Vísir - 23.02.1955, Page 6
vtsnt
Miðvikudaginn 23. febrúar 1955.
D&GBLAÐ
Ritstjóri: Hersteiim Pálsson.
Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson.
Skrifstofur: Ingólfsstrœti 3,
Algreiðsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1860 (fimm linur).
Otgefandi: BLAÐAtJTGÁFAN VÍSIR H.F.
Lausasala 1 króna.
Félagsprentsmiðjan h.f.
Vetrarkorkur á Norðnrlamfi.
Saircifökgi&omSur, hasbonn, vatnsþtrrð,
ffostbörkia*.
Ný tógregítisted.
Nú virðist hilla undir það, að ný lögreglustöð verði reist hér(
í bænum, og munu menn, sem hafa hugleitt þetta mál,
segja sem svo, að ekki hafi verið vanþörf á að hefjast handa í
þessu efni. En hinu er heldur ekki að leyr.a, að í mörg horn
hefur verið að líta á undanförnum árum, að því er fram-
kvæmdir fyrir hið opinbera og almenning hefur snert, og af
því a'ö lögreglan hefur ekki verið alveg á götunni, hefur ekki
verið gengið að því með oddi og egg að koma upp yfir hana
sómasamlegri byggingu. Staðarvalið hefur einnig valdið nokkr-
um töfum, því að ekki er hægt að staðsetja lögreglustöðina
hvar sem er, því að hún verður að vera á hentugum stað mið-
svæðis, meðan ekki er horfiö að því ráði að hafa margar smærri
víðsvegar um bæinn, en ao því kann auðvitað að reka, ef bær-
inn heldur áfram að þenjast út eins gífurlega og ört, og hann
hefur gert upp á síðkastið.
I Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur skýrt Vísi svo frá, að
ætlunin sé að reisa hina nýju lögreglustöð í áföngum. Virðist
það fyrir marga hluta sakir heppilegast, að hægt sé að taka
bygginguna í notkun smám sarr.an, en að reisa allt báknið í
einu og verða að bíða hver veit hvað lengi eftir að unnt sé áð
taka hana í notkun. í þessu efni verður það sjónarmið að
ráða, að ekki er unnt að reisa bygginguna alla í einu, því að
fé er ekki fyrir hendi, þegar jafnframt þaff a'ð hugsa fyrir
ýmsum öðrurn mannvirkjum, sem er einnig aðkallandi að reisa.
Þess hefur einnig verið getið, að í þeim hluta hinna vænt-
anlegu lögreglustöðvar, sem fyrst verður ráðizt í að reisa,
muni verða fullkomin fangageymsla, sem kemur þá í stað
kjallarans undir núverandi lögreglustöð. Hefur það oft og
margsinnis verið gagnrýnt, hvernig aðbúð þeirra manna er, sem
lögreglan verður að hafa þar í haldi, og þar hafa einnig komið
fyrir hörmuleg óhöpp, sem ástæðulaust er a'ð' rifja hér upp,
en þau hafa jafnan vakið menn til umhugsunar um það, að
bæta þarf geymslu þá, sem lögreglan hefur til skyndiafnota.
Lögreglunni er vitanlega ljóst eins og öðrum, að gera þarf
ufnbætur á þessu sviði, en ekki verið unnt úr a'ð bæta. Á hinn
bóginn er lögreglunni nau'ðsyn að hafa eitthvert húsnæði til
að geyma þá menn, sem ekki þykir rétt að hafa á almanna-
færi um hríð af einhverjum ástæðum, og því var á sínum
tíma gripið til þess ráðs að útbúa fangaklefa í kjallara lög-
areglustöðvarinnar.
Lögreglan hefur um langa hríð verið hornreka. að bví er
fiúsnæði snertir, og var því tími til kominn, að úr yrði bætt. Þess
er og að vænta, að hún verði á margan hátt færari um a& gegna
þjónustu sinni í þágu öryggis bæjarbúa þegar hin nýja bygging
verður tekin í notkun að einhverju leyti. Hún hefur mikil-
vægu hlutverki að gegna, sem kosta verður kapps um að
gera henni fært að inna sem bezt af hendi. Það tekst m. a.
með þvi að bæta starfsskilyrði hennar með nýrri bækistöð.
Styrkjra lasiía krossisn.
TT'ins og mörg önnui1 mannúðarfélög hefur Rauði kross íslands
helgað sér tiltekinn dag á ári hverju, þegar leitað er tii al-
mehnings, og hann beðinn að hlaupa undir bagga með nokkru
fjárframlagi. Rauði ki-ossimi starfar fyrir almenning, og þess
vegna er það skylda almennings, að hann rétti félaginu hjálp-
ar hönd. Það bendir mönnum á, að það óski hjálpar þeirrar
í dag. Á morgun geti svo farið, að þéir hinir sórriu þurfi á
hjálp Rauða krossins að halda.
Frá fréttaritara Vísis. —
Akureyri í gær.
Um langt skeið hafa ríkt
kuldar liér norðanlands <og
snjór hefur sumstaðar váldið
samgöngrutöfum, einkum í
Þingeyjarsýslu.
Nokkur bót í máli er þó að
tveir snjóbílar hafa haldiS uppi
stöðugum ferðum í nokkuru.m
hluta Þingeyjarsýslu, þar sem
öðrum bílum hefur ekki verið
komið við, og þar með bætt ur
brýnni þörf. Eins og áður hef-
ur verið skýrt fr.á,. sendir
Kaupfélag Þingeyinga snjóbí'i
alltaf cðru hverju upp í Mý-
vatnssveit til þess að sækja
þanga'ð rjóma, en leiðin til
Mývatnssveitar er ófær öll’um
öðrum bílum en sjóbílum,
Snjóbíll f'rá Kaupfélagi Þing-
eyinga hefur einnig farið
nokkurar ferðir yfir Reykja-
heiði bæði með póst og farþega.
en snjóbíll frá Akureyri haldið
uppi ferðum yfir Vaðlaheiði
einnig með póst og farþega, og
stundum farið allt austur að
Breiðamýri í Reykjadal,
I Köldukinn í Þingeyjarsýslu
er mjög erfitt um samgöngur
um þessar mundir, vegna
snjóalaga á vegum. Siðustu
dagana hefur þjóðvegurinn
verið ruddur til þess a5 bæta
úr samgönguþörfinni, : og þá
fyrst og fremst vegna mjólkur-
flutninga um sveitina. Hafa
bændur víða orðið að flyíja
mjólkina á sleðum í veg fyrir
mjólkurbílana.
Milli Dalvíkur og Akuréyrar
hefur v.erið illfært að undan-
förnu. Hafði vegurinn verið
ruddur fyrir nokkru og við það
myndazt traðir víða, en síðan
fennt í þær, svo vegurinn var
illfær orðinn. Síðustu dágana
hefur vegurinn verið rudduf að
nýju. Fara bílar annan hvérn.
dag með mjólk til Akureyrar og
flytja 4—5 þús. lítra 1- hverri
ferð.
I Bárðardal í Þingeyjarsýslu
hafa verið óvenju mikil frost
eins og annars staðár norðan-
lands og hafa þau m. a. orsakað
að Skjálfandafljót hefur lágt
alla leið frá Lundarbrekku og
norður að Kálfborgará. Er það
næsta óvenjulegt að Skjálf-
andafljót leggi þannig nema í
mjög hörðum vetrum. Hesta og
sleðafæri er sæmilegt, og sækja
bændur nú hey sín á sleðum
austur á Fljótsheiði. En austur
á Fljótsheiði heyja bændur úr
Bárðardal flest sumur og
g'eyma heyin þar fram á vetur.
í Laxárdal í Þingeyjarsýslu
hefur verið stirfin tíð um skeið,
hríðað nokkuð og verið á hörku
frost, alit upp í 27 stig. Snjóa-
lög eru nú þannig að hörð skel
veldur það hagleysu í dalnum.
í Ólafsfirði er farið að bera
á vatnsþurrð við rafstöð bæj-
arins og veldur það rafmagns-
skorti. Hefur orðið að taka
rafmagnið af tvívegis á hverj-
um sólarhring, annars vegar frá
kl. 12 til 4 e.h. á daginn og
hinsvegar frá kl. 12 á miðnætti
til kl. 7 á morgnana. Þetta hef-
ur þó ekki dugað til, því þurft
hefur að taka hjálparstöð til
liefur myndast á honum og
aðsto&ar.
Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika
af völdum frosta norðanlands,
er þó ekki svo með öllu illt
að ekki fylgi nokkuð gott. —
Þannig fagna Akureyringar
skautasveliinu sem komið hef-
ur verið. upp á íþróttavelli
bæjarins. Var byrjað að veita
vatni á 'völlinn um' áramótin
óg síðan hefur því verið dælt
yfir hann oðru hvoru. En sök-
um va.tnsskorts í bænum hef-
ur ekki verið unnt að halda
svellinu eins. vel við og þyrfti.
Hefur skautasvæðið verið mik-
ið sótt af ungum sem gömlum,
' enda er skautaíþróttin eftir-
lætisíþrótt Akureyringa. — Á
kvöldin ef svæðið upplýst og
utvarpað hljómlist gegnum
hátalara,
Skautafélág Akureyrar og
íþróttabandalag Akureyrar sjá
um rekstur og framkvæmdir,
en auk þess veitir svo bæjar-
stjórnán 5 þús. kr. til þess að
veita vatrii á skautasvæðið. —
Nokkurra tekna er aflað með
því að selja aðgangseyri að
vellinum og er daggjaldið 2
krónur fyrir fullorðna og 1 kr.
fyrir börn.
Bíógestur skrifar Bergmáli:
„Það mun liafa veri'ð gert að
umtalsefni í dálkum Bergmáls og
cf til . vili víðar, að hegðun manna
á samkomustöðum væri ekki slík
sem skyldi i seinni ti'ð. Mér er
ókunnugt um hegðun manna á
danssamkomum, en iðuiega birta
blö'ðin fregnir, sein bera með sér
uð ýmsir hegða sér illa á slík-
um stöðtim, og er á því auðfeng-
in skýring, -þegar um ölvaða
menn er að ræða. Af ölvuðu fólkí
er gkki góðrar .hegðUnar að
vierila. - ■" ’•■ ■
Á liitt má ef’ til vill benda, að
hegðan manria í kvikmyndahús-
um er stundum allmjög ábóta-
vant, og verður þess einkum vart
á síðdegissýningum,;. að ég hygg.
Má- þar til nefna, að i hléi kemur
|það eigi ósjaidan fyrir í sumum
, kvikmyndahúsum, að menn leyfa
sér að kveikja i sígarettum inni
í sýningarsal, þótt slikt sé strang-
lega bannað.
Strangara eftirlit.
Hér þarf augljóslcga strangara
eftirlit, bæði vegna þess, að hér
getur verið um eldhættu að ræða,
að sætaáklæði sliemmist af neist-
um eða glóð úr sigarettum, og
vegna kvi k myndahúsgesta yfir-
leitt, sem fellur illa að sitja í
réykhafi á kvikinyndasýningum
Banninu við reykingum ber vissu
lega að framfylgja stranglega, og
menn ættu sannarlega að geta
sætt sig við, að fara fram í and-
dyrið í liíéi, og reykja þar. Það
gera vitanlega langflestir, en
haldist inönnurii uppi að byrja
þessu, mun þess skammt að bíða;
að erfitt verði að girða fyrir
þetta,
Köll og læti.
Þá hefur það þrívegis komið
fyrir í seinni tíð, er ég hef verið
á siðdegissýningu, að menn gátu
ekki notið sýningar vegná þess,
að imglihgar voru með köll og
hróp, stilltu og vel siðuðu fólki
tii mikiJs leiða. Það'*voru ung-
lirigar (piltar), sem þannig hög-
u'ðu sér, en aðrir reyndu að þagga
niSitr í þeim, og fengu óþvegin
svör. Ekki veit ég, livort y-in var
í þiítuni þessum, og má vera, að
svo liafi eigi verið, heldur að um
óþroskaða pilta hafi verið að
ræðá. seiri liafi ætlað að Vekja
athygli á sér, en ekki athugað,
að ménri hafa álmennt skömm á
slíkri frarukomu. — Bíógestur."
Bíogestur hefur þá lokið bréfi
siriu. — kr.
Landssmiðjan hefur smíði
tveggja 40 iesta vélbáta.
Asaiaar ffer tfil KJiápavíkiii*, IiJei n
m SáSaváltJHr.'
t Víða um hclm er Rauði krossinn sannkalíað 'stórveidi.
Hann hefur innan-vébanda sinna mikinn fjöldá manna, sém
vinna fyrir hann mikið og óeigingjarnt starf, og auk þess
getur hann ævinlega tre-yst liðveizlu álls alménnings, þegar
mikið liggur við. Ekkert skal um það fullyrt, hversu stór og
öflugur Rauði krossinn hér á landi er í samanburði við sömu
samtök með öðrum þjóðum, en íslendingar hafa þó oft sýnt í
verki, að þeir kunna að meta störf hans og vilja veita honum
stuðning, Og aðrar þjóðii- einnig fundið, að íslendingar vilja
veg Rauða krossinn sem mestan. Við skulum sýna það enri í
dag, að íslendingar vilja veita mannúðarsamtökum brautar-
gengi nieð því áð .kaupa. m^rkl hai)^. C5g!iStyðja,l>anri,:aav
Jeyti eftir föngum.
Fyrir skemmstu hóf Lands-
smiðjan smíði á tveim. vélbátúni
og verður henni væníanléga
loiúð seirit á þessu ári.
Eins og Vísir héfir áður greint
frá, hefir Landssmiðjan verið
athaí’násöm um bátasmíðar
I undanfai’ið, m. a. -smíðað. báta
. fýrir Vestfirðinga, er hafa
| reynzt mjög vel. Þetta eru 40
(lesta bátar, gerðir eftir teiicn-
jingu Egils Þorfinnssonar 1
Keflavík.
Er verið að reisa böridin í
hinum nýju bátum, en eigendur
þeirra eru Sigurður Pétursson,
Djúpavík, og nýstofnað útgerð-
arfélag í, Súðavík. 64-12;<maims
vinna við smíðamar.
Næsta verkefni Landssmiðj-
unnar á sviði skipasmíða verður
syo niðursetning véla í nýja
varðbátiirii, sem verið er að
smíða fyrir Norðlendinga, svo
Og innréttingar í það skip,- eri
það verður gert án þess að taka
skipið á land.
Þá má geta þess, ,skv. upp-
lýsingum Jóhannésar Zoéga,
förstjóra Landssmiðjunnar, að
verið er að reisa stálskemmu
mikla í fiskverkunarstöð Bæj-
arútgerð . Reykjavíkur, og er
það stærsta skemma, sem
Landssmiðjan hefir - reist, : um
5110öViférmeíírar;;iSkemma:' þessi
verður notuð sem fiskgeymsla.
ix manita
skyfcfo fórst
N. York (AP). — Borgar-
stjóri New York-borgar hefir
bánnað notkun olíuvéla til hit-
nnar í húsum í borginni.
Er bánnið rökstutt með því,
að undanfarið hafi nærri hálft
hundrað bórgarbúa beðið bana
af eldsvoðúm, ér kvikhuðU með
þeini hætti, að olíuyélar
sprungu. Ekki alls fyrir íöngu
biðu til dæmis sex manns í
sömu fjölskyldu — þar af þrjú
börn —- bana, er slík oliuvél
sprekk og íbúðin varð sam-
stundis alelda.
Handknattleiksmeistai-amót
íslands í handknattleik heldur
áfram í kvöld. Þá keppa í III.
fl. K.R. og Þróttur., í meistara-
flpkki Valur og Í.R. og* K.U.
og Fram.