Vísir - 26.10.1955, Side 10

Vísir - 26.10.1955, Side 10
10 VISIR Miðvikudaginn 26. október 1055 UjartaHA \nái Eftir Graham Greene. 34 út af fyrir mig. Læknirinn sagði þeim að gera eins og mér þóknaðist. Scobie sagði: — Eg get vel skilið, að þér vilduð ekki vera hjá Carter. Og þér þurfið ekki að segja nema eitt orð. Þá er eg farinn. — Eg vildi heldur að þér biðuð, þangað til búið er að blása af. Eg er ofurlítið kvíðin. Scobie hafði alltaf verið undrandi á þreki kvenna. Þessi kona hafði lifað það af að hrekjast í fjöru- tíu daga í opnum báti, og hún talaði um kvíða. Hann minntist þeirra, sem vélstjórinn hafði gefið skýrslu um: Þriðji stýrimaður og tveir óbreyttir sjómenn, sem höfðu dáið, og kyndarinn, sem hafði orðið brjálaður af því að drekka sjó og henti sér loks fyrir borð. Þegar eitthvað reyndi á, stóðu konurnar sig ailtaf betur én karlmennirnir. — Hafið þér hugsað ráð yðar? Ætlið þér aftur til Bury? — Eg veit það ekki. Ef til vill fæ eg atvinnu. — Hafið þér nokkra reynslu í starfi? — Nei, sagði hún og leit undan. — Það er aðeins ár síðan eg útskrifaðist úr skóla. — Kenndu þeir yður noklcuð? — Eg var bezt í handbolta, sagði hún. — Jæja, sagði hann — Eg held, að þér hafið ekki heilsu til að vera leikfimikennari. Eða haldið þér það? — Allt í einu leysti hún frá skjóðunni og varð skrafhreifin. Hún fór að segja honum frá handboltanum. (Sennilega hafði frú Carter ekki talað við hana um annað en fjörutíu dagana á opnum báti og þriggja vikna 'gamalt hjónaband hennar). Hún sagði: — Eg var í skólaflokknum í tvö ár. Eg hefði orðið fyrir- liði, ef eg hefði verið eitt ár í viðbót. Árið 1940 unnum við Roedan. Hann hlustaði á hana með mikilli athygíi, með ginglasið í hendinni, en regnið buldi á þekjimni. Hún sagði honum að skólinn stæði á balanum bak við Seaport. Þar var frönsk kennslukona, sem hét ungfrú Dupont og var mjög skapvond. Skólastýran gat lesið grísku alveg eins og ensku. Hún las Virgil.... — Ég man nú ekki betur en Virgill kvæði á latínu. — Æ, já. Auðvitað átti ég við Hómer. Ég var aldrei sérlega sterk í klassísku fræðunum. — Voruð þér góð í nokkru nema handknattleik? — Ég held ég hafí verið næst bezt í stærðfræði. Þó var ég aldrei sérlega góð í þríhyrningafræðinni. Á sumrin var oft farið til Seaport að baða sig og á hverjum laugardegi var farið í útilegu út á flatirnar. Stundum var farið á hestbak. Hann hlustaði eins og töfraður og hélt á ginglasinu í hend- inni, en saup ekki á því. Allt í einu var blásið af, en hvorugt þeirra tók eftir því. Hann sagði: — Og fóruð þér svo til Bury á leyfisdögum? Það kom í Ijós að móðir hennar hafði dáið fyrir tíu árum og faðir hennar vár prestur við dómkirkjuna. Þau áttu lítið hús á Angel Hill. Ef til vill hafði hún ekki verið eins hamingju- söm í Bury og í skólanum, því að hún vildi heldur tala um skólann en heimili sitt. Skyndilega greip hún fram í fyrir sjálfri sér og sagði: — Hvaða vitleysa er í mér að vera að segja yður frá þessu. — En mér þykir gaman að því. — Þér hafið ekki enn þú spurt mig um — þér vitið. — En hann vissi það fyrir, því hann hafði lesið skýrsluna. Hann vissi nákvæmlega, hversu mikill vatnsskammturinn hafði verið á mann í bátnum. Það voru tveir bollar á mann á dag í tuttugu og einn dag, en síðan hafði hann verið minnkaður ofan í hálfan bolla á dag. — En hvað ég er búin að tala mikið. Vitið þér bara hvað? Ég held ég geti sofið í nótt. — Hefur yður gengið illa að sofa? — í sjúkrahúsinu. heyrði ég andardráttinn allt í kringum mig. Fólk var að bylta sér, stynja og andvarpa. — Þér getið sofið róleg hér. Þér þurfið ekkert að óttast hér. Það er alltaf varðmaður á ferli. Ég skal biðja hann að gæta að húsinu. — Þér hafið verið svo vingjarnlegur við mig, sagði hún. — Frú Carter og öll hin voru líka svo vingjarnleg. Hún leit upp sínu hrjáða, barnslega andlit og sagði. — Mér þykir svo vænt um yður. — Mér þykir líka vænt um yður, sagði hann alvarlegur í bragði. Þau voru bæði gripin sams konar tilfinningum. Þau voru vinir, sem aldrei gátu orðið annað en vinir. — Góða nótt, sagði hann. — Á morgun skal ég koma með fáein frímerki í frímerkjabókina yðar. — Hvernig vitið þér um frímerkjabókina? — Það er mitt starf. Ég er lögreglumaður. — Góða nótt. Hann fór út í myrkrið og regnið, glaður og hamingjusamur. Frá klukkan hálf níu um morguninn til klukkan ellefu þurfti hann að fást við lítilsháttar þjófnaðarmál. Það voru sex vitni, sem hann þurfti að yfirheyra og hann trúði ekki orði af því, sem neitt þeirra sagði. Evrópsk vitni eru þannig, að maður annað hvort trúir þeim eða trúir þeim ekki. Þar er möguleiki að draga marklínuna milli sannleika og lygi að minnsta kosti er hægt að vita, hverjum til góðs glæpurinn hafi verið framinn. Ef ákæran varðar þjófnað og ekki er um tryggingu að ræða, hefur áreiðanlega einhverju verið stolið. En í þessu máli var allt á ringulreið. Það var ekki hægt að draga neinar marka- línur. Hann hafði þekkt lögreglúmenn, sem höfðu misst vald á sér, orðið taugaóstyrkir og það endaði með því, að þeir börðu vitnið. Þeir voru annað hvort sendir heim eða fluttir milli staða. Þetta hafði vakið mikið hatur þeirar á blökkumönnum. En á fimmtán ára reynslu sinni var Scobie löngu kominn yfir þetta hættulega skeið. Þegar hann nú stóð ráðþrota gagnvart allri þessari lygaþvælu, gat hann ekki annað en dáðzt að þessu fólk, sem varðist réttvísinni á svona einfaldan hátt. Loks var hann búinn að ganga frá þessu málum, eins og hægt var. Það vöru ekki fleiri mál á ákærulistanum. Þegar hann var orðinn einn í skrifstofunni, tók hann upp skrifblokk og bjó sig undir að skrifa Louise. Honum lét aldrei vel að skrifa sendi- bréf. Það var ef til vill vegna reynslu hans sem lögreglumanns, að hann átti örðugt með að setja nafn sitt undir nokkur ósann- indi. Og þegar hann ætlaði að byrja bréfið á Elskan mín, lá nærri, að hann kastaði upp. Hann vildi ekki skrifa, að hann saknaði hennar. En hann vildi ekki heldur skrifa að hann væri ánægður með hlutskipti sitt. Hann skrifaði: „Elskan mín! Þú verður að fyrirgefa, að eg skrifa þér aðeins stutt bréf. Þú veizt, 1 að eg er lélegur bréfritari. Eg fékk þriðja bréfið þitt í gær, þar sem þú sagðir mér að þú dveldist í vikutíma hjá vinum frú * Halifax skammt fyrir utan Durban. Hér er allt með kyrrum kjörum. Það var gefið hættumerki í gær, en það kom 1 ljós, ; að flugmanni hafði sýnzt hnísutorfa vera kafbátar. Nú er regn- j tíminn að sjálfsögðu byrjaður. Ungfrú Rolt, sem eg sagði þér ! frá í síðasta bréfi, er nú komin út af spítalanum, og þeir hafa sett hana í bragga bak við bílastæðið, meðan hún bíður eftir skipsferð heim. Eg mun gera allt, sem eg get til að láta henni líða vel. Drengurinn er enn þá í spítalanum, en honum líður vel. Eg held, að ekkert fleira sé að frétta. Tallitmálið dregst á lang- inn, — eg' geri ekki ráð fyrir, að neitt verði úr því að lokum. í, ^ Suffoughj* TARZAM Á kvöldvökunnl. Skoti einn hafði verið starfs- maður sömu stofnunarinnax í mörg ár, og dag einn kallaði forstjórinn hann fyrir sig og: sagði: „Nú er yfirmaður yðar að láta af störfum og eg hefi íxugs- að mér að hækka yður í tign og láta yður taka við starfi hans.‘s Skotinn komst allur á Ioft af ánægju og varð fyrst fyrir að spyrja, hvað laun sín hækkuðu þá mikið. | „Launin,“ sagði forstjórinn, „hækka ekkert að sinni, þér haf ið sömu laun og áður, en nú. fáið þér sérstakan snaga fyrir hattinn yðar í fordyrinu “ • Þear Pandit Nehru var á ferðalagi í So vétr ík junum, hitti hann í samkvæmi einu diplomat frá Vestur-Evrópu, jsem sagði við Nehru: | „Eg er mjög hrifinn af Asíu- mönnum. Það er aðeins eitt £ fari þeirra, sem mér fellur ekki við.“ „Nú, og hvað er það?“ spurði Nehru. „Það skal eg segja yður, þessi vani þeirra, að vera síbrosandi.,!: „Já,“ sagði Nehru, „en kannske myndi það breytast. ef Evrópumenn gæfu þeim minna tilefni til hláturs.“ • Fransmaður nokkur hefir um langt skeið gert athuganir á því, hve fólk tali hratt, og í því sambandi mikið hlustað á stjórnmálaumræður, fundi alls- konar og leikhús. Reiknast hon- um svo til, að menn tali nú mun hraðar heldur en fyrir stríðið. Árið 1938 hafi meðaltalið veriS 160 orð á mínútu, en sé nú 175 orð. I • I Nær sköllóttur maður kom inn til rakara og bað um klipp- ingu. Að henni lokinni stóð við- skiptavinurinn upp úr stóln- um og spurði hvað hann skuld- aði. j „Fimmtán krónur,“ svaraði rakarinn. | „Mér finnst það nú næsta dýrt við ekki meira hár, heldur jen eg hef.“ „Klippingin kostar heldur ekki nema 5 krónur, en fyrir leitina að hárum á höfðinu á yður tek eg 10 krónur og finnst það sannarlega ekki of mikið.,s 193® Fylgið þessari konu til aðseturs hvíta mannsins og farið vel með Jiana. Annars skuluð þið verða fyrir reiði Tarzans. Turo hneigði sig. — Skal gert, sagði hann. — En þér megið ekki fara frá mér, hrópaði Olga. — Þér eruð í góðum höndum, sagði Tarzan. Verið þér sælar. Töfralæknirinn beið með öndina í hálsinum eftir því að Tarzan færi. Hann þekkti leyndarmál í sambandi við þessa ungu konu og nú hafði hann ráðagerðir uppi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.