli. Þessi bifreið mun
hafa gereyðilagzt í eldinum.
Þrjóskaðist við kall
lögreglunnar.
í gær bar það til tíðinda að
maður, sem kvaddur hafði ver-
ið til yfirheyrzlu hjá fulltrúa
Sakadómará, en þrjóskast við
að mæta var handtekinn af
götulögreglunni. Hafði um-
ræddur maður ekki sinnt
kvaðningu Sakadómarafull-
trúans þrátt fyrir ítrekuð til-
mæli. Var þá götulögreglan
send eftir honum í gær, en hann
þrjóskaðist enn og neitaði að
fara. Kom þá til slíkra átaka
að lögreglumennirnir urðu að
setja manninn í handjárn og
flytja hann í hegningarhúsið.
Alþjóðalið til
eftirlits.
Einkaskeyti frá AP. —
Washington í gaer.
Eftirlitsnefnd Vesturálfuríkj-
anna er komin til Managua í
Nicaragua, eftir að Siafa dvalist
við athuganir í Costa Rica frá
’því fimmtudag s.l.
Á grundvelli skýrslu þeirrar,
sem nefndin hefir samið að
loknum athugunum sínum í
| Nicaragua, verður alþjóða-
’ gæzlulið haft um sinn á landa-
i mærum Costa Rica og Nicara-
■ gua. Var það samþykkt á fundi
ráðs Vesturálfuríkjasamtak-
1 anna, en að þeim standa 21
lýðveldi, og var samþykktin
gerð einróma. Ráðið samþykkti
einnig að veita Costa Rica
frekari hernaðarlega aðstoð,
þar sem vamarlið þessa lands
á enn í höggi við innrásarlið í
norðurhluta landsins.
Bandarísku flugmennirnir,
sem flugu Mustang-orustu-
flugvélunum 4 til Costa Rica,
verða þar viku tíma, til þess að
kenna flugmönnum Costa Rica
meðferð þeirra.
Hæsta aldursftokki
fjölgar örast.
London (AP). — íbúatala Eng-
iands og Wales nálgast hægt og
bítandi 45. milljónina.
Áætlað er, að mannfjöldi hafi
yaxið um 184 þús. fyrri helming
síðasta árs, og hafi verið 44.480.-
000 fí. 30. júni. En aldursflokkur-
inn, sem f jölgun varð mest í, var
fólk yfir (55 ára að aldri.
*
Irak tekur ekki þátt í
Kairoráðstefnunni.
Pakistan fagnar samvinnu Tyrklands
og Iraks.
Einkaskeyti frá AP. ráðherrann tekur ekki þátt í
London í morgun. j henni. Ekki hefur fengist stað-
Fregnir frá Ankara herma, að festing á, að sendiherra Iralcs
.Wlenderes forsætisráðherra hafi hafi farið fráin á, að ráðstefn-
sagt, að Tyrkir óski ekki eftir að unni verði frestað.
apifla samvinnu Arabaríkjanna á
Bridgekeppni TBK.
Fyrsta umíeúð í sveitakeppni
í bridge hjá Tafl- og bridge-
klúbb Reykjavíkur fór fram í
gær.
Uslit urðu þessi, og eru nöfn
fyrirliðanna talin:
Ámundi ísfeld vann Björn
Benediktsson, Guðmundur
Daníelsson vann Gísla Hafliða-
son, Benóný Magnússon vann
Þorvald Matthíasson, Jónas
Jónasson vann Jón Magnússon,
en jafntefli gerðu Ingólfur Ól-
afsson og Sófus Guðmundsson.
Næsta umferð verður í Breið-
firðingabúð nk. mánudagskvöld
klukkan átta.
ookkurn hátt, og það sé ekki af
óvild til Arababandalgasins, að
Tyrkir hafi unnið að öryggissátt-
mála milli Tyrklands og Iraks.
'Pólitískur lasleiki?
Afstaða Pakistans
í varnarmáliim er hin/ mikil-
vægasta. og hafa Tyrkland og
Pakistan treyst .samvirinuna sin
:i milli með örvggissáttmála. •—
Forsætisráðherra Pakistans. sem
Forsætisráðherra (raks hefur ■ er á förum á samveldisráðstéfn-
'tilkynnt, að hann geti ekki sótt una i London, sagði í gærkveldí,
Kairoráðstefnuna á laugardag, að haxin fagnaði samvinmi Tyx-k-
vegna lasleika, en Nasser forsœt- lands og Iraks. Hann lét í Ijós
isráðherra boðaði til þeirrar ráð- von um, að fá tækifæri til að
-«tefnu einmitt vegna öryggissátt- roéða við Nasser forsætiaráðhérra
mála Tyrklands og Traks, og vek- er hann kemur við í Kairo á leið-
>"íjr það því athygli. að forsætisf inni til Lóndon.
Skipverjar áttu
aó greióa sekt-
ina.
Brezk blöð segja frá því,
að togarasjómenn í Ostende
í Belgíu hafx nýverið gert
verkifall, sem stóð í átta
daga, og voru tildrögin ó-
venjuleg. Höfðu útgerðar-
rnenn dregið af launum sjó-
mannaiina til að greiða sekt,
sem togari hafði verið
dæmdur í hér við land, én
þá gerðu samtals 80 sjómenn
verkfhll, og lauk því ekki
fyrr cn útgerðarmennirnir
tilkynntu, að ekki mundi
veiða dregið af launum
þeirra framvegis.
Vísitalan 161 st.
Kaupgjaldsnefnd hefir reikn-
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. jan. sl.,
og reyndist hún verá 161 stig.
(Frá viðskiptamálaráðuu.).
Chiang gegn vopnahléi.
Athyglisverð breyting á Kínastefnu
Bandarikjastjórnar.
Einkaskeyti frá AP.
London í morgun.
Fuiltrúi kínversku þjóðernis-
sinnastjórnarinnar á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna, sagði í gær,
að hún myndi aldrei fallast á til-
lögur um vopnahlé, en Eisenhovv
er Bandaríkjaforseti sagði í gær,
að hann væ.ri hlynutur því að
slík tilraun yrði gerð.
Eru þessi ummæli talin
benda til mikilvægrar stefnu-
breytingar Bandaríkjastjórn-
ar gagnvart Kína, og muni það
ef til vill á einhvern hátt
tengt tilraununum ti! að koma
því til leiðar, að bandarísku
föngunum verði sleppt, og að
horfur geti batnað í Asíumál-
um yfirleitt.
Forsetínn sagði enn fremur, að
ekki væri hægt að líta svo á, að
ferð Hammarskjölds hefði eng-
an árangur borið, þegar slikur
maðiir teldi að miðað hefði í
rétta átt á viðræðufundunum í
Peking.
í Moskvu hefur verið gefið í
skyn, að á bak við tjöldin muni
raett um aðild hins kommúnist-
iska Kína að samtökum Samein-
uðu þjóðanna á þessu ári, og
muni ]>að mál hafa borið á góma,
er þeir ræddust við i Peking
Hammarskjöld og Chou En-Lai.
Getur spillt horfunum.
En 'þótt nienn telji samkomu-
lagshorfur hafa batnað, að vissu
leyti, veldur það jafnframt á-
hyggjum, að átökin milli þjóð-
ernissinna og kommúnista fara
harðnandi. Kommúnistar hafa til-
kynnt, að þeir muni taka Tachen-
eyjar hverja af annarri, en For-
mósastjórn hefur hafið miklar
gagnárásir á sldp og land komin-
únista, þar sem þeir draga að sér
skip og lið til innrásar á fyrr-
nefndar eyjar og Formósu sjálfa.
Brezku skipi sökkt.
1700 lesta brezku flutninga-
skipi var sökkt i einni slíkri
árás í gær, en skipshöfnin slapp
öineidd.
Verkakontvr fá
kauphækkun.
Samningar hafa verið undir-
ritaðir milli verkakvennafélag-
anna í Reykjavík og Hafnarfirið®
annarsvegar og vinnuveitenda
hinsvegar. Kaup hækkar sam-
kvæmt liinum nýju samningum.
Samkvæmt kjarasamningum
félaganna eru þeir ekki upp-
segjanlegir fyrr en 1. maí, en
þá er heimilt að segja þeim upp
með mánaðar fyrirvara. Stjóm-
ir félaganna óskuðu þess, að
eiga viðræður við stjórn vinnu-
veitendafélagsins, og var það
auðsótt.
Af samningunum leiðir kaup-
hækkun í ýmsum greinum. Qll
almenn vinna hækkar úr kr.
6.60 í 7 kr. eða kr. 10.49 upp x
kr. 11.13.
Tito, forseti Júgóslaviu,
sem að undanfömu hefir
ferðast um Asíulönd er nú
lagður af stað hehnleiðis á
skipi sínu.
Margþætt starf Húsmæðra-
félagsins sl. 20 ár.
Efnt til afmælishófs á mánudagskvöld.
f næstu viku, þriðjudaginn 25. |
þ. m. verður Húsmæðrafélag
Reykjavíkur 20 ára.
Félag'ið var stofnað á þeim
tíma, sem óánægja Reykvikinga
náði hámarki út af mjólkurmál-
ununi, en það var þegar Mjólkur-
félag Reykjavíkur var la'gt niður
og Mjólkursamsalan stofnsett.
Reykviskar konur höfðu þá |
forgöngu urn mjólkurverkfall og
stóð það í 5 daga. En þær konur,
seru stofnuðu til mjólkurverkfalls
ins ákváðu að halda samtökum
sínum áfram enda þótt starfssvið
ið yrði á öðrum grundvelli.
Skommu síðar gengust þessar
konur fyrir því að fátæktun kon-
tini og börntim gæfist kostur á að
dvelja i sveit og hvíla sig frá
önnum daglegs lífs og strits nokk
urn tírna úr sumrinu. 1 þessu
skyní tók félagið bæði hús á leigu
og liyggði sitt eigið hús og hafði
urn skeið þrjár byggingar utan
Reykjavíkur til umráða. Dvöldu
þar allmargar konur og fjöhnörg
börn-.og gaf starfsemi þéssi hina
beztu raun.
Síðustu árin hefur starfsemi
Húsmæðrafélags Reykjavíkur
færst aðallega inn á það svið að
efna til námskeiða fvrir ungar
stúlkur og verðandi húsmæður
bæði í matargerð og saumi. Uxn.
nokkurra ára skeið, eða frá því
ai-ið 1949 liefur félagið fengið
rúmgott húsnæði til umráða
í Rorgartúni 7 og þar hefur fé-
lagið mjög fært út kvíarnar og
rekið starfseminá með miklum.
myndarbrag. Kennarar félagsins
eru nú þær Hrönn Hilmarsdótt-
ir í matargerð og Iielga Finns-
dóttir og Fanney Friðriksdóttir
i saúmi.
Félagar eru 250 og er frú Jón-
ína Guðmundsdóttir formaður,,
en hún hefur verið í sfjórn fé-
lagsins frá stofnun þess. Aðrar
konur í stjórn eru þær Inga
Andreassen, vSoffia Ólafsdóttirff
Margrét Jónsdótir, Guðrí'm Ól-
afsdóttir, Þórdís Andrésdóttir og
Þóranna Símonardóttir.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
minnist afmælisins með hófi í
Þjóðleikhússkjallarantiin n.k.
mánudagskvöld kl. 7.