Vísir - 03.06.1955, Síða 10

Vísir - 03.06.1955, Síða 10
TST* 10 VlSIR Föstudaginn 3. júní 1955. - t; Emíle Zola: ÓVÆTTURIN. 29 að koma upp um það, hvernig rannsókn hans var búin að taka .nýja stefnu. En rétt á sama augnabliki rak vörðurinn höfuðið .gegnum gættina. Áður en hann gat komið upp nokkru orði, ýtt hönd í glófa hurðinni upp á gátt og ljóshærð kona i vel saumuðum sorgarklæðum gekk rakleiðis inn. Hún var komin ■yfir fimmtugt, en þó fögur enn, hraustleg og sælleg eins og öldruð gyðja. — Kæri dómari, hér er eg komin! Þér fyrirgefið mér fyrir að 3roma of seint, er það ekki. Vegirnir eru svo dæmalaust vondir, •»að leiðin frá Doinville virtist helmingi lengri en hún er í raun -og veru. Monsieur Denizet reis kurteislega á fætur. — Hvernig hefur yður liðið, kær frú, síðan eg hitti yður á Æunnudaginn? — Mér hefur liðið ágætlega. Og hvað er af yður að frétta? ZÉruð þér búinn að jafna ýður eftir óhappið, sem ekillinn minn var valdur að? Hann sagði mér, að hann hefði næslum verið Tbúinn að velta vagninum, þegar hann átt mílu eftir til hall- Ætrinnar. — Nú, mér brá bara dálítið óþægilega, það er allt og sumt. ?Eg var alveg búinn að gleyma þessu. Gerið þér svo vel að fá yður sæti. Eins og ég var að segja við frú de Lachesnaye, þá jþykir mér fyrir því að vekja sorg yðar aftur með því að kalla ;yður hingað. — Nú, úr því að það er nauðsynlegt . . . Komdu sæl, Berta. Sæil vertu Lachesnaye! Síðan kyssti frú Bonnehon frænku sína og heilsaði manni hennar með handabandi. Frú Bonnehon var koma efnuð, því að auk þess sem hún átti höllina í Doinville haíði henni tæmzt mikill arfur þrjátíu árum áður, þegar maður hennar, sem var -efnaður verksmiðjueigandi, sagði skilið við þenna heim. Þaðj var haft fyrir satt, að hún hefði átt fjölda elskhuga síðan, en annars var hún svo blátt áfrám, að hún var framarlega í sam- kvæmislífinu í Rúðuborg. Við og við hafði hún átt vingott við • dómara borgarinnar, og í tuttugu og fimm ár höfðu helztu menn úr þeirri stétt verið meðal gesta hennar. Þótt hún væri nú komin yfir fimmtugt, lét hún aldurinn ekki á sig fá. Það var '.sagt, að hún hefði tekið ungan lögfræðing, Chaumette að nafni, undir verndarvæng sinn, en maðurinn var sonur dómara. Hún bauð gamla manninum heim sí og æ, og vann um leið að því, að sonur hans hækkaði sem mest í tign, Henni hafði tekizt að •varðveita tryggð gamlas, ókvænts aðdáanda, monsieur Desba- .zeilles, sem var fróðastur manna í bókmenntum og auk þess ssæmilegt ljóðskáld. Árum saman hafði hans ævinlega beðið búið herbergi í höllinni í Doinville, og þótt hann væri nú kom- inn yfir sextugt, og svo gigtveikur, að hann gat ekki notið neinnar ánægju nema endurminninganna, var hann oft matar- gestur frúarinnar. Þótt ellin færðist nær frú Bennehon, stjórn- aði hún samkvæmislífinu af mikilli röggsemi. Það var aðeins á . síðasta vetri, að frú Lebbucq, falleg dökkhærð, þrjátíu og fjögurra ára gömul eiginkona dómara nokkurs, sem naut vax- andi álits, laðaði til sín fleiri gesti en frú Bonnehon. Af því .leiddi, að frú Bonnehon var ekki eins glaðlynd og áður, og minntist fyrri daga með söknuði. — Ef yður er það ekki á móti skapi, frú, mælti monsieur Denizet, — þá langar mig til að leggja fyrir yður nokkrar i spumingar. Hann var búinn að yfirheyra Lachesnaye-hjónin, en fannst þó) ekki rétt að láta þau fara. Þar við bættist, að heimsókn þessa tigna fólks hressti upp á andrúmsloftið í hinni leiðinlegu skrif- stofu hans, svo að þær voru eins og setstofa hjá yfirstéttar- fjölskyldu. Skrifarinn, sem fór sér aldrei óðslega að neinu, var reiðubúinn til að skrifa. — Það hefur verið minnzt á símskeyti, þar sem bróðir yðar var beðinn um að koma til Doinville, en við höfum ekki getað' fundið það. Senduð þér honum skeyti um þetta? Frú Bonnehon svaraði rólega og eins og hún væri í skemmti- legum samræðum. — Nei, það gerði eg ekki. Eg átti von á, að hann kæmi í heimsókn, en eg vissi ekki, hvenær hann mundi konfa. Hann kom ævinlega, án þess að gera boð,á undan sér, og venjulega seint um kvöld. Og af því að hann leigði sér oft vagn í Barentin og ók rakleiðis eftir fáförnum vegi til húss síns, vissum við oft ekki um komu hans. Stundum hittum við hann ekki fyrr en seint næsta dag, eins og hann væri aðeins nágranni, sem væri að koma í heimsókn. ... Já, í þetta skipti átti ég von á honum, af því að hann ætlaði að koma með tíu þúsund franka, sem hann skuldaði mér. Hann hlýtur að hafa haft þá fjárhæð á sér, og það er þess vegna sem eg hefi sagt frá upphafi, að hann hafi verið myrtur vegna peninganna. | Dómarinn lét nokkrar sekúndur líða, án þess að mæla orð, en spurði þá umbúðalaust: — Hver er skoðun yðar á frú Roubaud og manni hennar? Frú Bonnehon bandaði frá sér. — Nei, heyrið þér kæri monsieur Denizet, þér ætlið vonandi ekki að fara að snúa yður að þeim .... Séverine hefur alltaf verið inndæl stúlka, og mjög snotur einnig. Ef þér viljið endilega fræðast um skoðun mína, þá get eg sagt yður, að eg trúi því ekki, að hún eða mað- ur hennar geti gert neitt rangt. Monsieur Denizet kinkaði kolli og leit sigri hrósandi í áttina til frú de Lachesnaye, sem greip samstundis fram í. — Frænska, þú lítur alltaf of vægum augum á alla hluti! sagði hún. Frú Bonnehon svaraði blátt áfram, eins og hennar var vandi: — Taktu það ekki nærri þér, Berta. Eg veit, að við munum aldrei verða sammála um þetta atriði. Hún var alltaf full af fjöri og gáska, og ekki ætla eg að hallmæla henni fyrir það. Ég veit, hvað vakir fyrir þér og manninum þínum, en peninga- hugleiðingar hljóta að hafa stigið ykkur til höfuðs, ef ykkur fellur svo illa, að hún skuli hafa fengið La Croix-de-Maufras. Faðir þinn ól Séverine upp og gaf henni heimanmund, og það var ekki nema eðlilegt, að hann minntist hennar í erfðaskrá sinni. Hann leit í rauninni á hana sem dóttur sína. Góða mín, ef þá hefur hugboð um, hvað peningar eru ónauðsynlegir til að skapa hamingju....... Hann gat líka talið sig yfir þetta hafin, af því að hún hafði alltaf veiáð efnuð sjálf. Og þar sem hún var kona, er var bæði fögur og dáð, leit hún svo á, að ástin væri hámark hins góða í lífinu. — Það var Roubaud, sem minntist á skeytið, mælti monsieur de Lachesnaye þurrlega. Og ef ekki hefur verið um neitt skeyti að ræða, þá hefur dómarinn vaxla farið að tala um það við þau. Hvað hefur fengið Roubaud til að ljúga þessu? . 17. júní 1955 Þeir, sem hafa hugsað sér að sækja um leyfi til veit- ingasölu í sérstökum skálum eða tjöldum í sambandi við hátíðarsvæðið 17. júni, fá umsóknareyðublöð í skrifstofu bæjarverkfræðings, Ingólfsstræti 5, II. hæð. Umsóknir skulu hafa boi'izt nefndinni fyrir hádegi hinn 8. júní n.k. Þjóðhátíðameínd tictjhjjavíhur k kvöldvökunni. Gömul saga og ný. „Getur þú sagt mér hver var hugrakkari en Rikarður ljónshjarta, vitrari en Sókrates, fyndnari en Hol- berg og fegurri en nokkur filmshetja?“ „Nei, því miður. — Þá gátu get eg ekki ráðið . . . .“ „Það var fyrri maður kon- unnar minnar." Sacha Guitry sagði þessa smásögu nýlega í útvarp um hinn mikla málara Augguste Renoir, en hann bjó í litlu þorpi í Suður-Frakklandi. Málarinn kom í heimsókn til Parísar er hann hafði verið sæmdur merki heiðursfylkingarinnar frönsku. Spurðu þá ýmsir list- málarar hann að þvi, hvort honum þætti ekki vænt um að honum hefði verið sýndur þessi sómi. „Jú, reyndar,“ svaraði Re- noir. „Eg veit að minnsta kosti að járnbrautarstöðvarstjórinn heima verður argur yfir því.“ • Hinn kunni kímnihöfundur P. G. Wodehouse hefir nýlega sagt álit sitt á köttum og er það á þessa leið: „Kettir eru ákaflega sérgóðir og ánægðir með sig. Þetta kem- ur af því, að á Egiftalandi hinu forna voru þeir dýrkaðir sem goð. Þessu hafa þeir aldrei getað gleymt, og þeir álíta sig því hátt upp hafna yfir hinar vesælu mannverur, sem þeir neyðast til að dveljast hjá, eins og komið er.“ • Sacha Guitry var í filmsleið- angri sunnarlega í Frakklandi og’ kom þar í lítið kaffihús, sem ekki var sérlega glæsilegt. Hann spurði því veitingakonuna með gætni: „Hafið þér kaffi?“ „Kaffi höfum við að sjálf- sögðu.“ „Gott kaffi?“ „Já áreiðanlega gott.“ „Og sterkt?“ „Já, vitaskuld er það sterkt.“ „Jæja, þá ætla eg að fá bolla af kaffi.“ Kaffið kom og er leikarinn hafði fengið sér sopa spratt hann upp öskuvondur. — „Kallið þér þetta sterkt kaffi?“ „Vitanlega er kaffið sterkt. Þér sjáið sjálfur hver áhrif það hefir. Þér verðið æstur jafn- skjótt og þér hafið bragðað það.“ €. SuncuykA - imim - Skyndiárás dádýrsins kom Tarzan í fyrsta sinn hafði dádýr komið íilgerlega á óvart, og hann.féll við. Tarzan á kné, og þarna lá hann. En hann jafnaði sig fljótt, reis upp og vann á dádýrinu. Svo fékk hann sér góða máltíð, en að því þúnu lagði hann af stað.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.